Morgunblaðið - 18.01.1981, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 1981
35
Kristján Tómasson
Eskifirði - Minning
Fæddur 21. júní 1894.
Dáinn 12. janúar 1981.
Kristján var fæddur á Eskifirði,
sonur Guðbjargar Eiríksdóttur og
Tómasar Magnússonar útgm. þar.
Á Eskifirði ólst hann upp. Kvænt-
ist móðursystur minni Guðrúnu
Árnadóttur, Halldórssonar útgm.
Árnasonar bónda að Högnastöð-
um og konu hans Guðnýjar Sig-
urðardóttur ættaðrar af Héraði.
Vettvangur Kristjáns var Eski-
fjörður alla tíð. Þar stundaði hann
venjuleg störf sem til féllu, sjó-
mennsku, skipstjórn, síðar versl-
unarstörf og bankastörf, þar til
kraftar voru þannig að hann fann
að lengur var ekki hægt að halda
áfram fullum störfum. Að vinna
ekki sinn dag og afkasta ekki því
sem honum fannst húsbónda sín-
um vera hagur í, átti ekki við
Kristján og því vildi hann heldur
draga sig í hlé í tíma.
Kristján ólst eins og flestir
þeirrar tíðar upp við allt af
skornum skammti og þá sérstak-
lega menntun, en snemma fór
hann að bjarga sér sjálfur og æfði
sig sem mest hann mátti. Því
lærði hann vel að draga til stafs
og hafði sérstaklega góða og fagra
rithönd. Reikning lærði hann líka
og varð þetta til þess að honum
gekk betur að fá störf sem þessar-
ar kunnáttu kröfðust.
Það var þröngt búið á Hlíðar-
enda þegar ég man fyrst og þegar
þau byrjuðu búskap Kristján og
Guðrún. Eitt herbergi var nóg og
eldunaraðstaða. I þessu húsi munu
þá hafa búið 5 fjölskyldur. Afi var
vinmargur og komu því margir
utan úr sveit til að gista og var þá
aldrei sparað að láta gesti nátta
með öðrum og þótti ekki tiltöku-
mál. Aldrei heyrðist kvörtun eða
vanþakklæti. Nei, menn voru svo
hjartanlega þakklátir fyrir hvað
lítið sem var.
Um 1922 að mig minnir var svo
hafist handa um að bæta úr
húsnæði enda fóru þá börnin að
koma í heiminn. Tveir móður-
bræður mínir, Björn og Friðrik,
byggðu hús saman rétt fyrir ofan
götuna og Guðrún og Kristján
litlu ofar. Kölluðu þau þann stað
Sigurhæð, enda mikill sigur unn-
inn þegar búið var að koma
þessum áfanga upp. Þótt þetta
frændfólk mitt flytti um set var
enginn greinarmunur gerður á
heimilum. Þetta var allt ein kær-
leikskeðja eða svo er það enn i
mínum huga.
Þegar Kristján hætti sjó-
mennsku byrjaði hann á verslun-
arstörfum og þjónaði í þeirri grein
lengst Markúsi Jensen sem þá rak
umsvifamikla verslun á Eskifirði.
Margþætt störf vann hann þar og
var einn af þeim fyrstu sem lærði
á bifreið og ók lengi með varning
upp á Jökuldal og víðar.
Þegar hann hætti verslunar-
störfum gerðist hann starfsmaður
hjá útibúi Landsbankans á Eski-
firði og þar var hann til þess er
hann gat ekki að sínum dómi
þjónað svo sem hann vildi. Krist-
ján kom sér vei og sýnir það best
að útibússtjórarnir vildu njóta
starfs hans sem iengst og horfðu
ekki á neinn lögaldur. Enda mat
Kristján það að verðleikum.
Kristján var snyrtimenni hvar
sem hann fór. Og allt það sem
hann fékkst við var vel frá gengið.
Heimili hans bar þess gleggstan
vott. Kristján átti góða vini og
kunningja og oft hafði hann glað-
an hóp í kringum sig og þá var
sælst til að vera nærri.
í hreppsnefnd var Kristján eitt
kjörtímabil, en vænst held ég
honum hafi þótt um að starfa
fyrir Slysavarnafélagið enda var
hann með fyrstu stofnendum
Brimrúnar á Eskifirði og sá um
allt sem tilheyrði, svo sem happ-
drætti o.fl.
Á heimili hans var jafnan
gestkvæmt og þar áítu margir
athvarf að ég tala nú ekki um þá
sem liðu og áttu bágt. Þar var
Guðrún fljót að rétta hjálparhönd.
Ég saknaði þessa vinahóps á
Hlíðarenda þegar ég flutti burt
fyrir tæpum 40 árum. Sannarlega
ætlaði ég mér dvöl á Eskifirði en
ekki annarsstaðar. En þegar ég
kom austur þá var Sigurhæð alltaf
svo vinaleg og fagnandi. Já, þar
eru margir sólargeislarnir tengdir
minningum liðinna daga.
Þau Guðrún og Kristján eignuð-
ust 2 börn, Guðnýju og Arnar.
Guðnýju misstu þau uppkomna en
Arnar dvaldi hjá þeim alla tíð.
Guðrún lést fyrir 4 árum.
Nú verður svipminna að koma
austur þegar Kristján er horfinn
yfir landamærin. Ég ræddi við
hann á nýársdag og við vorum
sammála um að hittast í sumar.
Þrátt fyrir háan aldur og starfs-
dag kom mér ekki í hug að svo
skammt væri í andlát hans. En
góðu starfi hafði hann skilað og
gefið samferðamönnum gott for-
dæmi. Hann var sannur maður.
Til þess þurfti hann engan hávaða.
Fullum sönsum hélt hann til
dánardags.
Kristján verður mér og mínum
ógleymanlegur. Tryggð hans við
okkur var slík að betur varð ekki á
kosið.
Því vil ég með þessum orðum
minnast hans, allra hans velgerða
og þeirra hjóna, þess sem hann
var sveitungum sínum og seinast
en ekki síst manns sem ekki mátti
vamm sitt vita. Með slíkum var
gott að eiga samleið. Guð blessi
hann um alla eilífð.
Árni Helgason
Áskriftartónleikar
Kammersveitar
Reykjavíkur
MÁNUDAGINN 26. jan. nk! efnir
Kammersveit Reykjavikur til
sinna þriðju áskriftartónleika á
þessu starfsári.
Sérstök ástæða er til að benda
tónlistarunnendum á þessa tón-
leika, því verkin, sem þar verða
flutt, eru talin meðal athyglis-
verðustu kammerverka sem samin
hafa verið, en þau eru Klari-
nettkvintett op. 115 í h-moll eftir
Johannes Brahms og Pierrot luna-
ire eftir Arnold Schönberg.
Bandaríski hljómsveitarstjórinn
og fiðlusnillingurinn Pauí Zu-
kovsky stjórnar og leikur einnig
með á þessum tónleikum.
(Fréttatilkynnlng)
Veiðiferðin
sýnd að nýju
UM IIELGINA hefjast að nýju i
Austurhæjarbiói sýningar á
Veiðiferðinni, kvikmynd Andrés-
ar Indriðasonar og Gísla Gests-
sonar.
Myndin, sem var frumsýnd í
marz sl., hefur verið sýnd um allt
land, og hafa um 65 þúsund manns
séð hana.
Veiðiferðin var tekin á Þingvöll-
um og kemur mikill fjöldi leikara
við sögu, auk barna í nokkrum
stórum hlutverkum. Myndin verð-
ur sýnd í Austurbæjarbíói í dag og
næstu daga.
NUDDSTOFA HILKE HUBERT AUGLÝSIR:
Heilsunudd, partanudd, hita-
lampi, háfjallasól á Hverfis-
götu 39
Upplýsingar og tímapantanir í síma 13680 mánud.
—föstudaga 14.30—18.30 nema þriöjudaga
13.00—17.00.
Bifreiðaeigendur
takið eftir
Frumryövörn og endurryövörn spara ekki einungis peninga,
heldur eykur öryggi yöar í umferöinni. Endurryövörn á
bifreiöina viöheldur verögildi hennar. Eigi bifreiöin aö
endast, er endurryövörn nauösynleg.
Látið ryðverja undirvagninn á 1—2ja ára fresti.
Látið ryðverja að innan á 3ja ára fresti.
Góð ryðvörn tryggir endingu og endursölu.
BÍLARYÐVÖRNhf
Skeifunni 17
8 81390
(Kjötskrokkar
Nauta-
kjöt
V4 skrokkar, flokkur
U.N.I.
Ung-
naut
í I. gæöaflokki ca. 70 kg
ca. 2ja ára.
34.15 kr. kg.
Pakkað. Út-
beinaö. Merkt.
Folalda-
kjöt
V4 skrokkar flokkur
FO lí 1. gæðaflokkur
(9 mánaöa).
Verö
19.80 kr.
kg. Pakkað. Útbeinað.
Merkt.
Svína-
kjöt
V4 skrokkar
Flokkur SV I A
Grísa-
kjöt
I. gæðaflokkur ca. 25.
kg. skrokkar
Verö
34.00 kr.
kg. Pakkað. Skorið eftir
ósk kaupanda. Merkt.
Lambaskrokkar
Allt pakkaö í plastpoka og skipt á slögum og tilbúin rúllupylsa.
V4 skrokkar Dl Verð 28.55 C3. 12,5—17 kg.
’/z skrokkar Dll Verð 27.45 ca. 10—12 kg.
’/2 skrokkar Dlll Verð 24.15 ca. 9—10 kg.
DS4®in^Q[II)©Tr®Œ)0R£l
LAUGALÆK a. elmi 86511.