Morgunblaðið - 30.06.1981, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JUNI 1981
13
Veggteppið sem Guðrún sýnir i Noregi er í þremur hlutum og eru þær allar frá sjávarútvcgi, sem er
einn helzti atvinnuvegur á ísafirði.
Guðrún Vigfúsdóttir tekur þátt
í norrænni listiðnaðarsýningu
GUÐRÚN Vigfúsdóttir vefnað-
arkennari á ísafirði verður
þátttakandi í norrænni listiðn-
aðarsýningu, sem opnar í Lille-
hammer föstudaginn 3. júli nk.
og stendur til ágústloka.
Norska félagið Landsforbundet
Norsk Brukskunst stendur að
sýningunni og býður árlega
einum listamanni frá hverju
Norðurlandanna þátttöku og
mun þetta í fyrsta sinn, sem
íslendingar eiga fulltrúa sinn.
Þeir listamenn sem taka þátt í
sýningunni eru Grethe Meyer,
Danmörku, sem sýnir gler,
postulín og keramik, Bruno Mat-
hisson Svíþjóð, en hann sýnir
innréttingar og húsgögn, Oiva
Toikka frá Finnlandi, sem sýnir
glerlist, Dagny og Finn Hald frá
Noregi, sem sýna keramikverk,
og Guðrún Vigfúsdóttir, en hún
sýnir fatnað, framleiddan af
Vefstofu Guðrúnar Vigfúsdótt-
ur, textíl og veggteppi, sem hún
hefur unnið að nú eftir áramót.
Eru það þrjár myndir frá aðal-
atvinnuvegi Isfirðinga, sjávar-
útvegi.
Guðrún Vigfúsdóttir verður
við opnun sýningarinnar og
kvaðst hún hlakka til að hitta þá
erlendu listamenn, sem þarna
ættu muni og vonast til að
íslendingar muni framvegis eiga
fulltrúa á þessari árlegu sýn-
ingu. Síðar í sumar verður sýn-
ingin sett uppi Þrándheimi.
Guðrún Vigfúsdóttir
Greiðslur til Hafnar-
fjarðarbæjar i fullu
samræmi við lög
— segir Ragnar Arnalds, fjármálaráðherra
„VIÐ TELJUM að staðið hafi
verið að greiðslum til Hafnar-
fjarðarbæjar í samræmi við lög
og í raun og veru hafi lagheimild
ekki verið til annars en gert
hefur verið. Ég tel einnig hættu á
þvi að með tíð og tima geti það
farið svo að allt álgjaldið fari til
Hafnfirðinga. verði gengið að
kröfum þeirra,“ sagði Ragnar
Arnalds. fjármálaráðherra, i
samtali við Mbl. er blaðið innti
hann álits á ummælum Árna
Grétars Finnssonar. bæjar-
fulltrúa i Ilafnarfirði, um að
erfiðlrga gengi að innheimta
framleiðslugjald frá ríkinu
vegna álversins i Straumsvik. w
Ragnar sagði ennfremur að
samningaviðræður vegna þessa
máls hefðu staðið yfir í nokkra
mánuði án árangurs og sér kæmi
það ekki á óvart að Hafnarfjarð-
arbær ætlaði sér að sækja málið
fyrir dómstólum. Ráðamenn þar
teldu sig hafa rétt fyrir sér og því
væru þetta eðlileg viðbrögð. Með
því að málið færi fyrir dómstóla
fengist úr því skorið hver réttur
þeirra væri, en einnig væri sú
lausn hugsanleg að láta Alþingi
ákveða þessar greiðslur.
Júnímánuður kald-
ari en í meðalári
JÚNÍMÁNUÐUR, sem nú
er senn liðinn, verður í
heild nokkru kaldari en í
meðalári, að því er Adda
Bára Sigfúsdóttir, veður-
fræðintjur hjá Veðurstofu
íslands, sajrði í samtali við
Morgunhlaðið í gær. Tölur
lÍKKja að vísu ekki fyrir í
endanlegu formi enn sem
komið er, en af tölum í
Reykjavík nefndi Adda, að
aðeins 10 dagar mánaðar-
ins hefðu verið hlýrri en í
meðalári. hinir kaldari.
Frost var við jörðu þrisv-
ar eða fjórum sinnum, en í
tveggja metra hæð hefur
hitastigið lægst mælst
tveggja gráðu hiti. Sólríkt
var fram til 8. júní, en
síðan þá sólarlítið, ef tveir
dagar eru undanskildir. Úr-
koma hefur verið líkt og í
meðallagi, og í rauninni
sagði Adda Bára að mánuð-
urinn, þótt fremur svalur
væri, væri eins og júní væri
alla jafna, hægur og róleg-
ur, og ekki mikið um frávik
frá því sem nefnt er í
meðalárferði.
85 ára í dag:
Sigurður
H. Jónsson
forstjóri
ÁTTATÍU og fimm ára er í
dag Sigurður Hólmsteinn
Jónsson, forstjóri Blikksmiðju
Reykjavíkur, Mímisvegi 6,
Reykjavík. Hann verður að
heiman í dag.
Lionshreyfingin og Hjálparstofnun kirkjunnar
Gangast fyrir stofnun
Styrktarsjóðs fatlaðra
Söfnunarherferð 3.—
IIJÁLPARSTOFNUN kirkjunn
ar og Lionshreyfingin i samvinnu
við Umferðarráð gangast um
na'stu helgi fyrir stofnun Styrkt-
arsjóðs Sjálfsbjargar og er í ráði
að ná til sem flestra landsmanna
til að þeir gcti gerst stofnendur
sjoðsins. Er sjóði þcssum ætlað að
aðstoða fatlaða, einstaklinga og
hópa. til að létta þeim veginn tií
sjálfshjargar scgir m.a. i skipu-
lagsskrá sjóðsins.
Helgina 3. til 5. júlí verða
Lionsmenn á ferð og þar sem þetta
er ein fyrsta stóra ferðahelgi
6. júlí
ársins verður mönnum gefinn
kostur á að gerast stofnfélagar og
leggja fram framlög sín á benz-
ínstöðvum eða öðrum fjölförnum
stöðum. Afhentir verða frá Um-
ferðarráði bæklingar um heilræði
í umferðinni og er hér um tvíþætt
framtak að ræða, áminningar í
umferðinni auk þess sem mönnum
er gefinn kostur á að styrkja
fatlaða. Á þá bíla, sem stöðvaðir
hafa verið, verður settur sérstakur
límmiði, en með honum á að
fyrirbyggja að menn verði stöðv-
aðir oftar en einu sinni.
Höndin, fréttabréf Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar, er nú komin
út og verður henni dreift til
landsmanna, en þar greinir frá
stofnun þessa styrktarsjóðs og
viðtöl eru við fulltrúa Sjálfsbjarg-
ar, landssambands fatlaðra.
Hjálparstofnun kirkjunnar og
Lionshreyfingin hafa áður starfað
saman að söfnun fyrir fatlaða
þegar þessir aðilar gengust árið
1979 fyrir söfnun vegna sundlaug-
ar í Sjálfsbjargarhúsinu, sem tek-
in hefur verið í notkun. Að þessu
sinni hefur verið ákveðið að gang-
ast fyrir stofnun þessa sjóðs, sem
ráðgert er að hlaupa undir bagga
þar sem aðrir sjóðir eða trygg-
ingar ná ekki til.
I SPENNUM
L FRAMIAG Tll FATIAORA
%
víð
Guðmundur Einarsson fram-
kvæmdastjóri Hjálparstofn-
unar og Jenný Ásmundsdótt-
ir með söfnunarfötur, sem
dreift verður um landið og
mönnum gefinn kostur á að
leggja í framlög sin.
Ljósm. (lUÓjón.