Morgunblaðið - 07.02.1981, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 07.02.1981, Blaðsíða 47
r, MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1981 47 • Hið sterka körfuknattleikslið Njarðvíkur sem nú hefur örugga forystu í úrvalsdeildinni og stefnir að sínum fyrsta íslandsmeistaratitli. Ljó»m. Mbi. Kristinn ói. Yfirburðir Njarðvíkinga voru miklir gegn ÍR NJARÐVÍKINGAR voru í mikl- um baráttuham er þeir fengu ÍR-inga i heimsókn i gærkvöldi ok sigruðu Reykjavikurliðið með miklum mun, skoruðu 91 stig gcgn 63 stigum ÍR-inga. Munur- inn var reyndar meiri i hálfleik, eða 51 stig gegn 22. Það sem fyrst og fremst gerði gæfumuninn var sterkt lið Njarð- vikinga, einkum í fyrri hálfleik. Þá hirtu þeir flestöll fráköst á sínum vallarhelmingi og velflest á helmingi ÍR-inga. Þeir léku lengi vel hratt og gerðu af þeim sökum fjölda mistaka í sókn, en það kom lengi vel ekki að sök, því IR-ingar, sem stóðu sig vel í síðustu fjórum leikjum, virtust þrúgaðir af tauga- spennu og gerðu sjálfir mörg mistök. ÍR-ingum gekk bókstaf- lega allt í óhag þar til er seinni hálfleikur var hálfnaður, en þá tóku þeir við sér, og fóru reyndar með sigur af hólmi í hálfleiknum. Eins og í öðrum leikjum UMFN bar mest á Danny Shouse. Hann er hálft liðið, ef svo má að orði komast, skorar mikið, matar sam- herja sína mikið og drífur þá áfram. Gunnar Þorvarðarson og Guðsteinn Ingimarsson voru að auki burðarliðir liðsins og Jónas skoraði skemmtilegar körfur. Það eru margir ungir menn í ÍR-liðinu og eiga þeir framtíðina UMFN—ÍR 91:63 fyrir sér. Þeir mættu ef til vill ofjörlum sínum að þessu sinni, en báru lengst af alltof mikla virð- ingu fyrir andstæðingnum, virtust beinlínis hræddir. Þá vantaði ákveðni, en hún kemur líklega þegar stappað hefur verið í þá stálinu. Vegna þrengsla verður frekari umsögn um leikinn að liggja milli hluta, en það segir sína sögu að Njarðvíkingar tóku strax forystu og juku hana jafnt og þétt, komust mest í 37 stiga mun, er staðan var 69-32. Stig UMFN: Danny 34, Gunnar 20, Guðsteinn 14, Jónas 12, Valur 4, Þorsteinn 2, Jón Viðar 3, Árni 3. Stig ÍR: Andy 22, Jón 12, Benedikt 8, Kristján 6, Hjörtur 6, Sigmar 4, Björn 2, Björgólfur 1, Óskar 2. , Leik frestað LEIK KA og UBK sem fram átti að fara i 2. deild að Varmá i gærkvöldi var frestað. Lið KA komst ekki til Reykjavikur þar sem ekki var flugveður. Handknattleikur um helgina Laugardalshöll Kl. 14.00 2. d. ka. Kl. 15.15 l.d. kv. Kl. 16.15 1 d. kv. Kl. 17.15 2. d. kv. B Kl. 18.15 111. ka. A Hafnarfjörður Kl. 14.00 1. d. ka. Kl. 15.15 l.d.kv. Kl. 16.15 1.11. ka. A Varmá Kl. 15.00 2. d. ka. Kl. 16.15 2. d. kv. A Kl. 17.15 2. II. ka. A Ásgarður Kl. 16.00 2. II. ka. A Seltjarnarnes Kl. 18.00 3. d. ka Kl. 19.15 1.11. ka. B Laugardalshöll Kl. 14.00 l.d. kv. Kl. 15.00 2 II. ka. A Kl. 15.45 2. II. ka. A Kl. 16.30 2. d. kv. A Kl. 20.00 1. d. ka. Kl. 21.15 2. II. ka. C Kl. 22.00 2. II. ka. C Varmá Kl. 15.00 2.11. ka. B Ásgarður Kl. 20.00 3. d. ka. Kl. 21.15 2. d. kv.A Kl. 22.15 1.11. ka. A Laugardagur 7. febrúar ÍR — KA. Karl Jóhanns. — Björn Kristjáns. KR — FB. Stelán Arnalds. — Ólalur Baralds. Fram — Vlkingur. Ævar Sig. — Grótar Vilm. Ármann — HK. Ævar Sig. — Grétar Vilm. Fylkir — Fram. Laugardagur 7. febrúar Haukar — Fram. Ólalur Steinitr. — Jón Hermanns. Haukar — Þór. All P. — Erlingur Kristjáns. FH — Viklngur Laugardagur 7. febrúar HK — UMFA. Einar Svcins. — Helgi Gunnars. UMFA — ÍBK. Einar Sveins. — Helgi Gunnars UMFA — Týr. Davið Sig. Steinar Tómass. Laugardagur 7. febrúar. Stjarnan — Þór. Sunnudagur 8. fehrúar. Grótta — Reynir. Hjálmur Sig. — Gunnar SteinK. Grótta — Þróttur. Sunnudagur 8. febrúar. Valur — Þór. Erling K. — Alí P. KR - Týr Þróttur — Þór. IR — Fylkir. Stetán Arnalds. — Ólalur Haralds. KR — Fylklr. Ólalur Steingr. - Rögnvald E. |R - Selloss. Ármann — Haukar Sunnudagur 8. febrúar. HK - FIl. Sunnudagur 8. febrúar. Stjarnan — óðinn. Jens J. — Guðm. Kolbeins. Stjarnan — UMFN. Jens J. — Guðm. Kolbeins. Stjarnan — Haukar. Oldfield varpaði kúlunni 21,31 m. BRIAN Oldfield. bandaríski kúluvarparinn kunni. sigraði i greininni á alþjóðlegu frjálsiþróttamóti sem haldið var i Milanó á miðvikudag. Ilér var um innanhússmót að ræða. Oldfield, sem var einn af þremur bandarískum keppendum á mót- inu. varpaði kúlunni 21,31 metra i sinni þriðju tilraun og enginn hinna keppendanna komst ná- lægt þvi. Er Oldfield greinilega sterkur um þessar mundir. Hinir Kanarnir stóðu sig mjög vel, Tom Hintnaus sigraði í stang- arstökki, lyfti sér yfir 5,40 metra. Pólski Olympíumeistarinn Wladi- slav Kozakiewicz var langt frá sínu besta, felldi 5,20 metra og komst ekki á blað. Og Dwight Stone varð annar í hástökki, stökk 2,23 metra. Pólverjinn Jazek Wzola sigraði, stökk yfir 2,26 metra og felldi naumlega 2,30 metra. Af öðru frægu fólki á móti þessu, má geta Frakkans Guy Drut, fyrrverandi Olympíumeist- ara en hann sigraði í 60 metra grindahlaupi. Reyndu menn með sér í 60 metrunum tvívegis og fékk Drut samanlagða tímánn 15,71 sekúndur. Annar varð Roberto Schneider á 16,18 sekúndum. Tap og sigur hjá Rauðu Stjörnunni Júgóslavneska stórliðið Rauða stjarnan frá Belgrað, er á keppn- isferðalagi á Bretlandseyjum um þessar mundir. Þar hefur liðið leikið tvo leiki í vikunni. Fyrst mætti liðið tvöföldum Evrópu- meisturum Nottingham Forest og vann Stjarnan öruggan sigur, 3—1, með mörkum Srebrenco Repcic (2) og Milso Sestic. Trevor Francis skoraði eina mark For- est, en þá var staðan orðin 3—0 fyrir RS. Síðan mætti liðið WBA á Haw- thornes-leikvanginum í West Bromwich. WBA gekk betur, sigr- aði júgóslavneska liðið 4—2. Cirel Regis, Bryan Robson (2) og Garry Owen skoruðu mörk WBA, en Sestic bæði mörk RS. Gerir Þróttur út um mótið? MIKILVÆGUR leikur er á dag- skrá í 1. deild íslandsmótsins i blaki á morgun. Þá leiða saman hesta sina Þróttur og ÍS. Sigri Þróttur, má segja, að liðið sé komið með meira en aðra hönd- ina á íslandsmeistaratignina. En fari ÍS með sigur af hólmi, á liðið nokkra möguleika á þvi að jafna Þrótt að stigum áður en yfir lýkur. Það er því gifurlega mikið í húfi fyrir bæði liðin. Samkvæmt mótabók hefst leikurinn um það bil klukkan 14.45, en klukkan 14.00, eða á undan, leika sömu félög i 1. deild kvenna. Og strax á eítir viðureign Þróttar og ÍS, eða um klukkan 16.00. leika Fram og Víkingur í 1. deild karla. Jón Einarsson mun leika með Breiðablik KNATTSPYRNUMAÐURINN kunni Jón Einarsson sem leikið hefur með meistaraflokki Vals hefur nú tilkynnt félagaskipti yfir i lið UBK. Þar bætist liði UBK góður liðstyrkur fyrir keppnistimabilið sem er framundan. Jón er einnig liðtækur handknattleiksmaður og leikur með liði HK. -þr. Einkunnagififin Lið ÍS: Jón Oddsson 5 Albert Guðmundsson 4 Árni Guðmundsson 5 íngi Stefánsson 5 Bjarni Gunnar Sveinsson 7 Jón óskarsson 4 Gísli Gislason 7 Þórarinn Sveinsson 4 Lið Ármanns: Guðmundur Sigurðsson 3 Valdemar Guðlaugsson 6 Hörður Arnarsson 5 Kristján Rafnsson 6 Atli Árason 5 Bogi Franzson 4 Hannes Hjálmarsson 4 Jón Björgvinsson 4 LIÐ UMFN Gunnar Þorvarðarson 8 Guðsteinn Ingimarsson 8 Þorsteinn Bjarnason 5 Valur Ingimundarson 6 Jónas Jóhannesson 7 Jón Viðar Helgason 5 Árni Lárusson 5 Júlíus Valgeirsson 5 Brynjar Sigmundsson 5 LIÐlR Sigmar Karlsson 5 Hjörtur Oddson 5 Björn Leósson 5 Jón Jörundsson 6 Björn Jónsson 5 Benedikt Ingþórsson 6 Björgólfur Björgólfsson 5 Kristján Oddson 5 Óskar Baldursson 5 Fimleikar Unalinaameistaramót F.S.Í. verður haldið í íbróttahúsi Kennaraháskóla íslands við Stakkahlíð sem hér segir: Laugardaginn 7. febrúar kl. 10—12, keppni pilta. kl. 13—15, keppni stúlkna. Sunnudaginn 8. febrúar kl. 14. Úrslit stúlkna og pilta. Skemmtileg keppni 8—16 ára fimleikafólks. Fimleikasambandiö Fimleikar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.