Morgunblaðið - 17.01.1981, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1981
Móðir okkar. + SOFFÍA BJARNADÓTTIR,
Hólagötu 7, Y-Njarövík,
andaðist aöfaranótt 15. janúar í Landspítalanum.
Guölaugur Borgarsson, Valgeir Borgarsson, Pétur Borgarsson.
Systir mín. + GUONY G. NIELSEN,
andaöist að heimili sínu í Kaupmannahöfn 14. þessa mánaöar.
Júlía Guönadóttir.
+
Eiginkona mín og móöir okkar,
ANNA ÓLAFSDÓTTIR,
Asvallagötu 6,
andaöist t Landspítalanum 16. janúar 1981.
Marinó Guömundason,
Olafur Marínósson, Guörún Marinósdóttír.
Móöir mín,
GUÐJÓNA KRISTÍN NIKULÁSDÓTTIR FORSTER,
Parma Ohio, USA,
andaöist þann 25. desember 1980. Jaröarförin hefur fariö fram.
Sigríóur Helgason.
SIGURGRÍMUR JÓNSSON
bóndi, Holti, Stokkseyrarhreppi,
lést 15. janúar á sjúkrahúsi Selfoss.
Börnin.
Stjúpfaöir minn,
ÞORKELL ÓLAFUR GUDMUNDSSON
frá Felli, Árneshreppi,
andaöist aö heimili sínu, Framnesvegi 58B, Reykjavík, fimmtudag-
inn 15. janúar.
Sólveig ívarsdóttir.
+
Eiginkona mín, móöir, tengdamóöir og amma,
MARÍA ÁRNADÓTTIR,
Bólstaó, Garðabæ,
lézt aö elli- og hjúkrunarheimilinu Sólvangi aöfaranótt 11. janúar.
Jaröarförin fer fram frá Garöakirkju mánudaginn 19. janúar kl. 2.
Guömundur Guömundsson,
Helga Guömundsdóttir, Ólafur Vilhjálmsson,
Bragi Guömundason, Katrín Karlsdóttir,
Árnheiöur Guömundsdóttir, Ágúst Hafberg
og barnabörn.
Minning:
Marel 0. Þórarins-
son Eyrarbakka
Fæddur 9. mars 1898
Dáinn 11. janúar 1981
í dag er gerð frá Eyrarbakka-
kirkju útför tengdaföður míns
Marels Oddgeirs Þórarinssonar,
Einarshöfn Eyrarbakka, en hann
varð bráðkvaddur að heimili sínu
11. janúar sl.
Marel var fæddur að Nýjabæ á
Eyrarbakka, sonur hjónanna þar,
Kristínar Guðmundsdóttur og
Þórarins Bjarnasonar. Var hann
yngstur systkina sinna sem nú eru
öll látin, en þau voru: Kristinn
fæddur 1879, Guðfinnur Kr. f.
1882, Ingveidur f. 1884, Kristín
María f. 1886, og Bjarnfinnur f.
1890. Ólst Marel upp á Eyrar-
bakka og bjó þar alla tíð.
Árið 1925 giftist hann eftirlif-
andi eiginkonu sinni Sigríði Þór-
unni Gunnarsdóttur, og hófu þau
þá búskap í Einarshöfn og bjuggu
þar aila tíð síðan eða í 55 ár.
Eignuðust þau 3 börn, og eru þau:
Ingibjörg Jóna gift Friðþjófi
Björnssyni, og eiga þau 5 börn sem
öll eru uppkomin, Guðfinnur vél-
stjóri, sem lést árið 1963, ókvænt-
ur, og Guðni vélvirki, giftur Jónu
Ingvarsdóttur, og eiga þau 4 börn.
Sumarið 1963 urðu þau fyrir
þeirri miklu sorg að Guðfinnur
sonur þeirra drukknaði er hann
tók út af síldarbáti, aðeins 37 ára
að aldri.
Marel var einn af þeim dug-
miklu mönnum sem vaxnir voru
upp við hörð lífskjör og harða
lífsbaráttu upp úr aldamótunum,
og eins og algengt var á þeim tíma
byrjaði hann ungur að vinna fyrir
sér og lagði fyrir sig sjómennsku
sem hann stundaði í tæpan aldar-
fjórðung. Byrjaði hann 16 ára
gamall á skútum, og var síðan á
bátum frá Eyrarbakka, Þorláks-
höfn og víðar, og seinna á Kveld-
úlfstogurum í mörg ár. Þetta var á
þeim árum þegar lítið var um
atvinnu hjá mörgum og skipspláss
því eftirsótt og fengu ekki nema
harðduglegustu menn. Voru þeir
mikilvægir máttarstólpar þjóðfé-
lagsins sem færðu þjóðinni dýr-
mætan gjaldeyri á erfiðum tím-
um.
Eftir að Marel hætti sjó-
mennsku stundaði hann ýmis
störf í landi, var m.a. 16 ár
verkstjóri á Vinnuheimilinu á
Litla-Hrauni, og í 15 ár í Plastiðj-
unni á Eyrarbakka.
Marel var mannkostamaður,
traustur og verklaginn. Trú-
mennska í starfi var honum í blóð
borin, naut allsstaðar trausts og
+
GRÍMUR BJARNASON
fyrrum tollvöröur,
andaöist 11. þ.m. Útförin hefur fariö fram í kyrrþey aö ósk hins
látna.
Ólöf Guömundsdóttir og synir.
+
Faðir minn, tengdafaöir og afi,
SIGURÐUR Þ. BJÖRNSSON
fyrrverandi loftskeytamaöur,
Leifsgötu 27,
andaöist aö Hrafnistu 15. janúar.
Einar B. Sigurösson,
Sigríöur M. Siguröardóttir
og barnabörn.
+
Innilega þökkum viö öllum þeim sem sýndu okkur hjálpsemi og
hlýhug viö andlát og jarðarför
GÍSLA GUÐNASONAR
húsvaröar,
Lyngheiði 7, Selfossi.
Sérstakar þakkir færum viö læknum og starfsfólki á deild E6
Borgarspítalanum fyrir umönnun og alúö í veikindum hans.
Fyrir hönd aðstandenda, J6na vigfúsdóttir.
+
Þökkum af alhug öllum þeim sem auösýndu okkur samúö og
vinarhug vegna andláts og útfarar unnustu minnar, móöur og
dóttur,
BRYNDÍSAR LEIFSDÓTTUR,
Mávabraut 5B, Keflavík.
Alúöarþakkir til lækna, starfsfólks gervinýra Landspítalans og
allra þeirra, er veittu henni aöstoö og styrk.
Ingólfur H. Matthíasson,
Rut Ingólfsdóttir,
Alda Guömundsdóttir.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö viö fráfall og jaröarför systur
okkar,
JÓRUNNAR JÓNSDÓTT'JR
frá Birkibóli.
Sérstakar alúöarþakkir færum viö Bessý Bachmann, forstööukonu
Dvalarheimilis aldraöra í Borgarnesi og öllu starfsfólki þar.
Elías Jónsson,
AAalsteinn Jónsson,
Hólmfríöur Jónsdóttir,
AAalheiður Jónsdóttir,
Ólöf Jónsdóttir.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu vegna andláts og
jaröarfarar,
GUDBJARGAR JÓNASDÓTTUR
Skióbakka.
Erlendur Árnason,
Árni Erlendsson, Laufey Hauksdóttir,
Ragna Erlendsdóttir, Siguröur Helgason,
Sigríöur Erlendsdóttir, Albert Halldórsson
og barnabörn.
var vel látinn af starfsfélögum
sínum, enda umgengnisgóður.
Hann var margfróður og fylgdist
alltaf vel með því sem var að
gerast í þjóðfélaginu og í umræð-
um um þjóðfélagsmál var alltaf
gaman að skemmtilegu innleggi
hans og skarplegum athugasemd-
um. Hann taldi sig hafa verið
gæfumann í lífinu, og að mesta
gæfuspor hans hafi verið þegar
hann giftist Sigríði eiginkonu
sinni sem hann dáði alla tíð og
virti. Trúin, vonin og kærleikurinn
voru þeirra leiðarljós. Á heimili
þeirra ríkti alltaf glaðværð, hlýja
og gestrisni þar sem allir voru
velkomnir og alltaf var til reiðu
matur og kaffi með margrómuðu
meðlæti Sigríðar fyrir alla þá sem
að garði bar.
Marel lifði mikið fyrir fjöl-
skyldu sína, og allt sem hann tók
sér fyrir hendur og vann að,
fannst mér alltaf gert með því
markmiði að Sigríði konu hans og
þeirra nánustu liði sem best.
Árið 1972, þá 74 ára, hætti
Marel að vinna, að læknisráði.
Reyndar taldi hann sig geta unnið
lengur, en gaf sig þegar læknirinn
sagði: „Heldurðu Marel minn að
þú sért ekki búinn að leggja þinn
skerf í þjóðarbúið?" Það var hann
ábyggilega búinn að gera.
Alla tíð fylgdist hann vel með
útgerðinni og aflabrögðum bát-
anna á Bakkanum, og göngutúr-
arnir hans nú seinustu árin voru
oftast í fiskvinnsluhúsin og vestur
á bryggju til að fylgjast með því
sem var að gerast. Einnig hafði
hann mikla ánægju af að fara í
„Opið hús“ fyrir aldraða á Eyrar-
bakka nú síðustu árin.
Nú á kveðjustund kveð ég Marel
með þakklæti fyrir skemmtilega
samfylgd á lífsleiðinni en þó mest
fyrir allt það sem hann gerði fyrir
mig og mína fjölskyldu. Einnig
flytur Jóna tengdadóttir hans
honum þakkir fyrir allt sem hann
gerði fyrir hana og hennar fjöl-
skyldu.
Þér Sigríður mín og öðrum
aðstandendum votta ég mína
dýpstu samúð og vona að huggun
harmi gegn verði sú góða minning
sem við öll eigum um hann.
Friðþjófur Björnsson.
Kveðja frá barnabörnum
í dag kveðjum við afa Marel í
hinsta sinn. Nokkur orð megna
ekki að lýsa hvernig okkur er
innanbrjósts nú, en ótal hlýjar
minningar um dvöl okkar hjá
honum og ömmu austur á Eyrar-
bakka bera vott um hve sterkan
þátt hann hefur átt í lífsmótun
okkar. Aldrei vorum við í meiri
tengslum við atvinnulífið en aust-
ur á Bakka hjá afa. Það var sama
hvort í hlut átti sjósókn eða
bústörf, jarðrækt eða iðnaður,
allsstaðar opnaði hann augu okkar
fyrir nauðsyn þessara landstólpa
og tók hann sjálfur virkan þátt í
mótun þess samfélags sem hann
unni og nú kveður, samfélags.sem
á honum mikið að þakka. Við
erum þakklát fyrir að hafa fengið
hlutdeild í lífi hans, þar sem
mannkærleikur og hjartahlýja
voru ávallt í fyrirrúmi. Við þökk-
um algóðum Guði fyrir að hafa átt
ástvin sem afa á Eyrarbakka.
Farðu sæll.
Sverrir Friðþjófsson