Morgunblaðið - 28.06.1981, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 1981
Viðbygging
Hótels Borgarness
langt komin
liorKarnosi. 26. júní.
Á aAalfundi í Hótel Borx-
arnes hf. sem haldinn var
nýlega var lögð fram skýrsla
stjórnar hótelsins. í henni
kemur fam að stjórnin hefur
undanfarið laxt mikið kapp á
að sjá fyrir endann á nýbyxx-
inxunni við hótelið. Áætlaður
kostnaður við að Ijúka byxx-
inxunni ásamt innbúi <>x að
xanxa frá h>ð er um fjórar
milljónir nýkróna að meðtöld-
um vöxtum á hyxxinxartíma.
Byggingin hefur verið fjár-
mögnuð að mestu leyti með
lánsfé úr Ferðamálasjóði og
nýju hlutafé. Hefur fjármögn-
un byggingarinnar til loka ver-
ið tryggð með sama hætti.
Stjórn hótelsins stefnir að
því að ljúka framkvæmdum í
mars á næsta ári og koma þá
allri viðbyggingunni í notkun.
Þriðja hæð, sem í eru tíu
gistiherbergi, var tekin í notk-
un fyrir um ári og er hún hin
vistlegasta, gestir þar hafa
verið mjög ánægðir með allan
aðbúnað þar. Miðað er við að
önnur hæðin, sem er innréttuð
eins og sú þriðja, verði tekin í
notkun nú í byrjun júlí. í
sumar verður frágangi húss að
utan og framkvæmdum við lóð
m.a. með malbikuðum bíla-
stæðum lokið og einnig frá-
gangi á eldhúsi. Fyrstu hæð-
inni verður siðan væntanlega
lokið í mars á næsta ári en á
fyrstu hæðinni er eldhúsið,
veitinga- og samkomusalur og
fleira.
Verður þá aðstaða til sam-
komuhalds hér í bæ orðin til
mikillar fyrirmyndar og í við-
byggingunni verður aðstaða til
móttöku ferðafólks mjög góð.
Stjórn hótelsins hefur tekið
þátt í undirbúningi að bygg-
ingu verslunar- og þjónustu-
miðstöðvar á Gíslatúni við
Hótel Borgarnes, eins og það verður fullsmiðað.
landtöku Borgarfjarðarbrúar-
innar, en þar er gert ráð fyrir
að hótelið fái aðstöðu til að
þjóna þeirri umferð sem betur
hentar að afgreiða þar en að
beina niður í bæinn að hótelinu
sjálfu.
Jóhannes B. Sigurðsson er
hótelstjóri Hótels Borgarness
og rekur hann það með miklum
myndarbrag sem leigutaki hót-
elsins, en eigandi er Hótel
Borgarnes hf. sem er í eigu
Borgarneshrepps, sýslusjóða
Mýra- og Borgarfjarðarsýslu,
Kaupfélags Borgfirðinga og
nokkurra annarra félaga og
einstaklinga. Stjórn Hótels
Borgarness hf. skipa Húnbogi
Þorsteinsson sem er formaður,
Gísli Kjartansson og Guð-
mundur Ingimundarson. í
byggingarnefnd, sem hefur
með höndum byggingarfram-
kvæmdirnar, eru Guðjón Ingvi
Stefánsson sem er formaður,
Björn Arason og Daníel Krist-
jánsson.
HBj.
Gas 09 grillvörur
Skeljungsbúðin
Suöaiandsbraut 4
sini 38125
íþróttamót Hestamanna-
félagsins Dreyra
Akranesi 24. júni.
Hestamannafélagið Dreyri á Akranesi <>« nærsvcitum hélt sitt árlega
iþróttamót þann 23.5. siðastliðinn. Þátttaka var fjölmenn, i mjög góðu
veðri.
Úrslit urðu sem hér segir:
TÖLT UNGLINGA: stig
1. sæti: Stefán Ármannsson, Silfri, 57
2. sæti: Helga Sigurðardóttir, Glanni, 49
3.-4. sæti: Guðný Helgadóttir, Blesi, 36
3.-4. sæti: Ragnheiður Helgadóttir, Barón, 36
4 GANGTEGUNDIR UNGLINGA: stig
1. sæti: Guðný Helgadóttir, Blesi, 43,35
2. sæti: Helga Sigurðardóttir, Glanni, 39,01
3. sæti: Stefán Ármannsson, Silfri, 35,07
Stigahæstur knapa í flokki unglinga var Stefán Ármannsson. í flokki fullorðinna urðu úrslit sem hér segir:
4 GANGTEGUNDIR: stig
1. sæti: Einar G. Hreinsson, Spari-Blesi, 50,15
2. sæti: Þórður Jónsson, Hrímfaxi, 47,06
3. sæti: Ingibergur Jónsson, Valur, 49,03
5 GANGTEGUNDIR: stig
1. sæti: Jón Árnason, Hrafn 64,0
2. sæti: Einar G. Hreinsson, Feykir, 50,0
3. sæti: Þórður Jónsson, Glæsir, 37,0
TÖLT: stig
1. sæti: Hrefna Halldórsdóttir, Lýsingur, 79,0
2. sæti: Þórður Jónsson, Hrímfaxi, 78,0
3. sæti: Einar G. Hreinsson, Spari-Blesi, 85,0
G/EÐINGASKEIÐ: stig
1. sæti: Jón Árnason, Hrafn, 75,0
2. sæti: Einar G. Hreinsson, Hrönn, 56,5
3. sæti: Þórður Jónsson, Glæsir, 47,0
Stigahæsti knapi mótsins var Einar G. Hreinsson.
- O -
Firmakeppni Dreyra var haldin 20.5. á íþróttavellinum við Jaðarsbakka.
Keppnin var haldin í blíðskaparveðri og tókst í alla staði mjög vel. Keppt var
í flokki unglinga og flokki fuilorðinna, urðu úrslit sem hér segir:
UNGLINGAKEPPNI:
1. verðl: Nótastöðin.
Keppandi: Jarpur, 7v. Eig. og knapi: Hrafnhildur Jónsd.
2. verðl: Raftækjavinnustofa Ármanns Ármannssonar.
Keppandi: Lúsý, 6v. Eig. og knapi: Gunnar Gunnarsson.
3. verðl: Islenska Járnblendifélagið.
Keppandi: Stjörnufaxi, 7v. Eig. og knapi: Baugur Guðmundss.
FLOKKUR FULLORÐINNA:
1. verðl: Útgerðarfélag Runólfs Hallfreðssonar.
Keppandi: Hrímfaxi, 7v. Eig. og knapi: Samúel Ólafsson.
2. verðl: Þórður Óskarsson.
Keppandi: Gáfa, 5.v. Eig. og knapi: Hreinn Elíasson.
3. verðl: Akrasport.
Keppandi: Klampi, lOv. Eig. og knapi: Jón Sigurðsson.
Knapaverðlaun keppninnar hlaut Baugur Guðmundsson.
- O -
Hestamenn Dreyra fjölmenntu í skrúðgöngu 17. júní og riðu þeir fyrir
göngunni, sem hófst við kirkju bæjarins og endaði á íþróttavellinum við
Jaðarsbakka. Þar sýndu hestamenn dressur og gangskiptingar í lok dagskrár.
Síðan var yngri íbúum hæjarins lofað á bak hestunum og gerði það mikla
lukku.
- O -
Hið árlega Hestaþing Dreyra í Ölveri verður haldið dagana 28. og 29. júní
1981.
- O -
Áætluð er vallar- og mótsstaðargerð í landi félagsins að Barðanesi.
Skipulagsvinna er komin af stað. Áætlaö er að þar verði 600 metra
hlaupabraut, sýningagerði og löglegur Evrópuhringvöllur.
Júllus.