Morgunblaðið - 20.03.1981, Síða 18

Morgunblaðið - 20.03.1981, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1981 TryKgvi Gunnarsson (S) mælti sl. miðvikudaK fyrir þinKsálykt- unartillöKU um könnun á fram- tíðarveKarstæði milli Vopnafjarð- ar ok FÍjótsdalshéraðs, en núver- andi veKur milli þessara bytíxða væri niðurgrafinn og aðeins opinn tvo mánuði yfir hásumarið, þó illfær einnÍK þá i vætutið. Stjórnsýslustöðvar, sem Vopn- firðinKar og nagrannar þyrftu að sækja til. væru austur á Héraði eða niðri á fjörðum, þar á meðal peningastofnanir, svo Ijóst væri eða ætti að vera að hér væri úrhóta þörf. Ef hafis legðist að Norðausturlandi, sem mörg dæmi væru um í þjóðarsögunni. kæmi þessi flutningaleið i góðar þarfir ok þyrfti ekki mörgum orðum um það að fara, svo augljós sem sú röksemd væri. Tryggvi Gunnarsson — eða lauma henni í bréfakörf- una. Hann fór og með kjarnyrta stöku um viðkomandi heiði, sem vegurinn myndi liggja um, eftir löngu líðinn íhaldsþingmann: „En sá heiðarandskoti/ ekki strá né kvikindi/ en hundrað milljón hel- víti/ af hnullungum og stórgrýti". Steingrimur Hermannsson, samgönguráðherra, svaraði í löngu máli, en kjarni þess var þessi: fjármagnið ræður ferðinni, hvað sem viljayfirlýsingu Alþingis líður. Fjárveiting til þessa verks sem annarra, annaðtveggja á fjár- lögum eða með lánsfjárheimild- um, er forsenda þess að fram- kvæmt verði. Þingmenn hvers kjördæmis deila því fjármagni, sem til þess fer, þegar vegamál eru annars vegar. Þess vegna gæti spurningin orðið sú, hvort þing- Tryggvi Gunnarsson: Vegarstæði milli Vopna- fjarðar og Héraðs Tryggvi rakti í greinargóðu máli þær samgönguleiðir, sem Vopn- firðingar byggju við, og þær vetr- araðstæður, sem oft settu mönnum stólinn fyrir dyrnar. Hann gerði og samanburð á þeim staðarlegu möguleikum, sem fyrir hendi væru, til úrbóta, og taldi þá leið, sem tillaga þessi fjallar um, einna helzt koma til greina. Þá ræddi hann og um þær moksturs- eða snjóruðningsreglur, sem giltu á þessu landssvæði, þ.e. að vegir væru aðeins ruddir hálfs- mánaðarlega, og taldi þær fjarri þeim nútímakröfum, sem fólk al- mennt gerði um samskipti sin í milli, aðdrætti og þvíumlíkt. Sveinn Jónsson (Abl.) tók sterklega undir orð og tillögu Hvers virði er þingsályktun? spurði Guðmundur J. Guðmundsson Tryggva Gunnarssonar (S) og taldi þá samgöngubót, sem hér væri fjallað um, einnig koma Héraðsbúum til góða. Guómundur J. Guðmundsson (S) var einnig jákvæður til máls- ins en bar fram þá fyrirspurn til samgönguráðherra, hver yrðu ör- lög þessarar tillögu, þó samþykkt yrði, hvort ráðherra myndi virða vilja Alþingis til framkvæmdanna menn Austfjarðakjördæmis, ekk- ert síður en samgönguráðherra, virtu slíka viljayfirlýsingu þings- ins. En orð eru til alls fyrst. Margir þingmenn tóku til máls, þó ekki verði frekar rakið hér, og má óhætt að staðhæfa, að tiltekið mál, sem varðar afmarkaðan landshluta, hafi ekki oft fengið jákvæðari undirtektir, hvað sem framhaldinu líður. Tryggvi Gunn- arsson (S) þakkaði góðar undir- tektir. Hann væri stundargestur í þingsölum og hefði vilja nýta tækifærið til að ýta úr vör þessu hagsmunamáli sinnar heima- byggðar. Vonandi myndu þeir, sem áfram stunduðu þingmiðin, færa þetta mál heilt í fram- kvæmdahöfn. Pétur Sigurðsson: Tilraunageymir til veiðarfærarannsókna Pétur Sigurðsson (S) mælti nýleKa fyrir fyrir tillogu. þess efnis að rikisstjórnin kanni. í samráði við Fiskifélag íslands og Hafrannsóknarstofnun, möguleika þess að koma hér- iendis upp tilraunageymi til veiðarfærarannsókna. Skuli könnunin m.a ná til stofn- og rekstrarkostnaðar slíkrar rannsóknarstarfsemi. hugsan- lega þátttöku hagsmunaaðila og stjórnunar og staðsetningar starfseminnar. Pétur sagði að sjávarútvegur væri undirstöðuatvinnuvegur okkar, sem þjóðarbúið og lífskjör einstaklinga grundvallaðist ekki sízt á. Þessvegna væri annkanna- legt að ekki væri til í landinu slík aöstaða til veiðarfæratilrauna, en notagildi hennar þætti augljós með öðrum þjóðum. Þessi aðstaða kostar eins og eitt lúxuseinbýlis- hús, og skilar sér auk þess aftur í þjóðarbúið, ef lærdóm má draga af reynslu annarra fiskveiðiþjóða. Þetta tæki hefur lengi þekkst og verið mikið notað í nágrannalönd- um um árabil — af ýmsum gerðum og stærðum. Skipstjórn- armenn hafa í fjölmörg ár bent á nauðsyn slíkrar tilraunastarfsemi og nú er til staðar sérmenntun á þessu sviði. Tryggvi Gunnarsson (S), skip- stjóri, lýsti ánægju með þessa Pétur Sigurðsson tillögu, sem flutt væri af þing- mönnum úr öllum flokkum, og þakkaði Pétri Sigurðssyni frum- kvæði hans í málinu. Þróunarsjóður lagmetis: Einkaréttur sölustofn- unar til A-Evrópuríkja Fram hefur verið lagt stjórnar- frumvarp um Sölustofnun lag- metis og Þróunarsjóð lagmetis- iðnaðarins. Helztu breytingar i frumvarpinu frá gildandi lögum eru þessar: 1) Fulltrúaráð aðila stofnunar- innar kjósi alla stjórnarmenn og aðild fulltrúa ríkisvaldsins falli niður. 2) Sölustofnun lagmetis er veitt- ur einkaréttur til sölu og útflutn- ings á lagmeti til landa þar sem ríkið er aðalkaupandinn, þó þann- ig að viðskiptaráðuneytinu er heimilt að veita aðila utan stofn- unarinnar undanþágu þegar sér- Stjórnar- frumvarp stakar ástæður mæla með því. 3) Komið verði á fót stofnsjóði, sem ákvarðar uppgjör við aðila sem ganga úr stofnuninni svo og uppgjör á milli aðila stofnunar- innar ef til slita hennar kemur. 4) Ábyrgð aðila stofnunarinnar verði takmörkuð og takmarkist við stofnsjóðsinneign þeirra á hverjum tíma. 5) Atkvæðisréttur aðila á full- trúaráðsfundum fari eftir verð- mæti útflutnings á liðnu reikn- ingsári. 6) Þróunarsjóði lagmetisiðnaðar verði fengin sérstök stjórn og hlutverk sjóðsins takmarkað við veitingu lána eða styrkja til fram- leiðenda lagmetis til útflutnings og til Sölustofnunar lagmetisiðn- aðarins. 7) Tekjustofn Þróunarsjóðs lag- metisiðnaðarins er framlengdur með þeirri breýtingu, að full- vinnslugjald af söltuðum grá- sleppum er lækkað og falli niður 1. apríl 1982. Útvarp: Veðurfréttir verði á þriggja tíma fresti Eyður í upplýsingasöfnun Tiu þingmenn úr öllum þing- flokkum hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar, þess efnis að Al- þingi feli samgönguráðherra, sem fer með yfirstjórn Veðurstofu ís- lands, að beita sér fyrir því að veðurfregnir i útvarpinu verði jafnan byggðar á nýjustu upplýs- ingum Veðurstofunnar og útvarp þeirra verði með jöfnu millibili á þriggja klukkustunda fresti allan sólarhringinn og oftar ef sér- stakrar aðvörunar er þörf. Skal stefnt að því að þetta komi til framkvæmda i nóvembermánuði næstkomandi. í ítarlegri greinargerð eru rakin þau skilyrði sem fyrir hendi eru talin til þessarar starfsemi, m.a. athugunarstöðvar á landi og legi. Þar segir m.a.: „Hér er þó galli á gjöf Njarðar því stórar eyður eru á landgrunni íslands og næsta ná- grenni þess (í upplýsingasöfnun). Þessar upplýsingaeyður eru vegna þess að athuganir vantar frá þess: um svæðum og nágrenni þeirra." I greinargerðinni er fjallað um hvern veg úr megi bæta. Fyrsti flutningsmaður er Pétur Sigurðsson (S). Af gefnu tilefni þykir rétt að minna á að þeir lesendur þing- frétta, sem vilja kynna sér nánar efnisatriði þingmála, eiga yfirleitt kost á að fá þingplögg á skrifstofu Alþingis. Karl Steinar: Fríiðnaðarsvæði við Keflavíkurflugvöll Karl Steinar Guðnason (A) hef- ur endurflutt tillögu sína, þess efnis að Framkvæmdastofnun ríkisins verði falið að gera athug- un á því, hvort hagkvæmt sé að koma á fót fríiðnaðarsvseði við Keflavfkurflugvöll. Ýmsar blikur eru á lofti í atvinnumálum Suðurnesja, segir í greinargerð, enda hafa tvær þings- ályktanir verið samþykktar um könnun atvinnuástands á þessu svæði. Mjög stórir hópar ungs fólks eru að vaxa úr grasi á Suðurnesjum og tímabært að huga að því, hvern veg megi styrkja tilurð atvinnu- tækifæra þar. Hugmyndin um fríiðnaðarsvæði, þar sem ríkti al- gjört tollfrelsi hvað snertir inn- flutning hráefna, véla og tækja, er áhugaverð, ekki sízt með hliðsjón af þeirri reynslu sem fyrir hendi er af svipuðu fyrirbæri við Shannon- flugvöll á írlandi, sem efnt var til þegar flugstarfsemi þar drógst verulega saman, til að styrkja atvinnulíf aðliggjandi byggða. Skoðanakannanir: Reglur um framkvæmd? Alexander Stefánsson (F) bar nýlega fram fyrirspurn til forsæt- isráðherra í Sameinuðu þingi, hvað liði framkvæmd þingsályktunar frá 23. mai 1979 um könnun þess að setja sérstakar reglur um fram- Alkalískemmdir: Samstaða um könnun Allsherjarnefnd Sameinaðs þings hefur nú komið sér sam- an um stuðning við þingsálykt- unartillögu Birgis tsleifs Gunn- arssonar (S) um viðgerðar- kostnað vegna alkalískemmda i steinsteyptum húsum. Flytur nefndin sameÍKÍnlega breyt- ingartillögu og legKur til að orðalag vamtanlegrar þings- ályktunar verði þannig: „Alþingi ályktar að skora á rikisstjórnina að sjá til þess, að Rannsóknarstofnun byggingar- iðnaðarins verði gert kleift að framkvæma nauðsynlega könn- un á því hvernig bezt verði staðið að viðgerðum á alkalí- skemmdum á steinsteypu í hús- um. Jafnframt skorar Alþingi á ríkisstjórnina að hún skipi nefnd, sem hafi það verkefni að kanna með hverjum hætti bezt verði fyrir komið fjárhagsaðstoð við þá húseigendur, sem leggja þurfa í mikinn viðgerðarkostnað vegna alkalískemmda á stein- steyptum húsum. Nefndin ljúki störfum sem fyrst og skal álit hennar sent Alþingi. Ef nauðsyn ber til sérstakrar lagasetningar í þessu efni skal ríkisstjórnin undirbúa slíka löggjöf og leggja fyrir Alþingi sem fyrst." kvæmd skoðanakannana til að auka á trúverðugheit þeirra. Gunn- ar Thoroddsen, forsætisráðherra, saKði að mál þetta hefði verið rætt í rikisstjórninni, m.a. hvort skipa ætti faglega nefnd eða koma á fót þingkjorinni nefnd til að sinna þessu verkefni. Athugunum er ekki lokið en þess að vænta að nefnd verði sett i málið innan tiðar. Nokkrar umræður urðu um skoð- anakannanir og komu fram þau sjónarmið, að reglur til að tryggja vönduð vinnubrögð, varðandi fram- kvæmd og úrvinnslu skoðanakann- ana, mættu þó ekki vera hamlandi á skoðanakannanir sem slíkar né þess eðlis að aðeins væru á færi fjár- sterkra aðila. Ennfremur að aðilar, sem framkvæma skoðanakannir, þyrftu að vera reiðubúnir til að gera plögg sín opinber, þann veg að úr skugga megi ganga um, hvort rétt hafi verið staðið að könnun og úrvinnslu. Einstaka þingmenn lögðu áherzlu á reglur um orðlaga spurn- inga, sem ekki mættu vera leiðandi, stærð úrtaks og aldursdreifingu, kyndreifingu og búsetudreifingu þess. Stjórn Græn- landssjóðs kjörin Stjórn Grænlandssjóðs, sem stofnaður var með sérstökum lögum nýlega að frumkvæði Matthíasar Rjarnasonar, fyrverandi sjávarút- vegsráðherra, var kjörin á Alþingi sl. mánudag. Kjör hlutu: Matthías Bjarnason, Sigurgeir Jónsson, bankastjóri, Geir Gunnarsson, for- maður fjárveitinganefndar Alþingis, Benedikt Gröndal, alþingismaður og Haraldur Ólafsson, lektor.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.