Morgunblaðið - 20.03.1981, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1981
3
Jafnt hjá
Margeiri
MARGEIR Pétursson gerði jafn-
tefll við Rússann Bagirov á Tall-
inn-skákmótinu í gærdag og hef-
ur því hlotið 5,5 vinninga í 10
umferðum.
Eftir tíundu umferð í gærdag eru
jafnir og efstir á mótinu þeir
Gipslis og Tal með 6,5 vinninga. í
þriðja sæti er Nei með 6,0 vinn-
inga og í fjórða Gufeld með 5,5
vinninga og biðskák og Margeir er
svo í fimmta sæti með 5,5 vinn-
inga. Bronstein og Bagirov koma
síðan með 5 vinninga og unnar
biðskákir, þannig að víst má
teljast að þeir færist upp á
töflunni.
Norðurlönd — Tyrkland:
Vegabréfs-
áritanir á ný
ÁKVEÐIÐ hefur verið að fella úr gildi
til bráðabirgða og þar tii annað
verður ákveðið. samning um afnám
vegabréfsáritana milli tslands og
Tyrklands. frá og með 1. mai nk.
Hörður Helgason, ráðuneytisstjóri i
utanrikisráðuneytinu. sagði aðspurð-
ur að þessi breyting væri gerð að
beiðni Svia, sem hafa lent i þvi, að
mikili straumur Tyrkja hefur verið
inn i landið að undanförnu.
„Ef þessu yrði ekki breytt hér, svo og
á öðrum Norðurlöndum, myndi þetta
fólk einfaldlega geta komið fyrst til
íslands og haldið siðan áfram til
Svíþjóðar," sagði Hörður.
Frá 1. maí verður krafizt vegabréfs-
áritunar af tyrkneskum ríkisborgurum,
sem ferðast til íslands og hinna
Norðurlandanna.
Forsetinn tilNoregs
FORSETI íslands, Vigdis Finn-
bogadóttir, fer í opinbera heim-
sókn til Noregs dagana 21.—23.
október nk. i boði Noregskon-
ungs, segir i frétt frá Skrifstofu
forseta íslands.
Richard Lee að vinnu við hðgg-
myndina sem hann gerði af
óskari Halldórssyni fyrir u.þ.b.
30 árum.
hana í geymslu. Taldi ég hana
týnda. Pétur Thorsteinsson kom
síðan með styttuna heim, líklega í
fyrra.
Það var dálitið skringileg hug-
mynd og alveg fyrir utan mig að
sitja fyrir vegna smíði þessa
vamyndasafns en Óskar Hall-
dórsson vildi setja safnið upp og
bað mig að vera með. Þetta var
honum mikið hjartans mál, en ég
gerði það með öllu áhugalaust.
Hann þrábað mig, við vorum vinir
og því var þetta sjálfsagt.
Eftir 30 ár komst styttan svo í
mínar hendur en ég kunni ekki við
að hafa styttu af mér sjálfum í
mínu vinnuherbergi, það var mjög
óþægilegt. En þessi stallur í Þjóð-
leikhúsinu var auður, ég var kom-
inn á hann áður fyrr, og vegna
einhvers óhapps sem ég skil ekki
og hef ekki hirt að nefna kemst
þessi höggmynd Richard Lees nú á
betri stað en að standa í vinnuher-
berginu hjá mér.“
-á.j.
Niðursoðinn saltfiskur
ICEL4ND
wmns
CALIDAD EXTRA
Friðrik ákveður
mótsstað í dag
„ÉG MUN tilkynna ákvörðun
mina um mótsstað heimsmeist-
araeinvigis þeirra Anatolys
Karpovs og Viktors Korschnois á
morgun, föstudag, en ég hef átt
viðræður við fulltrúa þeirra
Karpovs og Korschnois hér í
Amsterdam,“ sagði Friðrik
ólafsson, forseti FIDE, alþjóða
skáksambandsins, i samtali við
Mbl. i gær.
Aðspurður hvort einvíginu yrði
hugsanlega skipt milli staða, sagði
Friðrik að slíkt kæmi vart til
greina. Það hefði margvísleg
óþægindi í för með sér auk þess,
að fyrirfram væri ekki hægt að
segja til um hvenær einvígi væri
hálfnað. Sem kunnugt er stendur
valið milli þriggja borga, Reykja-
víkur, Merano á Ítalíu og Las
Palmas á Kanaríeyjum.
Undanfarið hefur Norðurstjarnan í Hafnarfirði soðið niður
saitfisk og fer þessi framleiðsla fljótlega til Spánar á vegum
Sölustofnunar lagmetis. Hér er um tilraunaframleiðslu að ræða á
tiltölulega litlu magni, en ef vel tekst til gera menn sér vonir um,
að talsverður útflutningur geti orðið á niðursoðnum saltfiski á
komandi árum til spænsku- og portúgölskumælandi þjóða.
Umbúðir utan um dósirnar eru unnar í Kassagerð Reykjavikur
og eru áletranir bæði á spænsku og portúgöisku.
Haf a heimilað 86%
hækkun afnotagjalda
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi fréttatilkynning frá
rikisstjórninni:
I umræðum um fjárhag Ríkis-
útvarpsins hefur því verið haldið
fram í fjölmiðlum að stjórnvöld
hafi ekki leyft eðlilegar hækkanir
á afnotagjöldum stofnunarinnar.
Er því rétt að fram komi að síðan
núverandi ríkisstjórn tók til
starfa 8. febrúar 1980, hafa verið
heimilaðar hækkanir á afnota-
gjöldum sem nema 86%. Ríkisút-
varpið hefur því fengið verulega
hækkun á afnotagjöldum umfram
hækkun launa og verðlags á sama
timabili.
„Friðrik verður að
höggva á
„MÉR sýnist augljóst, að Friðrik
Ólafsson verður að höggva á hnút-
inn og ég vona, að hann velji
Reykjavik,“ sagði dr. Ingimar
Jónsson, forseti Skáksambands Ís-
lands, i samtali við Mbl. i gær-
kvöldi.
„Friðrik hefur átt viðræður við
fulltrúa þeirra Karpovs og Korsch-
nois í Amsterdam og mér skilst, að
fulltrúi Karpovs hefur verið harður
á, að einvígið fari fram á Las
Palmas á Kanaríeyjum. Hann vill,
að því er virðist ekkert, semja um
annað. Því sýnist mér augljóst, að
Friðrik verður að höggva á hnútinn
og við vonum hið bezta.
Við getum boðið upp á prýðis
aðstæður en mér skilst að aðstæður
hnútinn44
á Las Palmas séu ekki eins góðar og
hér og því vona ég að Reykjavík
verði fyrir valinu," sagði dr. Ingi-
mar Jónsson.
Allharður árekstur
ALLHARÐUR árekstur varð milli
tveggja bila á mótum Reykjavíkur-
vegar og Dalshrauns i Hafnarfirði
um sexleytið á fimmtudag, og var
tvennt flutt á slysadeild Borgarspit-
alans, að sögn lögreglunnar i Hafn-
arfirði.
Lögreglan óskar sérstaklega eftir
því, hafi orðið Vitni að árekstrinum,
að þau gefi sig þá fram á lögreglu-
varðstofunni í Hafnarfirði.
„ÞAÐ VEITIR ÞÉR ÖRYGGI“
LOTUS hefur einstæða lögun, sem leiðir til fullkominnar aðlögunar að líkaman-
um, jafnvel í þrengstu flíkum.
LOTUS veitir fyllsta öryggi, vegna tveggja trefjalaga og plasthúðaðrar bakhliðar.
Á bakhliðinni er einnig límræma, sem eykur stöðugleikann.
Hverjum pakka af LOTUS fylgja 10 plastpokar.
LOTUS fæst í þremur stærðum: LOTUS mini, LOTUS futura og LOTUS maxi.