Morgunblaðið - 30.06.1981, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ1981
21
Jón með nýtt glæsilegt
íslandsmet
— í 3000 m hindr. 8:49,58 mín.
JÓN Diðriksson UMSB
setti nýtt glæsilegt ís-
landsmet í 3000 m hindrun-
Númer 9
VIÐTAL var við Hermann Gunn-
arsson í leikskrá Fram á dögun-
um er Framarar léku gegn Val i
1. deildinni. Hermann var þá
titlaður fyrrverandi knatt-
spyrnumaður, en á laugardaginn
birtist útvarpsfréttamaðurinn
góðkunni þó inni á vellinum i
leik Vals gegn Þór. Að sjálfsögðu
i sinni góðu gömlu peysu númer
9. Hermann lék fyrri hálfleikinn.
en var tekinn út af að honum
loknum.
Ekki gerði kappinn stóra hluti
þann tíma, sem hann var inn á, en
það má Hermann eiga, að allan
tímann reyndi hann að spila.
Hraðinn og snerpan er ekki sú
sama og áður, en knattleiknin er
enn til staðar. Hermann hefur
aðeins mætt á tvær eða þrjár
æfingar með Val í sumar, en eigi
að síður var hann valinn í liðið á
laugardaginn.
Hermann sat um stund í tjaldi
arhlaupi í Remscheid í
Þýskalandi á sunnudag.
Tími Jóns var 8:49,58 mín.
• Númer niu.
íþróttafréttamanna í seinni hálf-
leiknum og fylgdist þaðan með
félögum sínum, sem skoruðu hvert
markið af öðru gegn Akureyring-
unum. Höfðu menn þá á orði, að
með mikilli yfirferð sinni í fyrri
hálfleiknum, hefði Hermann
þreytt Þórsara svo mjög, að eftir-
leikurinn hafi verið Valsliðinu
auðveldur!
Bætti hann þar met Ágústs
Ásgeirssonar úr ÍR um
rúmar Jimm sek., en það
setti Ágúst á ólympíu-
leikunum í Montreal árið
1976 og var það 8:53,96
mín. Jón sigraði i hlaupinu
eftir að hafa leitt mestallan
tímann, og má því segja að
Jón hafi hlaupið þetta
hlaup á eigin spýtur. Jón
átti best áður 8:59,0 mín.
og má segja að hann sé til
alls líklegur það sem eftir
er af keppnistímabilinu.
Með þessu meti á Jón
Diðriksson öll metin í milli-
vegalengdum nema 1 og 2
mílna hlaupum, eða sex
talsins. Þau eru 1:49,32 mín.
í 800 m, 2:21,1 mín. í 1000 m,
3:41,77 mín. í 1500 m, 5:22,8
mín. í 200 m, 8:09,2 mín. í
3000 m og síðan 8:49,58 í
3000 m hindrunarhlaupi.
• Jón Diðriksson er sterkur um þessar mundir.
Stórgóö frammistaöa
borgfirskra ungmenna
HÓPUR borgfirskra ungmenna,
sem dvalið hafa i æfingabúðum i
Danmörku að undanförnu, stóð
sig afar vel á dönsku meistara-
móti i frjálsum iþróttum sem
lauk um helgina. Þar kepptu 18
karlalið og 13 kvennalið viðs
vegar að úr Danmörku. UMSB-
hópurinn tók þátt i mótinu fyrir
hönd UMFÍ og náði kvennaliöið
þeim athyglisverða árangri að
hafna i öðru sæti eftir harða
keppni víð kvennaiið Ribe. Ribe
fékk 10495 stig en UMSB 10468
stig. Árhus varð í þriðja sæti með
10298 stig.
Karlaliðinu gekk heldur verr,
enda eru sterkustu félagsmenn
UMSB ekki í för með hópnum,
þ.e.a.s. Jón Diðriksson og Einar
Vilhjálmsson. Engu að síður hafn-
aði karlaliðið í 11. sæti. Besta
afrekið vann Hafsteinn Þórisson,
sem stökk yfir 1,95 í hástökki og
setti þar með nýtt Borgarfjarð-
armet. Þá var um tvöfaldan ís-
lenskan sigur að ræða í 800 metra
hlaupi kvenna. Anna Björk
Bjarnadóttir sigraði á 2:27,5 mín-
útum, en Elín Blöndal hafnaði í
öðru sæti á 2:34,4 mínútum.
Ýmsir í borgfirska hópnum hafa
sýnt gífurlegar framfarir síðustu
vikurnar, enda aðstæður í Ábybro
allar hinar bestu. Til dæmis má
geta þess, að boðhlaupssveit
UMSB hefur hlaupið undir ís-
landsmeti í telpna-meyja og
drengjaflokki í 4x100 metra hlaupi
að undanförnu. Á æfingum að
vísu, en greinilegt er hvert stefnir.
Ófeigur/gg
Stór dagur hjá fyrirliðum Vals
Laugardagurinn var merkis-
dagur í lífi þeirra Gríms Sæ-
mundsen og Guðmundar Þor-
björnssonar. Grimur útskrifað-
ist sem kandidat í læknisfræði
og Guðmundur sem bygginga-
verkfræðingur. Grímur hefur
verið fyrirliði Valsliðsins i
sumar, en Guðmundur var fyr-
iriiði íslandsmeistaranna sið-
astliðið sumar.
Grímur tók leik Vals og Þórs
fram yfir Háskólahátiðina á
laugardaginn, en auk þess að
útskrifast frá Háskóla íslands,
lék Grímur sinn 200. leik með
meistaraflokki Vals. Er ekki að
efa, að dagurinn verður Grími
eftirminnilegur ýmissa hluta
vegna.
Guðmundur hefur átt við
mciðsli að stríða í sumar, en er
óðum að jafna sig og átti að vera
á varamannabekknum á laugar-
daginn. Hann kaus þó heldur að
vera viðstaddur útskriftina í
Háskólanum og taka við bréfi
sínu úr hendi Guðmundar Magn-
ússonar, háskólarektors. Þetta
keppnistímabil verður trúlega
hið síðasta hjá Guðmundi með
Val — um sinn að minnsta kosti,
því hann hefur hug á að fara til
framhaldsnáms i Seattle í
Bandaríkjunum.
En það voru fieiri, sem tóku
við pappírum úr hendi rektors á
laugardaginn. Þeirra á meðal
var Sigurrós Sigurðardóttir,
móðir Guðmundar Þorbjörns-
sonar, en hún lauk félagsfræði-
prófi í vor. Sannarlega stór
dagur í fjölskyldunni.
áij.
• Guðmundur Þorbjörnsson tekur við prófskírteini sínu úr hendi háskólarektors.
(Ljósm. Kmilin.)
Golfmeistarar
Þetta eru hinir nýbökuðu unglingameistarar íslands í golfi, þrír
efstu keppendur i hverjum flokki. Sjá nánar á blaðsiðu 28.
Ljósm. Mbl. B.