Morgunblaðið - 20.03.1981, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1981
Skipan opinberra framkvæmda:
15 millj. kr. myndu spar-
ast ef verkin væru boðin út
f MATSNIÐURSTÖÐU nefndar
sem starfar á vetfum Verkfræð-
inKafélaKS íslands að rannsókn á
skipan opinberra framkvæmda
kemur fram aö ef farið væri i einu
GUNNAR Snorrason var einróma
endurkjörinn formaður Kaup-
mannasamtaka Islands á aðalfundi
samtakanna í gær. Þá var Þorvaid-
ur Guðmundsson einnii; einróma
endurkjorinn sem varaformaður.
Tómas Árnason viðskiptaráðherra
sagði á fundinum. að hann væri
fylgjandi heimild til handa verzlun-
um að selja vöruhirjfðir sinar á
raunvirði, en erfiðlexa (fentfi að
aÍKreiða það í ríkisstjórn.
í umræðum á aðalfundinum kom
fram að staða landsbyggðarverzlun-
arinnar er slæm 0(j í ályktun var
sérstaklega vakin athygli stjórn-
valda á því. Þar kom einnig fram sú
krafa, að ríkisstjórnin heimilaði nú
þegar framkvæmd samþykktar
Verðlagsráðs frá 3. desember sl. um
heimild til handa verzlunum að selja
vörubirgðir sínar á raunvirði. Tóm-
og öllu eftir logum nr. 63/1970 um
skipan opinberra framkvæmda
mætti lækka kostnað um a.m.k. 10
prósent við nýbyggingar á vegum
hins opinbera. Þannig myndu
as Árnason sagðist telja, að full-
trúar BSRB og ASÍ hefðu samþykkt
það með því að sitja hjá við
afgreiðslu málsins í Verðlagsráði.
„Kannske það mýki suma,“ sagði
hann.
Þá vöktu Kaupmannasamtökin
einnig athygli á því í ályktun sinni
að frjáls og óheftur atvinnurekstur í
landinu væri einn af hyrningar-
steinum þjóðfélagsins og varað var
við aukinni ásælni hins opinbera,
með sífellt meiri skattheimtu og
álögum á verzlunarfyrirtæki.
Sjá nánar bls. 14.
sparast a.m.k. um 15 millj. nýkr.
(1,5 milljarðar gkr.).
Á blaðamannafundi sem Verk-
fræðingafélagið efndi til kom fram
að þótt áðurnefnd lög séu í veiga-
mestu atriðum vel samin og gætu
verið góður grundvöllur að skipan
framkvæmda hjá hinu opinbera
vanti mikið á að þeim sé fylgt.
Sérstaklega telur nefndin að mikið
vanti á að ákvæðum laganna um
útboð sé framfylgt sem leiði til þess
að kostnaður við nýbyggingar verði
verulega hærri en þyrfti að vera.
Sterk tilhneiging er hjá ýmsum
opinberum stofnunum til að annast
nýbyggingar á sínu sviði eða bjóða
þær ekki út nema að litlum hluta.
Þá hefur nefndin það meginsjón-
armið að skilja eigi að jafnaði sem
mest á milli eftirfarandi fjögurra
aðila opinberra framkvæmda: eig-
anda, hönnuðar, eftirlits og verk-
framkvæmanda. Slík skipting kæmi
nánast af sjálfu sér ef viðkomandi
verk væri boðið út en er nánast
útilokuð ef viðkomandi ríkisstofnun
annast verkið sjálf.
RARIK og línumenn
og rafvirkjar sömdu
r
Aðalfundur Kaupmannasamtaka Islands:
Gunnar Snorrason end-
urkjörinn formaður
INNLENT,
„SAMKOMULAG náðist um kjara-
samning, sem er fyrsti sameiginlegi
samningur linumanna, rafvirkja, raf-
vélavirkja og raftækna hjá Rafmagns-
veitum ríkisins. Þetta samkomulag er í
meginatriðum hið sama og rafiðnað-
armenn hafa gert við aðra vinnuveit-
endur sína á undanförnum vikum,“
sagði Magnús Geirsson, formaður Raf-
iðnaðarsambands Islands í samtali við
Mbl. í gær en í gærmorgun náðist
samkomulag Rafmagnsveitna ríkisins
við línumenn, rafvirkja, rafvélavirkja
og raftækna, eftir að samningafundur
hafði staöið frá kl. 16 á miðvikudag.
Verkfall þessara aðila átti að koma til
framkvæmda á miðnætti nk. sunnudag.
„Við munum kynna samkomulagið
víðs vegar um landið núna um helgina
og atkvæðagreiðsla um samkomulagið
fer þá fram,“ sagði Magnús Geirsson.
Rússneskur ís-
brjótur í höfn
OTTO SCHMIDT, rússneskur ísbrjótur og rannsóknaskip, kom
til hafnar í Reykjavík i gærmorgun, og mun hann dvelja hér fram
á sunnudag, að sögn Kára Valvessonar, hjá Skipadeild Sambands-
ins, sem umboð hefur fyrir rússnesk skip hér á landi.
Otto Schmidt er 3650 lestir að stærð og á honum 54 manna áhöfn
og 30 vísindamenn.
Kári sagði að erindi skipsins hingað væri að taka eldsneyti, vistir
og vatn, auk þess sem tíminn væri notaður til að hvíla
mannskapinn.
í janúar sl. kom hingað 9000 tonna rússneskt skip og í febrúar
komu hingað þrjú skip, eitt 9000 tonna og tvö 2250 tonna. Kári var
spurður hvort komur rússnesku skipanna væru að færast í vöxt.
Hann sagði þá hafa komið nokkuð oft að undanförnu, en ekki vissi
hann hvert framhaldið yrði. Það væri hins vegar nauðsynlegt fyrir
þessi skip, sem væru á ferð norður í hafi, að koma til hafnar og taka
vatn Og vistir. Myndina tók ljósmyndari Mbl. Ól.K.M.
Lítil loðnuveiði
LÍTIL loðnuveiði heíur verið
síðustu tvo sólarhringa. Veð-
ur hefur hamlað veiðum. en
einnig hefur lítið verið að
finna og skipunum hefur
fækkað síðustu daga. Síðdeg-
is tilkynntu tvö skip um afla,
sem fékkst undan Alviðru-
hömrum. Guðmundur var
með 800 lestir og Súlan með
330 lestir.
„Óþægilegt að hafa styttu af
mér sjálfum í vinnuherberginu“
Laxness-stytta í Þjóðleikhúsinu
„ÞESSI höggmynd var týnd
fyrir heiminum í þó nokkuð
mörg ár í kjallara úti í London.
Um tíma stóð hún á skrifborð-
inu hjá forleggjara mínum sir
Stanley Unwin, einum helsta
hókaútgefanda Bretlands, en
við fráfall hans fór styttan til
annarra og þeir vissu ekki
hvaða maður þetta var. Ein-
hverra hluta vegna höfðu þeir
þó samband við íslenska sendi-
ráðið og þar var styttan lengi,“
sagði Halldór Laxness í samtali
við Mbl. þegar þeir hittust i
Þjóöleikhúsinu í gær, Ilalldór
og breski listamaðurinn Ric-
hard Lee sem gerði höggmynd-
ina af Halldóri fyrir vaxmynda-
safn það sem óskar Halldórs-
son lét gera um 1950 og var sett
upp í Þjóðminjasafninu, en er
nú geymt í kjallara hússins.
Þar er um að ræða vaxmyndir
af um 20 tslendingum og 20
útlendingum. Halldór hefur nú
gefið Þjóðleikhúsinu högg-
myndina í bronsi og hefur
henni verið komið fyrir í skála
Þjóðleikhússins ásamt styttum
af Jóhanni Sigurjónssyni, Guð-
mundi Kamban, Matthíasi
Jochumssyni og fleiri höfuð-
skáldum þj<>ðarinnar, en fyrir
mörgum árum hvarf úr Þjóð-
leikhúsinu höggmynd Ólafar
Pálsdóttur af Laxness og hefur
hún ekki komið i leitirnar.
I greinaflokknum Málþing um
Guðsgjafaþulu í Morgunblaðinu í
desember 1973 eftir Matthías Jó-
hannessen er fléttað inn í samtali
við Halldór Laxness, þar sem
hann segir um ástæðuna fyrir því
að vaxmyndasafnið var sett upp á
íslandi:
„Óskar Halldórsson varð fyrir
þeirri miklu sorg, að elzti sonur
hans drukknaði á sjó í miðju
stríðinu. Hann sá mikið eftir
honum. Óskar fór þá að hugsa um,
hvað hann gæti gert til að halda
uppi minningu þessa látna sonar
síns. Hann langaði að gera honum
einhverja minningu, sem væri
tengd við list. En nú hafði þessi
ungi piltur farið snemma á sjóinn
og var ekki handgenginn list og
erfitt að setja hann í samband við
hana, en aftur á móti hafði hann
einhvern tíma í London orðið
stórhrifinn af vaxmyndasafni sem
kennt er við Madame Tussaud,
eins og unglingar verða oft. Þá
datt Óskari í hug að setja upp í
minningu sonar síns vaxmynda-
safn hér heima. Og þær myndir
sem hann vildi láta gera í þetta
Höggmynd Richard Lees af Hall-
dóri Laxness.
safn, áttu að vera af mestu
mönnum íslands á þeim tíma og
hann valdi sjálfur þá menn sem
hann taldi verðuga þess að eiga
mynd sína í þessu safni, mig
minnir nær endalokum stríðsins.
Hann lét koma hingað frá London
sérstakan listamann í því skyni að
móta menn undir vaxmyndaaf-
steypu."
I spjalli okkar um vaxmynda-
safnið, sem á sínum tíma var til
sýnis í Þjóðminjasafninu, kom
fram að safnið er nú geymt í
kjallara Þjóðminjasafnsins og
undraðist Halldór að svo stór
kjallari skyldi vera í safnhúsinu.
„Þessi höggmynd mun hafa lent
hjá sir Stanley fyrir einhverja
tilviljun, „sagði Halldór," því hann
safnaði ekki myndum af sínum
höfundum. Eftir að hún komst í
íslenska sendiráðið lét Kristinn
Guðmundsson sendiherra haua
standa uppi þar, en svo kom ann ið
fólk sem hafði ekki nein sambönd
við mig og það mun hafa látið
Richard Lee og Halldór Laxness hittast i Þjóðleikhúsinu i gær. Fjær eru til vinstri Erna Óskarsdóttir
Halldórssonar og Auður Laxness. Ljósmyndir Mbl. Kristján Einarsson.