Morgunblaðið - 20.03.1981, Side 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1981
Hafnarfjörður
Hef veriö beöinn aö útvega leiguíbúö í um 6
mánuði.
Árni Gunnlaugsson hrl.
Sími 50764.
Við Álftamýri
Vorum aö fá í sölu 2ja herb. íbúö á 2. hæö viö
Álftamýri. íbúöin er aö grunnfleti ca. 50 ferm. Stofa,
eldhús og svefnherb., og baö, meö góöum suöur-
svölum. íbúöin er laus í júní nk., verður til sýnis milli
kl. 14 og 17 á sunnudag. Verö: tilboö. Vinsamlegast
hafiö samband viö Fasteignahöllina, símar 35300 og
35301.
R O Y A L
SKYNDIBÚÐINGARNIR ^
ÁVALLT FREMSTIR
ENGIN SUÐA
Tilbúinn eftir
fimm mínútur
5 bragðtegundir
SVÆÐISFUNDUR
Kaupfélögin á Suðurlandi halda svæðis-
fund með stjómarformanni og forstjóra
Sambandsins í félagsheimilinu Hvoli,
Hvolsvelli, Íaugardaginn 21. mars 1981
kl. 13.00 — 20.00.
Fundarefni:
1. Viðfangsefni Sambandsins.
Frummælandi: Erlendur Einarsson, for-
stjóri.
2. Samvinna kaupfélaganna og tengsl við
Sambandið.
Frummælandi: Oddur Sigurbergsson
kaupfélagsstjóri.
3. Stefnuskrá samvinnuhreyfingarinnar.
Frummælandi: Valur Amþórsson, stjórnar-
formaður Sambandsins.
4. Tengsl félagsmanna við kaupfélögin.
Frummælandi: Einar Þorsteinsson ráðu-
nautur.
5. önnur mál — almennar umræður.
Félagsmenn kaupfélaganna eru hvattir til að
koma á fundinn.
Kaupfélag Ámesinga
Kaupfélag Rangæinga
Kaupfélag Skaftfellinga
Kaupfélag Vestmannaeyja
Núverandi stjórn Kvennadeildar Siysavarnarfélagsins í Keflavik. Sitjandi eru Elin Ólafsdóttir, Guðmunda
Sumarliðadóttir og Guðrún Ármannsdóttir, en standandi Jóna Sigurgisladóttir, Svava Runólfsdóttir,
Einhildur Pálmadóttir og Maria Arnlaugsdóttir.
Kvennadeild Slysavarna-
f élagsins í Kef lavík 50 ára
KVENNADEILD Slysavamarfé-
lagsins i Keflavik er 50 ára 29.
mars næstkomandi. í tilefni af-
mælisins minnast kvennadeild-
arkonur 50 ára starfs með afmæl-
isfundi i Vikinni að Hafnarbraut
86 i Keflavik á morgun, sunnu-
dag, kiukkan 14.30. Þar verða á
boðstólum kaffi og kökur, og
einnig fjölbreytt skemmtiatriði.
Hinn 29. mars 1931 komu saman
sjö konur úr Kvennadeildinni í
Reykjavík og einnig Jón Berg-
sveinsson í samkomuhúsinu Skildi
í Keflavík og stóðu þar að stofnun
deildarinnar ásamt heimakonum.
Stofnendur voru sextán konur í
Keflavík og ein telpa. Fyrstu
stjórn félagsins skipuðu: Guðný
Ásberg, formaður, Guðný Vigfús-
dóttir, gjaldkeri, Júlíana Jónsdótt-
ir, ritari og meðstjórnendur voru
Hólmfríður Hjartardóttir, Kristín
Guðmundsdóttir, Sesselja Magn-
úsdóttir og Þorgerður Jósefsdótt-
ir. Núverandi formaður er Guð-
munda Sumarliðadóttir.
„Starfsemi deildarinnar hefur
frá upphafi verið að safna fé til
björgunarstarfa," sagði Guð-
munda í stuttu spjalli við Mbl.
„Fyrstu árin voru haldnar
skemmtanir og seldar veitingar til
ágóða fyrir félagið, einnig voru
beitt línubjóð, sem nokkrir for-
menn tóku með sér á sjóinn, og
fékk deildin fiskinn sem í þau
kom. Fyrsta árið voru tekjur
deildarinnar 866 krónur og 15
aurar og þar af fékk Slysavarnar-
félag íslands 800 krónur. Næstu
árin fjölgaði félagskonum ört og
starfsemin blómgaðist.
Nú eru í félaginu um 240 konur,
sem enn vinna vel fyrir málefnið,
enda veitir ekki af. Á síðasta ári
voru tekjur deildarinnar rúmar
tvær milljónir gamalla króna og
af því var framlag til Slysavarnar-
félags íslands rúm ein og hálf
milljón (gömul) — en vegna 50 ára
afmælisins í ár fengum við árstil-
lagið eftirgefið til nota heima í
héraði og gáfum við þá upphæð
alla til Sjúkrahúss Keflavíkur-
læknishéraðs, en féð mun renna til
kaupa á þvag- og blóðrannsókn-
artækjum."
Guðmunda varð formaður árið
1976 er hún tók við af Sesselju
Magnúsdóttur, sem þá hafði setið í
stjórninni í 45 ár. Sesselja, sem
aðrar forystukonur Kvennadeild-
arinnar í 50 ár, hefur unnið
Slysavarnarfélaginu frábærlega
vel. „Auðvitað erum við bjartsýn á
þessum tímamótum," sagði Guð-
munda „En þó starfið hafi gengið
ljómandi vel, þá vantar okkur
fleiri konur í virkt samstarf,
sérilagi fleiri sjómannskonur. Það
er mikill hugur í okkur á þessum
tímamótum.
Á morgun, sunnudag, efnum við
til afmælishófs í Víkinni að Hafn-
arbraut hér í Keflavík og hefst
það klukkan 14.30. Þar bjóðum við
konumar uppá kaffi og meðiæti og
einnig verða skemmtiatriði í hóf-
inu. Eg vil hvetja konur í Keflavík
til að kom svo við getum minnst
afmælisins saman," sagði Guð-
munda Sumarliðadóttir að lokum.
Núverandi stjórn Kvennadeild-
ar Slysavarnarfélagsins í Keflavík
skipa, auk Guðmundu, Guðrún
Ármannsdóttir, gjaldkeri, Jóna
Sigurgísladóttir, ritari, og með-
stjórnendurnir Svava Runólfs-
dóttir, Elín Ólafsdóttir, Einhildur
Pálmadóttir og María Arnlaugs-
dóttir. En afmælishóf deildarinn-
ar verður semsé á morgun, sunnu-
dag, klukkan 14.30 í „Víkinni" í
Keflavík.
MYNDAMÓT HF.
PRENTMYNOAGERD
AÐALSTR*TI • SlMAR: 17182- 17355
Kantlímdar - smíðaplötur
(Hobby-plötur)
fyrir fagmenn og leikmenn.
Þaö er ótrúlegt hvaö hægt
er aó smíða úr þessum
hobbýplötum, t.d. klæða-
skúpa, eldhúsinnréttingar,
hillur og jafnvel húsgögn.
Hvítar
plast-
hillur
‘ 30 cm, 50
cm ofl eo cm
4 breidd. 244
cm * lengd.
Hurdir
á fata-
skápa
m9ð eikar-
•P»»ni,
ounar undir
lakk og bæt.