Morgunblaðið - 14.03.1981, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MARZ 1981
21
Vetrarrúningi
að mestu lokið
SyAra Langholti. 12. marz.
VETRARRÚNINGI sauðf jár er nú að mestu
lokið, en hér um síðir var byrjað að
vetrarrýja sauðfé fyrir um 18 árum siðan,
en þetta er yfirleitt gert vetrarmánuðina
febrúar og marz. Algert skilyrði er, að
vetrarrúið fé sé í hlýjum húsum og vel
fóðrað, og hér hefur verið byggt mikið af
góðum f járhúsum á siðari árum.
Bændur hafa lært rúninginn hver af
öðrum, og einnig á námskeiðum sem haldin
hafa verið á vegum sauðfjárræktarfélaga.
Rúningsklippurnar eru nokkuð dýr tæki, sem
sumir eiga saman, eða fjárræktarfélagið.
Einnig þekkist það, að menn ferðist um og
rýi fyrir bændur, og er okkur kunnugt um
einn afkastamikinn við þau störf, en það er
Karl Jónsson í Gýgjarhólskoti í Biskupstung-
um, sem rýir margt fé fyrir bændur hér í
uppsveitum Árnessýslu, en á þessari rún-
ingsvertíð mun hann rýja á fjórða þúsund
fjár. Hæfilegt mun talið að rýja milli 80 og
100 kindur á dag, miðað við átta tíma vinnu.
Hér um slóðir er yfirleitt góð nýting á
ullinni, en þó kom fram nýlega i Búnaðar-
blaðinu Frey, í grein eftir ritstjóra blaðsins,
Matthías Eggertsson, að um 15% af ullar-
magninu í landinu skili sér ekki til innleggs-
aðila, og einnig kom það fram að 10—15% af
þeirri ull sem lögð er inn fer í þriðja flokk.
Það hlýtur að vera metnaðarmál bænda, að
gera eins mikil verðmæti úr ullinni eins og
unnt er, en nýkomið er fram í frétt frá
Unnið að vetrarrúningi. Loftur Þorsteinsson
bóndi i Haukholtum að störfum, en hann er einn
þeirra mörgu sem kennt hafa vélrúning.
LjÓ8m. Sír. Sigm.
Útflutningsmiðstöð iðnaðarins, að útflutn-
ingsverðmæti ullarvara var 16,07 milljarðar
gamalla króna á síðasta ári, eða 46% af
heildariðnaðarútflutningsvörunum, og jókst
að verðmæti um 94% á síðastliðnu ári og að
magni um 26%.
Sig. Sigm.
Bókagerðarmenn:
V erkalýðshrey f ing-
in haldi vöku sinni
FYRSTA eintak Prentarans
eftir stofnun Félags bóka-
gerðarmanna er komið út, en
áður var blaðið málgagn Hins
islenska prentarafélags. í
prentaranum er sérstaklega
fjallað um „kaupránslögin"
og þar birt mótmæli hins nýja
félags við þeim.
Mótmæli FBM, sem sam-
þykkt voru með öllum greidd-
um atkvæðum eru svohljóð-
andi:
„Nýskipað Trúnaðarmanna-
ráð Félags bókagerðarmanna
mómælir á 1. fundi sínum 24.
febrúar 1981 harðlega þeirri
kaupránsstefnu, sem núver-
andi ríkisstjórn hefur tekið
upp með setningu bráða-
birgðalaganna nr. 87/1980.
Trúnaðarmannaráð FBM
fordæmir að enn einu sinni
skuli ríkisvaldið ráðast að
frjálsri samningagerð með
fyrirskipunum í lagaformi.
Sérstök ástæða var til að
ætla, að núverandi ríkisstjórn
brygðist ekki við eins og raun
ber vitni eftir allar há-
stemmdu yfirlýsingarnar,
meðan á samningagerð stóð,
þess efnis, að ríkisstjórnin
myndi ekki hafa afskipti af
samningum. Nú höfum við
efndirnar.
Trúnaðarmannaráð FBM
áskilur sér allan rétt til að
bregðast við upptekinni kjara-
skerðingarstefnu ríkisvaldsins
á viðeigandi hátt og hvetur
verkalýðshreyfinguna til að
halda vöku sinni.“
Forsíða Prentarans
Steingríms Pálsson-
ar minnzt á Alþingi
Við upphaf þingfundar sl.
fimmtudag minntist Jón Helgason,
forseti Sameinaðs Alþingis,
Steingrims Páissonar, fyrrverandi
alþingismanns. Hér á eftir fara
orð þingforseta:
„Aður en gengið verður til
dagskrár vil ég minnast nokkrum
orðum Steingríms Pálssonar, fyrr-
verandi símstjóra og alþing-
ismanns, sem andaðist í fyrradag,
þriðjudaginn 10. mars, á sextugasta
og þriðja aldursári.
Steingrímur Pálsson var fæddur
29. maí 1981 vestur í Bandaríkjum
Norður-Ameríku. Faðir hans, Páll
Sigurðsson, var þá prestur í íslend-
ingabyggð þar, Garðabyggð í Norð-
ur-Dakota. Móðir Steingríms var
Þorbjörg Steingrímsdóttir, tré-
smiðs frá Brúsastöðum í Vatnsdal
Guðmundssonar. Steingrímur átti
æskustöðvar vestan hafs til átta
ára aldurs, er hann fluttist til
Bolungarvíkur með foreldrum sín-
um og faðir hans varð prestur þar.
Steingrímur Pálsson lauk gagn-
fræðaprófi í Reykjavík árið 1938 og
loftskeyta- og símritunarprófi 1941.
Ævistarf sitt vann hann fyrst og
fremst hjá Landsíma íslands, hóf
störf þar sem sendisveinn árið 1930.
Hann var símritari 1941—1952,
lengst af i Reykjavík. Jafnframt
var hann starfsmaður í skrifstofu
Bandaiags starfsmanna ríkis og
bæja 1945—1946 og kennari við
simritunarskólann í Reykjavík
1947—1948. Hann var síðan um-
dæmisstjóri Pósts og síma að Brú í
Hrútafirði á árunum 1952—1974.
Fluttist hann þá aftur til Reykja-
víkur og var síðast skrifstofustjóri í
umdæmisskrifstofu rekstrarmála
Landsímans, uns hann lét af störf-
um þar sökum vanheilsu um ára-
mótin 1978-1979.
Steingrímur Pálsson var áhuga-
samur félagi í samtökum síma-
manna, sat í stjórn Félags sl.
símamanna, var formaður þess, og
nokkur ár var han í stjórn Banda-
lags starfsmanna ríkis og bæja.
Hann var varaþingmaður í Vest-
fjarðakjördæmi 1963—1967 og tók
þá þrisvar sæti um skeið á Alþingi.
Síðan var hann landskjörinn þing-
maður 1967—1971, átti sæti á sjö
þingum alls.
Steingrímur Pálsson var í þjón-
ustu Landsímans nærri hálfa öld.
Þar var meginvettvangur starfa
hans. Áhugi hans og störf að
félagsmálum og þjóðmálum leiddu
til setu hans á Alþingi nokkur ár.
Hann var háttvís drengskaparmað-
ur og vann störf sín hér sem annars
staðar af skyldurækni og prúð-
mennsku.
Ég vil biðja háttvirta alþingis-
menn að minnast Steingríms Páls-
sonar, með því að rísa úr sætum.“
Akranes:
Lögreglan aug-
lýsir eftir vitnum
AÐFARANÓTT sl. sunnudags kl.
3.30 var ekið á 17 ára gamla stúlku,
sem var á gangi á Innnesvegi á
Akranesi. Ökumaður bifreiðarinnar
stakk af frá slysstaö og auglýsir
lögreglan á Akranesi nú eftir ungum
manni, sem var fótgangandi á
Garðabraut um svipað leyti, einnig
eftir ökumanni rauðrar bifreiðar,
sem ók Innnesveginn frá Grundar-
hverfi á svipuðum tíma. Einnig
hvetur lögreglan alla þá sem aðstoð-
að geta við að hafa upp á þeim, er
stysinu olli, að gefa sig fram við
tögregluna.
Vorlaukarnir, fyrstu vorboöarnir, eru
komnir. Eigum nú mjög gott úrval
allskonar tegunda; Dahlíur,
Begoníur, Gladiolur, Amaryllis, Liljur
o. m. fl.
Hafberg Þórisson,
garðyrkjufræðingur, veitir
viðskiptavinum þessa helgi faglega
ráðgjöf um vorlauka og meðferð
þeirra.
Komið við i Blómaval um helgina.
Opið frá kl. 9—21 ______