Morgunblaðið - 20.03.1981, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1981
29
krafti strax á þessu ári. Og að
sjálfsögðu ber Alþingi og ríkis-
stjórn að virða þjóðarviljann í
þessum efnum sem öðrum. Komm-
ar geta þar engu um þokað, hvað
fegnir sem þeir vildu. Þeirra einu
úrræði verða bara síendurtekin 30
ára ofaníát fyrri fullyrðinga.
„Vilji er allt sem þarí“
Margir álíta að Blöndu- og
Sultartangavirkjun eigi að byggj-
ast upp samhliða og svo strax á
eftir komi Austfjarða- eða Fljóts-
dalsvirkjun. Virkjunarsérfræð-
ingar segja, að sérþjálfað starfslið
sé þegar fyrir hendi til að byggja
þessar virkjanir samtímis, og ætti
því að vera hægt að fullljúka þeim
fyrir árslok 1990. Ef orkuráðherra
reyndi að hrista af sér slenið og
láta af svefngöngu sinni, mundi
allt breytast til betri áttar. Og enn
gæti hann bætt um betur, ef hann
flytti mál sitt þannig, að allir
mættu skilja og hætti allri skrúð-
mælgi í véfréttastíl til þess eins að
fela staðreyndir. Sjálfsagt hefði
ráðherrann gott af nokkrum vít-
amínsprautum. Það er alveg bráð-
nauðsynlegt að auka fram-
kvæmdahraða orkumála a.m.k.
um 50%, þá er helst von til þess,
að þær þrjár mikilsverðu virkjan-
ir, sem nú eru efst á blaði, verði
fullbúnar á yfirstandandi áratug
og það er vissulega mögulegt, ef
allir eru samtaka. „Vilji er allt
sem þarf.““
Finnast gjörðir ferðaskrif-
stofunnar forkastanlegar
Kristinn Jónsson skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Eg var að lesa grein sem birtist
í Morgunblaðinu 10. þ.m. sem olli
mér nokkurri umhugsun. Greinina
ritar Eysteinn Helgason, fram-
kvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar
Samvinnuferðir-Landsýn.
Ég skil manninn mjög vel, því
þegar ég geri eitthvað, sem ég fæ
samviskubit yfir reyni ég alltaf að
finna sökudólg til að kenna
ákvörðun mína.
Sagan vill helst
strika yfir það
Ég ætla ekki að taka upp
hanskann fyrir Flugleiðir, en þar
sem nafn ferðaskrifstofunnar er
tengt Samvinnuhreyfingunni vil
ég minna á fyrstu ár kaupfélag-
anna, þegar þau áttu í höggi við
rótgróna selstöðukaupmenn sem
hikuðu ekki við að undirbjóða
vöruverð kaupfélaganna ef það
mætti verða til þess að mörland-
inn hætti þessu sjálfstæðisbrölti.
Alltaf urðu nokkrir íslendingar til
að þiggja ölmusuna af ýmsum
ástæðum, sem ekki skal farið út í
frekar, en sagan vill helst strika
yfir það atriði í lífi þessara
manna.
Gerir ASÍ enga
athugasemd?
Því finnst mér það nöturlegt
þegar félag tengt samvinnuhreyf-
ingunni fetar í fótspor þessara
ölmusumanna og gleypir við und-
irboðum fjársterkra útlendra
fyrirtækja, sem fyrst og fremst
hafa þann tilgang að koma á kné
sjálfstæðri íslenskri flugþjónustu.
Þessi útlendu auðfélög virðast
alltaf geta fundið íslenska ein-
staklinga eða félög, sem eru fús til
að ganga erinda þeirra og þykjast
gera það með hagsbætur við-
skiptamanna sinna í huga, en
hvað mundu íslendingar þurfa að
borga í fargjöld ef þessi flugfélög
næðu einkaaðstöðu með flug til og
frá Islandi þegar búið væri að
koma íslensku flugfélögunum á
kné.
Seinna nafnið á ferðaskrifstofu
þessari mun vera tengt Alþýðu-
sambandi Islands. Gerir það sam-
band enga athugasemd við það að
lagður sé grundvöllur að flutningi
á útlendu atvinnuleysi til íslands?
Að síðustu. Ég get ekki séð á
auglýsingum að ferðakostnaður
hjá þessari ferðaskrifstofu sé það
lægri sem máli skiptir heldur en
hjá þeim ferðaskrifstofum, sem
nota íslensk flugfélög, en
Samvinnuferðir-Landsýn hampa
nöfnum þjóðlegustu samtaka Is-
lands og þess vegna get ég ekki
sætt mig við gjörðir ferðaskrif-
stofunnar og finnst þær vera
forkastanlegar.“
Gátan og lausnin
Velvakanda finnst rétt að taka
fram vegna gátu, sem birtist hér í
dálkunum í fyrradag og lausnar á
henni sem birtist í gær, að hvort
tveggja var aðsent frá Hrútfirð-
ingi og aðeins hugsað sem sak-
laust gaman.
03? SlGeA V/öGA fi A/LVtRAK
irumarkaðurinn hf.
VÍÉ^lArm úla 1A, húsgagnadeild s. 86112.
Furuhlaörúm 190x75
Furuhornskápar
Einnig til í brúnu
Furuskrifborð og hillur
14 geröir einstaklingsrúma
5 gerðir einstaklingssvefnbekkja
Opið til
kl. 8.00 föstudag
og til hádegis
laugardag
Irumarkaðurinn hf.
núla 1A, Húsgagnadeild s. 86112.