Morgunblaðið - 30.06.1981, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 30.06.1981, Qupperneq 38
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ1981 SPRENGINGIN í ÍRAN Aðalstöðvar Islamska lýðveldisflokksins sprengdar í loft upp Líkami er urafinn upp úr rústum aðalstöðva Islamska lýðvoldis- flokksins. ókvæðisorð um Bandaríkin og gagnbyltingarmenn. Meðlimir úr Hezbollahi, flokki Guðs, sem Beheshti stofnaði, fóru um borg- ina á mótorhjólum sveiflandi kylfum og leituðu stuðnings- manna Bani-Sadr. Þjóðarsorg var lýst yfir í íran, fánar voru dregnir í hálfa stöng og útvarpið lék sálma úr Kóran- inum. Þriðjudagur og miðviku- dagur verða almennir frídagar, en lögreglan og herinn fá ekki frí. Yfirstjórn hersins sagði, að herinn myndi sýna hluttekningu sína með því að herða átökin við íraka. Beheshti: „Einfaldur þjónn kirkjunnar“ Beheshti var forseti hæsta- réttar og formaður Islamska lýðveldisflokksins. Hann var valdamesti maður Iran að Khomeini sjálfum undanskild- um. Hann bjó í fimm ár í Hamborg í Þýzkalandi á árum keisarans, en 1978 gerðist hann einn helzti ráðgjafi Khomeinis í útlegð. Hann þótti mjög klókur stjórnmálamaður. Þegar Bani- Sadr vann mikinn kosningasigur í forsetakosningunum í janúar hafði Beheshti þegar haslað sér völl innan flokksins og í dóms- kerfinu. Hann beitti sér hart gegn Bani-Sadr, en með hann úr vegi var völdum hans varla nokkur takmörk sett. Beheshti lét lítið yfir sér opinberlega og sagði nýlega í útvarpsviðtali: „Ég er ósköp ein- faldur þjónn kirkjunnar." Hann var bókstafstrúar og fylgjandi „auga fyrir auga, tönn fyrir tönn“-lagabókstaf. Hann studdi frumvarp um hegningarlög, sem liggur fyrir þinginu, þar sem lagt er til, að dauðarefsing verði við morðum og hjúskaparbrot- um, húðstrýking við drykkju- skap og fórnardýr líkamsárása fái að svara árásarmönnum í sömu mynt. Beheshti hafði mjög föst tök á Islamska lýðveldisflokknum. Nú mun koma í ljós, hvort leiðtogar, sem lifa hann, geti haldið flokknum saman. Rafsanjani og Rajai eru þar áhrifamestir, en hvorugur þeirra hefur sýnt sömu kænsku eða stjórnarhæfileika og Beheshti fram til þessa. Þeir Rafsanjani, Rajai og Beh- eshti útnefndu Hussein Musavi í embætti utanríkisráðherra á laugardag. Enginn hefur gegnt því embætti síðan í fyrrasumar, en Bani-Sadr beitti ávallt neit- unarvaldi forseta, þegar emb- ættisveitinguna bar á góma. ÁSTANDIÐ í íran er talið alvarlegra nú en það hefur verið síðan fyrir byltinguna 1979. Sprengingin í höfuðstöðvum Islamska lýðveldisflokksins hefur lamað stjórnina og minnt á hinn djúpa klofning sem ríkir í landinu. Ilætt er við að borgarastyrjöld breiðist út og átökin á landamærum íran og írak aukist. Alls er talið að 69 hafi látizt í sprengingunni, sem varð á sunnudag á fundi flokksleiðtoga um efnahagsmál. Ayatollah dr. Seyyed Mohammad Hussein Beheshti, forseti hæstaréttar, var meðal þeirra, sem létust, en auk hans fórust 4 ráðherrar, 6 aðstoðarráðherrar, 20 þingmenn og almennir starfsmenn flokks- ins. Júgóslavneska fréttastofan, Tanjug, sagði, að Muhammad Ali Rajai, forsætisráðherra, og Ali Akbar Hashemi Rafsanjani, þingforseti, hefðu verið nýfarnir af fundinum, þegar sprengjan sprakk klukkan 16:50 að íslenzk- um tíma. Þeir áttu sæti með Beheshti í þriggja manna ráð- inu, sem tók við völdum Abol- hassan Bani-Sadr, þegar hann var sviptur forsetaembætti. Behzad Nabavi, talsmaður rík- isstjórnarinnar, sagði frétta- mönnum á mánudag, að 30 kg þungri sprengju hefði verið kom- ið fyrir í ruslatunnu í næsta húsi við höfuðstöðvar flokksins. Beh- eshti var í ræðustól, þegar sprengingin varð, en 90 manns sátu fundinn. Höfuðstöðvarnar gjöreyðilögðust. Á laugardag Unnið var að hreinsun í aðalstöðvunum allan daginn eftir sprenginguna. Ayatollah Beheshti særðist Hojatoleslam Seyyed Ali Khamenei, einn helzti aðstoðar- maður Ayatollah Khomeinis, al- varlega, þegar sprengja sprakk í bænahúsi, þar sem hann talaði. Nokkru seinna sprakk sprengja á skrifstofum svissneska flugfé- lagsins í Teheran, en engir særðust í henni. Útvarpið í Teheran kenndi „málaliðum Bandaríkjamanna" um sprenginguna, og Pars- fréttastofan sagði, að „gagnbylt- ingarmenn", sem er heiti stjórn- arinnar á stuðningsmönnum Bani-Sadr, hefðu staðið að baki hennar. í yfirlýsingu frá Rajai og Rafsanjani sagði, að gagn- byltingarmönnum yrði hegnt rækilega. Rafsanjani kenndi Bandaríkjamönnum um, en Rajai beindi spjótum sínum gegn Saddam Hussein íraksfor- seta og sagði í útvarpsræðu: „Við munum halda áfram að verjast Saddam, þeim trúlausa þrjóti, hvað sem gagnbyltingarmenn aðhafast hér innanlands. Ekkert mun koma í veg fyrir, að við stöndum vörð um föðurlandið, byltinguna eða heiður okkar. Hinn trúlausi, sem hefur ráðizt á land okkar, á heima í rusla- kistu mannkynssögunnar." Strax og heyrðist um spreng- inguna þustu byltingarsinnar út á götur Teheran og hrópuðu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.