Morgunblaðið - 28.06.1981, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ1981
15
Faktorshúsið á ísatirði á dögum Ásgeirs G. Ásgeirssonar.
1
Margar myndir eru i albúminu góða frá komu Friðriks 8. til íslands 1907. Hér er ein þeirra.
Það var mikið um að vera á bryggjunum á ísatirði á sumrin. Skip verzlunarinnar úti tyrir.
Margrét sjálf er þarna á myndinni með glæsilegan hatt og snýr baki i myndavélina.
f-----------------------N
Myndir:
Úr fjölskyldualbúmi
____-___________________
---------------------N
Texti:
Elín Pálmadóttir
>_____________________4
geirssonar 1912. — En eftir það
varð fyrirtækið að 'Milljónafélag-
inu, segir hún. Það gerðist mjög
skyndilega. Ásgeir faðir hennar
sagði einn morguninn að Ásgeir
eldri, faðir hans, hefði um nóttina
vitjað sín í draumi, og sagt: Nú á
að selja! Ásgeir Guðmundur hrað-
aði sér umsvifalaust til Kaup-
mannahafnar, náði í umboðs-
manninn sinn og sagði honum að
selja verzlunina strax. Öllu var
pakkað. Ég man vel eftir því þegar
við fórum öll til skips í síðasta
sinn, segir Margrét. Það lágu
járnbrautarteinar til að flytja
fiskvagnana niður að sjónum.
Dótið var allt komið um borð og
þegar við gengum þarna niður
með þeim, þá sagði Árni Jónsson
faktor stundarhátt: „Þetta er eins
og jarðarför."
— Strax eftir að við komum til
Kaupmannahafnar, hafði pabbi
kvöld eitt samband við lögfræð-
inginn sinn og sagðist vilja breyta
erfðaskránni daginn eftir. Hann
var alltaf að breyta erfðaskránni,
því hann hafði verið tvisvar sinn-
um kvæntur, misst báðar konurn-
ar, og svo trúlofaður, en það var
farið út um þúfur. En nú ætlaði
hann að arfleiða kjördóttur sína
að öllu — enginn önnur var
honum þá svo nákomin. En hann
vaknaði ekki aftur, dó um nóttina.
Og allt í einu stóð ég uppi ein,
tvítug stúlkan, fjölskyldulaus og
heimilislaus.
— Ég var þó ekki alveg á
flæðiskeri stödd, því ég erfði
svolítinn hlut frá fyrri erfðaskrá.
Annars má til gaman segja frá
grein í erfðaskránum hans pabba,
sem sýnir að hann vildi hugsa
fyrir öllu. í erfðaskránni er tekið
fram að erfingjarnir, hvort sem
það voru frændfólk hans eða ég,
máttu ekki nota féð fyrir eigin-
menn sina eða unnusta, heldur
aðeins fyrir sjálfa sig og beina
afkomendur — með einni undan-
tekningu þó. Það mátti nota féð til
að bjarga maka sínum úr fangelsi,
ef hann lenti upp á kant við
réttvísina.
— Skyndilega var allt horfið og
ég þurfti 1912 um tvítugt að hefja
nýtt líf. Ég var þá orðinn mikill
anglofil og England var þá glæsi-
legt heimsveldi. Svo ég tók mér
far með fjölskylduskipinu þangað
og hugðist setjast þar að. Þá
þurfti engin vegabréf eða slíkt. Ég
var bara spurð við landganginn
hvort ég ætti 10 pund, sem ég
auðvitað átti. Ég hafði gengið í
listaskóla og lært að modelera
fyrir málma, skartgripi, styttur og
þvílíkt. Og seinna lærði ég að búa
til mót í leir fyrir málmsteypu. Ég
fór því í Liberty, verzlunina
frægu, og falaðist eftir slíkri
vinnu. Þeir vildu senda mig til
Birmingham. En það kærði ég mig
ekki um. Svo ég fór á námskeið í
listaskóla. Og vann við þetta þar
og í París líka. En 22ja ára gömul
giftist ég svo John Philip Scott og
eignaðist tvo drengi, svo ég hætti
að mestu þessu starfi. Og nú er
annar sonur minn með mér hér.
— Jú, ég kom til íslands einu
sinni, árið 1933. Þá kom öll
fjölskyldan hingað. Ég og annar
sonur minn tókum okkur far
hringinn í kringum landið með
strandferðaskipi sem stanzaði á
ísafirði tæpa tvo daga. En feðg-
arnir fóru annað. Það var gaman.
Þá sigldum við með skipi frá
Englandi. Ég vildi að hægt hefði
verið að koma sjóleiðis núna. Það
eru svo mikil læti á flugvöllunum
og hávaði í flugvélunum, en aftur
á móti svo friðsamt á skipum.
Hvernig er flugvöllurinn á ísa-
firði. Það er ekki rúm fyrir
flugbraut á láglendinu þar?
Margrét (Vigfússon eða Ás-
geirsson) Scott er nú farin til
Isafjarðar með albúmið með
myndunum, sem hún átti úr búi
Ásgeirs G. Ásgeirssonar. Þar má
sjá myndir frá ísafirði og einnig
er þar mikið af myndum úr
konungskomunni 1907, af Friðriki
konungiS. og Hannesi Hafstein og
öllu umstanginu. Létum við gera
nokkrar þeirra í snarheitum fyrir
blaðið, svo sem sjá má hér á
síðunni.
- E.Pá.
43466
Hltöarvegur
3ja herb.
efri hæð, suður svalir.
Miövangur — 3 herb.
Suöur svalir, sér inng.
Krókahraun — 3 herb.
98 fm efri hæð í 4býli, suöur
svalir, bílskúr, skipti á sérhæö,
raðhúsi eða einbýli í Hafnarfiröi.
Hamraborg — 3 herb.
96 fm íbúö ( lyftuhúsi, suöur
svalir, þvottur á hæö, bílskýti.
Meigerói — Kópavogi
110 fm 4ra herb. íbúð ásamt 2ja
herb. íbúð í kjallara, stór bíl-
skúr. Falleg lóö.
Nýbýfavegur — einbýli
4 svefnherb., stofa, eldhús, á
hæöinni 40 fm baöstofuloft,
einnig sér 2ja herbergja íbúö,
falleg ræktuö lóö.
Sumarbústaöir:
i Grímsnesi.
í nágrenni Reykjavíkur.
Lóö ásemt sökklum í Kjós.
Verzlun
á Suðvesturlandi. Verzlun í full-
um rekstri, 120 fm 4—5 herb.
íbúö fylgir.
Stmi í dag 74361.
Fasteignasalan
EIGNABORG sf.
200 Köpavogur . Stmer 4J4M& 43605
Sölum.: Vilhjálmur Einarsson,
Sigrún Kroyer.
WmÍmhT
28611
Opið 2—4
Selbrekka — Kópavogi
Glæsilegt einbýlishús ásamt
bílskúr og fallegum garöi. Til
greina kemur aö taka góöa
3ja—4ra herb. íbúö upp í sölu-
verö.
Melgeröi Kóp.
Neðri hæö og kjallari í hlöönu
tvíbýtishúsi meö nýrrf álklæön-
ingu. Góöur bílskúr og góö lóö.
Digranesvegur
4ra herb. 100 fm góö íbúö í
tvíbýlishúsi á jaröhæö.
Skeljanes
4ra—5 herb. 120 fm íbúð á 2.
hæö í járnvöröu timburhúsi.
íbúöin er mjög mikiö standsett.
Lækjarfit
4ra herb. 100 fm íbúö á 2. hæö
í steinhúsi.
Flyðrugrandi
Falleg 3ja herb. 80 fm íbúö á 3.
hæð meö austur svölum.
Þvottahús á hæöinni, gufubaö
og leikherb. í fullfrágenginni
sameign.
Langholtsvegur
3ja herb. íbúö á 2. hæö meö
stóru háalofti í þríbýlishúsi.
íbúöin er laus.
Nýlendugata
3ja herb. 80 fm íbúö á 1. hæö í
steinhúsi. Mikiö endurnýjuö.
Uróarstígur
3ja herb. 80 fm íbúö á aöalhæö
í þríbýishúsi.
Grundarstígur
Falleg 2ja herb. íbúð á 3. hæö í
steinhúsi.
Baldursgata
Falleg 2ja herb. íbúö á jaröhæö.
Asbraut — Kópavogi
Falleg 2ja herb. 55 fm íbúö á 2.
hæð.
Mánagata
Góö 2ja herb. íbúö í þríbýli.
Grettisgata
2ja herb. lítið niöurgrafin
kjallaraíbúö.
Söluturn
Söluturn í Vesturbænum í full-
um rekstri. Ákveöin sala. Upp-
lýsingar á skrifstofunni.
Hús og eignir
Bankastræti 6
Lúðvlk Gizurarson hrl
ALOI.ÝSINC ASIMINN ER: 22410 JKoromililabib