Morgunblaðið - 07.02.1981, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 07.02.1981, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1981 Séð yíir hluta fundarins. Ljósm. Mbl. Emilia. Birgir Isl. Gunnarsson: Efast ekki um úrslitin, ef Reykvík- ingar vinna ötullega fram til kosninga — með Sjálfstæðisflokkinn í broddi fylkingar Þriðji hverfafundur borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna var haldinn í Valhöll á miðvikudagskvöldið. Fundurinn var haldinn með íbúum Austurbæj- ar, Norðurmýrar, Hlíða-, Holta- og Háaleitishverfis. Frummælendur á fundinum voru þeir Davíð Oddsson oddviti borgarstjórnarflokksins og Birgir ísleifur Gunnarsson fyrrum borgarstjóri. Fundarstjóri var Jónas Elíasson prófessor, en fundarritarar voru þær Sigríður Ásgeirsdóttir og Stella Magnúsdóttir. I upphafi fundar ávarpaði fundarstjóri fundinn, bauð fundarmenn velkomna og gaf síðan Davíð Oddssyni orðið. NIKULAS SVEINSSON spurði um smíði nýrra strætisvagna og hvort kannað hefði verið að kaupa sæti í vagnana úr sérstöku harðplasti. Slík sæti væri ekki hægt aö skemma eins og venjuleg sæti. Einnig spuröi hann um upphituð strætisvagnaskýti. A. JÓN GUÐMANNSSON spurði um hvaö gerst hefði i símaskrefamálinu. Þá spuröi hann hvort rétt væri að byrja ætti aö setja tækin niöur í Reykjavik. LOVÍSA SIGURÐARDOTTIR spurði hvað gera ætti viö gamla Fram-völlinn. Innansleikjur í lóðamálum I ræðu sinni fjallaði Davíð um borgarmál í víðu samhengi, ræddi um stefnumið Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn og um stefnuleysi og svik vinstri meirihlutans í borginni. Davíð sagði m.a. í ræðunni að í Reykjavík yrði að blómgast öflugt atvinnulíf, til að það væri unnt þyrfti að búa atvinnulífinu góð skilyrði. Ekki hefði vinstri meiri- hlutinn látið það til sín taka, enda hefði hann aukið álögur á atvinnu- reksturinn og einstaklingana, auk þess sem engar líkur væru á því að atvinnufyrirtæki gætu fengið lóðir í borginni. Þá drap hann á að meiri- hlutinn hefði látið hjá líða að staðfesta Aðalskipulagið sem sam- þykkt var árið 1977 og hefði það lóðaskort í för með sér, bæði fyrir einstaklinga og atvinnufyrirtæki. Meirihlutinn reyndi að bjarga eigin skinni í þessu máli með þvi að láta byggja á opnum svæðum og íþrótta- svæðum í borginni, slíkt væri skammsýni og yrði framtíðin ekki þakklát fyrir það. Ekki sagði Davíð sjálfstæðismenn andvíga svokall- aðri „Þéttingu byggðar" á öllum sviðum^. Til dæmis mætti nefna svæðið við Eyrarland í Fossvogi, en þar höfðu sjálfstæðismenn hugsað sér að byggja. Sagði hann „Þéttingu byggðar" vera tómar innansleikjur í lóðamálum. Aftur á móti væri vinnu til undirbúnings nýrra byggingar- svæða slegið á frest, slíkt væri óverjandi. Davíð sagði að við samþykkt Aðalskipulagsins frá 1977 hefðu Sjálfstæðisflokkur, Alþýðuflokkur og Framsóknarflokkur verið sam- mála um skipulag þetta. Alþýðu- bandalagið eitt hefði verið á móti og þá aöeins á móti tilteknum atriðum í skipulaginu. Þegar Alþýðubanda- lagið hefði hins vegar komist í meirihlutaaðstöðu ásamt hinum flokkunum tveimur, hefði það kúgað þá til hlýðni, enda væri Alþýðu- bandalagið einrátt í skipulagsmál- um borgarinnar, og raunar í borg- armálum öllum. Á fundinum sýndi Davíð lit- skyggnur af ýmsum framkvæmdum sem sjálfstæðismenn lögðu grunn- inn að á sínum tíma. Þegar þessar byggingar hefðu verið vígðar á þessu kjörtímabili, hefði meirihlut- inn gjarnan haldið blaðamanna- fundi af því tilefni og látið lita svo út að þetta væri þeim að þakka, og léti þess jafnframt ógetið hver frumkvæðið hefði átt. 1 lok máls síns sagðist Davíð harma það að meirihlutinn hefði ekki séð ástæðu til að halda fundi með borgurunum, til að kynna þeim borgarmál. Um þetta atriði væri kveðið á í málefnasamningi meiri- hlutans og það væri ekki fyrsta loforðið sem meirihlutinn sviki. Meirihlutinn íorðast borgarbúa Að máli Daviðs loknu tók til máls Birgir Isl. Gunnarsson fyrrum borg- arstjóri Reykjavíkur. Hann sagði að fátt væri mikil- vægara fyrir stjórnmálamenn, en að hafa mikið og gott samstarf við kjósendur sína. „Þetta á ekki síst við á sviði sveitarstjórnarmála, en á þeim vettvangi er fjallað um dagleg vandamál fólksins í sveitarfélögun- um. Slíkt samstarf var fastur liður í starfi sjálfstæðismanna þegar við höfðum meirihlutann í borgar- stjórn, að halda reglulega fundi með borgurunum, til að skynja hug þeirra í hinum ýmsu málum og'fá frá þeim leiðbeiningar um það hvernig við ættum að haga okkur í ýmsum málum. , Vinstri meirihlutinn í borginni forðast hins vegar borgarbúa, þeir virðast hræddir við að koma fram fyrir • þá. Enda koma hvað eftir annað upp mál í Reykjavík, jafnvel í heilum hverfum, þar sem ekkert hefur verið rætt við íbúana,“ sagði Birgir ísleifur. Birgir sagði að þegar borgarmál væru rædd væri vissulega af nógu að taka, en hann sagðist í ræðu sinni mundu víkja fyrst að skipu- lagsmálum, en síðan að öðru. Glundroði — reynt að fela ágreining Birgir sagði að árið 1977 hefði Aðalskipulag verið samþykkt í borg- arstjórn Reykjavíkur, gerð skipu- lagsins hefði verið mikið verk, „og um það náðist samstaða á milli Sjálfstæðisflokks, Alþýðuflokks og Framsóknarflokks, en Alþýðu- bandalagið var þar eitt á móti — þó ekki nema afmörkuðum hlutum skipulagsins". Eftir kosningar sagði Birgir Álþýðubandalagið hafa feng- ið yfirumsjón með skipulags- og byggingamálum og því væri ásig- komulag skipulagsmála í borginni þeirra sök. Aðalskipulagið hefði ekki verið nefnt á nafn í skipulags- nefnd í heilt ár eftir að Álþýðu- bandalagið komst þar í valdaað- stöðu og taldi Birgir ástæðu þess vera m.a. ágreining innan meiri- hlutans um meðferð skipulagsmála, Alþýðuflokkur og Framsóknar- flokkur hefðu ekki strax verið til- búnir til að kasta skipulaginu fyrir róða. „Eftir þetta kom í ljós að Alþýðuflokkur og Framsóknar- flokkur höfðu ekki þrek til að standa á sinni fyrri skoðun gegn Alþýðubandalaginu. Þetta er dæmi um glundroða í framkvæmd, þótt ekki kæmi hann fyllilega upp á yfirborðið. Glundroðinn lýsir sér í því að ekki eru teknar ákvarðanir í málum, málum er frestað til að fela ágreininginn. Þetta gerðist í skipu- lagsmálum," Sagði Birgir. Síðan gagnrýndi hann afstöðuleysi sam- starfsflokka Alþýðubandalagsins og sagði að menn yrðu að slá striki undir ákvarðanir sem búið vpæri að taka, þó vissulega væri alltaf hægt að endurskoða hluti í sífellu. „Vegna eilífra endurskoðana hefur staðfest- ing Aðalskipulagsins dregist úr hömlu, enda verður engum lóðum undir atvinnuhúsnæði úthlutað á þessu kjörtímabili og hingað til hefur aðeins verið úthlutað tveimur lóðum, einni undir KRON og einni undir SÍS,“ sagði Birgir. Uppgjöí mcirihlutans „í janúarmánuði árið 1980 var samþykkt í borgarstjórn að endur- skoða Aðalskipulagið, sem sam- þykkt var í borgarstjórn árið 1977. Við sjálfstæöismenn bentum á að vonlaust væri að vinna svo mikið starf eins og það á þremur mánuð- um, en það var sá tími sem meirihlutinn ætlaði sér til verksins. Nú eru liðnir þrettán mánuðir frá því að þessi samþykkt var gerð og enn bólar ekkert á niðurstöðum endurskoðunarinnar," sagði Birgir. Birgir sagði að einhverjar óljósar hugmyndir hefðu komið frá skipu- lagsfrömuðum Alþýðubandalagsins og samkvæmt hugmyndum þeirra nú væri gert ráð fyrir því að mannfjöldi ykist ekkert í Reykjavík allt fram til aldamóta, á meðan töluverð fjölgun yrði í nágranna- sveitarfélögunum. Birgir sagði það bera vott um uppgjöf meirihlutans, að gera ekki ráð fyrir því að Reykjavík yxi á meðan sveitarfélög- in í kring væru í örum vexti. „Reykjavík hefur misst allt of mikið af fólki á undanförnum árum, um 1000 manns á ári. Þar af hafa 30% flust til útlanda, 60% í nágranna- sveitarfélögin og 10% út á land. Þegar þessar tölur eru skoðaðar verður að hafa í huga að náttúruleg fólksfjölgun í borginni er 700 manns á ári, þannig að bein fólksfækkun hefur verið um 300 manns,“ sagði Birgir ísleifur. Lausnarorðið „þétting byggðar44 Þessu næst vék Birgir orðum sínum að nýjum byggingasvæðum og varpaði fram þeirri spurningu hvaða svæði lík egt væri að byggð yrðu á næstunni Hann sagði að nú væru uppi hugmyndir um«uppbygg- ingu svæða í kringum Rauðavatn og gat þess jafnframt að þessi svæði væru enn undir vatnsvernd og ekki væri líkiegt að henni yrði aflétt á næstunni. „Þá eru tvö svæði tekin út úr Aðalskipulaginu frá 1977 og þau tekin til deiliskipulags. Þetta eru svæðin á Ártúnsholti, sunnan bens- ínstöðvar ESSO og svæði á Selási, vetan Rauðavatns,“ sagði Birgir. Siðan sagði hann að lóðaúthlutanir árin ’79 og ’80 hefðu verið í algeru lágmarki, og til að bjarga eigin skinni hefði meirihlutinn fundið upp lausnarorðið „Þétting byggðar". Birgir sagði þéttinguna ekki gagn- rýnisverða, ef ekki væri gengið of langt. Síðan nefndi Birgir fimm byggingasvæði þar sem „Þétting byggðar" ætti að koma til. Það væru svæðin í Öskjuhlíð og í Fossvogi við Eyrarland og svæðið inn við Laug- arás, en á þessum svæðum væru sjálfstæðismenn hlynntir þétting- unni — hefðu raunar haft áform um að byggja þar. Hins vegar vildi meirihlutinn ganga lengra og byggja í Laugardalnum, vestan Glæsibæjar og á milli Skeiðarvogs og Miklubrautar, en þar vildu sjálf- stæðismenn ekki byggja. Kenna hver öðrum um Þessu næst vék Birgir orðum sínum að viðbrögðum þeirra meiri- hlutamanna við skoðanakönnun Dagblaðsins, en jafnframt sagði hann að taka bæri skoðanakönnunni með fyrirvara, vegna lítils úrtaks og margra óákveðinna, en vissulega gæfi niðurstaðan vissa vísbendingu. Birgir sagði að það sem mætti lesa út úr svörum oddvita flokkanna, þeirra Sigurjóns Péturssonar, Björgvins Guðmundssonar og Kristjáns Benediktssonar, væri vissulega athyglisvert. Forsvars- maður Alþýðubandalagsins teldi allt Alþýðuflokknum að kenna, Al- þýðuflokksmaður segir að úrslitin séu af og frá og Framsóknarmaður- inn segi bara að hann sé „hissa“. „Þetta er smjörþefurinn af því sem koma skal,“ sagði Birgir. „Eg spái því að glundroðinn sem falinn hefur verið komi nú upp á yfirborðið, því þeir hafa tilhneigingu til að kenna hvor öðrum um. Forsvarsmenn meirihlutans virtust sammála um að niðurstöður könnunarinnar hefðu verið ósanngjarnar," sagði Birgir. Síðan vitnaði hann til um- mæla þeirra Sigurjóns Péturssonar og Björgvins Guðmundssonar í blaðaviðtölum, en þar telja þeir það upp sem þeir telja sig best hafa gert í sinni meirihlutatíð í borgarstjórn. „Sigurjón talar um opnara stjórn- kerfi," sagði Birgir, „og að starfs- menn hafi nú rétt til að sitja í stjórnum fyrirtækja. Þetta er rétt, en í tíð sjálfstæðismanna var tekið upp mikið samstarf við starfsmenn borgarinnar. Við höfum ákveðið að efna til svokallaðra samráðsfunda, þar sem hægt væri að taka upp málin á víðum grundvelli," sagði Birgir. Síðan sagði hann að í blaðaviðtalinu teldi Sigurjón það sér til tekna, að fulltrúar flokkanna væru í ráðum og nefndum, í emb- ættismanna stað. Birgir sagði að árið 1974 hefðu sjálfstæðismenn samþykkt þessa ráðstöfun og því væri Sigurjón að telja annarra verk sér til tekna.“ Þá segir í viðtalinu að framkvæmdir við dagheimili hafi aldrei verið meiri en í ár, 150 ný pláss rísi á þessu ári. Þetta er sama

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.