Morgunblaðið - 28.06.1981, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ1981
25
Ástand vega í Borg-
arfirði afar slæmt
Borgarnesi 26. júní.
ÞAÐ KEMST víst enginn hjá því,
sem um Borgarfjörðinn hefur
ekið að undanförnu. að taka eftir
því að vejjir þar eru flestir mjög
holóttir og slæmir. Það er þungt
hljoðið i Borgfirðingum þegar
þessi mál ber á góma og ræða
þeir þessi mál mjög sín í milli en
sýnist sitt hverjum um ástæður.
Nokkuð hefur verið um mál þessi
fjallað i fjölmiðlum undanfarið.
meðal annars sendi heiibrigðis-
málaráð Vesturlands frá sér
mjög athyglisverða ályktun þar
sem vakin er athygli á mikilvæg-
um þætti vegamála. þ.e. áhrif
slæmra vega á heilsu manna sem
um þá fara.
Fréttaritari Mbl. leitað álits á
þessum málum hjá Eiríki Bjarna-
syni umdæmisverkfræðingi Vega-
gerðar ríkisins á Vesturlandi.
Eiríkur sagði að vegir á Vestur-
landi væru yfirleitt mjög gamlir,
uppbygging vega hefði þar hafist
Opnunar-
tíma skrif-
stof a breytt
yfir sumar-
tímann
IIEFÐBUNDNUM opnunartíma al-
mennra skrifstofa er mjög víða
hrcytt yfir sumartimann. f samn-
ingum skrifstofufólks er kveðið á
um að vinnutimi þessi skuli vera
frá kl. 9 til kl. 17, en samkvæmt
upplýsingum sem Mbl. fékk hjá
Verzlunarmannafélagi Reykjavik-
ur er vinnutiminn oft færður yfir
sumartimann þannig að skrifstof-
ur eru opnar frá kl. 8 til kl. 16.
Samkvæmt samningum er slíkt
heimilt með samþykki starfsfólks,
en þróunin undanfarin ár hefur
verið sú að skrifstofufólk óskar
almennt eftir því að byrja vinnu
fyrr á morgnana og hætta fyrr á
daginn, en almennar skrifstofur eru
nú yfirleitt lokaðar á laugardögum.
Vitni vantar
að árekstri
LÖGREGLAN hefur beðið Morg-
unblaðið að auglýsa eftir vitni að
árekstri, sem varð á mótum
Vesturlandsvegar og Höfðabakka
um klukkan 15.55 fimmtudaginn
23. apríl sl.
Þar rákust saman Saab-bifreið,
sem ók austur Vesturlandsveg og
Daihatsu-bifreið, sem ók norður
Höfðabakka. Ágreiningur er um
stöðu umferðarljósa.
Vitni eru beðin að gefa sig fram
við slysarannsóknadeild lögregl-
unnar í Reykjavík.
Al (.I.VSIM, V
SIMINN i:r:
22480
almennt fyrr en annarsstaðar á
landinu og sennilega af þeim
ástæðum hafi endurbygging
þeirra hafist seinna en annars-
staðar. Síðan þegar Vegagerðin
fengi ekki nema 60—70% af nauð-
synlegu fé til viðhalds veganna
gerðu þeir ekkert annað en að
drabbast niður.
Núna hefði það skeð að mikil
þurrkatíð kom ofan í aurbleytuna
og þegar vegirnir væru orðnir svo
lélegir sem raun ber vitni hefði
ekki verið við neitt ráðið.
Varðandi áhrif aksturs þungra
biíreiða á vegina sagði Eiríkur að
þungatakmarkanir þyrftu að vera
strangari og standa í lengri tíma
en nú væri, en takmörk væru fyrir
slíkum aðgerðum því ekki væri
hægt að stöðva flutninga til hér-
aðsins og í gegnum það nema í
stuttan tíma.
Skynsamlegast, sagði Eiríkur
Bjarnason, væri að styrkja vegina
og setja bundið slitlag á þá
fjölförnustu, fyrr yrðu þessi mál
ekki í lagi.
Þegar þessi ummæli Eiríks
Bjarnasonar umdæmisverkfræð-
ings Vegagerðar ríkisins á Vestur-
landi eru skoðuð í Ijósi þess
hversu gífurlega mikil umferð er
um Borgarfjarðarhérað, er ljóst
að alla áherslu verður að leggja á
að styrkja vegina og gera mikið
átak í lagningu bundins slitlags
hér um slóðir. Þegar vegirnir eru
orðnir þetta gamlir virðist von-
laust að halda vegunum við og ef
menn sætta sig ekki við þvotta-
brettin þá verður að taka til
hendinni við raunhæfar aðgerðir
og það sem fyrst, það er ómælt
tjónið sem af vegunum hlýst þegar
þeir eru sem í sumar.
" IIBj.
Góöir greiösluskilmálar
Er nú til afgreiðslu á aðeins
ca. 82.000 kr.
Þetta er ótrúlega hagstætt
verð fyrir bíl, sem hefur bæði
afl og styrk til að endast lengi
við íslenskar aðstæður. Erfiða
vegi og óblitt veðurfar.
En POLONEZ er ekki bara kraftakarl.
Hann er líka búinn flestum þeim þægind-
um, sem miklu dýrari bílar státa af. Við
bendum á vandaða innréttingu, tvöfalt
hemlakerfi, stillanlegt stýri, Halogen þoku-
ljós, rafknúna rúðusprautu, upphitaða aft-
urrúðu með þurrku og svo mætti lengi telja.
Þú færð mikið fyrir peningana og FIAT
þjónustu í kaupbæti. Það skiptir líka máli.
Skoðaðu POLONEZ 1981 fyrst.
RfciGttMBDÐIÐ-WF. SMIftJUVEGI 4, KGPíWOGISí^iCOÍ — 77720.