Morgunblaðið - 20.03.1981, Qupperneq 32
Síminn
á afgreiðstunni er
83033
Jflorjjiinblníiit*
JlfaKgpaiittfafrife
Síminn á ritstjóm
og skrifstofu:
10100
JHorflTwblabib
FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1981
Skipulagshugmynd meirihlutans:
Byggja inn á golf-
völlinn í Grafarholti
SAMKVÆMT skipulaKstillögu sem
nú liggur fyrir hjá borginni á að
byggja inn á núverandi svæði
Goifklúbbs Reykjavikur. Sam-
kvæmt þvi skipulagskorti sem sam-
þykkt hefur verið i skipulagsnefnd
er gengið inn á svæði GR i þeim
mæli að 7 brautir af 18 sem þar eru
myndu hverfa, næði skipulagið
fram að ganga.
Sá fyrirvari er gerður í greinar-
gerð Borgarskipulags að þetta þurfi
Rockall-við-
ræður teknar
upp á Hafrétt-
arráðstefnu
EYJÓLFUR Konráð Jónsson,
alþingismaður. upplýsti i um-
ræðum á Alþingi i gærdag, að
Bretar hefðu orðið við beiðni
tslendinga um viðræður um
hafsbotnsréttindi á Rockall-
svæðinu svokallaða.
Hann beindi síðan þeirri
spurningu til utanríkisráð-
herra, hver yrði framvinda
málsins, á grundvelli þings-
ályktunar, sem samþykkt var í
fyrravor, um samvinnu við
Færeyinga til að tryggja rétt-
indi landanna á Rockali-svæð-
inu og um samninga við Breta
og Ira, um nýtingu hafsbotns-
ins á svæðinu. Eyjólfur Konráð
spurði ráðherra ennfremur,
hvort sendinefnd íslands á
Hafréttarráðstefnunni yrði
falið að taka upp viðræður við
Breta og íra.
Ólafur Jóhannesson, utan-
ríkisráðherra, staðfesti orð
Eyjólfs Konráðs síðar í um-
ræðunum, og sagði að sendi-
nefnd íslands á Hafréttar-
ráðstefnunni yrði gefin fyrir-
mæli um að taka þessar við-
ræður upp.
Það er því Ijóst, að innan
tíðar verða teknar upp viðæður
iandanna fjögurra, íslands,
Færeyja, Bretlands og írlands,
um Rockall-svæðið.
Kennsla í fer<)a-
málum við HI
ÁKVEÐIÐ hefur verið að taka upp
fra'ðsiu um ferðamál í Háskóla Is-
lands og verður væntanlega byrjað á
þessari kennslu næsta haust. Fyrir-
komulag kennslunnar hefur ekki
verið ákveðið, en ákvörðun þessi var
tekin samkvæmt tilmælum Ferða-
málaráðs.
að athugast nánar í samráði við
fulltrúa Golfklúbbsins. Meirihluti
skipulagsnefndar gerði og þann
fyrirvara að afmörkun golfvallarins
yrði ekki breytt á skipulagstímabil-
inu þ.e. á næstu 20 árum. Þá gerði
fulltrúi Framsóknarflokksins í
nefndinni bókun þess efnis að hann
væri andvígur hugmyndum sem
miðuðu að skerðingu golfvallarins.
„Við fulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins i skipulagsnefnd erum mjög
andvígir skerðingu á golfvellinum,"
sagði Birgir ísl. Gunnarsson borg-
arfulltrúi í samtali við Mbl., þar
sem hann var spurður álits á
hugmyndum þessum. „Golfklúbbur
Reykjavíkur hefur samning um
þetta svæði til ársloka 1994 og hafa
sjálfboðaliðar lagt mikla vinnu og
fjármuni í uppbyggingu á þessu
svæði. Hugleiðingar um að rýra
núverandi golfvöll skapa óvissu um
uppbyggingu vallarins.
Við Hilmar Ólafsson fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins i nefndinni lét-
um bóka það að við legðum sérstak-
lega áherslu á að golfvellinum yrði
haidið og gæði hans ekki rýrð,“
sagði Birgir ísl. Gunnarsson.
Myndin var tekin í Þjóðleikhúsinu í gær þegar þeir hittust þar Halldór Laxness og
breski listamaðurinn Richard Lee sem gerði fyrir u.þ.b. 30 árum höggmynd af
Halldóri fyrir Óskar Halldórsson sem kom þá á legg vaxmyndasafni Islands. Þessi
höggmynd hefur nú verið sett upp í Þjóðleikhúsinu en þarna standa skáldið og
myndhöggvarinn við hana og rifja upp liðna tíð. Sjá bls. 2.
Ljósmynd Mbl. Kristján.
Einhverjir stærstu fisksölusamningar, sem íslendingar hafa gert:
Samið um sölu á allt að
50 þús. tonnum af saltfiski
Verðmætið 65-95 milljarðar gkr. og 20% hækkun í erlendri mynt
SÖLUSAMBAND islenzkra íisk-
framleiðenda hefur lokið aðal-
samningum við Portúgal og Spán
í ár og hefur verið samið um sölu
á allt að 50 þúsund tonnum af
saltfiski til þessara landa í ár.
Þeir Tómas Þorvaldsson, formað-
ur SÍF, Friðrik Pálsson, fram-
kvæmdastjóri, og ólafur Björns-
son eru nýkomnir frá Spáni og
Portúgal og samningar þeir, sem
undirritaðir voru i ferðinni eru
einhverjir stærstu fisksölusamn-
ingar sem íslendingar hafa gert.
Ef samningarnir verða nýttir til
hins ýtrasta við Spán og Portú-
gal verður verðmæti þeirra um
95 milljarðar gamalla króna eða
tæplega milljarður nýkróna. Að
meðaltali náðist 20% verðhækk-
un i dollurum í þessum samning-
um.
í samtali við Morgunblaðið í
gær sögðu þeir Tómas og Friðrik,
að samið hefði verið um þorsk af
öllum stærðum og gæðaflokkum
og auk þess um töluvert af ufsa,
keilu og löngu. Samið var um, að
magnið yrði á bilinu 33—50 þús-
und tonn til Portúgals og Spánar
eftir því hver saitfiskframleiðsian
verður hérlendis, en mjög hag-
kvæmt er að hafa samninga rúma
að þessu leyti. Vörunni verður
útskipað að meginhluta strax og
hún er tilbúin og er líklegt að mest
af saltfisknum fari í maí, júní og
júlí.
Eins og áður sagði náðist um
20% verðhækkun í dollurum í
samningum við Portúgali og
Spánverja og nemur verðmæti
þeirra 100—150 milljónum dollara
eða 65—95 milljörðum gkróna.
Síðastliðin þrjú ár hafa verið
greiðslur úr saltfiskdeild Verð-
Sultartangavirkjun á að verða
næsta verkefni í orkumálum
— segir í samþykkt borgarstjórnar
BORGARSTJÓRN samþykkti í
gærkveldi með 9 samhljóða atkvæð-
um tiilögu Sjafnar Sigurbjörnsdótt-
ur um að borgarstjórn skori á
Alþingi að taka sem fyrst ákvörðun
um næstu stórvirkjun og jafnframt
að hún telji að Sultartangavirkjun
eigi að verða næsta verkefni í orku-
málum. Einnig segir i tillögunni að
fela eigi Landsvirkjun að reisa og
reka næstu virkjun sem i verði
ráðist.
Tillögu Sjafnar greiddu sjáifstæð-
ismenn atkvæði auk Björgvins Guð-
mundssonar og Sjafnar, en þau eru
fulltrúar Alþýðuflokksins.
Talsverðar umræður urðu um þetta
mál og sagði Sjöfn að „lýðræðisflokk-
arnir þrír virtust ætla að hafa sam-
stöðu um að hindra þann ásetning
Alþýðubandalagsins að koma í veg
fyrir frekari stóriðju á íslandi". Davíð
Oddsson sagði að rétt og skynsamlegt
væri að ganga í þennan virkjunarkost
á undan öðrum og að Alþýðubanda-
lagið væri afturhalds- og úrtöluflokk-
ur í orkumálum og hefði verið það frá
upphafi. Sagðist hann vona að tillag-
an yrði til þess að vekja orkuráðherra
af þyrnirósarsvefni. Björgvin Guð-
mundsson sagðist styðja tillöguna og
nauðsynlegt væri að ráðast í stóriðju
og fá til þess erlent fjármagn. Það
hefði verið gert með góðum árangri
hingað til. Kristján Benediktsson
sagðist sitja hjá við atkvæðagreiðsl-
una, en gat þess að sér þætti líklegt að
Sultartangi yrði næsti virkjunarkost-
ur. Fulltrúar Alþýðubandalagsins
sátu hjá við atkvæðagreiðsluna og
sagði Sigurður Tómasson fulltrúi
flokksins að verið væri að gera tóma
vitleysu með samþykkt tillögunnar
jöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins, en
þeir Tómas og Friðrik sögðu að á
yfirstandandi vetrarvertíð yrðu
ekki greiðslur úr þessari deild
sjóðsins.
í vetur hefur minna verið fram-
leitt af saltfiski en t.d. í fyrra,
bæði hafa ógæftir og aflatregða
dregið úr framleiðslunni, en auk
þess hefur mikið verið hengt upp.
Eftir að þessi samningur liggur
fyrir munu framleiðendur meta
hvaða verkunaraðferð er hag-
kvæmust, en í þessum saltfisk-
samningum varð mest hækkun á
lægri gæðaflokkunum, sem höfðu
dregist aftur úr hlutfallslega síð-
ustu ár. Sögðu þeir, að með
þessum samningi ætti að vera
tryggður meiri jöfnuður milli salt-
fisk- og skreiðarverkunar.
Gengið hefur verið frá útborg-
unarverði á allar tegundir salt-
fisks og er það óvenju snemmt, en
var mögulegt vegna þess, að meg-
insamningar hafa verið gerðir við
helztu viðskiptalöndin og um alla
gæða- og stærðarflokka.
Flugleiðlr:
Þrettán stöður flugmanna á
Boeing og Fokker auglýstar
Fækkað um 9 flugmenn á DC-8 í vor
FLUGLEIÐIR hafa auglýst eftir
13 flugmönnum á Boeing 727 og
Fokkera og mögulega verða
fleiri flugmenn ráðnir að sögn
Leifs Magnússonar, fram-
kvæmdastjóra flugrekstrar-
deildar Flugleiða. Flugmenn úr
báðum flugmannafélögunum,
FlA og félagi Loftleiðaflug-
manna, hafa þegar sótt um
stöðurnar, en i vor á að fækka
flugmönnum á DC-8-þotum
Flugleiða um 9 talsins.
Ráðning í þessar nýju stöður
kemur m.a. til vegna þess að ein
Boeing 727-100-þota Flugleiða
hefur verið leigð til nokkurra ára
í farþegaflug í Nigeríu og fara
tvær áhafnir væntanlega í næsta
mánuði til starfa þar. íslenskir
flugmenn verða allan tímann í
þessu flugi, en íslenskar flug-
freyjur í aðeins tvo mánuði á
meðan hið nýja flugfélag, Kabo,
þjálfar innlendar flugfreyjur til
starfa.
Þær stöður sem Flugleiðir aug-
lýsa nú eru 5 flugstjórastöður á
Boeing 727, 5 flugmannastöður á
sömu vél og 4 flugvélstjóra. Þá er
um að ræða þrjár flugstjórastöð-
ur á Fokker og ef til vill fleiri.
í heild verður fjölgað flug-
mönnum, að sögn Leifs, en um
nokkrar tilfærslur verður að
ræða.
Farþegaflugið i Nigeríu verður
daglegt flug og mun það aukast í
sumar þannig að þá verða þrjár
áhafnir flugmanna úti í senn.