Morgunblaðið - 30.06.1981, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 30.06.1981, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JUNI 1981 13 Veggteppið sem Guðrún sýnir i Noregi er í þremur hlutum og eru þær allar frá sjávarútvcgi, sem er einn helzti atvinnuvegur á ísafirði. Guðrún Vigfúsdóttir tekur þátt í norrænni listiðnaðarsýningu GUÐRÚN Vigfúsdóttir vefnað- arkennari á ísafirði verður þátttakandi í norrænni listiðn- aðarsýningu, sem opnar í Lille- hammer föstudaginn 3. júli nk. og stendur til ágústloka. Norska félagið Landsforbundet Norsk Brukskunst stendur að sýningunni og býður árlega einum listamanni frá hverju Norðurlandanna þátttöku og mun þetta í fyrsta sinn, sem íslendingar eiga fulltrúa sinn. Þeir listamenn sem taka þátt í sýningunni eru Grethe Meyer, Danmörku, sem sýnir gler, postulín og keramik, Bruno Mat- hisson Svíþjóð, en hann sýnir innréttingar og húsgögn, Oiva Toikka frá Finnlandi, sem sýnir glerlist, Dagny og Finn Hald frá Noregi, sem sýna keramikverk, og Guðrún Vigfúsdóttir, en hún sýnir fatnað, framleiddan af Vefstofu Guðrúnar Vigfúsdótt- ur, textíl og veggteppi, sem hún hefur unnið að nú eftir áramót. Eru það þrjár myndir frá aðal- atvinnuvegi Isfirðinga, sjávar- útvegi. Guðrún Vigfúsdóttir verður við opnun sýningarinnar og kvaðst hún hlakka til að hitta þá erlendu listamenn, sem þarna ættu muni og vonast til að íslendingar muni framvegis eiga fulltrúa á þessari árlegu sýn- ingu. Síðar í sumar verður sýn- ingin sett uppi Þrándheimi. Guðrún Vigfúsdóttir Greiðslur til Hafnar- fjarðarbæjar i fullu samræmi við lög — segir Ragnar Arnalds, fjármálaráðherra „VIÐ TELJUM að staðið hafi verið að greiðslum til Hafnar- fjarðarbæjar í samræmi við lög og í raun og veru hafi lagheimild ekki verið til annars en gert hefur verið. Ég tel einnig hættu á þvi að með tíð og tima geti það farið svo að allt álgjaldið fari til Hafnfirðinga. verði gengið að kröfum þeirra,“ sagði Ragnar Arnalds. fjármálaráðherra, i samtali við Mbl. er blaðið innti hann álits á ummælum Árna Grétars Finnssonar. bæjar- fulltrúa i Ilafnarfirði, um að erfiðlrga gengi að innheimta framleiðslugjald frá ríkinu vegna álversins i Straumsvik. w Ragnar sagði ennfremur að samningaviðræður vegna þessa máls hefðu staðið yfir í nokkra mánuði án árangurs og sér kæmi það ekki á óvart að Hafnarfjarð- arbær ætlaði sér að sækja málið fyrir dómstólum. Ráðamenn þar teldu sig hafa rétt fyrir sér og því væru þetta eðlileg viðbrögð. Með því að málið færi fyrir dómstóla fengist úr því skorið hver réttur þeirra væri, en einnig væri sú lausn hugsanleg að láta Alþingi ákveða þessar greiðslur. Júnímánuður kald- ari en í meðalári JÚNÍMÁNUÐUR, sem nú er senn liðinn, verður í heild nokkru kaldari en í meðalári, að því er Adda Bára Sigfúsdóttir, veður- fræðintjur hjá Veðurstofu íslands, sajrði í samtali við Morgunhlaðið í gær. Tölur lÍKKja að vísu ekki fyrir í endanlegu formi enn sem komið er, en af tölum í Reykjavík nefndi Adda, að aðeins 10 dagar mánaðar- ins hefðu verið hlýrri en í meðalári. hinir kaldari. Frost var við jörðu þrisv- ar eða fjórum sinnum, en í tveggja metra hæð hefur hitastigið lægst mælst tveggja gráðu hiti. Sólríkt var fram til 8. júní, en síðan þá sólarlítið, ef tveir dagar eru undanskildir. Úr- koma hefur verið líkt og í meðallagi, og í rauninni sagði Adda Bára að mánuð- urinn, þótt fremur svalur væri, væri eins og júní væri alla jafna, hægur og róleg- ur, og ekki mikið um frávik frá því sem nefnt er í meðalárferði. 85 ára í dag: Sigurður H. Jónsson forstjóri ÁTTATÍU og fimm ára er í dag Sigurður Hólmsteinn Jónsson, forstjóri Blikksmiðju Reykjavíkur, Mímisvegi 6, Reykjavík. Hann verður að heiman í dag. Lionshreyfingin og Hjálparstofnun kirkjunnar Gangast fyrir stofnun Styrktarsjóðs fatlaðra Söfnunarherferð 3.— IIJÁLPARSTOFNUN kirkjunn ar og Lionshreyfingin i samvinnu við Umferðarráð gangast um na'stu helgi fyrir stofnun Styrkt- arsjóðs Sjálfsbjargar og er í ráði að ná til sem flestra landsmanna til að þeir gcti gerst stofnendur sjoðsins. Er sjóði þcssum ætlað að aðstoða fatlaða, einstaklinga og hópa. til að létta þeim veginn tií sjálfshjargar scgir m.a. i skipu- lagsskrá sjóðsins. Helgina 3. til 5. júlí verða Lionsmenn á ferð og þar sem þetta er ein fyrsta stóra ferðahelgi 6. júlí ársins verður mönnum gefinn kostur á að gerast stofnfélagar og leggja fram framlög sín á benz- ínstöðvum eða öðrum fjölförnum stöðum. Afhentir verða frá Um- ferðarráði bæklingar um heilræði í umferðinni og er hér um tvíþætt framtak að ræða, áminningar í umferðinni auk þess sem mönnum er gefinn kostur á að styrkja fatlaða. Á þá bíla, sem stöðvaðir hafa verið, verður settur sérstakur límmiði, en með honum á að fyrirbyggja að menn verði stöðv- aðir oftar en einu sinni. Höndin, fréttabréf Hjálpar- stofnunar kirkjunnar, er nú komin út og verður henni dreift til landsmanna, en þar greinir frá stofnun þessa styrktarsjóðs og viðtöl eru við fulltrúa Sjálfsbjarg- ar, landssambands fatlaðra. Hjálparstofnun kirkjunnar og Lionshreyfingin hafa áður starfað saman að söfnun fyrir fatlaða þegar þessir aðilar gengust árið 1979 fyrir söfnun vegna sundlaug- ar í Sjálfsbjargarhúsinu, sem tek- in hefur verið í notkun. Að þessu sinni hefur verið ákveðið að gang- ast fyrir stofnun þessa sjóðs, sem ráðgert er að hlaupa undir bagga þar sem aðrir sjóðir eða trygg- ingar ná ekki til. I SPENNUM L FRAMIAG Tll FATIAORA % víð Guðmundur Einarsson fram- kvæmdastjóri Hjálparstofn- unar og Jenný Ásmundsdótt- ir með söfnunarfötur, sem dreift verður um landið og mönnum gefinn kostur á að leggja í framlög sin. Ljósm. (lUÓjón.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.