Morgunblaðið - 28.06.1981, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 1981
21
70 norrænir kórstjór-
ar þinga í Reykjavík
DAGANA 28.—30. júni fer fram i
Reykjavik ráðstefna norrænna
kórstjóra á vegum „Nordiska
Körkommittén“.
Þetta er i fyrsta skipti sem
ísiand tekur þátt i þessari ráð-
stefnu sem haldin er á 3ja ára
fresti, og er þessi sú tiunda i
röðinni.
Það er Landssamband bland-
aðra kóra á íslandi sem annast
hefur undirbúning ráðstefnunnar
af Islands hálfu og fer hún fram í
Söngskólanum í Reykjavik að
Hverfisgötu 44 og 45.
Um 70 kórstjórar frá öllum
Norðurlöndunum taka þátt í ráð-
stefnunni. Meðal þeirra sem þar
flytja erindi og annast kennslu
eru Finnarnir Harald Andersén
og Per Snickars, Svíarnir Robert
Sund og Eskil Hemberg, Terje
Kvam frá Noregi, Steen Lindholm
frá Danmörku og Þorgerður Ing-
ólfsdóttir frá íslandi.
I tengslum við ráðstefnuna
Raf- og rafeinda-
tækjaframleiðendur:
Kannaður
grundvöllur
fyrir stofn-
un samtaka
AÐ UNDANFÖRNU hefur
starfshópur á vegum iðnaðar-
ráðuneytisins unnið að könn-
un og gerð skýrslu varðandi
mögulcika íslenzkra aðila til
að auka markaðshlutdeild
sína á sviði rafiðnaðar með
framleiðslu raf- og rafeinda-
tækja.
Þá er einnig könnuð vænt-
anleg samkeppnishæfni þeirra
gagnvart erlendum framleið-
endum. Samkvæmt upplýsing-
um sem Mbl. hefur aflað sér
hafa hérlendir framleiðendur
á þessum sviðum um nokkurt
skeið kannað grundvöll þess
að stofna með sér samtök,
annaðhvort sjálfstæð eða inn-
an vébanda annarra samtaka.
Ákvörðun hefur þó ekki enn
verið tekin um hvort af stofn-
un þessara samtaka verður en
í sumar verður málið kannað
áfram og ákvörðun um hvort
af stofnun verður líklega tekin
í haust.
All(il.VsiN(,ASÍMINN ER: ÍR
22480
Jttorcmiblntiit)
verður opin í Söngskólanum í
Reykjavík all-viðamikil sýning á
nótnabókum og hafa öll stærstu
bókaforlög Norðurlanda sent bæk-
ur á sýninguna sem verður opin
ráðstefnudagana frá kl. 12—17,
þar sem einnig verður hægt að
gera pantanir á nótum, kennslu-
gögnum o.fl.
Þeim, sem áhuga hafa á að
fylgjast með þessari ráðstefnu, er
bent á að hafa samband við
Garðar Cortes formann Lands-
sambands blandaðra kóra.
Flugleiðir og BSÍ:
Flugfar/bílfar
í einum farmiða
Þorgerður Ingólfsdóttir
FLUGLEIÐIR og Bifreiðastöð ís-
lands í Reykjavik hafa tekið upp
samstarf með sölu farmiða á
ákveðnum leiðum innanlands. Far-
þegum gefst nú kostur á farmiðum
þar sem flogið er aðra leiðina en
ekið hina. Hér cr um að ræða
hefðbundnar leiðir i byggð og
ennfremur leiðir um óbyggðir, svo
sem Fjallabaksleið, sem er i tengsl-
um við flug til og frá Ilornafirði,
Sprengisandsleið og Kjalvegur,
sem er i tengslum við flug til og
frá Akureyri. og ennfremur eru
ferðir tii og frá ísafirði. þar sem
flogið er aðra leiðina en ekið hina.
Þær leiðir um óbyggðir sem að
ofan greinir verða eknar frá júlí til
september og fer að sjálfsögðu eftir
færð hvenær þær ferðir geta hafist.
Ekið verður norður Sprengisand
og suður Kjöl.
Fjallabaksleið verður ekin í júlí
og ágúst og þá gist að Kirkjubæj-
arklaustri.
Yinningar
í happ-
drætti SVFÍ
EFTIRTALIN númer hlutu vinn-
ing í happdrætti Slysavamafélags
íslands 1981: Nr. 24827, Galant
2000 GLX fólksbifreið 1981; nr.
25279 Land undir sumarbústað í
Hafnarlandi við Svalvoga í Dýra-
firði og nr. 9776, 1366, 10652,
36053, 19539, 25281, 37656 og
38936, DBS reiðhjól 10 gíra.
Vinninganna sé vitjað á skrif-
stofu SVFÍ á Grandagarði. Upp-
lýsingar um vinningsnúmer eru
gefnar í síma 27123 (símsvari)
utan venjulegs skrifstofutíma.
SVFÍ færir öllum beztu þakkir
fyrir veittan stuðning.
(Birt án ábyrgðar.)
StortíÖindi fyrir
húsbyggjendur
Með nýrri aðferð við að setja upp milliveggi og klæðningu á loft og útveggi má vinna
verkið á helmingi skemmri tíma og þriðjungi ódýrara en með hefðbundnum hætti.
Hver hefur efni á að láta hjá líða að kynna sér kosti MÁT-kerfisins?
- Hvernig efni í grindur sparast um allt að helming og gerekti og efni kringum
hurðir að fullu.
- Hvernig vinna sparast bæði við uppsetningu og málun, lagningu á rafrörum
og ísetningu á hurðum.
— Hvernig líming og negling verður að mestu ónauðsynleg og sparast því efnið
og auðvelt verður að breyta og nota viðinn að nýju.
— Hvernig hljóðeinangrun verður betri og auðveldari.
Þar skiptir líka máli að enginn eining í MÁT-kerfinu vegur meira en 14 kg. og að
auðvelt er fyrir einn að setja einingarnar saman.
Láttu ekki hjá líða að koma og kynna þér hvað hér er að gerast.
Gerum tilboð í uppsetningu.
Framleiöandi:
m4Tf
Selvogsbraut 4 Þorlákshöfn Sími 99-3620
BYKO
AÐALSÖLUUMBOÐ
BYGGINGAVÖRUVERSLUN
KÓPAV0GS
SKEMMUVEGI 2 SÍMI 41000