Morgunblaðið - 30.06.1981, Page 36

Morgunblaðið - 30.06.1981, Page 36
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ1981 „ÉG BOR0AÐI SPASHETH í 6ÆR, 06 ÉG BR BKKl &ÚIK1H APMELTÁ pAO EWW!" * Ast er... ... ad láta ekki trufla sig. TM Rag. U.S Pat Ofl.-all rtghts raawvwl • 1980 Lot Angaías Tlnws Syixhcate — Nei. karl minn, þú mútar mér ekki. Með mor^unkaffínu Er þetta 55555? ... Viltu ekki hringja fyrir mijí í neyðarvakt- ina, finKurinn á mér er fastur i gatinu á skífunni. HÖGNI HREKKVÍSI Um ávarp og framkomu við forseta íslands Bréfritari með nafnnúmer 7122-0583 skrifar: „Ábending um ávarp og fram- komu“ vegna bréfs nafnnr. 7288-3640 sem birtist í Velvak- anda þann 24. þ.m. þykir rétt að taka fram eftirfarandi: Meginmál bréfritara fjallar um nauðsyn þess að sýna for- seta vorum fyllstu virðingu og leitast við að koma vissri hefð í Aftur á móti ber að varast að birta í víðlesnum blöðum sleggjudóma og færa á verri veg það sem í fljótu bragði, sem myndefni, kann að sýnast mis- tök og tilvik sem orka kunna tvímælis. í nefndu bréfi er vitnað til móttöku sýslunefndar úti á landi við komu forseta Islands. Ekki skal lýst hér með hverjum umgengni og framkvæmd sam- skipta þjóðar og þjóðhöfðingja. Landsmenn allir hljóta að vera sammála um svo augljóst atriði. hætti móttaka þessi fór fram, en víst er að sýslunefndarmenn þeir er viðstaddir voru vildu sýna forseta sínum fyllstu virð- Spurning til borgarlæknis Ilalldór S. Gröndal skrifar: „Næstum daglega geng ég til vinnu minnar leiðina Kringlumýr- arbraut að Miklubraut áfram að Háaleitisbraut og til Grensás- kirkju. Á þessari leið er hávaðinn frá umferðinni óskaplegur og á góðviðrisdögum er loftið mikið mengað benzíni og olíustybbu. Hefur verið athugað, hvort þessi mengun er orðin svo mikil, að hún sé hættuleg heilsu manna og að betra væri að forðast þessa leið fyrir gangandi? Og ég á við bæði hávaðann og stybbuna. P.S. Velvakanda er kunnugt um að þeir Þorkell Jóhannesson pró- fessor og Hörður Þorman efna- fræðingur létu fara fram mæl- ingar á mengun á mestu umferð- argötu, ekki þó Grensásvegi, fyrir fáum árum og sendu bæði borgar- lækni og umhverfismálaráði. Þeir mældu m.a. á Miklubrautinni, þar sem mest umferðin er, og á Hlemmi, þar sem þeir létu líka mæla blóð úr strætisvagnabíl- stjórum, sem þar sitja löngum milli ferða, með tilliti til mengun- arefna í blóði þeirra. Niðurstaðan, minnir mig, að væri í örstuttu máli sú, að í öllum sýnum væru mengunarefni, en ekki enn í svo ríkum mæli að hætta stafaði af. En að með þyrfti að fylgjast, því með aukinni umferð, gæti hún ekki annað en aukist. Þeir tóku þarna tvö efni, koldíoxíð og köfn- unarefnisdíoxíð, held ég, og síðar blýmengun við Miklatorg o.fl. að mig minnir. Þetta svarar að vísu ekki spurn- ingunni um Grensásveginn, en er til upplýsinga samt. Og fróðlegt var að meira af mengandi efni mældist í blóði þeirra bílstjóra sem höfðu reykt. Svo þar verða tveir samverkandi mengunarþætt- ir. ingu og höfðu stillt sér upp til að heilsa forseta um leið og forseti gekk í salinn. Hvaða siðir gilda um móttöku þjóðhöfðingja „eða þykja sjálf- sagðir í öðrum löndum" eins og bréfritari kemst að orði, getur naumast ráðið öllu um smekk íslendinga þegar þeir taka á móti forseta sínum vítt um land, við misjafnar aðstæður. Einatt getur það gerst án nákvæmrar tímasetningar eða sérhæfingu í siðareglum, sem þorri íslend- inga mun lítils meta. Ástand vega, veðrátta lands og fámenni hlýtur að valda erfiðleikum og útiloka smá- munasemi við móttöku þjóð- höfðingja og slíkt sjónarspil sem um er rætt í nefndu bréfi. Það sem skipta á hér höfuðmáli er að sýna embætti forseta og þjóðhöfðingja okkar eftir mætti þá virðingu og háttvísi, sem honum ber, þegar við eigum þess kost að blanda við hann geði. Við slík tækifæri má ætla að forn og rótgróin íslensk gest- risni sé eins farsæl viðmiðun og framandi siðareglur fundnar upp af hirðgæðingum liðinna alda. Jafnvel það, hvar og hvernig forseti tekur sér sæti á manna- fundum mun best ráðast, svo sem hann og gestgjafar ákvarða hverju sinni. Á þann hátt mun tíminn leiða í ljós þær venjur sem falla best að hug og vilja alþjóðar. Að síðustu skal á það minnst að núverandi forseti íslands getur aldrei litið út sem „illa gerður hlutur" jafnvel þótt í horni sitji. Sjálfsagt má lengi deila um hvert skuli vera hefðbundið ávarp forseta vors en einfalt og gott verður hér talið, Forseti Islands Vigdís Finnbogadóttir. Hjólreiðamenn á gangbrautum Amma í Austurbænum skrif- ar: Nýlega barst út sú furðufrétt, að hjólreiðamönnum væri leyfi- legt að hjóla á gangstéttum, en skyldu þó reyna að valda ekki gangandi fólki óþægindum. Það er nú svo! Hjólreiðar eru að sjálfsögðu holl og góð íþrótt, en skilyrði fyrir þeim er að hjólabrautir séu til staðar, en þær eru yfirleitt enn ekki til hér í borginni. Er því fáránlegt að beina hjólreiða- mönnum á gangstéttirnar og bjóða beinlínis hættum heim. Dæmi um þetta varð 25. júní Ég var að sækja dóttur-dóttur mína á dagheimili um fimmleyt- ið og vorum við staddar á gangstétt, er við vissum ekki fyrri til en strákur kom æðandi á skellinöðru fast fram hjá okkur á ofsahraða, svo að lá við stórslysi. Þetta er eitt dæmi af fjölmörgum um það hve börn og gamalmenni eru orðin varnar- laus í umferðinni. Jafnvel á griðastað gangandi fólks. Þurfa að bætast við mörg stórslys enn til þess að þeir, sem eiga að sjá um umferðarmálin og vernda líf og limi fólksins fyrir ökuföntun- um taki við sér og komi með varanlegar úrbætur? (T.d. strangari viðurlög við ofsahraða og kannski hækkun á aldurstak- marki þeirra, sem taka bílpróf.) Er engin leið að hafa eftirlit með og hemil á þessum strákum, sem margir hverjir virðast nota bíla og skellinöðrur sem leikföng til þess að ná sem mestum hraða og framkalla sem mestan háv- aða? Valda með því íbúum heilla húsaraða, er þeir aka framhjá, miklum óþægindum. Er ekki ákvæði í umferðarlögum, sem leggur bann við því að valda fólki óþarfa hávaða í akstri? Það hefur ekki heyrst að lögreglan skipti sér af strákum, sem gera í því að magna hávaða í bílum sínum. Er ekki mál til komið?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.