Morgunblaðið - 14.03.1981, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 14.03.1981, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MARZ 1981 45 Ritföng Þessir hringdu . . . Of mikið um ölvaða menn E.G. hringdi og kvaðst vilja taka undir orð Ástu Bjarnadóttur hér í dálkunum á fimmtudag um biðskýli Strætisvagna Reykjavík- ur á Hlemmi. Það er allt of mikið um ölvaða menn þarna. Á svona stað er það lág- markskrafa að fólk fái að vera í friði þegar það bíður eftir sínum Hvað megum við þá segja? Áhugamaður um sanngjörn flutningsgjöld skrifar á ísafirði 25. febr.: „Kæri Velvakandi. Mikið hefur verið skrifað og rætt um vörugjald á öl og gos- drykki að undanförnu. Allt ætlaði um koll að keyra þegar gjald þetta var hækkað á dögunum. En hvað megum við þá segja, sem búum úti á landsbyggðinni? Ekki bera for- ráðamenn gosdrykkjaverksmiðj- anna í Reykjavík hag okkar mikið fyrir brjósti. Ekkert heyrist minnst á að halda niðri flutn- ingskostnaði á öli og gosi' til okkar, eins og t.d. með því að flytja þennan varning með skipum allt árið, eða sjá svo um að miðað sé við skipataxta í útreikningum á flutningskostnaði, en ekki bif- reiðataxta, jafnvel þótt skipin flytji þessar vörur yfir vetrarmán- uðina. Nei, að mínum dómi átti vöru- gjaldshækkunin fullan rétt á sér, þó að e.t.v. hefði mátt fara ein- hverja málamiðlunarleið." vagni, án þess að eiga það sífellt á hættu að fá kófdrukkna menn rambandi í fangið á sér. Ég er ekkert að banna þessum mönnum að drekka, þetta er bara ekki rétti staðurinn fyrir þá. Það er málið. Svo er það engu skárra þetta pönkaralið sem safnast þarna saman milli fjögur og fimm á hverjum einasta degi. Það verður að gera eitthvað til þess að breyta andrúmsloftinu á þessum stað. Annars fer fólk að veigra sér við að koma þangað inn. Á að láta sparnaðinn bitna á börnunum? Fjögurra barna móðir hringdi og kvaðst bæði sárreið og hneyksl- uð yfir því hvernig sjónvarpið hagaði sér gagnvart börnum: — Ætla sjónvarpsmenn að láta sparnaðarráðstafanir sínar bitna aðallega á börnum, sem engan þrýstihóp virðast hafa á bak við sig? Nú er búið að færa þáttinn „Húsið á sléttunni" af sunnudög- um á miðvikudaga. Maður hefði nú haldið að þessu vinsæla barna- efni yrði valinn tími við hæfi, ekki sist lítilla barna. En það var nú eitthvað annað. Sl. miðvikudag var byrjað að sýna myndina kl. rúmlega hálfníu og sýningartím- inn stóð til að verða tíu. Ég á fjögurra ára gamlan son og annan sjö ára. Auðvitað vildi sá litli fá að horfa til enda, fyrst hinn fékk það, og það enda þótt hann ætti í mesta basli með að halda sér vakandi. Hvers vegna var þessi þáttur ekki færður yfir á miðvikudagssíðdegið og t.d. sýndur á eftir Herra- mönnum á sjöunda tímanum? Mér finnst að við foreldrar ættum að vera betur vakandi yfir því að réttur barna sé ekki fyrir borð borinn í ríkisfjölmiðlunum, þó að gípa eigi til þess að spara. Það hefur ekki verið borið svo mikið í barnaefni á þeim bæjum hingað til, að réttlætanlegt sé að byrja á því að skera það niður eða gera hlut þess minni á annan hátt. Hvað verður um þorskinn? Landkrabbi skrifar: „Nú er því þannig farið að ég, bréfritarinn, hef ekki verið til sjós, en margir góðir vinir mínir eru gamlir sjómenn og dugandi. Þeir fylgjast vel með því sem er að gerast hjá fiskiskipaflotan- um. Um daginn heyrði ég er tveir þeirra voru að rabba sam- an um loðnuna og hið alvarlega ástand sem virðist vofa yfir með þennan litla fisk. Á hverju á þorsk- urinn að lifa? Annar þeirra sagði eitthvað á þessa leið: „Gaman væri nú að heyra frá sérfræðingunum við Hafrannsóknastofnunina um það (ef þá greinir þá ekki á um það), á hverju þorskurinn á að lifa, þegar allt kapp er lagt á það að drepa sem allra mest af loðnunni.“ Hann sagði að það væri staðreynd að tæplega væri nokkurt loðnukvikindi í einum einasta þorski sem veiðst hefði i vetur á hinum gjöfulu fiskimið- um út af Vestfjörðum. Ef loðnan er horfin þá liggur fyrir að biðja Velvakanda að koma því á framfæri við Haf- rannsóknastofnunina: Hvað verður um þorskinn ef loðnu- stofninn er að syngja sitt síðasta hér á miðunum?" BLÖM VIKUNNAR UMSJÓN: ÁB. Pálmar Flestir pálmar verða með tímanum full fyrir- ferðarmiklir í stofu, en það getur verið áhugavert að rækta þá upp af fræi. Nú á tímum er það orðið algengt að íslendingar ferðist til Suðurlanda þar sem pálmarnir vaxa í görð- ir ungu pálmar — þeir eru til að byrja með eins og stinn strá — hafa náð ca. 10 sm hæð eru þeir látnir í potta — ekki of stóra — í létta mold. Til þess að ekki myndist mikil rótar- flækja þegar í stað er rétt að stýfa lítið eitt bessi tígulogi pálmi heitir Chamaedorea elegans, stundum nefndur fjallapálmi. Hann er með smávaxnari pálmum og bendir latneska nafnið til þess. Þolir vel skugga. um svo sem eins og reynitré hér á landi. Það ætti að vera lítill vandi að verða sér úti um fáein frækorn og stinga í vasa eða tösku. En gætið þess að þvo þau vandlega svo fljótt sem auðið er því á þeim gætu leynst óþrif sem ekki er vert að flytja með sér heim. Frækornin skulu geymd í vel lokuðu íláti. Þá má geta þess að stundum fást hér í verslunum döðlur með steinum. Slíkum stein- um má sá, annað hvort nokkrum saman í pott, eða þá að stinga þeim niður með pottbarmi hjá plöntu sem fyrir er í glugganum. Þegar þess- neðan af rótinni og sama skal gert þegar síðar meir verður skipt um potta. Þegar blöðun- um fjölgar og þau fara að skipta sér og fá á sig pálmalag má blanda áburði saman við mold- ina og þegar verulegur vöxtur er kominn í plönturnar má gefa þeim aukaskammt af áburðarupplausn. Yfir sumartímann skal vökva vel en þó láta þorna aðeins á milli. Árið um kring er gott að úða pálma öðru hverju með ylvolgu vatni en það getur m.a. varið plönturnar að einhverju leyti fyrir ásókn hvers- kyns óþrifa. H.L. EFÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.