Morgunblaðið - 14.03.1981, Side 5

Morgunblaðið - 14.03.1981, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MARZ 1981 5 Tæplega rökrétt að það hvetji ekki konur til að sækja um störf — segir Svavar Gestsson um niðurstöður Jafnréttisráðs „Niðurstöðurnar komu mér ekki á óvart. Jafnréttisráð er þeirrar skoðunar, að það sé ekki tilefni til þess að gripa til þeirra úrræða sem gert er ráð fyrir i 11. grein jafnréttislag- anna, en þar er gert ráð fyrir því, að Jafnréttisráð geti, þegar það telur að ákvæði laga séu brotin, beint rökstuddum tillög- um um ákveðnar úrbætur til viðkomandi aðila og fallist við- komandi aðili ekki á tilmæli ráðsins er ráðinu heimilt í samráði við hlutaðeigandi að höfða mál til viðurkenningar á rétti hans“, sagði Svavar Gestsson heilbrigðis- og trygg- ingaráðherra meðal annars i viðtali við Mbl. um niðurstöður Jafnréttisráðs i Dalvikurmál- inu. „Þetta er nú meginniðurstaða Jafnréttisráðs og þar fyrir utan lýsir Jafnréttisráð skoðunum sínum. I fyrsta lagi þá átelur það þessa embættisveitingu sem slíka, í öðru lagi þá telur Jafn- réttisráð að þessi niðurstaða sé ekki til þess að hvetja konur til að sækja um störf á almennum vettvangi. Þetta finnst mér nú satt að segja tæplega rökrétt niðurstaða. Og í þriðja lagi tekur Jafnréttisráð undir það sjón- armið, sem ég hef reyndar sett fram áður, m.a. við fram- kvæmdastjóra ráðsins, að nauð- synlegt sé að endurskoða jafn- réttislögin." — Munt þú þá beita þér fyrir því að lögunum verði breytt, og þá hvenær? „Það verður gert. Það tekur auðvitað tíma að endurskoða þau, áður en þau fara til alþing- is, og ég geri það ekki einn, en ég mun fara í það verk á næstunni." — Þú hefur bent á, að Jafnréttisráð hafi ekki krafist þess, að þú tækir veitinguna til baka. Er slíkt hægt lögfræðilega, jafnvel þó svo málið ynnist fyrir rétti? „Nei, en ráðið getur beint rökstuddum tilmælum um ákveðnar úrbætur til viðkom- andi aðila." — Eru það ekki eingöngu fjárbætur? Ekki þýðir það hið sama og að hægt sé að draga veitinguna til baka? „Til dæmis jú. Út af fyrir sig er það ekki það sama, nei.“ — Þá hefur þú einnig sagt, að rammi lyfsölulaganna segi að taka eigi tillit til lengdar starfs- tíma í apóteki. Túlkar þú ákvæð- ið um að umsækjandi þurfi að hafa unnið í lágmark 12 mánuði í apóteki þannig? „Já, það er forgangskrafa í lyfsölulögunum, að viðkomandi hafi unnið í apóteki við lyfsölu eða lyfjagerð í tiltekinn tíma, að vísu eru nefndir sem lágmark 12 mánuðir, en það er væntanlega þeim mun betra því lengur sem viðkomandi hefur starfað sem slíkur." — Muntu vinna í samráði við Jafnréttisráð að breytingu á lögunum og er frumvarps þar að lútandi að vænta á þessu þingi? „Ég mun vinna að þessu í samráði við fjölmarga aðila. Ég get ekki sagt um hvort það verður á þessu þingi því ég geri ráð fyrir, að það geti tekið einhvern tíma. Það þarf að líta til þeirrar reynslu, sem fengin er af jafnréttislögunum frá því að þau voru sett og það er misskiln- ingur að jafnréttismál hér í landi snúist um þetta lyfsölu- leyfi á Dalvík, eins og sumir virðast halda." Þá átaldi ráðherra í lok við- talsins umfjöllun Mbl. um Dal- víkurmálið og sagði blaðið ekki hafa beitt sér fyrir öðrum brýnni jafnréttismálum. Ekki vildi hann þó nefna neitt ein- stakt mál, fullyrðingum sínum til staðfestingar. VflWICftSTHIK----------- STfFLPtN/ 120 kennara- nemar frá Noregi í íslandsför HÓPUR 120 kennaranema og kennara frá Kennaraháskólan- um i Notodden á Þelamörk i Noregi kemur til landsins i dag. Það er venja i þessum skóla að nemendur fari árlega i stuttar kynnisferðir til ýmissa landa og er þetta i fyrsta sinn sem ísland er heimsótt. Hópurinn mun dvelja hér á landi i vikutima. Þessir norsku gestir hafa meðal annars óskað eftir því að fá að heimsækja grunnskóla, mennta- skóla, iðnskóla, fjölbrautaskóla og kennaraháskólann og einnig fyrir- tæki og stofnanir. í nemenda- hópnum er söngkór, fjörutíu manna þjóðdansaflokkur og lúðra- sveit, auk vel þekkts einsöngvara og tveggja orgelleikara. Ætlunin er að hópurinn haldi þrjá tónleika hér á landi og verða þeir fyrstu í Hamrahlíðarskóla mánudags- kvöldið 16. mars, kirkjutónleikar verða svo í Bústaðakirkju mið- vikudagskvöldið 18. mars og tón- leikar og þjóðdansasýning í Nor- ræna húsinu fimmtudaginn 19. mars. Einnig mun hópurinn fara kynnisferðir um sögustaði á Suð- urlandi. Mikið listalíf er í þessum skóla og hafa margir íslendingar stundað þar nám. Heimsókninni lýkur að morgni laugardagsins 21. mars. Kðlj^ bað- eloioðOi kalmar innréttingar hf. SKEIFAN 8. REYKJAVÍK SÍMIB2M5 Nýjar baöeiningar frá Kalmar fáanlegar í hvítu, eik, Ijósri og litaöri furu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.