Morgunblaðið - 14.03.1981, Síða 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK
61. tbl. 69. árg. LAUGARDAGUR 14. MARZ 1981 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Umdeilt
samkomu-
lag við
Líbýu-
menn
Stokkhólmi, 13. marz. AP.
OLAF PALME, leiðtogi
stjórnarandstöðunnar í Svi-
þjóð, sagði i dag, að hann
myndi hugsanlega bera fram
vantraust á ríkisstjórn Thor-
hjórns Fálldins. vegna samn-
ings sænska rikisfyrirtækis-
ins Telub og lýbiskra stjórn-
valda.
„Stjórnvöld reyna að hlaup-
ast undan ábyrgð þessa máls,“
sagði Palme í dag en margir
stuðningsmenn stjórnarinnar
hafa gagnrýnt samkomulagið.
Samkvæmt samkomulagi
þessu hefur fyrirtækið tekið
að sér þjálfun líbýskra her-
manna á sænskri grund og
hefur þjálfunin farið fram
skammt frá Vaxjö. Þar eru
liðlega 100 líbýskir hermenn
og komu þeir til Svíþjóðar á
síðastliðnu ári. Beinni her-
þjálfun þeirra hefur þó verið
hætt vegna gagnrýni í Sví-
þjóð.
Fyrirtækið skuldbatt sig til
að láta Líbýumönnum í té
eldflaugar. Samkomulagið var
undirritað um miðjan síðasta
áratug og þá þvertók forstjóri
fyrirtækisins, Bengt Dahl-
berg, að fyrirtækið hefði tekið
að sér þjáifun líbýskra her-
manna. Hann varð hins vegar
að segja af sér embætti í fyrra
vegna þessa máls. Það sem
þykir koma sér illa fyrir
sænsku stjórnina er að á
síðastliðnu ári varaði sendi-
herra Svía í Trípóli við afleið-
ingum þessa máls. Þrátt fyrir
það gáfu sænskir ráðherrar
fyrirtækinu heimild til að
standa við samkomulagið.
Sjá frétt: „Svíar mennta
líbýska hermenn“ á bls. 22.
Slmamynd-AP
Safraz Khan, sendiherra Pakistans, ræðir við fréttamenn á flugvellinum i Damaskus.
54 f öngum sleppt
úr haldi í Pakistan
Karachi, Damaskus. 13. marz. AP.
PAKISTÖNSK flugvél átti í
kvöid að halda áleiðis til borgar-
innar Aleppo i Sýriandi með 54
fanga, sem hafa verið i haldi i
pakistönskum fangelsum, en þeg-
ar Mbl. fór i prentun i nótt, var
flugvélin enn á flugvellinum i
Karachi. Fregnir fyrr í kvöld
hermdu, að flugvélin hefði haldið
áleiðis til Aleppo en þær fregnir
voru siðar _ bornar til baka i
Karachi. Ástæður tafarinnar
voru ekki Ijósar. en búist var við
að vélin færi til Aleppo i nótt.
Þegar flugvélin lendir í Aleppo
eiga sýrlenskir embættismenn að
ganga úr skugga um, hvort fang-
arnir um borð í pakistönsku flug-
vélinni séu þeir, sem flugvélaræn-
ingjarnir kröfðust að fá lausa úr
haldi. Ef svo reynist, þá mun
verða flogið með fangana til Líb-
ýu. Þegar þeir koma þangað munu
flugvélaræningjarnir láta gíslana
úr haldi.
Sarfraz Khan, sendiherra Pak-
istans í Damaskus sagði við
fréttamenn, að stjórnin í Karachi
hefði látið 54 gísla úr haldi, en
flugvélarænihgjarnir höfðu kraf-
ist þess, að 55 manns yrði sleppt
úr haldi. Fyrr um daginn höfðu
stjórnvöld í Pakistan sagt, að
aðeins hefði tekist að hafa upp á
49 föngum, sem flugvélaræningj-
arnir höfðu gert kröfu til að fá
lausa úr haldi. Síðar um daginn
hækkaði sú tala í 54. Líbýustjórn
hefur skuldbundið sig til að veita
föngunum hæli sem pólitískum
flóttamönnum.
Nú eru 12 dagar liðnir síðan
flugræningjarnir neyddu flugvél-
ina til að lenda í Kabúl, höfuðborg
Afganistans. Líðan fólksins um
borð í flugvélinni er sögð mjög
slæm þó séð hafi verið fyrir
nauðsynlegustu þörfum þess.
Ræningjarnir myrtu einn gísl-
anna fyrir viku síðan.
Nýr forseti
Hafréttar-
ráðstefnunnar
New York. 13. marz. AP.
TOMMY T.B. KOH, sendiherra
Singapores hjá Sameinuðu þjóð-
unum var í kvöld kjörinn forseti
Hafréttarráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna. Hann tekur við af
Hamilton Shirley Amerasinghe
frá Sri Lanka, en hann lést í
desember síðastliðnum.
Segir skilið
við Thatcher
Lundúnum. 13. marz. AP.
EINN ÞINGMANNA íhalds
flokksins brezka tilkynnti í dag.
að hann myndi ekki bjóða sig
aftur fram fyrir flokkinn. „Fjár-
lagafrumvarpið fyllti mælinn.“
sagði Christopher Brocklebank-
Fowler þegar hann skýrði frá
ákvörðun sinni. Fowler hefur
verið þingmaður íhaldsflokksins
síðan 1970 og iðulega gagnrýnt
stefnu Margrétar Thatcher, for-
sætisráðherra.
Litið er á ákvörðun Fowlers sem
mikið áfall fyrir Margréti Thatch-
er og hafa sumir gert því skóna að
liðhlaup Fowlers sé hið fyrsta af
mörgum. Gengið verður til at-
kvæða um fjárlagafrumvarp
stjórnarinnar á mánudag. Fowler
var spurður hvort hann hyggðist
ganga til samstarfs við hinn nýja
Jafnaðarmannaflokk en hann vildi
ekkert láta uppi um fyrirætlanir
sínar. Ef hann gengur til liðs við
jafnaðarmenn, þá er hann fyrsti
íhaldsmaðurinn til að gera slíkt.
Rússar ásaka CIA um
að senda Samstöðu fé
Varnjá, 13. marz. AP.
RÓMVERSK kaþólska kirkj-
an i Póliandi hvatti í dag
menn til að sýna stillingu.
þegar þeir eru áleitnir.
llvatning kirkjunnar nú
kemur þegar spenna hefur
farið vaxandi á ný í Póllandi.
Kirkjunnar menn lýstu Sam-
stöðu sem „von hinna vinn-
andi stétta“. Leiðtogar Sam-
stöðu hafa tekið ofsóknir
stjórnvalda gegn andófs-
mönnum óstinnt upp. í sið-
ustu viku var tveimur leiðtog-
um KOR haldið um tíma af
iögreglu og þeim skipað að
tilkynna sig reglulega á lög-
reglustöð.
Sovéskir og tékkneskir fjöl-
miðlar réðust harkalega að leið-
togum Samstöðu í dag. Tass-
fréttastofan sovéska ásakaði
bandarísku leyniþjónustuna,
CIA, um að senda fé á laun í sjóði
Samstöðu og væri tilgangurinn
að grafa undan sósíalísku þjóð-
skiputagi. Leiðtogar Samstöðu í
Radom í Mið-Póllandi sögðu í
dag, að engin svör hefðu borist
frá stjórnvöldum við kröfum
þeirra. Þeir sögðust því hafa
ítrekað þær, en þeir gera meðal
annars kröfur um, að nokkrum
embættismönnum, sem þeir saka
um spillingu, verði sagt upp
störfum. Lech Walesa heldur á
mánudag til Radom til að stýra
samningaviðræðum þar.
Stanislaw Kania, leiðtogi
kommúnistaflokksins, gagnrýndi
í dag harðlega öfl þau, sem hafa
ráðist gegn gyðingum í landinu.
Fyrir skömmu kom slíkt upp á
yfirborðið en á það hefur verið
bent, að sumir helstu andófs-
manna landsins eru gyðingar.
Barnamorðin í Atlanta:
Tveggja blökku-
barna nú saknað
Atlanta. Georgíu, 13. marz. AP.
TVEGGJA blökkubarna er nú
saknað í Atlanta i Georgiu í
Bandarikjunum. óttast er, að
þau hafi orðið fórnarlömb
barnamorðingjans. Vðtæk leit
stendur yfir og Ronald Reagan.
forseti Bandarikjanna. til-
kynnti i dag sérstaka fjárveit-
ingu til rannsóknar málsins.
Borgaryfirvöld i Atlanta höfðu
beðið alrikisstjórnina um fjár-
hagsaðstoð en kostnaður við
rannsókn málsins er þegar orð-
inn gifurlegur.
Nú þegar hafa lík 20 barna
fundist í Atlanta og vekur mál
þetta sífellt meiri óhug í Banda-
ríkjunum. Líkur benda til, að
fleiri en einn morðingi sé að
verki. Saksóknarinn í Atlanta
segir, að jafnvel allt að 10
morðingjar kunni að standa að
baki morðunum. Hins vegar sé
margt, sem bendi til þess, að 7 til
10 síðustu morðin hafi verið
framin af sama morðingjanum.
Hnepptur í fangelsi fyrir
upplýsingar um Wallenberg
StokkhAlml. 13. marz. AP.
VEJLO KALEP, sem að sögn
konu hans, hefur aflað nýrra
upplýsinga um afdrif Svians
Raoul Wallenbergs. hefur verið
tekinn fastur og ákærður fyrir
„and-sovéskan undirróður". Kal-
ep. sem er Eistlendingur, á yfir
höfði sér allt að 12 ára fangelsi.
Sem kunnugt er, handtóku Sovét-
menn Wallenberg í Búdapest
árið 1945. Oftar en einu sinni
hefur sést til Wallenbergs i
sovéskum fangelsum.
Andófsmaðurinn Ants Kippar
skýrði frá þessu í Stokkhólmi í
dag. Hann sagði, að kona Kaleps
hefði skýrt sér frá handtöku
eiginmanns síns. Hins vegar vissi
hún ekki í hverju hinar nýju
upplýsingar væru fólgnar, þar eð
handtakan bar svo skyndilega að.
„Ég er þess fullviss, að Kalep
mun fá þyngsta mögulegan dóm
öðrum til viðvörunar," sagði Kipp-
ar. Hann sagði, að KGB hefði hert
aðgerðir gegn andófsöflum upp á
síðkastið en andstaða gegn Sovét-
mönnum væri öflug í Eistlandi.
Þannig hefðu þrír 18 ára gamlir
unglingar verið dæmdir fyrir
skömmu fyrir að brenna sovéska
þjóðfánann. Hann sagði, að and-
staða gegn rikjandi þjóðskipulagi
færi vaxandi víða um Sovétríkin
og nefndi hann sérstaklega ísl-
ömsku lýðveldin og Ukraínu.