Morgunblaðið - 30.06.1981, Síða 30

Morgunblaðið - 30.06.1981, Síða 30
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1981 t Eiginmaður minn og faöir okkar KARLHELGASON Fyrrv. póst- og símstjóri Melabraut 2, Seltjarnarnesi lést á Borgarspítalanum. föstudaginn 26. júní. Ásta Sighvatsdóttir, Sigrún Karlsdóttir, Sighvatur Karlsson. t Móöir okkar, SVANFRÍOUR HERMANNSDOTTIR fré Hellissandi, andaöist i Landakotsspítala þann 28. júní. Jaröarförin auglýst síöar. Fyrir mína hönd og systkina minna. Bjarnveig Valdímarsdóttir. t Faöir okkar, afi og tengdafaðir, GUOMUNDUR GUOMUNDSSON, andaöist aö Sólvangi 26. júni. F.h. okkar. Guörún Guðmundsdóttir, Péll Guómundsson, Gunnar Guðmundsson. t Eiginmaöur minn, BJARNI JÓNSSON, Skólavörðustíg 40, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju miövikudaginn 1. júlí kl. 11.30. Fyrir hönd vandamanna. Ragnheiöur Hóseasdóttir. t Hjartkær móöir okkar og amma, MARTA S. H. KOLBEINSDÓTTIR, andaöist í Landspítalanum 28. júní. Rannveig Axelsdóttir, Guörún Axelsdóttir, Marta S. H. Kristjánsdóttir. t Maöurinn minn, DADI EYLEIFSSON, andaöist 27. júní á heimili sínu Njaröargötu 5. Guölaug Guómundsdóttir. t Hjartkær móöir okkar, tengdamóöir og amma, GUDRUN ÓLAFSDÓTTIR, Suöurgötu 56, Hafnarfirói, andaöist aö kvöldi 27. júní í Landspítalanum. Jarðarförin auglýst síöar. Börn, tengdabörn og barnabörn. Maöurinn minn, INGVARJÓNSSON fré Laxárnesi, til heimilís að Tröllagili 2, Mosfellssveit, lézt aö Reykjalundi laugardaginn 27. júní. Jaröarförin auglýst síöar. Fyrir hönd barna. tengdabarna og barnabarna. Úrsúla Þorkelsdóttir. t Móöir okkar, tengdamóöir og amma, SIGURVEIG SIGURÐARDÓTTIR fré Keflavík, Neshaga 7, Reykjavík, andaöist föstudaginn 26. júní. Ragnar Friöriksson, Þorsteinn Friöriksson, Björg Erna Friöriksdóttir, Friörik Fríöriksson, Siguröur Friðriksson, Birgir Friöriksson, tengdadætur og barnabörn. Sigurður Þ. Söebech kaupmaður - Minning Fæddur 26. ágúst 1936. Dáinn 22. júni 1981. í dag, 30. júní, verður til moldar borinn vinur minn, Sigurður Þ. Söebech, kaupmaður. Hann lést á Borgarspítalanum 22. júní sl. eftir stutta sjúkdómslegu, af sjúkdómi, er enginn mannlegur máttur fær ráðið við. Siggi Söebech, eins og hann var jafnan kallaður, fæddist 26. ágúst 1936 og var því aðeins fjörutíu og fimm ára er hann lést. Allan sinn tíma var Siggi við hina ágætustu heilsu, og kenndi sér afar sjaldan nokkurs meins. Það kom okkur öllum, er hann þekktu, því mjög á óvart, er hann skyndilega var lagður inn á sjúkrahús, þar sem heilsu hans hrakaði ört, og á skömmum tíma var hann allur, langt fyrir aldur fram. Siggi var borinn og barn- fæddur Reykvíkingur. Hann ólst upp í vesturbænum í foreldrahús- um, ásamt Friðriki bróður sínum, við heldur þröngan kost, en mikla umhyggju móður sinnar, er lést fyrir nokkrum árum, en til hennar bar hann mikla ást og traust. Að loknu skyldunámi hóf hann nám í búfræðum við Bændaskól- ann að Hólum í Hjaltadal og lauk þaðan burtfararprófi 1954. Kann þessi áætlan hans að segja nokkuð um hvert hugur hans stefndi á þessum tíma, enda átti hann síðar á lífsleiðinni eftir að standa fyrir myndarlegum búskap í Reykja- firði í Strandasýslu og byggði þar góð híbýli handa ábúendum, sem enn stunda þar búskap. Árið 1958 kvæntist Siggi eftir- lifandi konu sinni, Ólöfu Guð- mundsdóttur, hinni mestu ágæt- iskonu, og áttu þau hið myndar- legasta heimili í Garðabæ, þar sem þau höfðu byggt sér fallegt einbýlishús, en þar nutu sín öll einkenni snyrtimennsku hinnar dugmiklu eiginkonu hans. Var oft gestkvæmt hjá þeim hjónum, enda kunningjahópurinn stór og vel tekið á móti vinum, er þá bar að garði. Þau eignuðust sex dætur, Emilíu 22 ára, Kristjönu 21 árs, Sigurbjörgu 19 ára, Karólínu 17 ára, Sigríði 15 ára og Þórarinnu 8 ára. Fyrir átti Siggi eina dóttur, Helgu Margréti, er ólst upp hjá móðursystur sinni. Kynni okkar Sigga hófust fyrir um það bil 20 árum, er við störfuðum báðir hjá Silla og Valda, hann sem verslunarstjóri að Laugavegi 82, og ég sem sendill, með skólanum. Varð mér fljótt ljóst, að þar fór maður, sem ekki alltaf fylgdi þeim hegðunarregl- um, er oft eru svo hvimleiðar þeim, sem eftir þeim fara, og stundum lítt skiljanlegar hinum. Hins vegar var háttvísi hans algjör í alvöru lífsins. Þessi ungi verslunarstjóri var svo samviskusamur og einlægur í starfi, að verslun hans bar af öðrum hjá Silla og Valda. Það eitt er ekki svo lítið, er haft er í huga, að á þeim tíma voru það aðeins miklir skörungar sem komust til verslunarstjórastarfa hjá Silla og Valda, og þótti það mikil upphefð. Hann hafði óskipt traust vinnu- veitenda sinna, og lýsti Silli hon- um með þeim orðum, eftir að hann hætti störfum há þeim, „að verk hans segðu meira en nokkur orð“. Sigurður Söebech var stórbrot- inn maður, maður, sem skar sig úr hópnum, hvar sem hann fór um, yfirleitt glaður og reifur. Hann skar ekki atfylgi sitt við nögl, þegar hann mátti og honum þótti þurfa. Fáa þekki ég, er með meiri krafti og áhuga hafa gengið til starfsins, með því hugarfari að Ijúka því á sem skemmstum tíma. Honum lá hátt rómur og hann hafði gott lag á að stjórna fólki, og fékk ótrúlegustu menn til að sýna sannan starfsvilja. Þessir kostir hans komu glögglega í ljós er hann stofnaði sitt eigið fyrirtæki, Söebechsverslun hf., 1966, en það fyrirtæki rak hann til dauðadags af hinum mesta myndarskap. Hún var ein fyrsta matvöruverslunin hérlendis með kjörbúðarsniði, og syndi glöggt áræði hans og þrek til að takast á við stórbrotin verk- efni. Hann skilaði, svo lengi sem ég man, löngum vinnudegi, 12, 14 jafnvel 16 tímar á dag skiptu ekki máli, aðeins það eitt að ljúka verkefninu. Þetta átti jafnt við meðan hann var í þjónustu ann- arra og eftir að hann hóf sjálf- t Eiginmaöur minn, faöir okkar 09 sonur, PÁLMI ÞORÐARSON, Harrisbourg, Bandaríkjunum, lóst á sjúkrahúsi Boston 27. júní. Jaröarförin auglýst síöar. Erna Armannsdóttir og börn, Geirlaug Jónsdóttir, Þórður Pálmason. t Maður minn og faöir okkar, BJÖRGVIN ÓLAFUR STEFÁNSSON, andaöist 26. júní, í sjúkrahúsi Akraness. Rannveig Árnadóttir og börn. t Eiginmaöur minn og faöir okkar, JÓN INGI KRISTINSSON, Mávahrauni 5, Hafnarfiröi, lést í Landspítalanum 28. júnt. Ásta Eyþórsdóttir og börn. t Faöir okkar, tengdafaöir, bróöir og afl, MARINÓ H. PETURSSON, Noróurgötu 11, Akureyri, andaðist aö heimili sínu, aöfaranótt 28. júní. Sverrir Marinósson, Kolbrún Pálsdóttir, Drífa Björg Marinósdóttir, Þröstur Pétursson, Friðþjófur Pétursson og barnabörn. Jaröarförin veröur ákveöin síöar. stæðan atvinnurekstur. í starfi gustaði af honum og honum unn- ust verkin vel. Ætla mætti að slíkur garpur hefði litlu haft að miðla til handa fjölskyldu sinni. En þannig var þessu ekki farið með Sigga. Áhugamál hans voru starfið og fjölskyldan. Fjölskyldu sinni sýndi hann ást og umhyggju. Siggi var sannur vinur vina sinna. Til hans var gott að leita ef menn þurftu hjálpar við og félög- um sínum reyndist hann í hví- vetna trúr. Mér finnst að flestir af minni kynslóð og eldri kannist við Sigga Söebech. Hann var maður mikill á velli, laglegur með skarplegt yfir- bragð og augun snör og lifandi. Mér þótti sem einhver verndar- hönd fleytti honum furðanlega gegnum brim og boða. Því er bágt að trúa því að hann sé nú kominn yfir móðuna miklu, þangað, sem alveg er víst, að allir munu fara, fyrr eða síðar. En jafnvel þó margir hafi kannast við Sigga, er ég ekki jafnviss um að þeir hafi verið margir, sem þekktu þann dreng sem hann hafði að geyma. Um Sigurð Söebech mætti rita heila bók. Það er af nógu að taka, frá mörgu að segja. Hann er dæmi um íslenska afreksmanninn, sem með vinnu og aftur vinnu tókst úr fátækt að komast til þokkalegra efna, rífa sig út úr meðalmennsk- unni og hefja sjálfstæðan atvinnu- rekstur, sæta á stundum mótlæti og öfund, en standa sífellt jafn- réttur eftir. Lífið var honum gott og gjöfult, hann var gæfumaður í sínu einkalífi. Konu hans, börnum og öðrum ástvinum votta ég og fjölskylda mín innilegustu samúðarkveðju, og bið allar góðar vættir að standa með og styrkja Lollý, konu hans, sem gengið hefur í gegnum mikinn erfiðleikatíma með einskærum dugnaði og stillingu. óniar Kristjánsson Mig setti hljóðan er mér barst sú fregn að vinur minn Sigurður Þ. Söebech, kaupmaður, Hauka- nesi 12 í Garðabæ, væri látinn, en hann andaðist á Borgarspítalan- um þann 22. þ.m. eftir strangar aðgerðir og tveggja mánaða þunga sjúkdómslegu á sjúkrahúsi. Það er ætíð sjónarsviptir að dugmiklum athafnamönnum er þeir falla í valinn langt um aldur fram, og Sigurður var einmitt einn af þeim, mjög sérstakur og eftir- minnilegur persónuleiki, sem gott var að kynnast, og því betra sem kynnin urðu lengri og nánari. Og þegar ég nú læt hugann reika til liðinna ára og þeirra stunda sem við áttum saman er mér efst í huga hve hann var ríkulega búinn þeim eðliskostum sem gera menn stórhuga og framsýna, þessir kostir nutu sín vel í störfum hans og uppbyggingu þeirra fyrirtækja sem hann stofnsetti og rak af fyrirhyggju og með myndarbrag. Honum voru verslunarstörfin hugleikin og stefndi hann því snemma að eigin atvinnurekstri, og sá fljótt á, að þar fór áhuga- samur og harðduglegur maður við allt sem hann tók sér fyrir hendur, og árangur fyrirhyggju og árvekni lét heldur ekki á sér standa því allt bar sig vel og blómgaðist undir handleiðslu hans. „En eng- inn má sköpum renna.“ Lífshlaup okkar er ekki alltaf á okkar valdi, fyrr en varir grípa örlögin inn í störf okkar og og ákvarðanir og kallið kemur fyrr en nokkurn varir, kallið sem enginn getur umflúið, kallið sem ber okkur út í óvissuna sem trúin ein og kærleik- urinn geta kennt okkur að enginn þurfi að hræðast, heldur muni færa okkur nær meiri fullkomnun, eins og hver heilbrigð mannssál stefnir að, og þráir að ná. Sigurður Þ. Söebech var fæddur í Reykjavík þann 26. ágúst 1936 og var því aðeins 44 ára þegar hann lést. Foreldrar hans voru hjónin Þórarinn Söebech fyrrum bóndi á Reykjarfirði í Strandasýslu og kona hans Emilía Þórðardóttir úr Vestmannaeyjum. Hann kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni, ólöfu Guðmundsdóttur, þann 26. ágúst 1958 og eignuðust þau hjónin 6

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.