Morgunblaðið - 30.06.1981, Side 43

Morgunblaðið - 30.06.1981, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1981 23 • ... <>k síðan var dansað ... • Eftir keppnina var slegið upp matarveislu ... Úrslit þessa móts eru afar viðamikil og var ógerningur að koma þeim fyrir í blaðinu að þessu sinni. Reynt verður að bæta úr því síðar í vikunni. Sigurrós vann til gullverðlauna —13 fleiri verðlaunasæti til Islands á vel heppnuðu Norðurlandamóti í sundi SIGURRÓS Karlsdóttir vann til gullverðlauna á Norðurlanda- móti fatlaðra i sundi sem haldið var í Vestmannaeyjum um helg- ina. Keppendur voru um 70 talsins frá öllum Norðurlöndun- um, þar á nteðal frá Færeyjum í fyrsta skipti. Svíar höfðu tals- verða yfirburði i flestum grein- um, en auk þess sem Sigurrús vann í sinni grein, féllu 13 verðlaunasæti önnur Islandi i skaut og má landinn þvi vel við árangurinn una. Sigurrós sigraði annars i 100 metra bringusundi, synti á 2:29,4 minútum. Jónas Óskarsson var farinn að þekkja verðlaunapallinn áður en yfir lauk, því hann hreykti sér þar fjórum sinnum. Jónas varð annar í 100 metra bringusundi, þriðji í 100 metra skriðsundi, þriðji í 200 metra fjórsundi og loks annar í 100 metra baksundi. Rúnar Björnsson og Reynir P. Ingvason hrepptu báðir tvenn verðlaun, Reynir varð þriðji í 100 metra fjórsundi og þriðji í 100 metra baksundi. Rúnar varð á hinn bóginn þriðji í 100 metra bringusundi og þriðji í 100 metra baksundi. Aðrir Islendingar sem komust á verðlaunapall voru Snæbjörn Þórðarson, sem varð annar í 100 metra flugsundi, Guðríður Ólafs- dóttir, sem varð þriðja í 100 metra baksundi, Edda Bergman sem varð þriðja í 100 metra baksundi (ath. keppt í ýmsum flokkum), Aðalheiður Indriðadóttir sem varð þriðja í 100 metra bringusundi og Gunnar Guðmundsson, sem varð þriðji í 100 metra bringusundi. Mótið þótti heppnast í alla staði afar vel, sérstaklega þegar að er gáð hversu erfitt er að skipuleggja mót sem þetta, þar sem keppt er í ótrúlega mörgum flokkum, allt eftir fötlun viðkomandi keppenda. En Eyjamönnum fórst verkefnið vel úr hendi og keppendur létu sitt ekki eftir liggja og keppnisgleðin var augljós og ætti að sjást á meðfylgjandi myndum. Þegar mótið, sem spannaði tvo daga, var búið, var slegið upp mikilli hátíð, keppendur allir og aðstandendur mótsips komu sam- an og gerðu sér glaðan dag. Fóru fram ræðuhöld, góður matur var snæddur og siðan var dansað fram á rauða nótt og létu menn þá ekki „smámuni" eins og hjólastóla aftra sér frá þátttöku í skemmt- uninni. Mátti að sögn ekki milli sjá hverjir voru harðastir úti á dansgólfinu, þeir fötluðu eða ófötl- uðu ... • Oft þurfti að taka til hendi við verðlaunaafhendingu. Ljóxm. SiKui-Keir. • Sigurrós Karlsdóttir ásamt tveimur Eyjarósum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.