Morgunblaðið - 30.06.1981, Qupperneq 42
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1981
Meistaramót í fjölþrautum:
Elías vann í tíunda sinn
ELÍAS Sveinsson, í Ármanni
sÍKraði í Meistaramóti íslands i
tuKþraut i tíunda sinn i röð nú
um heljíina. í öðru sæti varð
Steíán b. Stefánsson ÍR en hann
lauk ekki keppni i siðustu grein-
Björn BorK
Borg enn að
BJÖRN Borg, John McEnroe og
Jimmy Connors cru meðal þeirra
átta tennisleikara sem standa
enn uppi á Wimbledon-keppninni
fra'Ku i tennis, er komið er að
8-liða úrslitum. bau fara fram á
þriðjudaginn. bessir þrir kappar
hafa allir átt nokkuð nreiða leið
til þessa. í síðustu umferðinni
sigraði BorK Bandarikjamann-
inn Vitas Gerulatis 3—0 í jöfnum
leik. Connors burstaði Pólverj-
ann Fibak 3—0 ok McEnroe
tókst að merja landa sinn, Stan
Smith. 3—1. Sem fyrr seKÍr fara
8-manna úrslitin fram á þriðju-
daKÍnn ok mætir BorK þá tiltölu-
leKa lítt þekktum tennisleikara.
Peter McNamara.
inni, 1500 m hlaupi. Árangur
Eliasar var vægast sagt slakur
eða 6341 síík, sem er tæpum 1100
stigum lakari áran^ur en hans
besta þraut. Að vísu var veður
ekki eins ok best var á kosið og
maðurinn nýkominn frá Kali-
forniu þar sem hann hefur dvalið
við æfinKar i u.þ.b. þrjá mánuði.
Stefán byrjaði vel og eftir fyrri
dag hafði hann 112 stÍKa forskot á
Elías. Hafði hann forystu þangað
til eftir kringlukastið er Elías náði
forystu og hélt henni til loka. Varð
árangur sem hér segir:
Elías: 12,0 sek. - 5,84 m - 13,54
m — 1,80 m — 54,0 sek. — 17,50
sek. — 44,44 m — 3,70 m — 52,40
m — 50:03,6 sek.
Árangur Stefáns varð sem hér
segir: 11,9 sek. — 6,56 m — 10,02 m
— 1,96 m — 53,3 sek. 16,2 sek. —
29,36 — 2,82 m — 47,34 m. Eins og
áður sagði lauk Stefán ekki keppni
í síðustu greininni.
Þeir Sigurður Einarsson Árm.
og Óskar Thorarensen KR hættu
keppni eftir fjórar greinar.
Helga Halldórsdóttir frjáls-
íþróttakonan knáa bar sigurorð af
stöllum sínum í sjöþraut nú um
helgina. Hlaut Helga 4646 stig
sem er Islandsmet, en keppt var í
fyrsta sinn í þessari grein hér á
landi nú. í öðru sæti varð Valdís
Hallgrímsdóttir KA sem hlaut
4591. Valdís og Bryndís Hólm ÍR,
sem var þriðja með 4346 stig,
veittu Heígu mikla keppni og
munaði ekki nema 24 stigum og
fyrstu og þriðju manneskju fyrir
síðustu grein. Helga sýndi hins
vegar mikið öryggi í síðustu grein-
inni 800 m haupi og kom í mark
sem öruggur sigurvegari á 2:21,5
mín.
Eins og áður greinir var keppt í
fyrsta flokki í þessari grein hér á
landi og að sjálfsögðu sett íslensk
met. Bryndís Hólm setti því ísl.
meyjamet. Annars varð árangur
Helgu sem hér segir: 100 m gr. 15,2
sek., kúluvarp 8,88 m, hástökk 1,50
m. 200 m hl. 26,1 sek., langst. 5,29
m, spjótkast 20,56 m og 2:21,5 mín.
í 800 m.
Þórdís Hrafnkelsdóttir UIA
fékk 3137 stig og var fjórða en
Thelma Björnsdóttir Árm. lauk
ekki keppni. J.E.
Helga Halldórsdóttir að aflokinni keppni í sjöþraut.
íslandsmet í 400
og 4x100 m hlaupum
Elías Sveinsson i kringlukasti en
i þeirri grein tók hann forystu i
tugþrautarkeppninni.
Góður árangur í Tblisi
AUSTUR-bjóðverjar sigruðu Koch, sem hljóp 400 metrana á
Rússa í landskeppni i frjálsum
íþróttum sem fram fór í Tblisi
um helgina. Stigakeppnin endaði
189—179 bjóðverjunum í hag.
Eins og vænta mátti af
iþróttafólki þessara þjoða, náðist
stórgóður árangur í ýmsum
greinum og eitt heimsmet fauk
ok hefur áður verið Kreint frá því
í Mbl. Var það á föstudagskvöld-
ið. er Vladimir Polyakov lyfti sér
yfir 5,81 metra.
Ef litið er yfir helstu afrekin á
mótinu, þá sigraði Sovétmaðurinn
Yury Sedikh í sleggjukasti,
kastaði 80,18 metra. Valery
Searde sigraði í hástökki, stökk
2,30 metra. En Austur-Þjóðverj-
arnir voru sterkari, helstu afrek
þeirra unnu Frank Emmelmann,
sem sigraði í 100 metra hlaupi á
10,16 sekúndum í mótvindi, Marita
(Frlðlsar Iþróttlr)
49,65 sekúndum, og Kersten Dedn-
er, sem sigraði í hástökki með 1,96
metra stökki.
TVÖ NÝ íslandsmet í frjálsum
iþróttum voru sett á móti í
Gelsenkirchen í Vestur-Þýska-
landi á sunnudag. Sigriður Kjart-
ansdóttir KA hljóp 400 metra á
55,12 sekúndum ok sveit KR
hljóp 4x100 metra boðhlaup á
42,29 sekúndum, en i sveitinni
voru SÍKurður T. SÍKurðsson,
Oddur SÍKurðsson, Hjörtur Gisla-
son »k Jón Oddsson. bar með féll
32 ára gamall met ÍR sem þeir
frægu kappar, Clausen-bræður
ok Finnbjörn borvaldsson, áttu,
en það var 42,8 sekúndur.
Skiptingar KR-sveitarinnar
tókust mjög vel og piltarnir voru
fyrirfram ákveðnir í að ná metinu,
sem sett var löngu áður en þeir
fæddust. Sigurður T. hljóp fyrsta
sprett, Oddur annan sprett, Hjört-
ur þriðja sprett og Jón Oddsson
lokasprettinn.
Hreinn Halldórsson varpaði
kúlunni 19,51 metra og var lang
fyrstur. Sigurður T. Sigurðsson
fór létt yfir 4,90 metra og reyndi
síðan við 5,10 metra. Átti hann
eina ágæta tilraun, en hann er nú
að reyna talsvert stífari stöng en
áður og þegar hann hefur náð
fullu valdi á henni má búast við
því að hann fari örugglega yfir
5,10—5,20 metra.
Ágúst Ásgeirsson hljóp 1500
metra á laugardag á 3:52,13 mín-
útum. Sigríður Kjartansdóttir
hljóp þá 200 metra hlaup á 25,57
sekúndum og Oddný Árnadóttir á
25,59 sekúndum. Jón Oddsson
stökk 7 metra slétta í langstökki.
Hjörtur Gíslason hljóp 110 m
grindahlaup á 15,32 sekúndum og
Jón Oddsson híjóp 200 metra
hlaup á 23,00 sekúndum í mót-
vindi, sem er hans besta í þeirri
grein.
Þórdís Gísladóttir stökk 1,84 í
hástökki og bar höfuð og herðar
yfir keppinauta sína. Er þetta
næst besti árangur hennar, en
íslandsmetið er 1,85. Þórdís
reyndi við nýtt íslandsmet, 1,86
metra en felldi naumlega.
Oþekktur Bandaríkjamaður
skaut Ovett aftur fyrir sig
— Sprengdi sig næstum á endasprettinum
FÁTT var um fína drætti á
hinum árlegu Bislett-leikum í
frjálsum íþróttum. þrátt fyrir að
margir frægir kappar væru þar
meðal keppenda. Eina metið, sem
sett var, var vallarmet fyrir
Bislett í kringlukasti, en það var
heimsmethafinn Ben Plucknett
sem þar var á ferðinni, en hann
var þó nokkuð frá heimsmeti
sínu, eða með 68,86 metra. Landi
Plucknetts, John Powell, varð
annar með 65,32 metra. Til gam-
ans má taka til samanburðar, að
hcimsmet Plucknetts er 71,20
metrar. Gamla Bislett-vallarmet-
ið átti Norðmaðurinn Knut
Iljeltnes, en það hljóðaði upp á
67,86 metra.
Óvæntustu úrslitin urðu þó í
1500 metra hlaupinu, þar sem
óþekktur Bandaríkjamaður að
nafni Tom Byers kom öllum á
óvart og sigraði ekki lakari kappa
Athugasemd við athugasemd
1 TILEFNI af allfurðulegri at-
hugasemd sem birtist á íþrótta-
síðu Morgunblaðsins siðastliðinn
föstudag við skrif mín um leik
Reynis og ÍBÍ sem fram fór í
Sandgerði þann 14. þessa mánað-
ar. langar mig að stinga niður
penna. Fimm ungir menn í Kefla-
vík undirrita þessa athugasemd.
en ekki eru þeir sem rætt hafa við
mig um hana trúaðir frekar en
ég um að þeir séu höfundar
hennar. bykir smekkleysi hennar
sverja sig til ákveðins faðernis.
En nóg um það.
I athugasemdinni segir að ég
halli réttu máli er ég vitna í
umsögn áhorfenda um að Harald-
ur Leifsson hafi verið rangstæður
er hann skoraði tiltekið mark.
Þessari fullyrðingu vísa ég alger-
lega til föðurhúsanna. Eg var
sjálfur ekki í þannig aðstöðu á
vellinum að ég treysti mér til að
dæma. En ég sá viðbrögð dómar-
ans, er hann virtist ekki sáttur við
gildi marksins, þrátt fyrir ákveð-
nar bendingar línuvarðar, heldur
fór dómari til hans og eftir
allnokkur orðaskipti dæmdi hann
markið loks gilt.
Af þessum orsökum og einnig af
mótmælum Reynismanna, ræddi
ég við allnokkra áhorfendur, sem
voru í bestri aðstöðu við völlinn,
þar af voru tveir sem ég veit að
eru gjörkunnugir knattspyrnu-
reglunum. Allir voru þessir aðilar
sammála um rangstöðu Haraldar.
Þess vegna sagði ég frá áliti þeirra
í umræddri frétt. En hvar voru
fimmmenningarnir? Ég tel mig
hafa nokkuð góðar heimildir fyrir
því að þeir hafi staðið fyrir aftan
varamannabekkina, sem voru
staðsettir hinum megin við mið-
línu vallarins og þar af leiðandi
ekki í neinni aðstöðu frekar en ég
til að dæma.
Einnig lýsa þessir fimm yfir
undrun sinni yfir skrifum mínum
um að dómarinn hafi ofnotað
flautuna. En það er ennþá skoðun
mín að svo hafi verið og einnig
allra þeirra vallargesta sem ég hef
rætt við eftir leikinn. Og margir
þeirra hafa talað um flautukon-
sert í því sambandi. Síðast klikkja
fimmmenningarnir út með því að
gefa í skyn að ég skrifi ekki af
réttsýni og hlutleysi, en ég held að
þeir ættu að lesa aftur fréttina um
umræddan leik og bera hana
saman við til dæmis frétt Dag-
blaðsins af sama leik. Og ég tel að
þeir muni lítinn mun sjá.
I frétt Dagblaðsins segir emm
að vísu að Haraldur hafi alls ekki
verið rangstæður, enda ekki hægt
við öðru að búast af honum þar
sem emm sjálfur var fyrrnefndur
línuvörður. Ég leitaði aftur á móti
álits vallargesta og skýri frá því.
Dómarann tel ég í fréttinni hafa
ofnotað flautuna, en emm segir í
Dagblaðinu að hann hafi notað
hana óspart. Er mikill munur þar
á? Vísa ég þessum aðdróttunum
því einnig til föðurhúsanna.
Að endingu vil ég svo eindregið
ráðleggja þessum ungu mönnum,
ef þeir sjálfir vilja halda virðingu
sinni, að leiðast ekki út í það, að
ráðast að samborgurum sínum
með ósannindaáburð og aðdrótt-
anir að ástæðulausu. Og umfram
allt að forðast þessi félagslegu
gleraugu sem höfundi athuga-
semdarinnar virðast svo kunn þó
svo að þeim kunni að vaxa í
augum, eins og fleirum að því er
virðist, óvænt velgengni Reynis-
liðsins í sumar.
Jón
en Steve Ovett. Byers hljóp svo
greitt í byrjun, að áhorfendur létu
sig ekki dreyma um að hann
myndi svo mikið sem ljúka hlaup-
inu, því tóku aðrir keppendur
lífinu með of mikilli ró. Þeir hófu
lokaspretti sína of seint og Byers
sigraði, bókstaflega datt á enda-
línuna. Var hann svo úrvinda, að
hann vissi varla í þennan heim eða
annan drjúga stund. Tími Byers
var 3:39,01, en Ovett hljóp á
3:39,53. Langt frá því að vera
sérstakur tími. Þriðji varð Steve
Scott frá Bandaríkjunum á
3:39,58.
Norska stúlkan Grete Waitz
sigraði í 3000 metra hlaupinu, en
þar var tíminn ekkert sérstakur,
8:57,20 mínútur. Bandaríska stúlk-
an Jan Merrel hafði forystuna allt
fram í síðasta hringinn, en þá fór
allur skarinn fram úr og Merril
varð að gera sér 7. sætið að góðu.
Danska stúlkan Dorthe Rasmus-
sen varð önnur á 9:00,70 og þriðja
varð Ruth Smeeth frá Bretlandi á
9:01,01.
Einn frægasti íþróttamaður
keppninnar, Edwin Moses frá
Bandaríkjunum, átti að keppa í
400 metra grindahlaupi, en hann
lét ekki sjá sig og James King frá
Bandaríkjunum bar þar sigur úr
býtum á 50,04 sekúndum. Garry
Oakes frá Bretlandi varð annar á
51,58 sekúndum.