Morgunblaðið - 30.06.1981, Blaðsíða 44
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ1981
KR færði Víkingi
tvö gjafamörk
- sigur Víkings þó meira en sanngjarn
sínum þrátt fyrir yfirvofandi
hættu, Lárus stal knettinum aftur
af þeim, lék laglega á Ottó Guð-
mundsson og skoraði með óverj-
andi þrumuskoti. Segja má, að
Víkingur hafi haft algera yfir-
burði eftir þetta, KR átti að vísu
smá augnablik 10 mínútum eftir
markið, er Sæbjörn átti lúmskt
skot rétt fram hjá og Vilhelm
Frederiksen mistókst að reka tána
í knöttinn á markteig Víkings, en
fleira tekur ekki að tíunda af
afrekaskrá KR-inga. Víkingar
reyndu jafnan að leika knatt-
spyrnu og tókst stundum og þeir
voru óheppnir að bæta ekki við
fleiri mörkum, einkum er Jóhann
Þorvarðarson stóð aleinn fyrir
opnu marki, en náði ekki að hemja
knöttinn. Skömmu áður hafði Lár-
us skaliað yfir opið markið, en
færið var þó alls ekki eins auðvelt
og það leit út fyrir að vera. Undir
lok leiksins áttu Víkingar tvær
hættulegar atlögur enn og var
Ómar Torfason á bak við þær, en í
báðum tilvikum bjargaði Stefán
markvörður.
Lárus Guðmundsson var hik-
laust maður leiksins að þessu
sinni, hættulegur tækifærissinni
upp við mark andstæðinganna og
útsjónarsamur þegar hann stýrir
sóknarleik liðsins. Félagar hans
voru hins vegar daufir í leiknum,
helst að Ómar Torfason sýndi
takta. Þá slapp vörnin alveg
þokkalega frá sínum hlut.
Lið KR er óttalega ósannfær-
andi um þessar mundir og ekkert
benti til þess í leik liðsins, að betri
tímar væru í nánd. Vörnin er
óörugg, miðvallarspilið gloppótt
og framlínan bitlaus. Stefán
markvörður stóð sig bærilega í
leiknum og ljós punktur var Elías
Guðmundsson, sem sýndi annað
veifið að hann er að ná sér á strik
á ný. Hefðu KR-ingar verið marg-
falt hættulegri ef þeir hefðu
matað Elías betur.
í stuttu máli:
íslandsmótið 1. deild: KR-Vík-
ingur 1-2 (1-1). Mark KR: Óskar
Ingimundarson á 36. mín. Mörk
Víkings: Lárus Guðmundsson á 8.
og 47. mín. Spjöld: Ottó Guð-
mundsson KR og Heimir Karlsson
Vík. Dómari: Þorvarður Björns-
son. — gg.
VALUR LIÐ FH: LIÐ KR:
Sigurður Haraldsson 5 Hreggviður Ágústsson 7 Stefán Jóhannsson 6
Þorgrimur Þráinsson 7 Guðmundur Hilmarsson 6 Sigurður Pétursson 5
Grimur Sæmundsen 6 llelgi Ragnarsson 4 Börkur Ingvarsson 5
Sævar Jónsson 7 Gunnar Bjarnason 4 Ottó Guðmundsson 5
Njáll Eiðsson 8 Guðmundur Kjartansson 5 Guðjón Hilmarsson 5
Jón Gunnar Bergs 7 Magnús Teitsson 4 Jósteinn Einarsson 5
Þorsteinn Sigurðsson 8 Ingi Björn Albertsson 6 Sæhjörn Guðmundsson 4
Óttar Sveinsson 7 Ólafur Danivalsson 5 Birgir Guðjónsson 4
Valur Valsson 6 Pálmi Jónsson 6 Elías Guðmundsson 6
Ilermann Gunnarsson 5 Tómas Pálsson 4 Vilhelm Frederiksen 4
llilmar Harðarson (vm) 8 Viðar Ilalldórsson 5 Óskar Ingimundarson 5
Þorvaldur Þorvaldsson 6 LIÐ ÍA: Willum Þórsson vm. 3
ÞÓR Bjarni Sigurðsson 8 LIÐ VÍKINGS:
Eirikur Eiríksson 3 Guðjón Þórðarson 7 Diðrik ólafsson 6
llilmar Baldvinsson 3 Björn II. Björnsson 7 Þórður Marelsson 6
Nói Björnsson 4 Sigurður Lárusson 8 Magnús Þorvaldsson 6
Þórarinn Jóhannesson 5 Jón Áskelsson 7 Ragnar Gíslason 5
Árni Stefánsson 4 Sigurður Halldórsson 7 Helgi Helgason 6
Guðmundur Skarphéðinsson 4 Jón Alfreðsson 7 Jóhannes Bárðarson 5
Jrn Guðmundsson 4 Kristján Olgeirsson 8 Ómar Torfason 6
Jón Lárusson 3 Árni Sveinsson 7 Heimir Karlsson 4
iuðjón Guðmundsson 4 Guðbjörn Tryggvason 7 Gunnlaugur Kristfinnsson 5
Vlagnús Helgason 3 Júlíus P. Ingólfsson 7 Óskar Tómasson 4
Itúnar Steingrímsson 3 Smári Guðjónsson lék í 8 mín. Lárus Guðmundsson 7
Hjarni Sveinhjörnsson (vm) 5 Sigþór Ómarsson lék i 7 mín. Jóhann Þorvarðarson vm. 4
VÍKINGUR bætti tveimur stigum
í saínið á sunnudagskvöidið og
KR sogaðist á sama tima æ dýpra
í failharáttuna, er liðin mættust i
1. deild tsiandsmótsins i knatt-
spyrnu. Lokatölur urðu 2—1
fyrir Víking, eftir að staðan í
hálfleik hafði verið 1 — 1. Sann-
gjarn sigur Vikings, liðið var
mun sterkari aðilinn i annars
fremur tilþrifalitlum leik. Bæði
mörk liðsins komu eftir hrikaleg
varnarmistök i hinni allt annað
en oruggu vörn vesturhæjarliðs-
ins. Tvær gjafir og Víkingarnir
fengu þar tilhoð sem þeir gátu
ekki hafnað. KR-ingar sýndu fátt
sem bent gæti til þess, að liðið sé í
þann veginn að rífa sig upp úr
óldudalnum.
Sem fyrr segir var leikurinn
hvorki tíðindamikill eða tilþrifa-
mikill. Mest miðjuþóf, en þó lag-
legar sóknarlotur á milli, einkum
hjá Víkingi og næstum undan-
tekningarlaust í kringum Lárus
Guðmundsson. Víkingarnir fengu
sannkallaða óskabyrjun, skoruðu
fyrra mark sitt strax á 8. mínútu
leiksins. Dæmalaust fum í vörn
KR endaði með því að Lárus stal
knettinum, lék óáreittur að mark-
inu og skoraði örugglega fram hjá
Stefáni Jóhannssyni, sem kom
engum vörnum við. Næstu mínút-
urnar eftir markið voru Vík-
KR:
Víkingur
1:2
ingarnir suðandi í kringum víta-
teig KR, gott skot Óskars Tómas-
sonar fór þá naumlega fram hjá
og annað betra frá Helga Helga-
syni varði Stefán markvörður
meistaralega. En síðan dró mjög
úr gæðunum og atburðarásin
dempaðist öll niður. Lárus skaut
yfir úr sæmilegu færi á 31.
mínútu, en KR-ingar jöfnuðu síð-
an á 36. mínútu og var um fyrstu
hættulegu sókn liðsins að ræða.
Sókn Víkings brotnaði niður og
knettinum var spyrnt langt fram
á Elías Guðmundsson, sem tók
knöttinn niður og brunaði niður
vinstri kantinn. Hann lék á varn-
armann, kom sér í skotfæri og
hleypti af. Diðrik varði vel, en hélt
ekki knettinum og Óskar Ingi-
mundarson var þar á vakki og
tókst að pota knettinum í netið úr
afar þröngu færi, 1—1.
Víkingar hófu síðari hálfleikinn
nákvæmlega eins og þann fyrri,
eða með marki. Sigurmarkið kom
strax á 2. mínútu síðari hálfleiks.
Enn náðu varnamenn KR ekki að
koma tuðrunni út úr vítateig
Pfl 1
OOnÍ
Kúm
• Lárus Guðmundsson fagnar sigurmarki Víkings ásamt Ómari
Torfasyni.
• borsteinn Sigurðsson skorar eitt marka sinna með tilþrifum.
Valsmenn lál
með Þorstein
NÝLIÐAR Þórs höfðu ekki erindi sem erfiði er þeir mættu
Islandsmeisturum Vals á Laugardalsvellinum á laugardag. Vals-
menn réðu lögum og Jofum á vcIHnum ailan leiktimann og eftir
tíðindalítinn fyrri hálfleik fundu þeir réttu ieiðina i seinni
hálfleiknum og gerðu þá fimm mörk. Úrsiitin urðu 6:1 í þessum
fjöruga ieik og var Þorsteinn Sigurðsson í aðalhlutverki. Kappinn
gerði sér lítið fyrir og skoraði f jögur mörk i leiknum, hin mörk
Vals gerðu Njáll Eiðsson og Ililmar Harðarson, en þessir þrir
leikmcnn voru einmitt i lykilhiutverkum i Valsliðinu að þessu
sinni.
Þorsteinn Sigurðsson hefur
ekki verið háttskrifaður í ís-
lenzkri knattspyrnu fyrr en í
sumar, en nú er svo sannarlega
kominn tími til að fara * að
fylgjast'betur með pilti. í sumar
hefur Þorsteinn blómstrað og er
nú búinn að skora 7 mörk í 1.
deildinni og fór á laugardaginn
fram úr Lárusi Guðmundssyni
Víkingi í keppninni um marka-
kóngsnafnbótina en Lárus bætti
um betur á sunnudag.
Annars er það þannig með
þetta Valslið, að í liðinu eru
leikmenn, sem algjörlega eru
óskrifað blað í knattspyrnunni.
Nefna má auk Þorsteins þá
Hilmara Harðarson og Sighvats-
son, Jón Gunnar Bergs, Val
Valsson og jafnvel Njál Eiðsson,
Þorvald Þorvaldsson og Þorgrím
Þráinsson, þó svo að þeir séu að
vísu sjóaðri í harðri keppni 1.
deildar. Er nema von að Jiri
Pesek þjálfari Vals hafi verið
svolítið áttavilltur í sumar og sé
varla enn búinn að móta iið sitt?
Eins og áður sagði réðu
Valsmenn þessum leik algjör-
lega og þar sem það eru mörkin
sem tala, en ekki tækifærin,
verður þeirra aðeins getið, en
ekki allra þeirra skota, sem
naumlega geiguðu eða þegar
markvörður bjargaði eða þeg-
ar...
Misskilningur
Á 9. mínútu kom fyrsta mark
leiksins og hafði það mikil áhrif
á allt leikskipulag Þórsara að fá
á sig mark svo snemma leiks.
Þeir hafa eflaust komið inn á
vðllinn með því hugarfari að
„hanga á jafnteflinu", en er
staðan var orðin 0:1 dugði þeim
ekki að pakka í vörn, þeir urðu
að sækja sjálfir. Þórarinn mið-
vörður hélt að Eiríkur mark-
vörður hefði knöttinn er honum
var spyrnt inn í teig Þórs á 9.
mínútunni. Svo var þó ekki.
Þorsteinn skauzt á milli og
skoraði 1:0 með því að renna
boltanum framhjá Eiríki, sem
kominn var úr jafnvægi.
borsteinn stangar
Aðeins eitt mark var skorað í
fyrri háifleiknum, en í þeim
síðari opnuðust allar flóðgáttir.
Á 57. mínútu leiksins lék Hilmar
Harðarson laglega á Hilmar
bakvörð Þórs og meðfram enda-
mörkunum áður en hann sendi
knöttinn fast fyrir mark Þórs.
Eiríkur náði að hafa hendur á
knettinum, en missti hann frá
sér. Þorsteinn var réttur maður
á réttum stað og stangaði knött-
inn í netið yfir liggjandi mark-
vörðinn, 2:0.
Njáll flýgur
Enn var Hilmar Harðarson á
ferðinni á 61. mínútu teiksins.
Hann renndi sér upp vinstrí
kantinn, gaf vel fyrir markið og