Morgunblaðið - 30.06.1981, Síða 41

Morgunblaðið - 30.06.1981, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ1981 21 Jón með nýtt glæsilegt íslandsmet — í 3000 m hindr. 8:49,58 mín. JÓN Diðriksson UMSB setti nýtt glæsilegt ís- landsmet í 3000 m hindrun- Númer 9 VIÐTAL var við Hermann Gunn- arsson í leikskrá Fram á dögun- um er Framarar léku gegn Val i 1. deildinni. Hermann var þá titlaður fyrrverandi knatt- spyrnumaður, en á laugardaginn birtist útvarpsfréttamaðurinn góðkunni þó inni á vellinum i leik Vals gegn Þór. Að sjálfsögðu i sinni góðu gömlu peysu númer 9. Hermann lék fyrri hálfleikinn. en var tekinn út af að honum loknum. Ekki gerði kappinn stóra hluti þann tíma, sem hann var inn á, en það má Hermann eiga, að allan tímann reyndi hann að spila. Hraðinn og snerpan er ekki sú sama og áður, en knattleiknin er enn til staðar. Hermann hefur aðeins mætt á tvær eða þrjár æfingar með Val í sumar, en eigi að síður var hann valinn í liðið á laugardaginn. Hermann sat um stund í tjaldi arhlaupi í Remscheid í Þýskalandi á sunnudag. Tími Jóns var 8:49,58 mín. • Númer niu. íþróttafréttamanna í seinni hálf- leiknum og fylgdist þaðan með félögum sínum, sem skoruðu hvert markið af öðru gegn Akureyring- unum. Höfðu menn þá á orði, að með mikilli yfirferð sinni í fyrri hálfleiknum, hefði Hermann þreytt Þórsara svo mjög, að eftir- leikurinn hafi verið Valsliðinu auðveldur! Bætti hann þar met Ágústs Ásgeirssonar úr ÍR um rúmar Jimm sek., en það setti Ágúst á ólympíu- leikunum í Montreal árið 1976 og var það 8:53,96 mín. Jón sigraði i hlaupinu eftir að hafa leitt mestallan tímann, og má því segja að Jón hafi hlaupið þetta hlaup á eigin spýtur. Jón átti best áður 8:59,0 mín. og má segja að hann sé til alls líklegur það sem eftir er af keppnistímabilinu. Með þessu meti á Jón Diðriksson öll metin í milli- vegalengdum nema 1 og 2 mílna hlaupum, eða sex talsins. Þau eru 1:49,32 mín. í 800 m, 2:21,1 mín. í 1000 m, 3:41,77 mín. í 1500 m, 5:22,8 mín. í 200 m, 8:09,2 mín. í 3000 m og síðan 8:49,58 í 3000 m hindrunarhlaupi. • Jón Diðriksson er sterkur um þessar mundir. Stórgóö frammistaöa borgfirskra ungmenna HÓPUR borgfirskra ungmenna, sem dvalið hafa i æfingabúðum i Danmörku að undanförnu, stóð sig afar vel á dönsku meistara- móti i frjálsum iþróttum sem lauk um helgina. Þar kepptu 18 karlalið og 13 kvennalið viðs vegar að úr Danmörku. UMSB- hópurinn tók þátt i mótinu fyrir hönd UMFÍ og náði kvennaliöið þeim athyglisverða árangri að hafna i öðru sæti eftir harða keppni víð kvennaiið Ribe. Ribe fékk 10495 stig en UMSB 10468 stig. Árhus varð í þriðja sæti með 10298 stig. Karlaliðinu gekk heldur verr, enda eru sterkustu félagsmenn UMSB ekki í för með hópnum, þ.e.a.s. Jón Diðriksson og Einar Vilhjálmsson. Engu að síður hafn- aði karlaliðið í 11. sæti. Besta afrekið vann Hafsteinn Þórisson, sem stökk yfir 1,95 í hástökki og setti þar með nýtt Borgarfjarð- armet. Þá var um tvöfaldan ís- lenskan sigur að ræða í 800 metra hlaupi kvenna. Anna Björk Bjarnadóttir sigraði á 2:27,5 mín- útum, en Elín Blöndal hafnaði í öðru sæti á 2:34,4 mínútum. Ýmsir í borgfirska hópnum hafa sýnt gífurlegar framfarir síðustu vikurnar, enda aðstæður í Ábybro allar hinar bestu. Til dæmis má geta þess, að boðhlaupssveit UMSB hefur hlaupið undir ís- landsmeti í telpna-meyja og drengjaflokki í 4x100 metra hlaupi að undanförnu. Á æfingum að vísu, en greinilegt er hvert stefnir. Ófeigur/gg Stór dagur hjá fyrirliðum Vals Laugardagurinn var merkis- dagur í lífi þeirra Gríms Sæ- mundsen og Guðmundar Þor- björnssonar. Grimur útskrifað- ist sem kandidat í læknisfræði og Guðmundur sem bygginga- verkfræðingur. Grímur hefur verið fyrirliði Valsliðsins i sumar, en Guðmundur var fyr- iriiði íslandsmeistaranna sið- astliðið sumar. Grímur tók leik Vals og Þórs fram yfir Háskólahátiðina á laugardaginn, en auk þess að útskrifast frá Háskóla íslands, lék Grímur sinn 200. leik með meistaraflokki Vals. Er ekki að efa, að dagurinn verður Grími eftirminnilegur ýmissa hluta vegna. Guðmundur hefur átt við mciðsli að stríða í sumar, en er óðum að jafna sig og átti að vera á varamannabekknum á laugar- daginn. Hann kaus þó heldur að vera viðstaddur útskriftina í Háskólanum og taka við bréfi sínu úr hendi Guðmundar Magn- ússonar, háskólarektors. Þetta keppnistímabil verður trúlega hið síðasta hjá Guðmundi með Val — um sinn að minnsta kosti, því hann hefur hug á að fara til framhaldsnáms i Seattle í Bandaríkjunum. En það voru fieiri, sem tóku við pappírum úr hendi rektors á laugardaginn. Þeirra á meðal var Sigurrós Sigurðardóttir, móðir Guðmundar Þorbjörns- sonar, en hún lauk félagsfræði- prófi í vor. Sannarlega stór dagur í fjölskyldunni. áij. • Guðmundur Þorbjörnsson tekur við prófskírteini sínu úr hendi háskólarektors. (Ljósm. Kmilin.) Golfmeistarar Þetta eru hinir nýbökuðu unglingameistarar íslands í golfi, þrír efstu keppendur i hverjum flokki. Sjá nánar á blaðsiðu 28. Ljósm. Mbl. B.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.