Morgunblaðið - 30.06.1981, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1981
23
• ... <>k síðan var dansað ...
• Eftir keppnina var slegið upp matarveislu ...
Úrslit þessa móts eru afar
viðamikil og var ógerningur að
koma þeim fyrir í blaðinu að þessu
sinni. Reynt verður að bæta úr því
síðar í vikunni.
Sigurrós vann til gullverðlauna
—13 fleiri verðlaunasæti til Islands á
vel heppnuðu Norðurlandamóti í sundi
SIGURRÓS Karlsdóttir vann til
gullverðlauna á Norðurlanda-
móti fatlaðra i sundi sem haldið
var í Vestmannaeyjum um helg-
ina. Keppendur voru um 70
talsins frá öllum Norðurlöndun-
um, þar á nteðal frá Færeyjum í
fyrsta skipti. Svíar höfðu tals-
verða yfirburði i flestum grein-
um, en auk þess sem Sigurrús
vann í sinni grein, féllu 13
verðlaunasæti önnur Islandi i
skaut og má landinn þvi vel við
árangurinn una. Sigurrós sigraði
annars i 100 metra bringusundi,
synti á 2:29,4 minútum.
Jónas Óskarsson var farinn að
þekkja verðlaunapallinn áður en
yfir lauk, því hann hreykti sér þar
fjórum sinnum. Jónas varð annar í
100 metra bringusundi, þriðji í 100
metra skriðsundi, þriðji í 200
metra fjórsundi og loks annar í
100 metra baksundi.
Rúnar Björnsson og Reynir P.
Ingvason hrepptu báðir tvenn
verðlaun, Reynir varð þriðji í 100
metra fjórsundi og þriðji í 100
metra baksundi. Rúnar varð á
hinn bóginn þriðji í 100 metra
bringusundi og þriðji í 100 metra
baksundi.
Aðrir Islendingar sem komust á
verðlaunapall voru Snæbjörn
Þórðarson, sem varð annar í 100
metra flugsundi, Guðríður Ólafs-
dóttir, sem varð þriðja í 100 metra
baksundi, Edda Bergman sem
varð þriðja í 100 metra baksundi
(ath. keppt í ýmsum flokkum),
Aðalheiður Indriðadóttir sem varð
þriðja í 100 metra bringusundi og
Gunnar Guðmundsson, sem varð
þriðji í 100 metra bringusundi.
Mótið þótti heppnast í alla staði
afar vel, sérstaklega þegar að er
gáð hversu erfitt er að skipuleggja
mót sem þetta, þar sem keppt er í
ótrúlega mörgum flokkum, allt
eftir fötlun viðkomandi keppenda.
En Eyjamönnum fórst verkefnið
vel úr hendi og keppendur létu sitt
ekki eftir liggja og keppnisgleðin
var augljós og ætti að sjást á
meðfylgjandi myndum.
Þegar mótið, sem spannaði tvo
daga, var búið, var slegið upp
mikilli hátíð, keppendur allir og
aðstandendur mótsips komu sam-
an og gerðu sér glaðan dag. Fóru
fram ræðuhöld, góður matur var
snæddur og siðan var dansað fram
á rauða nótt og létu menn þá ekki
„smámuni" eins og hjólastóla
aftra sér frá þátttöku í skemmt-
uninni. Mátti að sögn ekki milli
sjá hverjir voru harðastir úti á
dansgólfinu, þeir fötluðu eða ófötl-
uðu ...
• Oft þurfti að taka til hendi við verðlaunaafhendingu.
Ljóxm. SiKui-Keir. • Sigurrós Karlsdóttir ásamt tveimur Eyjarósum.