Morgunblaðið - 14.03.1981, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MARZ 1981
Bretlandseyjar:
Læknisþjónustan
ekki lengur ókeypis
London. 13. marz. AP.
FRÁ OG með 1. október næst-
komandi veróa menn aí ýmsu
þjóðerni að borga fyrir læknis-
meðferð ok sjúkrahúsvist i Bret-
landi, samkvæmt nýjum reglum
um brezku heilbrigðisþjónust-
una, sem er rikisrekin, en útlend-
inKar hafa notið ókeypis heil-
brÍKðisþjónustu á Bretlandseyj-
um i 32 ár, án tillits til þjóðernis
eða litarháttar.
Undanþegnir þessum reglum
eru þegnar ríkja Efnahagsbanda-
lags Evrópu, Skandinavar og
menn af austur-evrópsku þjóðerni,
vegna þess að Bretar hafa gert
gagnkvæma samninga um heil-
brigðisþjónustu við þessar þjóðir.
Hins vegar verða Bandaríkja-
menn, Kanadabúar, Ástralir, íbú-
ar Miðausturlanda og fólk af ýmsu
öðru þjóðerni að greiða læknis- og
aðra heilbrigðisþjónustu fullu
verði frá 1. október. Neyðarþjón-
usta verður þó áfram ókeypis.
Trudeau varar
við fiskistríði
Stjórnarhermenn i E1 Salvador á höttum eftir skæruliðum i skógarþykkni við borgina Arcato í
norðausturhluta E1 Salvador. Hinn brynvarði vagn þeirra er brúkaður til að eyðileggja felustaði og
Ottawa, 13. marz. AP.
PIERRE Elliot Trudeau, forsæt-
isráðherra Kanada, varaði
Bandarikjamcnn við fiskistriði á
Atlantshafi. ef þeir gerðu ekki
eitthvað hið fyrsta til að leysa
ágreiningsefni landanna um fisk-
veiðimál.
„Það verður að túlka það sem
ábyrgðarleysi, ef bandarísk yfir-
völd sýna ekki hið snarasta ein-
hvern lit og geri eitthvað í þá átt
að leysa þessi mál,“ sagði Trud-
eau, aðeins einum degi eftir að
Ronald Reagan, Bandaríkjafor-
/
1
Stepanov
hendur KGB
Moftkvu, 12. marz. AP.
DANSARINN Júri Stepanov, sem
i fyrra baðst hælis i Bandaríkjun-
um, en ákvað siðan að snúa aftur
heim til Sovétrikjanna, var i dag
handsamaður á götu i Moskvu og
fluttur á brott i svörtum bil, að
sögn nærstadds útlendings, sem
telur vist, að hér hafi verið á ferð
óeinkennisklæddir lögreglumenn
frá KGB.
Stepanov tjáði nýlega vestræn-
um fréttamanni, að við heimkom-
una í fyrra hefði KGB misnotað
mál hans í áróðursherferð gegn
Bandaríkjunum og hefði hann
verið rekinn úr kommúnista-
flokknum og úr starfi, er hann
neitaði að verða við fyrirmælum
KGB um að útmála fyrir öðrum
dönsurum hvílík „martröð" dag-
legt líf í Bandaríkjunum væri.
Stepanov hefur skýrt frétta-
mönnum frá því, að hann hafi
snúið heim af ótta við ofsóknir á
hendur konu sinni, sem einnig er
dansari, og foreldrum.
seti, hélt heimleiðis úr tveggja
daga opinberri heimsókn til Kan-
ada, þar sem ágreiningur þjóð-
anna um fiskveiðar á Atlantshafi
var m.a. til umræðu.
í síðustu viku dró Reagan til
baka nýgert fiskveiðisamkomulag
er beið staðfestingar þingsins.
Samkomulagið hafði tafist í með-
förum þingsins og ekki hlotið
staðfestingu vegna andstöðu sjó-
manna á Nýja-Englandi við það.
í samkomulaginu var kveðið á
um leyfilegt aflamagn banda-
rískra og kanadískra sjómanna á
hinum gjöfulu miðum á Georgs-
banka, og einnig um aðferðir til
stjórnunar veiða í efnahagslög-
sögu landanna.
göng sem skæruliðar hafa gert.
E1 Salvador:
Símamynd-AP
Vopn að þrjóta
hjá skæruliðum?
Wafthington, San Salvador, 13. marz. AP.
ALEXANDER M. Haig, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, sagði i
dag, að vopnasmygl til skæruliða f
El Salvador hefði greinilega
minnkað siðustu vikurnar, og vis-
bendingar væru um, að vopna-
birgðir skæruliða væru á þrotum.
Haig varaði þó við bjartsýni, þar
sem Kúbumenn væru trúlega að
leita nýrra leiða fyrir vopnasmygl-
ið, þar sem hin hefðbundna leið um
Nicaragua væri ekki lengur greið.
Embættismenn í Pentagon
Afganistan:
10 þúsund ungling-
ar í þjálfun í Sovét
Nýju Delhi, 13. m»n. AP.
SAMKVÆMT fregnum frá Kabúl
hefur gjörsamlega mistekizt að efla
afganska stjórnarherinn og á sið-
ustu mánuðum hafa einungis um tvö
þúsund ungmenni á herskyldualdri
gengið i hann. Hafa sovézka innrás-
arliðið og leppstjórnin i Kabúl þvi
brugðið á það ráð að smala saman
unglingum undir herskyldualdri i
skólum landsins og flytja þá yfir til
Sovétrikjanna til þjálfupar. Er tal-
ið. að þegar hafi um tfu þúsund
unglingar verið fluttir til Sovétríkj-
anna með þessum hætti.
Samkvæmt sömu heimildum, sem
reynzt hafa fullkomlega áreiðanlegar
hingað til, hefur stjórn Babrak
Karmals í Kabúl auk þess orðið að
halla sér að sovézku herraþjóðinni til
að halda lögregluliði starfhaefu, og
hafa fjölmargir sovézkir hermenn
með bækistöðvar í Uzbek og Tajik í
Sovétríkjunum verið fluttir til Kabúl
til að taka þar þátt í störfum
lögreglunnar, en í héruðum þessum
er talað sama mál og í Afganistan.
í upphafi sovézku innrásarinnar í
Afganistan fyrir 14 mánuðum voru í
herafla landsins um 90 þúsund
manns. Á fáeinum mánuðum gerðust
um 30 þúsund þar af liðhlaupar, en
til að efla herinn var brugðið á það
ráð sl. sumar að lækka aldursmark
herskyldra manna í landinu, auk þess
sem skorað var á alla kennara af
karlkyni að gefa sig fram til herþjón-
ustu. Hafa útsendarar stjórnarinnar,
ásamt innrásarmönnum, gengið hart
fram í því að fá menn til herþjón-
ustu, og mun að undanförnu hafa
færzt í vöxt, að hópar einkennis-
klæddra Afgana og Sovétmanna birt-
ist gráir fyrir járnum í skólastofum
til að svipast um eftir álitlegum
nýliðum í stjórnarherinn.
skýrðu frá því í dag, að 15 sérþjálf-
aðir hermenn, svokallaðir Green
Berets, hafi verið sendir til E1
Salvador. Hlutverk þeirra þar væri
ekki að taka þátt í bardögum,
heldur veita hernaðarráðgjöf. Þeir
færu fyrst og fremst til að þjálfa
fámennar sveitir í aðferðum til að
kljást við skæruliða.
Jafnframt skýrðu heimildir í
þinginu frá því, að verið væri að
undirbúa „pakka" er hljóðaði upp á
140 milljónir dollara efnahagsað-
stoð við E1 Salvador, og myndu
Bandaríkin greiða 63,5 milljónir
dollara af þeirri upphæð, en aðrir
aðilar, einkum Alþjóðagjaldeyris-
varasjóðurinn, afganginn.
Frá vígstöðvunum í E1 Salvador
berast þær fregnir, að komið hafi
til harðra bardaga á ýmsum stöðum
í landinu, einkum í nágrenni höfuð-
borgarinnar. Fregnir fóru ekki af
mannfalli. Hins vegar var haft eftir
tveimur skæruliðum, er stjórnar-
hermenn tóku til fanga, að skæru-
liðar væru það vel vopnum búnir, að
þeir gætu hafið nýja stórsókn, en
ósætti væri í þeirra röðum, og ekki
almennt fylgi við aðgerðir af því
tagi.
Svíar mennta líbýska hermenn
Frá fiuófinnu Ragnarsdóttur,
fréttaritara Mhl. i Stokkhólmi.
HVAÐA RÁÐHERRAR vildu að Svíar seldu Líbýu hernaðarmennt-
un íyrir 80 unga hermenn? Það er spurning sem margir spyrja í
dag í sambandi við sovkallað TELUB-mál, sem mikið hefur verið á
dagskrá undanfarið.
Varnarmálaráðherra Svía, Erik Krömark, játaði í gær að sér
hefði 1978 borist vitneskja um, að mennta ætti hermenn frá Libýu
við TELUB-fyrirtækið í Svíþjóð, en hingað til hafa allir ráðherrar
neitað því harðlega að hafa vitað nokkuð um þetta mál.
Játning ráðherrans kom strax
eftir að kvöldblaðið Expressen
lagði fram sönnunargögn fyrir því,
að utanríkisráðuneytið hefði 1978
fengið aðvörunarbréf frá sænska
sendiherranum í Líbýu, þar sem
hann segir m.a., að nú fari fram
samningar milli TELUB-fyrirtæk-
isins og líbýskra yfirvalda um að
Svíar mennti 80 unga liðsforingja í
meðferð fjarstýrðra robota. Slík
samvinna mundi geta valdið Sví-
þjóð miklum erfiðleikum, segir
sendiherrann í bréfi sínu, og orðið
til þess, að ýmsum spurningum,
sem erfitt yrði að svara, yrði beint
til sænskra stjórnvaida vegna
þessa máls. Sendiherrann benti
einnig á það, að bandarískur
starfsbróðir hans hafi spurst fyrir
um það hvort Svíar seldu Líbýu-
mönnum hernaðaraðstoð.
Það var Karin Söder, núverandi
félagsmálaráðherra Svía, sem var
utanríkisráðherra þegar þessir
samningar voru gerðir. Hún hefur
hingað til neitað allri vitneskju um
þetta mál, og sagt að hér sé ekki
um neina hernaðarlega menntun
að ræða.
En bréf sendiherrans var sent til
utanríkisráðuneytisins og nánasti
samstarfsmaður ráðherra sagði í
viðtali við Expressen í gær, að
hann hefði fengið bréfið í sínar
hendur og lesið það. Hann neitaði
þó að segja hvort hann hefði sýnt
utanríkisráðherranum það.
Viðskiptaráðherra Svía hefur
verið talsmaður ríkisstjórnarinnar
í þessu máli í þinginu, og hann
hefur statt og stöðugt haldið því
fram, að hér sé ekki um neina
hernaðarmenntun að ræða.
Það var ekki fyrr en í febrúar
síðastliðnum sem ríkisstjórnin
sneri við blaðinu og stöðvaði
menntun Líbýumannanna. Það var
einnig eftir að kvöldblaðið Ex-
pressen hafði bir,t nokkrar greinar,
sem sönnuðu, að hér var um
hernaðarmenntun að ræða.
Líbýumennirnir 80 komu til Sví-
þjóðar fyrir rúmu ári og hafa
hingað til aðeins verið við undir-
búningsmenntun, m.a. við undir-
búningsnám í ensku. Robot-
kennslan átti skv. samningunum
að koma á fjórða ári, og var sá
þáttur menntunarinnar ekki opin-
ber.
Samkvæmt sænskum lögum er
menntun Líbýumannanna ekki
ólögleg, en búast heföi mátt við
mikilli gagnrýni erlendis frá, ef
Svíar hefðu veitt Líbýu, sem m.a.
hefur hótað að útrýma ísrael,
hernaðarlega menntunaraðstoð.
En nú eru í undirbúningi ný lög,
sem segja að menntun af þessu
tagi sé óheimilt að veita löndum
sem eru í stríði.
Ríkisstjórnin lét strax og
menntunin hafði verið stöðvuð,
fara fram athugun á málinu, og er
þeirri rannsókn hvergi nærri lokið.
Ýmsar raddir eru nú uppi um að
þetta mál eigi eftir að draga stærri
dilk á eftir sér, og komið geti til
greina að einhverjir ráðherrar
verði að fara frá af þessum sökum,
ef uppvíst verður að þeir hafi leitt
þingið í villu um þetta mál.
Formaður jafnaðarmanna, Olof
Palme, gagnrýndi stjórnina mjög
harðlega í dag, og sagði að málið
væri mun alvarlegra en í fyrstu
virtist.
Forstjóri TELUB-fyrirtækisins
sagði af sér eftir að Expressen kom
upp um hernaðarmenntunina í
febrúar. Hann staðhæfði þá, að
varnarmálaráðherrann hefði feng-
ið uppiýsingar um málið, en því
neitaði Erik Krömark alveg þang-
að til í gær.
Veður
víða um heim
Akureyri 1 þoka í
grennd
Amsterdam 7 skýjað
Aþena 22 heiðskírt
Berlín 10 rigning
BrUsael 12 skýjað
Chicago 15 heiðskirt
Feneyjar 10 þokumóða
Frankfurt 16 rigning
Færeyjar 6 alskýjað
Genf 12 rigning
Helsinki -5 snjókoma
Jerúsalem vantar
Jóhannesarborg 25 heíósklrt
Kaupm.höfn -2 skýjað
Laa Palmas 22 skýjað
Lissabon 29 heiöskirt
London 12 skýjað
Los Angeles 21 skýjað
Madrid 20 heiöskírt
Malaga 22 alskýjað
Mallorca 18 lóttskýjað
Miami 23 skýjað
Moskva 12 heiðskírt
New York 8 heíðskírt
Osló -3 skýjað
Parfs 14 skýjað
Reykjavík 1 lóttskýjað
Rió de Janeiro 37 heiðskírt
Rómaborg 18 heiöskírt
Stokkhólmur 2 skýjað
Tel Aviv vantar
Tókýó 18 heióskírt
Vancouver 12 hatðskírt
Vfaarborf 18 hslftskirt