Morgunblaðið - 18.02.1981, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1981
HÖGNI HREKKVÍSI
„wv m m m ob mmm b'imu /"
... aö kyssa renn-
sveittan Víkinyinn
sinn.
TMReg US Pat Off-aM fights rvservwl
• 1978 Los Angetos Times Syndicate
‘ c *- . ». ^ V ' ‘é
ÉK er huicsanleKa þarna í
skránni undir einhverju dul-
nefna minna!
Með
morgnnkaffinu
Ef lækninum tekst að hjálpa
mér, veit ég hreint ekki hvað ég
á að taka mér fyrir hendur á
fimmtudögum!
COSPER
bú getur sofið meðan ég þarf að æfa eins og brjála'ðiniíur!
Villandi kynning
V erðlagsstof nunar
Björn Indriðason bifvélavirki
skrifar:
„Ég taldi að þörf væri á að
gerðar væru athugasemdir af
óhlutdrægum aðila við „Verð-
kynningu frá Verðlagsstofnun".
Eins og sjá má af eftirfarandi
athugasemdum mínum tel ég
kynningu stofnunarinnar töluvert
villandi.
Varahlutir í híla
árgerð 1979
1. Hlífðarpanna (undir vél): Ekki
notuð í nærri öllum bílum og
oft smíðuð hérlendis. Er því
aukahlutur, en ekki varahlut-
ur.
2. Vatnskassi (kælir) m. loki:
Yfirleitt þarf lok ekki að
fylgja og á sumum kælum er
það ekki.
3. Framrúða: Tvö fyrirtæki ann-
ast söluna að mestu og annað
framleiðir rúður í flesta bíla.
4. Rafkerti, eitt sett: Kerti kaupa
menn í stykkjatali og í nokkr-
um verslunum er hægt að
kaupa þau í nær hvaða bíl sem
er.
5. Kveikjuþræðir (kertaþræðir),
eitt sett: í Trabant eru 2
kertaþræðir, en 6—8 í stærstu
bílum.
6. Stimplar m. stöng, kompl.:
Stimpill og stimpilstöng eru 2
hlutir og þurfa ekki að fylgj-
ast að þegar keypt er.
7. Soggrein: Bilar sjaldan. Nær
hefði verið að nefna útblást-
ursgrein.
8. Bílþak: Betra hefði verið að
spyrja um vélarlok (húdd).
9. Hjólkoppur: Ónauðsynlegur
hlutur og notast ekki á öllum
bílum.
10. Ventlalok: Flestar vélar hafa
nær óforgengileg lok.
11. Strokkalok m. hlíf: Ekki ljóst
hvaða hlíf er átt við.
Nokkrir mikilvægir hlutir eru
ekki teknir með í könnuninni, svo
sem stýrisendi og spindilkúlur.
Telja verður óheppilegt í könnun
eins og þessari að taka með bíla
með loftkældum vélum. Af þessu
er ljóst, að verðkönnun á tækni-
hlutum sem hér um ræðir er ætíð
vandasöm, en mjög æskileg, takist
hún vel og gefi almenningi sem
réttasta mynd.
Með fyrirfram þökk fyrir birt-
inguna."
nýtl fréttahrél
.Xrrðkynning lr* VrrAUg»<tofnun'
. , . Starfsmrnn Verft-
Ivað KOSta lagsMoínunar hrtm-
i i .• nóttu nývrrið 19 bila
arahlutir »>-r
i »1 konnuðu vrrð a
hlla OR varahlutum <>g i nr»t-
ruþeir
áanlegir
i umhoðunum! komanili varahlutir
væru yftr hnfuð til.
Niðurxtoður |«'*»ar»r
IHLULilW ný-ju
lagsslofnunar. „Vrrð-
t msjon: JOllVNNK> kyn„i„g frá Vrrð-
TOMVSSON IH. Sll. latpalofnun*.
|f\ \Tl K HI.ONII \lll. f>ra rnnfrrmur hrr a
Sjö umboö skt*ra sig úr vegna
lélegrar varahlutaþjónustu
Þar gengur ekki
hnífurinn á milli
Húsmóðir skrifar:
„í mörgu vasast Árni Bergmann
þessa dagana. Þeir eru með
fræðsluviku í Menntaskólanum við
Sund, og á hún líklega að létta
þeim róðurinn við stúdentsprófið í
vor. Þar heldur Árni Bergmann
fyrirlestur um írland. Ég hélt að
Árni þekkti best til í Rússlandi, og
á námsárum sínum þar lærði hann,
að ráðstjórnarskipulagið hæfði
best á íslandi, enda berst hann
fyrir því. Fróðleiksfús er Árni,
enda var hann sá eini kommúnisti,
sem ég þekki, sem hlustaði á
Bukowsky.
Ekki notað til að draga
úr matarskortinum
Frásögn Bukowskys af meðferð-
inni á alþýðunni virðist ekkert hafa
breytt trú Árna á kommúnismann,
þó að lýsing hans væri sú hryllL
legasta, sem ég hef heyrt og lesið.
Hann sagði frá því, að gjafakornið,
sem Rússar fá frá Bandaríkjunum,
væri ekki notað til að draga úr
matarskortinum, nei, það var selt á
okurverði til Kúbu og Angóla. Er
þetta ekki það hræðilegasta sem
maður hefur heyrt? Enginn maður
á að þurfa að búa við stjórnkerfi,
sem skipuleggur skort og drýgir
svo matarbirgðirnar með þræla-
búðum, þar sem matarskammtur-
inn er nánast enginn.
Ekki maðkur í mysunni
Árni var fyrir nokkrum árum
látinn lýsa í útvarpinu lífi verka-
manns í Rússlandi, og þar var nú
ekki maðkur í mysunni. Hann
nefndi ekki eins og Arnór Hanni-
balsson, sem var á sama tíma og
Árni í Ráðstjórnarríkjunum, hús-
næðisskortinn, matarskortinn og
launamismuninn í verksmiðjunum,
þar sem verkstjórinn hefur 30
sinnum hærra kaup heldur en hann
Ivan hans Árna, og ekki nefndi
hann eftirlit KGB með mann-
skapnum, sem leiðir til þess, að
alltaf eru milljónir manna í fang-
abúðum. Enda eru þær besta
mjólkurkýr rússnesks iðnaðar.
Arnór gaf út bók um ástandið í
Rússiandi, og útvarpinu datt ekki í
hug að nota þann fróðleik handa
þjóðinni, sem borgar afnotagjöldin
og á heimtingu á því að fá það eitt
sem sannara reynist.
Ungar út stór-
stjörnum fyrir
Alþýðubandalagið
Árni gerir það líka ekki enda-
sleppt við stjórnvöldin í Rússlandi.
Hann þurfti auðvitað að taka upp
hanskann fyrir rússneska sendi-
herrann í Washington, þegar Reag-
an tók af honum sérréttindin, sem
Kissinger hafði veitt honum. Árni
minntist aftur á móti ekkert á það,
hvað Kissinger hafði reynst Suð-
ur-Vietnömum vel, þegar þeir á
sínum tíma báðu hinn frjálsa heim
um aðstoð, er Norður-Víetnamar
réðust á þá og gátu sigrað þá með
stuðningi „gegnherílandi“-frelsis-
aflanna þar. I staðinn fyrir að
byggja upp efnahagslífið eftir
styrjöldina þurfa Víetnamarnir að
berjast til valda í Kampútseu.
Árna til stuðnings kemur svo
heimsmálaskoðun Þórarins Tíma-
ritstjóra. Þar gengur ekki hnífur-
inn á milli, enda ungar Framsókn
út stórstjörnum fyrir Alþýðu-
bandalagið. Þeir brugðust örðuvísi
við bændaflokkarnir í Austur-
Evrópu á sínum tíma, enda voru
flokksformennirnir og ritstjórarnir
gerðir höfðunum styttri."