Morgunblaðið - 28.06.1981, Page 24

Morgunblaðið - 28.06.1981, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ1981 Á BOTNI Barentshafsins, norðaustur af Norður-Norejfi, liggur geysimikill fjársjóður, 5 tonn af gulli sem er jafnvirði 634,5 milljóna islenskra króna. Fjársjóður þessi er í flaki breska fylgdarskipsins Edinborgar sem Þjóðverjar söktu 1. maí 1942- Skipið liggur á 200 — 300 metra dýpi og nú hyggjast Bretar og Sovétmenn bjarga gullinu úr flakinu. Árið 1953 voru einnig uppi hugmyndir um að ná gullinu úr Edinborg en hætta varð við það þar sem tækni þess tima var ekki nægjanleg. En nú segja Bretar að ekkert sé því til fyrirstöðu að gullið náist og eru þegar farnir að undirbúa framkvæmdir. Edinborg fylgdi skipalest gulli sem sigldi milli Murmansk, íslands og Englands. Þetta var ein af þeim mörgu skipalestum sem fluttu Sovétmönnum vörur frá bandamönnum í seinni heimsstyrjöldinni. Gullið um borð var úr sovéska ríkiskass- anum og átti að fara upp í greiðslu á vopnum sem Sovét- menn fengu frá bandamönnum. „Gullið var lestað í Murm- ansk,“ segir Don Wilkinson sem var skipverji á Edinborg í þessari ferð. „Tólf sovéskir her- menn gættu farmsins en við lestunina rifnaði einn af köss- unum undan gullinu svo öll áhöfnin vissi hver farmurinn var.“ sÉgggj Breska fylgdarskipið Edinborg liggur nú á hafsbotni með 5 tonn af gulli innanborðs. Vilja bjarga 5 tonnum af af botni Barentshafs Jafnvirði 634,5 milljóna ísl. króna Edinborg lagði af stað frá Murmansk í lok apríl. En skip- in voru aðeins komin stutt áleiðis vestur er þýskir kafbát- ar gerðu árás. Skipalestir urðu fyrir árás- um í svo að segja hvert sinn sem þær fóru þarna um. Skipa- tjón og mannfall var gífurlegt. Ef einhverjir skipverjar höfn- uðu í sjónum áttu þeir litla möguleika á að lifa af. Ef þeim var ekki bjargað á fyrstu tveimur til þremur mínútunum var úti um þá. Sem fylgdarskip átti Edin- borg að vernda skipalestina fyrir árásum Þjóðverja. En að kvöldi 29. apríl hæfði tundur- skeyti skipið og fremri hluti þess tættist í sundur. I 30 tíma, sem Wilkinson og aðrir þeir sem lifðu árásina af gleyma aldrei, velktist Edinborg áfram í stormviðri. En að morgni 1. maí gerðu Þjóðverjar lokaárás á skipið. Þrjú þýsk herskip sóttu að Edinborg sem loks sökk með þrjátíu mönnum inn- anborðs. Áður höfðu 10 áhafnarmeðlimir látist í árás- Með Edinborg, sem var 10.000 brúttólestir að stærð, hvarf allur gullfarmurinn í djúpið. Hvers vegna gullinu var ekki bjargað um borð í annað skip áður en Edinborg sökk er ekki fullkomlega Ijóst ennþá. En nú á að reyna að bjarga gullinu að ákvörðun bresku og sovésku ríkisstjórnanna sem munu skipta því með sér ef allt gengur að óskum. Er það fréttist að reyna ætti að bjarga gullinu úr Edinborg mótmæltu aðstandendur þeirra sem með skipinu fórust. Sögðu þeir að með því væri verið að raska ró þeirra látnu sem í skipinu hvíla. Don Wilkinson segist skilja þessa afstöðu ætt- ingjanna en er samt á því að bjarga eigi gullinu. Hann kem- ur líka með þá tillögu að reisa minnismerki um þá sem fórust með Edinborg fyrir hluta gulls- ins. „Það er mikið talað um orrustuna um Bretland en næstum aldrei minnst á þá mörgu sem létu lífið í skipalest- um á norðurhöfunum," segir hann. rmn — Þýtt ok endursaift úr Daicens Nyheter. Nýtt videotromp frá „Picture Search“ Pín eii SIOIl' Saudar minnka ekki olíufram- leiðsluna Nikosía. Kýpur. 26. júní. AP. FRÉTTIR um að Saudar ætli að draga úr oliuframleiðslu sinni var neitað af opinberri hálfu i Saudi Arabiu i dag. Kom þetta fram i sérstakri skýrslu um oliuframleiðslu i Miðausturlönd- um sem var birt í dag og talið að skýrslan sé samin með íullri vitund olíumálaráðuneytis Saudi Arabiu. MORGUNBLAÐIÐMOR' MORGUNBLAÐIÐMOR MORGUþ/^LAÐIÐMQ!?; MORGU MORGI Sérstaklega var tekið til fram- leiðsla á hráolíu er erlend blöð höfðu skýrt frá því að samdráttur yrði í henni. Saudar framleiða nú 450 þús. tunnur hráolíu á degi hverjum. í skýrslunni segir að Saudar muni í næstu framtíð halda sig við 10 milljarða tunna markið á dag, þrátt fyrir aukið olíuframboð í heiminum. OIOMORGUNBLAÐIU ^QMORGUNBLAÐIÐ ^RGUNBLAOIO ÍNBLAÐID Blað- burðar- fólk óskast Austurbær Laugavegur frá 101 —171 Háteigsvegur JLADIÐ „AOIÐ M Mcy M 6« MORGUfiS MORGUNBI MORGUNBLA Hringið í síma 35408 "// ÍAÐÍI J MORGUNBLAÐIÐMtW fNBLAÐIÐMi olaOIÐ iBLAÐIÐ ^LAÐIÐ ftBLAÐIÐ /0NBLAÐIÐ /ÍUNBLAÐIÐ (gunblaðið IGUNBLAÐIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.