Morgunblaðið - 28.06.1981, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 28.06.1981, Blaðsíða 44
Síminn á afgreiöslunni er 83033 SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ1981 Hraðskákmót á heimskautsbaug (irímsoy 27. júní. IIRAÐSKÁKMÓT á heimskauts- hauK var haldiA á miðnætti siðast- liðnu í tenKslum við 10. hekar- skákmótið. sem að þessu sinni er haldið hér í Grímsey. TilhöKun þess var þannÍK að sá hafði svart, sem sat norðan bauKsins en sunnan- maðurinn hvítt. Mótið var útslátt- armót ok sÍKurveKari varð Friðrik Ólafsson. stórmeistari, en jafnir í 2. ok 3. sæti urðu þeir Jón L. Árnason ok IlelKÍ Ólafsson. Tvær umferðir á mótinu voru tefldar í gær ok í seinni umferðinni urðu helztu úrslit þau að Friðrik Ólafsson, Guðmundur Sigurjónsson, Helgi Ólafsson og Jóhann Hjart- arsson unnu skákir sínar en Jón L. Árnason gerði jafntefli. Þriðja umferðin var svo tefld í morgun og þá urðu helztu úrslit að Friðrik Ólafsson vann Hilmar Karlsson, Helgi Ólafsson vann Jó- hann Ragnarsson, Jón L. Árnason vann Birgi Örn Steingrímsson, Jó- hann Hjartarson vann Ásgeir Ever- by, Ásgeir Þ. Árnason vann Guð- mund G. Þórarinsson, Ólöf Þráins- dóttir vann Kristján Mikaelsson, Halldór Blöndal vann Sturlu Pét- ursson og nú fyrir skömmu stóðyfir æsispennandi skák þeirra Guð- mundar Sigurjónssonar og Gunnars Gunnarssonar. Fréttaritari Nú er hafinn undirbúningur fyrir útitaflið á Bernhöftstorfunni og stórvirkar vinnuvélar byrjaðar á nauðsynlegum jarðvegsskiptum vegna þess. Taflið verður rúmur fimm og hálfur metri i þvermál og girt höggnu grjóti og gangstétt. Þar fyrir utan munu svo verða gróðursettir runnar og blóm. Taflið sjáift verður i lægð, i svipaðri hæð og Lækjargata og hægt verður að komast að þvi frá Lækjargötu, Bankastræti og frá stéttinni framan við Gimlé. Þá verður lítið jarðhýsi til geymsiu taflmannanna grafið inn i brekkuna. Ljósmynd Mbl. Emilía HjorK. íslenzka álfélagið hf.: Fulltrúar Alusuisse vildu ekki sleppa Inga úr stjórn Afþökkuðu matarboð iðnaðarráðherra FULLTRÚAR Alusuisse í stjórn íslenzka Álfélagsins hf. ákváðu að fresta aðalfundi félagsins á föstu- daginn. en Ingi R. Ilelgason mætti á fundinn með skipunarbréf ráð- herra til handa eftirmanni sínum Fógetaembætti og bifreiðaeftirlitið tengd við tölvur UNNIÐ er að því að tengja fógetaembætti og bifreiðaeftirlit á Akureyri, Keflavík, Hafnar- firði og Kópavogi við tölvu Skýrsluvéla ríkisins og Reykja- vikurborgar. Er fyrirhugað að i fyrsta áfanga komist fyrrnefnd embætti á Akureyri i samband við SKÝRR. Á þá að vera hægt að kalla upplýsingar um þinggjöld ok skrásetninKU bifreiða sam- stundis fram á tölvuskjá fyrir norðan samkva mt upplýsinKum, sem fyrir lÍKgja í mMurtölvunni i Reykjavík. Jón Þór Þórhallsson, forstjóri SKYRR, sagði að helzti kostnaður við þennan búnað væri fólginn í leigu á símalínum, en upplýsingar eru fluttar á milli eftir þeim. Hins vegar er reynt að nota sömu línuna til sem flestra verka. Tölvuskermar og prentarar á stöð- unum eru notaðir til að senda fyrirspurnir og taka við upplýs- ingum. Sagði Jón, að kostnaður við þennan þátt væri ekki hlutfalls- lega mikill og færi minnkandi. Útboð fór fram í tölvuskerma og prentara og var lægsta tilboði tekið frá fyrirtækinu Örtölvu- tækni sf. í Reykjavík. Bifreiðaeftirlitið í Reykjavík var tölvuvætt fyrir nokkrum árum og verið er að endurnýja kerfi Gjaldheimtunnar í Reykjavík svo hægt sé að nýta það í þessi nýju verkefni. Hjá SKÝRR eru upplýs- ingar um bifreiðaeign landsmanna og embættin úti á landi fá aðgang að þeim upplýsingum. Svipað verður uppi á teningnum með þinggjöldin. Aðspurður um frekari útfærslu á þessu kerfi, sagði Jón Þór, að unnið væri að forkönnun á teng- ingu borgarfógetaembættisins í Reykjavík til skrásetningar á veð- böndum. Hann sagði, að einnig væri stefnt að því, að önnur embætti tengdust kerfinu, en það væri háð því hvernig gengi að setja upp línunet til gagnaöflunar um landið, en það væri einn af dýrustu póstunum. 1 stiórninni. Samkvæmt þeim heimildum, sem Mbl. hefur, telja fulltrúar Alusuisse, að fyrirtækið standi vel að víkí í „súrálsverðs- málinu“ og vilja ekki sleppa Inga R. Helgasyni úr stjórn álfélagsins fyrr en punkturinn hefur verið settur aftan við það mál, en Ingi R. Ilelgason hefur sem kunnugt er haft ýmiss afskipti af því máli á vegum iðnaðarráðherra. Þá höfn- uðu fulltrúar Alusuisse í stjórn ÍSAL, dr. Paul II. Muller og Wolfgang Capitaine, matarboði iðnaðarráðherra, Hjörleifs Gutt- ormssonar, en iðnaðarráðherra sagði í samtali við Mbl. í gær, að formaður stjórnar ÍSAL, Halldór II. Jónsson, hefði verið búinn að þiggja boðið fyrir hönd stjórnar- innar. „Ég óskaði eftir því við ráðherra að sitja ekki lengur í stjórn Is- lenzka álfélagsins, þar sem ég tel það ekki samrýmast starfi mínu sem forstjóri Brunabótafélags ís- lands og hafði ráðherra fallizt á það,“ sagði Ingi R. Helgason í samtali við Mbl. í gær. „En aðal- fundinum var frestað og því hefur enn ekki komið til skipunar ann- ars.“ Ingi sagði ástæðu frestunar aðal- fundarins vera ákvörðun fulltrúa Alusuisse, að fundinum skyldi ekki ljúka áður en búið væri að fjalla um súrálsskýrsluna, sem brezka endurskoðunarfyrirtækið Cooper & Lybrand vinnur að. Ingi sagði, að hann hefði á aðalfundinum á föstu- daginn haft tilbúið skipunarbréf eftirmanns síns í stjórninni, en það hafi ekki verið lagt fram, þar sem fundinum var frestað áður en til stjórnarkjörsins kom. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins átti Ragnar Árnason, lektor, að taka við af Inga sem stjórnarmaður ÍSAL. „Það varð ekkert af þessum málsverði, sem gert var ráð fyrir í sambandi við stjórnarfundinn. Halldór H. Jónsson, stjórnarfor- maður, hafði þegið það boð, en þeir voru eitthvað lystarlausir þeir sem komu frá Sviss,“ sagði Hjörleifur Guttormsson, iðnaðarráðherra, í samtali við Mbl. í gær. Hjörleifur sagði, að hann hefði ekki boðið til málsverða í sambandi við fyrri aðalfundi ÍSAL, en hann hefði setið boð, sem fulltrúum Alusuisse hefðu verið haldin. „Ég hef alltaf átt kurteisleg samskipti við fulltrúa þessa fyrirtækis og matarboðið var hugsað sem vettvangur slíkra sam- skipta. Ég vil ekki gefa því neina einkunn, að þeir skyldu telja sér þetta henta nú,“ sagði Hjörleifur. Iðnaðarráðherra sagði, að frest- un aðalfundarins hefði „út af fyrir sig“ komið honum á óvart. „Ég vissi ekki að slík frestun stæði til. Mér skilst að þeir tengi hana endurskoðuninni, en ég fæ nú ekki séð samhengið þarna í milli,“ sagði Hjörleifur. Hann sagðist eftir ferð fulltrúa Cooper & Lybrand hingað til lands á dögunum eiga von á lokaskýrslu fyrirtækisins um súr- álsverðið „í júlímánuði". Verðhækkanir á kísiljárni Áhrif þeirra á afkomu íslenzka járnblendi- félagsins óljós vegna misgengis gjaldmiðla AÐ UNDANFÖRNU hafa orðið lítiisháttar verðhækkanir á kfsil- járni, bæði um áramótin síðustu, 1. apríl og væntanlega aftur 1. júlí, en vegna misjafns genKÍs erlendra Kjaldmiðla eru áhrif þeirra óljós. Að sögn Jóns Sigurðssonar, fram- kvæmdastjóra íslenzka Járnblendi- félagsins, er það mjög óljóst hvaða áhrif þessar hækkanir muni hafa á afkomu fyrirtækisins vegna mis- gengis gjaldmiðla. Dollar hafi hækkað, en pundið og þýzka markið hafi lækkað og því skiptir það máli hvert kísiljárnið er selt, og vegna þessarar gengisþróunar megi ætla að sumar þessara hækkana étist alveg upp. Jón sagði ennfremur að þó að nokkur ávinningur væri af því að selja fyrir dollara, væri sá ávinn- ingur nokkuð óljós vegna þess að íslenzka Járnblendifélagið seldi sem hluti af Elkem-sölukerfinu og það væri í raun og veru ekki fyrr en í árslok, sem gert væri upp þannig að allir fengju sama verð án tillits til þess hvert þeir hefðu selt sína framleiðslu. „Þannig að við fáum ekki fullan ávinning af því þó að við seljum mest í dollurum, heldur jafnast það út á milli verksmiðj- anna eftir magni þegar upp er staðið," sagði Jón. Jón sagði ennfremur að stefnan væri að halda verðinu uppi á kostnað magnsins og að allar meiri- háttar verksmiðjur í heiminum væru því reknar með takmörkuðum afköstum. Kvikmynd nm Stephan G. UNNIÐ er að gerð heimilda- kvikmyndar um ævi Stephans G. Stephanssonar og á myndin að fjalla um líf og störf skálds- ins á íslandi og i Vesturheimi. Það er kanadíska fyrirtækið National Film Board of Kan- ada. sem vinnur að gerð mynd- arinnar. Kvikmyndataka hófst vestra fyrir nokkru, en í ágústmánuði eru Kanadamennirnir væntan- legir hingað til lands. Ferða- málaráð og menntamála- ráðuneytið hafa aðstoðað við ■undirbúning, en væntanlega munu íslenzkir kvikmyndagerð- armenn taka að sér verkefni hérlendis. Meðal annars er fyrir- hugað að taka talsverðan hluta myndarinnar í Skagafirði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.