Morgunblaðið - 18.01.1981, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.01.1981, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR 14. tbl. 69. árg. _______SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 1981________________________________Prentsmiðja Morgunhlaðsins. 1,5 milljónir Irana haf a misst heimili Beirút, 17. janúar. AP. UM 1,5 milljónir írana eru heim- ilislausir «k atvinnulausir flótta- menn i sinu eigin landi vcgna styrjaldarinnar við frak. sagói Mohammad Ali Rajai, forsætis- ráðherra írans í sjónvarpsút- sendingu frá Teheran. Rajai bað landsmenn að búa sig undir langt stríð og sagði, að ríkisstjórnin myndi reyna allt sem í hennar valdi stæði til að aðstoða Pólska stjórnin: Býður frí ardaga í Varsjá, 17. jan. AP. ALMENNUR frídagur var í Pól- landi í dag. Rikisstjórnin segist gcta fallist á að fri skuli gefið frá vinnu tvo laugardaga i mánuði en telur efnahagsástandið i land- inu ekki þola fri hvern laugar- dag. Óháðu verkalýðssamtökin, Sam- staða, telja hins vegar að með samningunum sem gerðir voru sl. sumar, hafi ríkisstjórnin sam- þykkt 40 stunda vinnuviku og að unnið skuli 5 daga í viku. atvinnulausa og heimilislausa Ir- ani. Nokkrir flóttamannanna hafa verið fluttir frá aðalbardagasvæð- unum til búða við landamæri Sovétríkjanna og Afganistan. írakar segjast hafa náð tveimur írönskum landamærabæjum á sitt vald á sl. þremur dögum. Ekki var ljóst af fréttum hvort írakar hefðu hertekið bæina eða verið hraktir á brott eftir að hafa ráðist inn í þá. tvo laug- mánuði maður RSW Prasa útgáfufyrir- tækisins, að því er pólska frétta- stofan PAP skýrði frá í dag. Fyrirtækið gefur út meira en helming allra tímarita í Póllandi, meðal annars öll flokksblöðin. Olszowski hafði áður tekið við stöðu fréttafulltrúa stjórnmála- ráðsins og flokksráðsins. Nýja staðan er talin gefa honum aukna möguleika til að stjórna frétta- flutningi í landinu. Nixon: Vill ekki láta upptökurnar Washinifton, 17. janúar. AP. LÖGFRÆÐINGAR Richards M. Nixons fyrrum forseta Randa- rikjanna hafa sent Þjóðskjala- safni Bandaríkjanna mótmæli gegn þvi að safnið afhendi utan- rikismálanefnd bandaríska þingsins upptökur af samtölum Nixons og Alexanders M. Haigs. Herbert J. Miller, aðallögfræð- ingur Nixons, segir að þingið hafi engan rétt til að athuga upptök- urnar. Hann benti á að Jimmy Carter forseti hefði opinberlega lagst gegn því að þingnefnd fengi í hendur upptökur af fundi örygg- ismálaráðsins um Iran. „Það yrði erfitt að vera höfuð ríkisstjórnar ef þingið mætti að vild róta í skjölum fyrrum forseta landsins," sagði Miiler. Útnefning Haigs í embætti utanríkisráðherra var samþykkt í bandaríska þinginu sl. fimmtudag. I upphafi vildi utanríkismála- nefndin fá upptökurnar vegna rannsóknarinnar á starfsferli Haigs áður en útnefningin í utan- ríkisráðherraembættið yrði stað- fest. Hins vegar samþykkti nefnd- in að halda áfram tilraunum til þess að komast yfir upptökurnar einnig eftir staðfestinguna. Aðeins hluti upptakanna hefur verið látinn af hendi við þingið og segir Alan Cranston fulltrúi demókrata á þinginu að þar komi ekki fram neinar misfellur á gerðum Haigs. Alsirskir læknar til íran til að flýta fyrir framsali WashinRton. Teheran, AlKeirshorK. 17. janúar. AP. ÍRANSKA STJÓRNIN bað alsírsk stjórnvöld um að senda laknalið til Teheran til að „koma í veg íyrir tímasóun verði gíslamálið til lykta leitt“, eins og Teheran-útvarpið orðaði það. Læknarnir héldu áleiðis til Teheran í morgun. Flugvöllurinn þar er lokaður almennri flugumferð. Talsmaður alsirska utanríkis- ráðuneytisins staðfesti þessa frétt og sagði, að hlutverk læknanna væri að flýta fyrir framsali gíslanna. náist lausn á deilu Bandaríkjanna og íran. Vinnumálaráðherrann, Janus Obodowski, sagði í gær að þeim verkamönnum sem þátt tóku í verkfallinu sl. laugardag, yrði ekki refsað að öðru leyti en því að dregið yrði af launum þeirra sem næmi dagsvinnu. Óstaðfestar fréttir herma þó að nokkrir verk- stjórar sem ekki mættu til vinnu sl. laugardag, verði lækkaðir í stöðu. Nokkrum vestrænum blaða- mönnum var vísað úr Póllandi í gær, tæpri viku áður en dvalar- leyfi þeirra í landinu fellur úr gildi. Meðal þeirra voru tveir bandarískir fréttamenn, einn Frakki, Breti og tveir Svíar, sem unnu fyrir bandaríska sjón- varpsstöð. Pólska fréttastofan sagði ekki frá þessum atburði í gær og engar skýringar hafa verið gefnar á atburðinum. Stefan Olszowski, einn af for- ystumönnum stjórnmálaráðs Pól- lands, hefur verið útnefndur yfir- Alsírskir fjölmiðlar slógu í fyrsta sinn í dag upp fréttum af gísladeilunni. Hingað til hafa þeir verið varkárir í umfjöllun sinni. Hið opinbera málgagn stjórnarinnar, E1 Moujahid spurði í fyrirsögn á forsíðu: „Er lausn gísladeilunnar á næsta leiti?" Þetta þykir renna stoð- um undir, að lausn sé á næsta leiti og að alsírskir embættis- menn séu bjartsýnir á lausn. Bandarísk stjórnvöld sendu samningsuppkast að deilunni til Teheran í dag. Jafnframt því að hafa gert Irönum beint tilboð, þá hófu bandarísk stjórnvöld undirbúning að því að láta „fryst“ fé í bandarískum bönk- um af hendi. Við framsal er búist við, að Bandaríkin láti 2,2 milljarða dollara af hendi. íran- ir kröfðust þess upphaflega, að fá allt „fryst" fé í Bandaríkjun- um, en fréttir herma, að þeir hafi nú sætt sig við, að Banda- ríkin haldi eftir upphæðum fyrir gjaldföllnum skuldum ír- ana. „Ég er bjartsýnn á samkomu- lag, en auðvitað er ekki hægt að fullyrða neitt um lausn. En ef íranir ganga að samningsdrög- um okkar, þá ættu gíslarnir að vera komnir heim til Bandaríkj- anna fyrir þriðjudag,“ sagði Jody Powell, blaðafulltrúi Jimmy Carters forseta. Carter hefur ekkert látið hafa eftir sér um hugsanlega lausn, en vitað er, að hann leggur mikla áherzlu á að fá bandarísku gíslana heim áður en hann lætur af embætti. Á þriðjudag tekur Ronald Reagan við emb- ætti forseta Bandaríkjanna. Það kom á óvart í Teheran í morgun, að Mohammad Ali Rajai, forsætisráðherra Irans, mætti ekki til fundar með erlendum sendiráðsmönnum, en sjálfur hafði hann boðað til þessa fundar. Búist var við, að Rajai myndi gera grein fyrir stöðu samninga um gíslamálið. Þegar Mbl. fór í prentun var ekki vitað, hvaða ástæður lágu að baki. Norðmenn undirrita samn- ing um birgðageymslur Frá önnu Bjarnndóttur. (réttaritara Mbl. I Waahington. 16. janúar 1981. SENDIHERRA Noregs í Banda- rikjunum. Knut Hcdemann. undirritaði I dag fyrir hönd ríkisstjórnar Noregs samning við Bandaríkin um liðsauka á ófriðartímum og birgðageymsl- ur í Noregi. Robert W. Komer, aðstoðarvarnarmálaráðherra. undirritaði samninginn fyrir hönd Bandaríkjanna. Gerð samningsins hefur staðið í fjögur ár. Hann er gerður til að auka öryggi Atlantshafsþjóð- anna á norðurslóðum. Sjóher Sovétríkjanna hefur tekið stakkaskiptum á undanförnum árum og er nú mun öflugri en áður. Ekki þykir lengur öruggt, að liðsauki gæti borist sjóleiðis til Noregs á ófriðartímum og því eru birgðageymslurnar, sem komizt hefur verið að samkomu- lagi um, mjög mikilvægar varn- arkeðju Norður-Atlantshafsins. Vopnabirgðir, flutningabílar, olía og fæði verða til staðar fyrir sveit 10.000 landgönguliða, sem munu ganga til liðs við norska herinn, ef í harðbakka slær. Tekið er fram í samningnum, að hann breyti ekki stefnu Noregs varðandi erlend herlið í Noregi eða geymslu eða notkun kjarn- orkuvopna á norskri grund. Knut Hedemann sagði við undirskrift samningsins, að Norðmenn vonuðu, að þeir þyrftu aldrei að biðja um liðs- auka, heldur að samningurinn myndi enn frekar hamla gegn hugsanlegri innrás Sovétmanna á Norður-Noreg. Birgðageymsl- urnar munu verða í Þrændalög- um, en ekki er vitað hvenær þær verða tilbúnar. Starfsmaður bandaríska varnarmálaráðu- neytisins sagði, að samningurinn breytti ekki mikilvægi eða stöðu herstöðvarinnar á íslandi, „hann eykur aðeins öryggi íslands".

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.