Morgunblaðið - 30.06.1981, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 30.06.1981, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1981 27 Reynir eina tap- lausa lið 2. deildar REYNIR Sandxerði lagaði stöðu sína í 2. deildinni i knattspyrnu á SandKerðisvelli á laugardaginn. 1 —0 urðu lokatölur leiksins j?egn Ilaukum eítir að staðan i hálfleik hafði verið 0—0. Eru Reynis- menn þar með komnir að hlið Keflvíkinga i efsta sæti deildar- innar og jafnframt eru þeir eina taplausa liðið í deildinni það sem aí er sumri. Mark Reynis skoraði Ómar Björnsson á 10 mín s.h. eftir að Reynir: Haukar 1:0 Sigurjón Sveinsson hafði brotist upp vinstri kantinn og skotið föstu skoti á Haukamarkið. Ágætur markvörður Hauka hafði hendur á knettinum, en hélt honum ekki. Hann barst þá fyrir fætur Ómars og hann ýtti honum yfir marklín- una. Bæði liðin sýndu á köflum allskemmtilega knattspyrnu á köflum, léku þokkalega vel saman, en helsti munurinn var þó sá, að framlínumönnum Reynis gekk betur að skapa sér færi, þótt illa gengi að nýta þau. Til dæmis undir lok fyrri hálfleiksins fóru þrjú gullin tækifæri forgörðum og sama gerðist einnig á 13. og 15. mínútu seinni hálfleiksins. All nokkuð eftir að markið var skorað var eins og Reynismenn slökuðu á og Haukarnir sóttu í sig veðrið. Voru þeir nánast alls ráðandi á miðju vallarins í tíu til tuttugu mínútur. En Reynisvörnin stóð af sér öll áhlaupi þó litlu munaði í tvígang, er þeir sluppu með skrekkinn. Undir lokin jafn- aðist leikurinn síðan aftur og lyktir hans urðu sem áður segir 1—0 fyrir Reyni, sanngjarnt mið- að við gang leiksins og marktæki- færi. Góður dómari var Rafn Hjaltalín, rólegur ákveðinn og sannfærandi. Jón. D-riðill: Tindastóll — Reynir 3-0 USAH — Leiftur 0-6 E-riðill: Árroðinn — Dagsbrún 4-0 HSÞb — Magni 4-1 I leik Tindastóls og Reynis skoruðu þeir Þröstur Gunnarsson, Óskar Björnsson og Sigurjón Wm - : • Helgi Ben virðist ekki stór á þessari mynd, en Þróttarinn gnæfir yfir hann og skallar frá marki sinu. Ljt'tsm. Emilia. Völsungar seigluðust gegn seinheppnum Þrótturum Mikið af mörkum ÞAÐ MA með sanni segja að leikmenn Leifturs frá Ólafsfirði hafi verið á skotskónum þegar þeir sóttu IJSAII heim á laugar- daginn. Leiknum lauk með yfir- hurðasigri Leifturs, 6—0. Mörk Leifturs í leiknum gerðu: Stefán Jakobsson 3, Friðgeir Sigurðsson 1, Geirharður Ágústsson 1 og Ilclgi Jóhannsson 1. En lítum nú á úrslit helgarinn- LEIK Þróttar, Reykjavík, og Völsungs á Laugardalsvcllinum á laugardag lauk með jafntefli, ekkert mark var skorað í leikn- um. Þróttarar réðu gangi leiks- ins allan tímann og hefðu átt að sigra örugglega. Þeir voru þó einstaklega skipulagslausir í sóknarleik sínum og þvi tiltölu- lega auðvelt fyrir Vöisunga að verjast þungri sókn þeirra. Völsungarnir komu með eitt stig með sér suður og voru ákveðn- ir að halda því. Án þess að leika stífan varnarleik hugsuðu þeir mun meira um að verjast heldur en að sækja og uppskáru í sam- ræmi við það. Þeir héldu marki sínu hreinu, en áttu heldur ekkert marktækifæri, sem hægt er að nefna því nafni. Þróttur R: Völsungur 0:0 Hér verður ekki fjallað um góð tækifæri Þróttar í leiknum, og kannski voru þau ekki góð, a.m.k. tókst Þrótturum ekki að skora úr þeim. Þróttarar misstu þarna dýrmætt stig og þeir verða enn að taka sig á ef þeir ætla sér sæti í 1. deild að sumri. Að þessu sinni sóttu þeir ekki nóg upp kantana, alltof oft voru gefnar háar send- ingar inn í vítateig Þróttara þar sem Jón Gunnlaugsson gnæfði eins og strompur Sementsverk- smiðjunnar upp úr mannfjöldan- um. Þá voru Þróttarar oft of lengi að koma sér að efninu í sókninni, sem hafði þær afleiðingar, að leikmenn Völsungs náðu að kom- ast aftur og skipuleggja vörn sína. Beztu menn Þróttar að þessu sinni voru Sverrir Brynjólfsson, meðan þrekið entist, Ásgeir Elí- asson og Kristján bakvörður vakti athygli. Jón Gunnlaugsson var eins og kóngur í ríki sínu í vörn Völsungs, markvörður liðsins gerði vel það sem á hann reyndi og allir eiga Húsvíkingarnir hrós skilið fyrir góða baráttu. Flautuglaður dómari var Helgi Kristjánsson og bókaði hann 2 leikmenn, 1 úr hvoru liði. - áij. 25-1 hjá „Country“ IIV, knattspyrnulið þeirra suð- ur-Borgfirðinga sem gengur und- ir nafninu „Country United“ í daglegu tali heldur sigurgöngu sinni áfram. Liðið hefur unnið alla leiki sina til þessa í C-riðli íslandsmóts þriðju deildar, og á laugardag unnu þcir Reyni frá Ilellissandi 4—0 á Akranesvelli. Markahlutfallið verður að tcljast allgott 25—1. já, þeir hafa skorað 25 mörk í 6 leikjum sem er meira en 4 mörk að meðaltali í leik, en fengið aðcins á sig 1 mark í allt í jafn mörgum lcikjum. geri aðrir betur. Mikið af mörkum liðsins hefur hinn marksækni Sæmundur Víg- lundsson skorað. I leiknum á laugardag skoraði hann enn 3 mörk og bætti því enn einu „hat-trick“ í safn sitt. Sæmundur er vafalaust markakóngur Is- landsmótsins til þessa. HV-menn óðu í færum allan leikinn en tókst ekki að nýta nema fjögur þeirra en fjórða markið skoraði Guðjón Böðvarsson. Leikurinn var frekar slakur en sigur HV öruggur allan tímann, staðan í hálfleik var 1—0. HV hefur ekki tapað stigi til þessa en næstu lið hafa tapað 3 stigum og hafa leikið mun færri leiki, þannig að margt virðist benda til þess að HV verði í úrslitum úr C-riðli 3. deildarinnar, þó of snemmt sé að spá þeim sæti í 2. deild. „Country“-liðið hefur fleiri járn í eldinum um þessar mundir því þeir fara á Landsmót UMFÍ sem verður haldið á Akureyri dagana 10.—12. júlí nk. og keppa þeir þar fyrir hönd Borgfirðinga (UMSB). Með sama áframhaldi eru þeir til alls líklegir og geta komið þar verulega á óvart. IIBj. Gott hjá IBI ÍBÍ VANN mikilvægan sigur gegn Fylki i 2. deild ís- landsmótsins i knattspyrnu um helgina, er liðin mættust á ísafirði. Leikurinn var lengst af fremur jafn, en heimaliðið beittara i sóknarlciknum og því fór sem fór. Einn leik- manna Fylkis var rekinn af lcikvclli. en leikurinn var þá þegar tapaður. Lokatölur urðu 3—1 fyrir ÍBÍ, eftir að staðan i hálfleik hafði verið 1-1. Jón Björnsson skoraði mark ÍBÍ í fyrri hálfleik, en það féll í hlut Lofts Ólafssonar að jafna metin áður en blásið var til hlés. í síðari hálfleik var IBI sterkari aðilinn og tryggði sér þá verðskuldaðan sigur, Haraldur Leifsson náði foryst- unni og Jóhann Torfason inn- siglaði síðan sigurinn. Þá má geta þess að á Nes- kaupstað skildu heimamenn jafnir við Skallagrím frá Borg- arnesi. Ekkert var skorað. STAÐAN ■ STAÐAN ma^iiuoouu cim, uidirv uvci JLjrilI Tindastól. Staðan er nú þannig: Staðan er nú þannig: í E-riðli héldu Árroðamenn sínu Vikingur 9 7 11 14-5 15 Keflavík 7 5 11 14-5 11 striki en þeir hafa unnið alla sína Breiðablik 9 4 5 0 11-4 13 Reynir 7 4 3 0 8-2 11 leiki í riðlinum til þessa. Þegar Valur 9 4 3 2 19-8 11 ísafjörður 7 4 2 1 12-7 10 þeir lögðu lið Dagsbrúnar að velli Akrancs 9 3 4 2 8-5 10 Þróttur R. 7 3 3 1 7-2 9 voru það þeir Örn Tryggvason 2, F'ram 9 2 5 2 7-9 9 Völsungur 7 3 2 2 11-8 8 Hafberg Svansson 1 og Garðar ÍBV 8 3 2 3 10-9 8 Skallagrímur 7 2 2 3 5-6 6 Hallgrímsson 1 sem gerðu mörkin. KA 7 2 14 7-8 5 Fylkir 7 2 2 3 6-9 6 í leik HSÞb og Magna gerðu KR 9 13 5 5-12 5 Þróttur N. 7 12 4 6-9 4 Þorlákur Jónsson 2, Ari Skúlason FH 9 2 16 10-19 5 Ilaukar 7 12 4 4-13 4 1 og Jónas Skúlason 1 fyrir HSÞb Þór 8 13 4 4-15 5 Sclfoss 7 0 16 1-13 0 en fyrir Magna svaraði Heimir Hreinsson. - jor Markahæstu leikmenn eru nú: I«irus Guðmundsson Víking. 8 Þorsteinn Sigurðsson Val 7 KYLFINGAR COLOR CODED IROIMS TO HIT STRAIGHTER Erum nýbúin aö fá nokkur Ping golfsett, puttera, poka og kúlur. imnr^ . Gott verö og c^lmerióka ? greiðsluskilmálar. Tunfluhátoi 11, *ími 82700

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.