Morgunblaðið - 28.06.1981, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 28.06.1981, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ1981 39 Þorsteinn Björg- ólfsson - Fæddur 21. júli 1950. Dáinn 20. mars 1981. Þorsteinn Björgólfsson, sem hér verður minnst með fáum orðum, var ættaður frá Vopnafirði og Húsavík í Borgarfirði eystra. Móð- ir hans er Þórhalla Þorsteinsdótt- ir og faðir hans Björgólfur Jóns- son. Þorsteini kynntist ég sem barni og átti við hann vináttu svo lengi sem líf hans entist. Fyrstu minn- ingar um hann og eftirlifandi bræður hans eru þær, að þeir voru mjög vaskir drengir. Ég tengdist Þorsteini og fylgdist með honum hans uppvaxtarár. Minmng Þegar hann var 16 ára vildi hann leita sér frægðar og frama með því að fara að heiman og vinna í verstöð á Suðurlandi. Sonur minn sem var vinur hans réði hann þá til verka hjá Útgerð- arstöðinni Sjóla Reykjavík. Jón Akureyri: Námskeið fyrir norræna hús- stjórnarkennara ÁTTATÍU norrænir hússtjórn- arkennarar verða á námskeiði í húsakynnum Menntaskólans á Akureyri 29. júní til 3. júli nk. Aðalleiðbeinandi á námskeið- inu verður Hans Rask Jensen. lektor við háskólann i Árósum og aðalfulltrúi Danmerkur i umhverfis- og neytendamála- nefnd Gfnahagsbandalagsins. Auk hans flytja sérfræðingar frá öllum Norðurlöndunum er- indi og fulltrúar íslenzkra at- vinnurekenda og félagasamtaka flytja einnig erindi og taka þátt í umræðum, en meginefni nám- skeiðsins er neytendafræðsla í skólum. Það er norræna samstarfs- nefndin um hússtjórnarfræðslu, sem gengst fyrir þessu nám- skeiði, en hún hefur unnið að eflingu Norræna hússtjórnar- háskólans, sem starfar í Osló og Gautaborg og vísir að þriðju deildinni er kominn við háskól- ann í Árósum. Cand merc. Hans Ra.sk Jensen Frá lögreglunni: Yitni vantar Slysarannsóknadeild lög- reglunnar í Reykjavík hefur beðið Morgunblaðið að auglýsa eftir vitnum að eftirtöldum ákeyrslum i borginni að und- anförnu. Vitni eru vinsamlega beðin að hringja i sima deildar- innar 10200 hið allra fyrsta svo og tjónvaldarnir: Laugardaginn 20. sl. frá kl. 08.00—21.00 var ekið á bifreið- ina R-36789, sem er af Volks- wagen gerð rauð á lit, þar sem henni hafði verið lagt við Rauð- arárstíg 13. Mánudaginn 22. sl. frá kl 14.40—15.25 var ekið á bifreið- ina R-32754, sem er af Renault 5 gerð orange á lit, þar sem henni hafði verið lagt á bifreiðastæði norðan Oddfellowshússins í Vonarstræti. Þriðjudaginn 23. sl. frá kl. 16.20—17.20 var ekið á bifreið- ina Y-9203, sem er af Mazda 323 gerð grá á lit, þar sem henni hafði verið lagt við Suðurlands- braut 8. Þriðjudaginn 23. sl. frá kl. 20.30—23.05 var ekið á bifreið- ina Y-4299, sem er af Chevette gerð, rauð að lit, þar sem henni hafði verið lagt í bifreiðastæði norðan Iðnaðarbankans í Lækj- argötu. EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU \l GLVSIM.A- SIMINN KR: 22480 Guðmundsson forstjóri og meðeig- andi þess fyrirtækis sagði mér að ekki hefði sér þótt þessi ungi Austfirðingur til mikilla stór- ræða, en svo hefði farið að þegar þrjár vikur voru liðnar á vertíðina og maður á bát þeirra Sjólamanna forfallaðist, hefði hann fengið það álit á drengnum að þess var óskað að hann hlypi í skarðið. Þetta skarð fyllti Þorsteinn þannig að hann var sjómaður frá því að hann fór í þetta skipsrúm með þekktum dugnaðar- og aflamanni, Friðrik Ásmundssyni frá Kverná. Þorsteinn giftist 30. maí 1971 Regínu Guðjónsdóttur frá Eyrar- bakka og stofnuðu þau heimili i Reykjavík. En þegar hann lauk prófi frá Stýrimannaskólanum fluttust þau nokkru síðar í heima- byggð hans, Vopnafjörð. Þar byggði hann sér hús og keypti af föður sínum og föðurbróður bát þann sem hann fórst á. Sagði Þorsteinn mér að hann vildi eign- ast stærra skip því hann teldi sér meiri framavon sunnanlands en austan og ákváðu þau hjónin því á síðastliðnu hausti að flytja til Eyrarbakka. Á nýliðnum vetri réði hann með sér, tvo unga menn. Ætlaði hann sér að þetta yrði sín síðasta vertíð á þessum bát, en margt fer öðruvísi en ætlað er. Annað skip og annað föruneyti varð ekki hlutskipti Þorsteins í þessu lífi. Annar ungu mannanna, Víðir Þór Ragnarsson, 16 ára, fylgdi Þorsteini ferðina löngu og votta ég fjölskyldu hans samúð mína. En Gunnsteini Sigurðssyni, 17 ára, tókst á giftusamlegan hátt að bjarga og allir gleðjast yfir því, megi gæfan fylgja honum. Ég og fjölskylda mín sendum eiginkonu Þorsteins, Regínu, börnum, fóstursyni, foreldrum, systkinum og öðrum ættingjum okkar dýpstu samúðarkveðjur. Karl ó. Jónsson fv. út- gerðarmaður. SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM í Orðskviðunum 17,19 segir: „Sá. sem háar gjörir dyr sínar, sækist eftir hruni.“ Hvað þýðir að gjöra dyr sinar háar? Biblían er rituð á sextán hundruð ára tímabili. Höfundarnir eru sextíu og sex. Vissulega var hún innblásin af Guði, og samt miðast margar líkingar og myndir í henni við mannlíf og aldarhátt í Austur- löndum nær. Dæmi: Sá, sem reyndi að sýna við hlið sín, hversu auðugur hann væri, kallaði yfir sig tvenns konar hættu. Annars vegar gat miskunnarlaus tollheimtu- maðurinn hækkað skattana. Bæri það hins vegar til, að óvinaher réðist inn í bæinn, mundu þeir eyðileggja beztu húsin í þeirri von, að þeir ynnu þannig bug á áhrifamestu íbúunum. Þá er einnig sagt, að forðum daga hafi íbúar Rama 'ekki haft húsdyr sínar nema í hálfri hæð, af því að arabar hafi haft það fyrir sið að koma ríðandi inn í húsin og heimta peninga. Þannig bregður Biblían upp mynd úr daglegu lífi til þess að kenna, að sjálfshrós eyðileggur sálina. ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi. Þess skal 'einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. Hvort sem litið er á þvottahæfni, efnisgæði, handbragð eða hönnun, er Völund í sérflokki, enda fyrsta flokks dönsk framleiðsla, gerð til að uppfylla ströngustu kröfur vandlátustu markaða veraldar. Volund danskar þvottavélar í hæsta gæðaflokki. Frjálst val hitastlgs með hvaða kerfi sem er veitir fleiri mögu- leika en almennt eru notaðir, en þannig er komið til móts við séróskir og hugsanlegar kröfur framtíðarinnar. Hæg kæling hreinþvottarvatns og forvinding í stigmögnuðum lotum koma í veg fyrir krumpur og leyfa vindingu á straufríu taui. En valið er þó frjálst: flotstöðvun, væg eða kröftug vinding. Trefjasían er í sjálfu vatnskerinu. t>ar er hún virkari og handhægari, varin fyrir barnafikti og sápusparandi svo um munar Traust fellilok. sem lokað er til prýði, en opið myndar bakka úr ryðfríu stáli til þæginda við fyllingu og losun. Sparnaðarstilling tryggir góðan þvott á litlu magni og sparar tíma, sápu og rafmagn. Fjaðurmagnaðir demparar í stað gormaupphengju tryggja þýðan gang. Fullkominn öryggisbúnaður hindrar skyssur og óhöpp. 3ja hólfa sápuskúffa og alsjálfvirk sápu- og skolefnisgjöf. Fjórir litir: hvítt, gulbrúnt, grænt, brúnt. Tromla og vatnsker úr ekta 18/8 króm- nikkelstáli, því besta sem völ er á. Lúgan er á sjálfu vatnskerinu, fylgir því hreyfingum þess og hefur varanlega pakkningu. Lúguramminn er úr ryðfríum málmi og rúðan úr hertu pyrex- gleri. Annað eftir því. Strax við fyrstu sýn vekur glæsileiki Völund athygli þína. En skoðaðu betur og berðu saman, lið fyrir lið, stillingar, möguleika, hönnun, handbragð og efnisgæði, og þá skilurðu hvers vegna sala á vönduðum vélum hefur á ný stóraukist í nágrannalöndunum. Reynslunni ríkari huga nú æ fleiri að raunverulegu framleiðslulandi og verðleikum fremur en verði og gera sér Ijóst, að gæðin borga sig: strax vegna meira notagildis, síðar vegna færri bilana, loks vegna lengri endingar. Volund\f þvottavélar-þurrkarar-strauvélar FYRSTA FLOKKS FRÁ| Traust þjónusta Afborgunarskilmálar I JFOrax HÁTÚNI 6A # SÍMI 24420

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.