Morgunblaðið - 14.03.1981, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 14.03.1981, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MARZ 1981 Virðist vera um ein- hverja mettun að ræða segir Gunnar Björnsson, formaður Meistarasambands byggingarmanna um mismun á hækkun byggingarkostnaðar og hækkunar á fasteignaverði GR i raun ekkert undrandi á þessum mun, ef menn líta á stöd- una i dag. þá virðist vera um einhverja mettun að ræða,“ sagði Gunnar Björnsson, formaður Meistarasambands byKffingar- manna, i samtali við Mbl., er hann var inntur álits á þeim mikla mun sem var á siðasta ári, annars vegar á hækkun byKftinKarkostnaðar ok hins veKar hækkun á fasteÍKna- verði. „Eftirspurn eftir húsnæði hefur minnkað verulega vegna þeirra lánakjara, sem við búum við. Ef miðað er við fulla verðtryKKÍn(?u lána ok 2—2,5% vexti, þá fer það ekki á miili mála, að það eru óhaKstæðari kjör heldur en hafa boðist. Gömlu lánin, miðað við hæstu löKleyfðu vexti, voru nokkuð þunKbær fyrir viðkomandi í 2—3 ár, en urðu síðan að engu í verðbóÍK- unni, en nýju verðtryKKÖu lánin koma af svipuöum þunga á menn allan Kreiðslutímann. Ék er sannfæröur um, að það er þetta sem fólk er hrætt við, ok þetta kemur einfaldleKa út sem lækkandi verð á fasteÍKnum,“ saKÖi Gunnar. Aðspurður sagði Gunnar, að hyKK'öKarmenn væru ekki hræddir um að þetta ástand myndi vara til langframa. Hann hefði persónulega trú á, að þetta ástand gæti varað í ákveðinn tíma, eitt til tvö og hálft ár. — „Reynzlan sýnir okkur svo, að þetta fer aftur í sama horfið, það eru sveiflur í þessu, sem einmitt gera byggingarfyrirtækjum erfitt um vik á markaðnum. Þjóðfélagsað- stæður hafa gífurleg áhrif á þetta hverju sinni. Þegar eitthvað fer að harðna á dalnum, þá kemur það fyrst fram í nýbyggingum," sagði Gunnar ennfremur. Listáfélag Menntaskólans á ísafirði: Fjölbreytt dagskrá í tilefni Sólrisuhátíðar AÐ VENJU heldur Listafélag Menntaskólans á ísafirði upp á Sólrisuhátið. að þessu sinni dag- ana 8,—15. marz. Fjölbreytt dagskrá er i tengslum við hátíð- ina og ber þar hæst ýmsa list- starfsemi sem bæði heimamenn og aðkomumenn standa fyrir. í dag kl. 10:30 til 15:00 verður hús Menntaskólans á ísafirði opið almenningi og verða kynntir þætt- ir úr skólastarfinu. M.a. verður tölva, sem Menntaskólinn og Iðn- skólinn eiga, til sýnis og fólki gefst kostur á að skoða smáar lífverur í smásjám. Á bókasafni skólans verður samfelld dagskrá. Þar munu nem- endur halda fyrirlestra af ýmsu tagi og ræða efnið við viðstadda. íslensk nútíma- list í Noregi í GÆR var opnuð sýning sex islenskra listamanna hjá Berg- ens Kunstforening í Noregi. Þess- ir sex, sem þar sýna, kenna sig við Galleri Suðurgötu 7 og heita: Steingrimur Eyfjörð Krist- mundsson, Margrét Jónsdóttir, Jón Karl Helgason, Halldór Ás- geirsson. Friðrik bór Friðriks- son og Bjarni H. Þórarinsson. Þessi sýning er liður í kynningu Bergens Kunstforening á íslenskri nútímalist og á næstunni verða sýnd verk Errós á þessum stað. Norska ríkið og Menningarsjóður hafa styrkt listamennina við flutning á verkum þeirra út. Tónleikar Háskólakórsins Háskólakórinn fer í söngför til Vestfjarða í tengslum við Sólrisu- hátíð Menntaskólans á ísafirði og heldur tónleika þar í dag kl. 17:00. Stjórnandi kórsins er Hjálmar H. Ragnarsson og hefur kórinn æft af krafti fyrir þessa söngför. Efn- isskráin einkennist af íslenzkum verkum af ólíkum toga. Eru það þjóðlög og gleðisöngvar, en mörg þessara laga heyrast sjaldan sungin. Grafíksýnin>í Á bókasafninu verður opnuð grafíksýning kl. 14:00 í tengslum við Sólrisuhátíð. Þar mun Jó- hanna Bogadóttir, grafíklistamað- ur, sýna grafíkmyndir sem allar eru unnar á síðasta ári og þessu. Jóhanna hefur stundað myndlist- arnám í grein sinni bæði í Frakk- landi og í Svíþjóð. Hún hefur haldið fjölda einkasýninga, bæði hér á landi og erlendis, og á verk á söfnum víða á Norðurlöndum. Sýningin verður opin næstu viku á opnunartíma safnsins. Kvöldskemmtun Á sunnudagskvöldið verður kvöldskemmtun í Alþýðuhúsinu kl. 21:00. Hljómsveitin „Þeyr“ frá Reykjavík mun spila og átta manna söngflokkur frá Isafirði syngur fyrir gesti okkar lög úr Meyjarskemmunni eftir Schubert. Þetta er kvöldskemmtun fyrir fólk á öllum aldri. Þá kom það fram hjá Gunnari, að hann teldi það sína skoðun, að eftirspurn eftir nýju húsnæði kæmi til með að minnka á komandi árum, og við myndum snúa okkur að því að nýta eldra húsnæði betur. — „Það sjást í raun þegar merki þessa, og það er auðvitað mjög hagkvæmt frá þjóðhagslegu sjónarmiði," sagði Gunnar Björnsson, formaður Meist- arasambands byggingarmanna, að síðustu. Málefni blindra og sjónskertra: Hvöt styður frumvarp Salóme EFTIRFARANDI yflrlýsing var samþykkt einum rómi á félagsfundi hjá Hvöt, félagi sjálfstæðiskvenna i Reykjavik, þegar fjallað var um málefni blindra ok sjónskertra. „Almennur félagsfundur í Hvöt, félagi sjálfstæðiskvenna í Reykjavík, haldinn þar mánudaginn 2. marz 1981, lýsir yfir stuðningi við frum- varp Salome Þorkelsdóttur um breytingu á lögum nr. 52, 14. apríl 1959, um kosningar til Alþingis, þar sem gert er ráð fyrir að auðvelda blindu og sjónskertu fólki utankjör- fundarkosningu. En þar er lagt til, að upphaf 65. greinar laganna hljóði svo: „Kosning utan kjörfundar fer svo fram, að kjósandi stimplar á kjörseðiiinn" o.s.frv." INNLENT Htltól) 11 Halda í’ann á ný Þeir voru að gera klárt strákarnir á Heimaey á fimmtudaginn og i gær var síðan haldið út á nýjan leik til að leggja netin. Það eru ekki margir dagar liðnir síðan Heimaey náðist af strandstað á Þykkvabæjarfjöru, en litlar skemmdir urðu á skipinu. (Ljósm. Sigurgeir). Barði Þórhallsson bæjarfógeti: Athugasemd við æsi skrif í Dagblaðinu MORGUNBLAÐIÐ hefur verið beA ið að birta eftirfarandi athugasemd: Athugasemdir frá bæjarfógetan- um í Ólafsfirði um æsiskrif Jónasar Haraldssonar, blaðamanns í Dag- blaðinu 5. mars sl. um lausn lög- reglumanns úr starfi í Ólafsfirði. Hér er um furðulegar rangfærslur og æsiskrif að ræða og m.a. óheimila myndbirtingu, sem er sett upp á meiðandi og óvirðandi hátt. Varðandi efni blaðsins um lausn lögreglumannsins úr starfi skulu nokkrar staðreyndir settar hér fram. í Ólafsfirði hafa starfað 2 fast- ráðnir lögreglumenn. Starfa þeir sem jafnsettir lögreglumenn, þótt annar hafi haft laun sem varðstjóri vegna starfsaldurs. Þessum lögreglumönnum er alger- lega óheimilt að fá menn í sinn stað, er þeir eru að sinna starfsskyldum sínum. Athygli vekur samt að flest það, sem lögreglumanninum er gefið að sök, er beint og óbeint viðurkennt í skrifum Dagblaðsins, þótt reynt. sé eftir mætti að gera lítið úr ásökun- unum. Það er greinilegt að blaðamaður- inn hefur ekki gert sér nokkra grein fyrir staðreyndum og eðli málsins, hvað þá heldur reynt að kynna sér hlutlægt málsatriði. Hvar eru nú siðareglur blaða- mannsins? Hafa þær e.t.v. týnst í hita augnabliksins. Barði Þórhallsson bæjarfógeti. Atli Steinarsson: Tel saksóknara alls ekki leiða í ljós, að fréttin hafi verið röng „ÉG ER feginn, að þetta mál er búið og að það fékk þessar lyktir. Þetta er að minnsta kosti hálfur sigur fyrir blaða- mennskuna," sagði Atli Stein- arsson, blaðamaður, er Mbl. leitaði f gær álits hans á dómi Hæstaréttar í heimildarmanna- máli þeirra Ómars Valdimars- sonar, fréttastjóra. „Saksóknari talar í greinar- gerð sinni um ranga frétt Dag- blaðsins. Ég tel það alls ekki í ljós leitt á einn eða annan hátt, að hann hafi rétt fyrir sér í því,“ sagði Atli. „Og ég tel það meira en lítið hæpið, að Hæstiréttur skyldi fella málið niður á svona veikri forsendu. „Annað sem mér finnst ein- kennilegt er að sjá í dómi Atli Steinarsson Hæstaréttar að þetta sé mál ákæruvaldsins gegn mér og Ómari. Þarna er ekkert minnzt á rannsóknarlögreglu ríkisins, heldur er saksóknari allt í einu kominn í málið og það dæmt á grundvelli hans greinargerðar. Það var lögmaður okkar, sem áfrýjaði málinu til Hæstaréttar, en hvorki rannsóknarlögreglu- stjóri né saksóknari." Einar J. Gíslason: Fimmtíu prósent ánægður með dóm Hæstaréttar Einar J. Gislason _ÉG ER fimmtiu prósent ánægður með þennan Hæsta- réttardóm. Hann segir, að frétt Dagblaðsins sé ekki marktæk. En ég er óánægður með, að landsins lögum skuli ekki fram- fylgt og þeir, sem fara með slúður. látnir koma fram i dagsljósið,“ sagði Einar J. Gislason, forstöðumaður Fíla- delfiusafnaðarins, er Mbl. leit- aði álits hans á dómi Hæstarétt- ar í heimildarmannamálinu svonefnda, en það var Einar, sem óskaði eftir því við rann- sóknarlögreglu ríkisins að kannað yrði, hver hefði brotið trúnað með þvi að skýra frá þvi að hann hefði átt samtal sem prestur við sitt safnaðarbarn. „Ég tel það tvimælalausan ávinning við þennan Hæstarétt- ardóm, að þegar æðsta dómsvald landsins lítur á það blað, sem veltir sér upp úr hörmungum fólks öðrum íslenzkum blöðum frekar, þá er þetta blað dæmt ómerkt," sagði Einar. ómar Valdimarsson: Verra að Hæstiréttur tók ekki afstöðu til nafnleyndar heimildarmanna „ÉG ER afskaplega ánægður með að vera laus úr þessu máli,“ ómar Valdimarsson sagði Ómar Valdimarsson, fréttastjóri Dagblaðsins, er Mbl. leitaði álits hans á dómi Hæsta- réttar í máli hans og Atla Steinarssonar, blaðamanns. „Ég er hins vegar ekki ánægður með það, að Hæstiréttur skyldi ekki taka efnislega afstöðu til þeirrar spurningar, hvort blaðamenn geti tryggt sínum heimildar- mönnum nafnleynd eða ekki.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.