Morgunblaðið - 30.06.1981, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1981
27
Reynir
eina tap-
lausa lið
2. deildar
REYNIR Sandxerði lagaði stöðu
sína í 2. deildinni i knattspyrnu á
SandKerðisvelli á laugardaginn.
1 —0 urðu lokatölur leiksins j?egn
Ilaukum eítir að staðan i hálfleik
hafði verið 0—0. Eru Reynis-
menn þar með komnir að hlið
Keflvíkinga i efsta sæti deildar-
innar og jafnframt eru þeir eina
taplausa liðið í deildinni það sem
aí er sumri.
Mark Reynis skoraði Ómar
Björnsson á 10 mín s.h. eftir að
Reynir:
Haukar
1:0
Sigurjón Sveinsson hafði brotist
upp vinstri kantinn og skotið föstu
skoti á Haukamarkið. Ágætur
markvörður Hauka hafði hendur á
knettinum, en hélt honum ekki.
Hann barst þá fyrir fætur Ómars
og hann ýtti honum yfir marklín-
una. Bæði liðin sýndu á köflum
allskemmtilega knattspyrnu á
köflum, léku þokkalega vel saman,
en helsti munurinn var þó sá, að
framlínumönnum Reynis gekk
betur að skapa sér færi, þótt illa
gengi að nýta þau. Til dæmis
undir lok fyrri hálfleiksins fóru
þrjú gullin tækifæri forgörðum og
sama gerðist einnig á 13. og 15.
mínútu seinni hálfleiksins.
All nokkuð eftir að markið var
skorað var eins og Reynismenn
slökuðu á og Haukarnir sóttu í sig
veðrið. Voru þeir nánast alls
ráðandi á miðju vallarins í tíu til
tuttugu mínútur. En Reynisvörnin
stóð af sér öll áhlaupi þó litlu
munaði í tvígang, er þeir sluppu
með skrekkinn. Undir lokin jafn-
aðist leikurinn síðan aftur og
lyktir hans urðu sem áður segir
1—0 fyrir Reyni, sanngjarnt mið-
að við gang leiksins og marktæki-
færi. Góður dómari var Rafn
Hjaltalín, rólegur ákveðinn og
sannfærandi.
Jón.
D-riðill:
Tindastóll — Reynir 3-0
USAH — Leiftur 0-6
E-riðill:
Árroðinn — Dagsbrún 4-0
HSÞb — Magni 4-1
I leik Tindastóls og Reynis
skoruðu þeir Þröstur Gunnarsson,
Óskar Björnsson og Sigurjón
Wm - :
• Helgi Ben virðist ekki stór á þessari mynd, en Þróttarinn gnæfir yfir hann og skallar frá marki sinu.
Ljt'tsm. Emilia.
Völsungar seigluðust
gegn seinheppnum Þrótturum
Mikið af
mörkum
ÞAÐ MA með sanni segja að
leikmenn Leifturs frá Ólafsfirði
hafi verið á skotskónum þegar
þeir sóttu IJSAII heim á laugar-
daginn. Leiknum lauk með yfir-
hurðasigri Leifturs, 6—0. Mörk
Leifturs í leiknum gerðu: Stefán
Jakobsson 3, Friðgeir Sigurðsson
1, Geirharður Ágústsson 1 og
Ilclgi Jóhannsson 1.
En lítum nú á úrslit helgarinn-
LEIK Þróttar, Reykjavík, og
Völsungs á Laugardalsvcllinum á
laugardag lauk með jafntefli,
ekkert mark var skorað í leikn-
um. Þróttarar réðu gangi leiks-
ins allan tímann og hefðu átt að
sigra örugglega. Þeir voru þó
einstaklega skipulagslausir í
sóknarleik sínum og þvi tiltölu-
lega auðvelt fyrir Vöisunga að
verjast þungri sókn þeirra.
Völsungarnir komu með eitt
stig með sér suður og voru ákveðn-
ir að halda því. Án þess að leika
stífan varnarleik hugsuðu þeir
mun meira um að verjast heldur
en að sækja og uppskáru í sam-
ræmi við það. Þeir héldu marki
sínu hreinu, en áttu heldur ekkert
marktækifæri, sem hægt er að
nefna því nafni.
Þróttur R:
Völsungur 0:0
Hér verður ekki fjallað um góð
tækifæri Þróttar í leiknum, og
kannski voru þau ekki góð, a.m.k.
tókst Þrótturum ekki að skora úr
þeim. Þróttarar misstu þarna
dýrmætt stig og þeir verða enn að
taka sig á ef þeir ætla sér sæti í 1.
deild að sumri. Að þessu sinni
sóttu þeir ekki nóg upp kantana,
alltof oft voru gefnar háar send-
ingar inn í vítateig Þróttara þar
sem Jón Gunnlaugsson gnæfði
eins og strompur Sementsverk-
smiðjunnar upp úr mannfjöldan-
um. Þá voru Þróttarar oft of lengi
að koma sér að efninu í sókninni,
sem hafði þær afleiðingar, að
leikmenn Völsungs náðu að kom-
ast aftur og skipuleggja vörn sína.
Beztu menn Þróttar að þessu
sinni voru Sverrir Brynjólfsson,
meðan þrekið entist, Ásgeir Elí-
asson og Kristján bakvörður vakti
athygli. Jón Gunnlaugsson var
eins og kóngur í ríki sínu í vörn
Völsungs, markvörður liðsins
gerði vel það sem á hann reyndi og
allir eiga Húsvíkingarnir hrós
skilið fyrir góða baráttu.
Flautuglaður dómari var Helgi
Kristjánsson og bókaði hann 2
leikmenn, 1 úr hvoru liði.
- áij.
25-1 hjá
„Country“
IIV, knattspyrnulið þeirra suð-
ur-Borgfirðinga sem gengur und-
ir nafninu „Country United“ í
daglegu tali heldur sigurgöngu
sinni áfram. Liðið hefur unnið
alla leiki sina til þessa í C-riðli
íslandsmóts þriðju deildar, og á
laugardag unnu þcir Reyni frá
Ilellissandi 4—0 á Akranesvelli.
Markahlutfallið verður að tcljast
allgott 25—1. já, þeir hafa skorað
25 mörk í 6 leikjum sem er meira
en 4 mörk að meðaltali í leik, en
fengið aðcins á sig 1 mark í allt í
jafn mörgum lcikjum. geri aðrir
betur.
Mikið af mörkum liðsins hefur
hinn marksækni Sæmundur Víg-
lundsson skorað. I leiknum á
laugardag skoraði hann enn 3
mörk og bætti því enn einu
„hat-trick“ í safn sitt. Sæmundur
er vafalaust markakóngur Is-
landsmótsins til þessa. HV-menn
óðu í færum allan leikinn en tókst
ekki að nýta nema fjögur þeirra
en fjórða markið skoraði Guðjón
Böðvarsson. Leikurinn var frekar
slakur en sigur HV öruggur allan
tímann, staðan í hálfleik var 1—0.
HV hefur ekki tapað stigi til
þessa en næstu lið hafa tapað 3
stigum og hafa leikið mun færri
leiki, þannig að margt virðist
benda til þess að HV verði í
úrslitum úr C-riðli 3. deildarinnar,
þó of snemmt sé að spá þeim sæti
í 2. deild.
„Country“-liðið hefur fleiri járn
í eldinum um þessar mundir því
þeir fara á Landsmót UMFÍ sem
verður haldið á Akureyri dagana
10.—12. júlí nk. og keppa þeir þar
fyrir hönd Borgfirðinga (UMSB).
Með sama áframhaldi eru þeir til
alls líklegir og geta komið þar
verulega á óvart.
IIBj.
Gott hjá IBI
ÍBÍ VANN mikilvægan sigur
gegn Fylki i 2. deild ís-
landsmótsins i knattspyrnu
um helgina, er liðin mættust á
ísafirði. Leikurinn var lengst
af fremur jafn, en heimaliðið
beittara i sóknarlciknum og
því fór sem fór. Einn leik-
manna Fylkis var rekinn af
lcikvclli. en leikurinn var þá
þegar tapaður. Lokatölur
urðu 3—1 fyrir ÍBÍ, eftir að
staðan i hálfleik hafði verið
1-1.
Jón Björnsson skoraði mark
ÍBÍ í fyrri hálfleik, en það féll
í hlut Lofts Ólafssonar að
jafna metin áður en blásið var
til hlés. í síðari hálfleik var
IBI sterkari aðilinn og tryggði
sér þá verðskuldaðan sigur,
Haraldur Leifsson náði foryst-
unni og Jóhann Torfason inn-
siglaði síðan sigurinn.
Þá má geta þess að á Nes-
kaupstað skildu heimamenn
jafnir við Skallagrím frá Borg-
arnesi. Ekkert var skorað.
STAÐAN ■ STAÐAN
ma^iiuoouu cim, uidirv uvci JLjrilI Tindastól. Staðan er nú þannig: Staðan er nú þannig:
í E-riðli héldu Árroðamenn sínu Vikingur 9 7 11 14-5 15 Keflavík 7 5 11 14-5 11
striki en þeir hafa unnið alla sína Breiðablik 9 4 5 0 11-4 13 Reynir 7 4 3 0 8-2 11
leiki í riðlinum til þessa. Þegar Valur 9 4 3 2 19-8 11 ísafjörður 7 4 2 1 12-7 10
þeir lögðu lið Dagsbrúnar að velli Akrancs 9 3 4 2 8-5 10 Þróttur R. 7 3 3 1 7-2 9
voru það þeir Örn Tryggvason 2, F'ram 9 2 5 2 7-9 9 Völsungur 7 3 2 2 11-8 8
Hafberg Svansson 1 og Garðar ÍBV 8 3 2 3 10-9 8 Skallagrímur 7 2 2 3 5-6 6
Hallgrímsson 1 sem gerðu mörkin. KA 7 2 14 7-8 5 Fylkir 7 2 2 3 6-9 6
í leik HSÞb og Magna gerðu KR 9 13 5 5-12 5 Þróttur N. 7 12 4 6-9 4
Þorlákur Jónsson 2, Ari Skúlason FH 9 2 16 10-19 5 Ilaukar 7 12 4 4-13 4
1 og Jónas Skúlason 1 fyrir HSÞb Þór 8 13 4 4-15 5 Sclfoss 7 0 16 1-13 0
en fyrir Magna svaraði Heimir
Hreinsson.
- jor
Markahæstu leikmenn eru nú:
I«irus Guðmundsson Víking. 8
Þorsteinn Sigurðsson Val 7
KYLFINGAR
COLOR
CODED IROIMS
TO HIT STRAIGHTER
Erum nýbúin aö fá nokkur Ping golfsett, puttera,
poka og kúlur. imnr^ .
Gott verö og c^lmerióka ?
greiðsluskilmálar. Tunfluhátoi 11, *ími 82700