Morgunblaðið - 28.06.1981, Page 1
76 SÍÐUR
142. tbl. 68. árg.
SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
N iðurskurðartil-
lögur Reagans sam-
þykktar í þinginu
WashinKton. 27. júní. AP.
FULLTRÚADEILD bandaríska
þinusins samþykkti á fostudau
tillöKur Ronald Reagans forseta
um verulejjan niðurskurð á ríkis-
útKjoldum fyrir árið 1982. Þetta
er mikill sij?ur fyrir Reajfan ojí
dást nú marjtir að kænsku hans i
stjórnmálum.
Demókratar eru í meirihluta í
fulltrúadeildinni, en þó voru tillög-
ur stjórnar Reagans að lokum
samþykktar með 232 atkvæðum
gegn 193. Mikið gekk á í þinginu,
áður en kom að lokaatkvæða-
greiðslu. Eftir hana sögðu óánægð-
ir demókratar: „Maður skammast
sín fyrir vinnuaðferðirnar í þessu
húsi.“
Tillagan var endanlega samin
nóttina áður en kom til atkvæða-
greiðslu. Hún mun hafa í för með
sér 5 milljarða dollara niðurskurð
á ríkisútgjöldum árið 1982 til
viðbótar niðurskurði, sem þingið
hafði þegar samþykkt.
Reagan, sem er staddur á bú-
garði sínum í Kaliforníu sér til
heilsubótar, sagðist vera ánægður
með niðurstöður þingsins og sagði,
að þetta væri mikill sigur í barátt-
unni gegn verðbólgu.
Ráðamenn á Norð-
urlöndum íhuga
tillögur Brezhnevs
Kaupmannahofn. 27. júni. AP.
LEIÐTOGAR á Norðurlöndum hafa
lítið viljað tjá sig um tillögur
Leonid Brezhnevs. forseta Sovét-
ríkjanna, um kjarnorkuvopnalaust
svaeði á Norðurlöndum. Þeir velta
fyrir sér, hvort þær feli i sér vilja
Sovétmanna til að fjarlægja kjarn-
orkuvopn á landamærum Sovétrikj-
anna og Norðurlanda.
Tillögur Brezhnevs, sem hann
greindi frá í viðtali við finnskt
dagblað i vikunni, eru svipaðar
tiliögum Nikolai Bulganins, fv. for-
Enn er
leitað að
Titanic
Falmouth. Massachusetts. 27. júní.
AP.
IIÓPUR visindamanna, kvik-
myndatökumanna og ævintýr-
amanna heldur i dag af stað i
leit að flaki farþegaskipsins
fræga, Titanics.
Mennirnir hafa meðferðist
alls konar mæli- og rannsókn-
artæki auk myndavéla. Olíujöf-
ur, Jack Grimm að nafni, fjár-
magnar ferðina sem reiknað er
með að kosti margar milljónir
dala en hann hefur líka krafist
þess að fá allt það verðmæti
sem tekst að bjarga úr skipinu
ef það finnst. Talið er að í
peningaskápi skipsins séu dem-
antar fyrir 300 milljónir doll-
ara. Grimm hefur einnig fjár-
magnað ferð sem farin var í leit
að örkinni hans Nóa.
sætisráðherra Sovétríkjanna, 1958.
En Brezhnev gaf í skyn í viðtalinu,
að það mætti ræða sovésk kjarn-
orkuvopn, sem beint er gegn Norður-
löndum.
„Ég vildi gjarnan sjá eitthvað
jákvætt varðandi kjarnorkuvopn
Sovétmanna í tillögum Brezhnevs,"
sagði Kjeld Olesen, utanríkisráð-
herra Danmerkur. Ríkisstjórnir
Noregs og Svíþjóðar eru að kynna
sér tillögur Brezhnevs, en utanríkis-
ráðherra Finnlands, Paavo Vayryn-
en, sagði, að tillögur Brezhnevs væru
„jákvæðar og á þeim væri byggj-
andi“.
Herfræðingar á Vesturlöndum
segja, að Kolaskaginn, sem liggur að
Norður-Finnlandi og Noregi, sé mor-
andi í SS-20 eldflaugum. Kjarnorku-
vopn eru einnig í kringum Mur-
mansk og við Eystrasalt.
Hitaveitutankur i smíðum
Ljósm. RAX.
Bani Sadr hvetur til and-
stöðu við „harðstjórnina“
Aðstoðarmanni Khomeinis og andstæðingi Bani Sadr sýnt banatilræði
London. 27. júni. AP.
ÍRANSKIR íhúar i London fengu i
gærkvöldi dreifirit sem innihélt
boðskap frá Bani Sadr. fyrrum
forseta tran, að sögn blaðsins The
Times.
í dag var aðstoðarmanni Khom-
einis, trúarleiðtoga i fran og mikl-
um andstæðingi Bani Sadrs, sýnt
Ný stjórn í Kambódíu
llanKkuk. 27. júni. AP.
TILKYNNT var í Pnom Pehn i
gær að ný rikisstjórn hefði verið
mynduö í Kambódíu. Undanfarið
hcfur verið viðburðasamt á
stjórnmálasviðinu í Kambódiu,
meðal annars hafa þar verið
kosningar til þjóðþings og hér-
aðsstjórna og í fyrsta sinn greint
frá stofnun kommúnistaflokks.
Opinbera fréttastofan í Kambó-
díu sagði að þingmennirnir 117
hefðu kosið ríkisráð og ráðherra.
Nýja stjórnin í Kambódíu tekur
við hlutverki byltingarráðsins sem
sett var á fót 7. janúar 1979 í
kjölfar innrásar Víetnama í Kam-
bódíu og falls stjórnar Pols Pots.
Heng Samrin, sem er yfirmaður
byltingarráðsins, var kosinn yfir-
maður ríkisráðsins og Pen Sovan,
leiðtogi kommúnistaflokksins, var
kosinn forsætisráðherra.
banatilræði við bænagjörð i Teher-
an.
Dreifiritið ber heitið „Islamska
byltingin" eins og blaðið sem Bani
Sadr og fylgismenn hans gáfu út í
íran. Þar hvetur forsetinn fyrrver-
andi írani til andstöðu við „harð-
stjórn" heittrúaðra múhameðstrú-
armanna í heimalandi þeirra.
Þetta er í fyrsta sinn sem heyrist
frá Bani Sadr frá því hann hvarf 12.
júní sl. Talið er að hann sé enn í
felum í íran. The Times hefur það
eftir írönum í London að boðskapur
ritsins hafi komið símleiðis til
Ixindon frá Iran. Ekki vissu þeir
hvort Bani Sadr hefði sjálfur hringt
eða aðstoðarmenn hans.
I annarri orðsendingu til íbúa
íran og hers landsins segir forsetinn
fyrrverandi að hann viðurkenni ekki
lögmæti gerða Khomeinis sem rak
hann frá völdum.
„Þið verðið að halda áfram að
sporna við harðstjórn hvort sem
hún er heimatilbúin eða innflutt.
svo þjóðin fái smám saman á ný trú
á sjálfri sér og framtíðinni," segir
hann.
I lok orðsendingarinnar segir: „Ég
set traust mitt á þig, unga kynslóð
íran. Þú og ég höfum gert með
okkur bandalag, bandalag sam-
stöðu, bandalag andspyrnu. Sá tími
er kominn að við verðum að vera
loforðum okkar trú.“
Hojatolselam Ali Khameini, að-
stoðarmaður Khomeinis og fulltrúi í
varnarmálaráði Iran, var fluttur á
sjúkrahús eftir að skotiö var á hann
í íran í dag. Ekki var nánar greint
frá líðan hans.
Bylting í Bólivíu
La I*az, 27. júní. AP.
IIUMBERTO Cayoja. hershöfðingi
í bóliviska hernum, leysti forseta
landsins. Luis Garcia Meza, af
störfum i dag. Mikið herlið var
saman komið i höfuðburginni i
morgun, en ekki voru neinar
fréttir af bardögum. Ekki var
vitað hvort Cayoja hefur hug á
forsrtastólnum sjálfur.
Garcia Meza tók sjálfur völd í
sínar hendur fyrir tæpu ári síðan.
Stjórnarskipti eru tíð í Bólivíu, en
á síðustu 156 árum hafa 190
stjórnir farið með völd.
Bólivía á við mikinn efnahags-
vanda að stríða og Meza þykir ekki
hafa bætt þar um. Mannréttinda-
brot eru tíð í Bólivíu og sagt er, að
helsta útflutningsvara landsins sé
kókain. 4,8 milljónir manna búa í
Bólivíu, sem er fátækasta land
Suður-Ameríku.