Morgunblaðið - 28.06.1981, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 28.06.1981, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ1981 17 Á blaðamannafundi, er „Bókin um hamingjuna'4, sem Iðunn gefur út, var kynnt. F.v. Valdimar Jóhannsson, forstjóri Iðunnar, Pétur Guðjónsson, höfundur bókarinnar, Ingimar óskarsson en hann þýddi „Bókina um hamingjuna“, og Sigurður Lindal, prófessor, sem hafði hönd i bagga við útgáfuna. sem annars staðar. En ... „Ég er bjartsýnn og þess fullviss að næstu tíu árin verða einhver þau merkilegustu og dásamlegustu í sögu þjóðarinnar," sagði Pétur Guðjónsson, „... vegna þess að innra með okkur býr ævagömul viska, sem bendir okkur á að nú sé kominn tími til að ríða á vaðið og gera það í fullri alvöru." Pétur Guðjónsson hefur undan- farin ár haldið námskeið á vegum Stjórnunarfélags íslands, fyrir þá sem vilja losna við streitu, en hann starfar í tengslum við „Sam- hygð“, sem eru alþjóðleg samtök fólks sem vill reyna nýjar leiðir til að lifa fyllra og hamingjuríkara lífi með það að leiðarljósi að ofbeldið, sem færist sífellt í vöxt í heiminum, endurspegli það ofbeldi, sem er innra með mannin- um sjálfum og að leiðin til að stöðva þessa hringrás sé að stunda „innri vinnu", sem er manninum jafn nauðsynleg og aðrar nauð- þurftir. „Bókin um hamingjuna" er 184 bls. að stærð, myndskreytt af Argentínumanninum R. Edwards. Rokkabillý-hljómsveitin Sú hljómsveit sem er hvaö heitust í dag er tvímæla- laust rokkabillý- tríóiö Stray Cats. Hljómsveitin hefur þegar átt þrjú top 10 „hit“ í Bretlandi af þessari fyrstu LP-plötu sinni, sem eru lögin Runnaway Boys, Rock This Town og nú síðast Stray Cut Strut. Kynntu þér Stay Cats strax því þeir eru ein þeirra hljómsveita, sem skipta miklu máli. FÁLKIN N ® Suöurlandsbraut 8 — Sími 84670. Laugavegi 24 — Sími18670. Austurveri — Sími 33360. „Bókin um hamingj- una44 er komin út Þrítug ensk húsmóðir, sem hef- ur áhuga á ferðalögum, tónlist, sögu og tungumálum, auk þess sem hún safnar póstkortum, frí- merkjum og minjagripum alls konar, óskar eftir pennavinum: Mrs. Jill Hilford, 31 Rant Meadow, Hemel Hampstead, Herts. HP3, 8QE, England. Pólsk kona, húsmóðir að öllum líkindum, getur hvorki um aldur né áhugamál, en hefur mikinn áhuga á að eignast íslenzka pennavini: Mrs. Wirginia Tomasik, Box 4, 00-961 Warzawa 42, Polska, Poland. Bandarísk 32 ára húsmóðir, sem safnar minjagripum allskonar og uppskriftum að öllum mat og les mikið: Mrs. Nora C. Davenport, 1824 East 23rd St., Des Moines, Iowa 50317, U.S.A. Sextán ára japönsk skólastúlka óskar eftir pennavinum. Safnar m.a. frímerkjum og hefur ýmis áhugamál: Yoshino Fukimbara, 3-7-2 Akitsu, 3 chome, Narashino City, Chiba Prefecture, 275 Japan. Fjórtán ára japönsk skólastúlka með margvísleg áhugamál: Satoe Imaeda, 33-1 Rokujizo Umayose, Imaise-cho Ichinomiya-shi, Aichi, 491 Japan. Tvítugur piltur frá Ghana með með bóklestur, tónlist, íþróttir og frímerkjasöfnun sem áhugamál: Jude Otoo, c/o Robert Bimpong, P.O. Box 370, Cape Coast, Ghana. Fimmtán ára piltur frá Ghana með íþróttir og minjagripasöfnun sem áhugamál: Peter Yeboah, P.O. Box 155, Cape Coast, Ghana, W-Africa. einn stundað, með því skilyrði að menn vilji breyta til og hafi réttar aðferðir til að vinna eftir." „Bókin um hamingjuna" er ekki skrifuð af sérfræðingi fyrir sér- fræðinga, heldur er grundvöllur hennar reynsla höfundar síðustu tíu árin og hún er ætluð öllum almenningi. Höfundur, Pétur Guð- jónsson, nam félagsvísindi við Harvard-háskóla í Bandaríkjun- um, en hélt að því búnu til Chile og dvaldist þar á hinum miklu umrótstímum í stjórnmálum landsins. Hann hefur starfað sem háskólakennari og kennt stjórn- málafræði í Kaliforníu og sálar- fræði í New York. Hann starfar nú sem rekstrarráðgjafi í New York. Bókin um hamingjuna skiptist í sjö aðalkafla. Ferðin; Hvernig á að losna við tauga- spennu og streitu?; Skyndinám- skeið í slökun; Lífsákvörðunin; Lífsreglurnar; Hver er ég? og Umhverfi sem örvar til sjálfs- þroskunar. Auk þess er formáli sérstaklega helgaður íslenskum aðstæðum, sem höfundur kvað vera hagstæðar, miðað við önnur lönd þótt þróunin vísi i neikvæða átt, að því leyti að mannleg samskipti færu minnkandi hér KOMIN er út hjá forlaginu Ið- unni „Bókin um hamingjuna” eftir Pétur Guðjónsson. Bókin er upphaflega samin á ensku en óskar Ingimarsson hefur þýtt hana á islensku. Á blaðamannafundi, sem hald- inn var í tilefni útkomu bókarinn- ar, sagði höfundur m.a.: „Á síð- ustu árum hefur verið gerð sú sálfræðilega villa að rugla saman ánægju og hamingju og leggja þetta tvennt að jöfnu. En ánægja er aðeins viss spennulosun meðan hamingja er tilfinning um vöxt, um það að hugurinn starfi. Til þess að öðlast þá tilfinningu þarf að inna af hendi vissa „innri vinnu“. Þessa vinnu getur hver og enna- vinir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.