Morgunblaðið - 18.02.1981, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1981
33
fólk f
fréttum
Ogæfa
læknis-
hjónanna
+ Kathleen Sandiford heitir
þessi kona og býr í stórborg-
inni Houston í Bandaríkjunum.
Hún er ákærö fyrir aö hafa myrt
eiginmann sinn, hjartaskurð-
lækninn Frank Sandiford. Hún
ku hafa skotiö mann sinn fimm
skotum. Hún ber því við aö þaö
hafi veriö í sjálfsvörn. Nágranni
einn, sem fenginn var til að
bera vitni í þessu morömáli,
sagöi aö þremur dögum fyrir
moröiö heföi Kathleen veriö
mjög óróleg vegna ástarsam-
bands eiginmanns síns og ít-
alskrar konu. Einnig mun hún
hafa fyllst ofsareiöi þegar maö-
ur hennar sagöist ætla aö
yfirgefa hana og flytja til ítalíu.
Dómur hefur ekki enn veriö
felldur. Vestur í Ameríku hefur
þetta mál læknishjónanna veriö
mjög í fréttum fjölmiðlanna.
Dire Straits-
hljómsveitin
+ Hln ágæta breska hljómsveit
Dlre Straits, brá sér suöur á ftalíu
fyrir skömmu. Þeir voru gestir á
mikilli tónlistarhátíö, sem fram fór
í bænum San Romeo. Hljómsveit-
in er nú í hópi þeirra vinsæiustu
um allan helm. Áriö 1977 voru
þessir menn allir óþekktir. Þeim
tókst aö vekja heimsathygli meö
fyrstu plötu sinni „Dire Straits”,
sem seldist mjög vei. Næsta plata
þeirra „Communique“ varð gull-
plata. Sú nýjasta „Making Movi-
es“, er almennt talin sú besta og
hafa viötökurnar veriö eftir því.
Hljómsveitin veröur á stööugu
hljómleikaferöalagl fram í júní. Á
blaðamannafundi sem haldinn var
viö komu þeirra til ítalíu, sagöi
Mark Knopfler, aöalmaður hljóm-
sveltarinnar, aö ástæðan fyrir
velgengni þeirra væri blöndun
þeirra á rokki og „rythm og
blues". „Almenningur var tilbúinn
til aö hlusta á nýjan hreinan hljóm
og krassandi gítarleik. Allt þetta
höfum við," bætti hann viö. Dire
Stralts eyddu fimm dögum í Róm
og sagöist Knopfler aldrei hafa
augum litiö fegurri borg.
Bara bíða og bíða ...
+ Þaö er ekki mikil gleöi eöa
bjartsýni í svip konunnar eöa
barnanna. — Konan og börnin
eru meöal hins mikla fjölda flótta-
manna frá Afghanistan, sem flúið
hafa til Pakistan og munu hafast
þar viö í tjaldbúöum, þó vetur sé,
í bænum Chital í noröanveröu
landinu. — Flóttakonan haföi sagt
við fréttamenn, sem komu í heim-
sókn í búöirnar: Það er ekkert
annaö aö gera hér en aö bíöa og
bíöa alla daga.
Jafn-
tefli
+ Lech Walesa, hinn nafntogaöi
leiötogi hinnar nýfrjálsu pólsku
verkalýössamtaka „Einingar”, er
hér borinn um götur Varsjár af
stuðningsmönnum sínum. Mynd-
in var tekin á dögunum er
Hæstiréttur Póllands haföi úr-
skurðaö aö pólskir bændur
mættu ekki skrá samtök sín sem
verkalýösfélög, þó svo þeim væri
heimilt að stofna slík samtök.
Walesa kallaöi niöurstööu dóms-
ins: Jafntefli!
Fiskverðsákvörðunin:
Sjómenn í Grinda-
vík víta vinnubrögð
Grindavik 16. febrúar
MJÖG fjölmennur fundur var
haldinn i sjómanna- og vélstjóra-
félagi Grindavikur siðastliðinn
laugardag. í ályktun fundarins
eru vinnubrögð við ákvörðun
fiskverðs vitt. en jafnframt lýsti
fundurinn yfir stuðningi við full-
trúa seljenda i verðlagsráði sjáv-
arútvegsins. í ályktuninni segir
m.a:
„Fundurinn lýsir yfir furðu
sinni og vítir þau vinnubrögð
ríkisstjórnar og verðlagsráðs, sem
höfð hafa verið við ákvörðun
fiskverðs, sem á að vera tilbúið um
áramót, en er ókomið í lok verð-
tímabilsins, og þá sérstaklega það
kjarkleysi stjórnvalda að gera
ekki verðlagsráði kleift að ákveða
fiskverð, sem flestir geti unað við.
Jafnframt lýsir fundur fyllsta
stuðningi við fulltrúa fiskseljenda
í verðlagsráði og hvetur þá til
áframhaldandi baráttu fyrir rétt-
mætu fiskverði til handa sjó-
mönnum og útvegsmönnum.
Fundurinn lýsir fullri samstöðu
við SSÍ og FFSÍ um að koma á
einhuga samstöðu meðal sjó-
manna um land allt um grundvall-
aratriði lífsafkomu sjómanna-
stéttarinnar."
Guðfinnur
Fyrirlestur um
bókmenntir á
Norðurlöndum
DR. PHIL. Oskar Handle. prófess-
or við háskólann í Zilrich i Sviss.
flytur opinberan fyrirlestur í boði
heimspekideildar Iláskóla íslands
fimmtudaginn 19. febrúar 1981
kl. 17:15 í stofu 423 i Árnagarði.
Fyrirlesturinn nefnist: „Tíma-
bilaskipting í bókmenntum Norð-
urlanda". Verður hann fluttur á
íslensku og er öllum heimill að-
gangur.
(Frétt frá Háskóla íslands)
'Þakkir'
Sendum innilegar þakkir öllum þeim sem sýndu
okkur vinarhug í tilefni gullbrúdkaups okkar 7. feb.
sl.
Margrét Guömundsdóttir,
Guösteinn Þorbjörnsson,
Vöröustíg 3, Hafnarfiröi.
opinn
ag
Fjöldi þekktra fyrirtækja
selja vörur á
ótrúlega góðu veröi.
Ath.
Aðeins 3 dagar eftir
svo nu er um aö gera aö drífa sig á
Bíldshöfðann.
Veitingar a staönum
Leiö 10 gengur allan daginn.
Stór-
útsölu
markaðurinn