Morgunblaðið - 30.06.1981, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ1981
47
Ítalía:
Repúblikani í sæti
forsætisráðherra
RómaborK. 29. júni. AP.
GIOVANNI Spandolini, þingmað-
ur Repúblikanaflokksins. myndaði
nýja samsteypustjórn á ítaliu í
gær. Er það 41. stjórnin þar i landi
frá lokum seinni heimsstyrjaldar-
innar.
Síðastliðin 36 ár hafa allir for-
sætisráðherrar Ítalíu verið úr
Kristilega demókrataflokknum. sem
er stærsti stjórnmálaflokkur lands-
ins. Hann hefur nú misst bæði
forseta- og forsætisráðherraemb-
ættið til repúblikana.
Allir helstu stjórnmálaflokkar
landsins eiga aðild að samsteypu-
stjórn Spandolinis. Þeir sem standa
fyrir utan eru Kommúnistaflokkur-
inn og flokkur nýfasista. Kristilegir
demókratar fengu flest ráðherra-
embættin, 15 af 28. Stjórnin hefur
meirihluta þingmanna á bak við
sig.
Handtekinn með heima-
tilbúna sprengju í troð-
fullri St. Péturskirkju
Giovanni Spandolini. forsætisráð-
herra ftaliu.
Gromyko í „stutta vináttu-
heimsókn“ til Póllands
Moskvu. 29. júní. AP.
SOVÉSKI utanrikisráðherrann.
Andrei A. Gromyko, heimsækir
Pólland í byrjun júli nk.. aðeins
nokkrum dögum áður en þing
pólska kommúnistaflokksins hefst,
að sögn sovésku fréttastofunnar
Tass.
Tass dagsetti ekki heimsóknina
en sagði hana vera „stutta vináttu-
heimsókn" í boði miðnefndar pólska
kommúnistaflokksins og pólsku rík-
isstjórnarinnar.
Vestrænir stjórnmálaskýrendur
telja að sú ákvörðun sovésku stjórn-
arinnar að senda Gromyko til Pól-
lands svo stuttu fyrir flokksþingið
sé liður í að vara Pólverja við því að
taka þar ákvarðanir sem séu í blóra
við vilja ráðamanna í Moskvu.
Sumir telja jafnvel að Sovétmenn
muni ráðast inn í Pólland áður en
þingið hefst til að koma í veg fyrir
slíkt. Aðrir segja að heimsókn
Gromykos sé aðeins til að sýna
samstöðu með Pólverjum. Einn
pólskur embættismaður segir að
heimsókn Gromykos sé ef til vill til
þess ætluð að vara Pólverja við en
hann „hefði aldrei verið valinn tii að
bera Pólverjum hugmyndafræðileg
skilaboð sovésku stjórnarinnar".
Pólskar og sovéskar hersveitir
hafa verið á heræfingum í Norð-
vestur-Póllandi undanfarna daga,
að sögn pólska sjónvarpsins. í sl.
viku fréttist um heræfingar sömu
landa í suðurhluta Póllands.
Stefan Olszowski, harðlínumaður
í stjórnmálaráðinu og fyrrum utan-
ríkisráðherra Póllands, var í dag
naumlega kosinn fulltrúi á flokks-
þing pólska kommúnistaflokksins á
átakamiklum kosningafundi. Pólsk-
ir fjölmiðlar segja að Olszowski hafi
hlotið 246 atkvæði af 440 möguleg-
Teknir fyrir njósn-
ir i þágu Pólverja
WashinKton. 29. júni. AP.
BANDARÍKJAMAÐUR og Pól-
verji voru handteknir nærri Los
Angeles og sakaðir um að hafa
selt pólsku leyniþjónustunni
Veður
víða um heim
Akureyri 10 alskýjað
Amsterdam 18 rigning
Aþena 36 heióskírt
Barcelona 18 alskýjaó
Berlín 25 heióskírt
Brússel 17 rigning
Chicago 31 rigning
Denpasar 32 skýjaó
Dublin 15 skýjað
Feneyjar 26 þokumóóa
Frankfurt 25 skýjaóó
Færeyjar 10 alskýjaó
Genf 19 rigning
Helsinki 17 heiðskírt
Hong Kong 30 skýjaó
Jerusalem 31 heióskírt
Jóhannesarborg 17 heiðskírt
Kairó 40 heiðskirt
Kaupmannahöfn 18 skýjaó
Las Palmas 30 skýjað
Lissabon 25 heióskírt
London 18 heióskírt
Los Angeles 28 skýjað
Madrid 21 skýjað
Malaga 23 léttskýjaó
Mallorka 25 lóttskýjaó
Mexicoborg 23 heióskírt
Miami 31 skýjað
Moskva 32 heióskírt
Nýja Dehlí 40 skýjaó
New York 29 heióskirt
Osló vantar
París 12 rigning
Perth 16 rigníng
Reykjavík 8 alskýjaó
Ríó de Janeiro 31 heióskírt
Rómaborg 32 heióskírt
San Francisco 17 heióskírt
Stokkhólmur 19 skýjaó
Sydney 20 heiðskírt
Tel Aviv 30 heióskirt
Tókýó 32 heiðskírt
Vancouver 20 skýjaó
Vinarborg 28 heióskírt
leynileg skjöl varðandi vopn. að
sögn bandarisku alrikislögregl-
unnar í gær.
Mennirnir tveir heita William
Holden Bell, 61 árs, fyrrum starfs-
maður flugvéiaverksmiðju í Kali-
forníu og Marian W. Zacharski, 29
ára yfirmaður Bandaríkjadeildar
pólsk-bandarískrar vélaverk-
smiðju í Iliinois. Þeir eru báðir
búsettir í Kaliforníu. Lögreglan
telur að þeir hafi fengið meira en
110.000 dollara fyrir skjölin. Ekki
var tiltekið nánar hvert efni
skjalanna væri en flugvélaverk-
smiðjan, sem Bell starfaði hjá,
gegnir mikilvægu hlutverki við
framleiðslu radarkerfa og flug-
skeyta.
Denktash
endurkjörinn
Nicosia. 29. júni.
RAOULF Denktash. forseti sjálf-
stjórnarríkis Tyrkja á Kýpur, var
i ga'r endurkjörinn forseti til
næstu fimm ára.
Denktash var kosinn forseti árið
1976 með 76% atkvæða. í gær fékk
hann hins vegar einungis 53%
atkvæðanna en alls voru 5 manns í
framboði. Harðasti keppinautur
Denktash var Ziya Riziki. Hann er
hægrisinnaður eins og Denktash.
um og þar með naumlega hlotið þau
50% sem til þarf.
Um 150.000 manns, þar á meðal
Lech Walesa leiðtogi Samstöðu,
óháðu verkalýðssamtakanna,
minntust þess í bænum Poznan í
gær að 25 ár voru liðin frá því að
þar kom til blóðugra átaka. Upptök
átakanna voru kröfur verkamanna
varðandi skattamál og mánaðarlöng
bið þeirra eftir endurbótum í þeim
efnum. Þegar yfirvöld neituðu að
verða við óskum verkamannanna
brutust út óeirðir, 28. júní 1956.
Nokkrir létu lífið og var í gær reist
minnismerki um þá á Adam Micki-
ewicz-torginu í Poznan. Minnis-
merkið samanstendur af tveimur
stórum krossum. Það er 75 feta hátt.
Vatikaninu. 29. júni. AP.
Öryggisverðir Vatikansins vfir-
buguðu rúmlega fimmtugan ltala
er hann var í þann veginn að
kveikja í heimatilbúinni sprengju
í troðfullri St. Péturskirkju í dag.
Að sögn lögreglunnar hefði
sprengjan getað orðið fjölda manns
að bana og skemmt kirkjubygging-
una verulega. í St. Péturskirkju eru
verk eftir m.a. Michelangelo og
Raphael, verk sem ekki er hægt að
meta til fjár.
Maðurinn, sem var handtekinn,
heitir Guiseppe Santangelo. Hann
sagði við yfirheyrslur að hann hefði
ekki ætlað að verða neinum að
bana. Hann hefði ætlað að fórna
sjálfum sér.
„Ég hellti olíu yfir skyrtuna
mína, er það ekki næg sönnun?"
sagði hann eftir að hafa verið
færður þeirri deild lögreglunnar
sem berst gegn hryðjuverka-
mönnum.
Lögreglan segir að Santangelo
hafi í öllu hegðað sér eins og
„vitskertur maður". Hann baðaði út
höndum og heilsaði kirkjugestum
hæðnislega.
Santangelo var handtekinn
stuttu áður en messa átti að hefjast
í St. Péturskirkjunni í minningu
postulanna Péturs og Páls. Strax
eftir að Santangelo hafði verið
leiddur út úr kirkjunni hófst guðs-
þjónustan eins og ekkert hefði í
skorist. Agostino Casaroli kardin-
áli, annar æðsti maður Vatikansins,
annaðist guðsþjónustuna ásamt 180
prestum víðs vegar að úr heiminum.
Gestir við messuna voru alls 20.000.
Sovézkur stór-
meistari styð-
ur Korchnoi
Moskva. 29. juni. AP.
ÞEKKTUR sovéskur stór-
meistari. Boris Gulko. sem
hefur verið að reyna að fá
leyfi til að flytjast til fsraels
síðan 1977, sagði að hann
hefði farið þess á leit við
sovézka skáksambandið að
það styddi ósk Korchnoi-
fjölskyldunnar um að fá að
hittast á ný.
Gulko sendi bréf til skák-
sambandsins, þar sem hann
gagnrýndi það fyrir að veita
Korchnoi-fjölskyldunni ekki
stuðning. Hann skýrði frá
þessu í gær á fundi 60 skák-
manna og embættismanna í
aðalskákklúbbi Moskvu, þar
sem hann fékk fyrstu verðlaun
fyrir að bera sigur úr býtum á
opna skákmótinu í Moskvu.
Ymsir viðstaddra gagnrýndu
Gulko fyrir að bera fram þessa
áskorun og sögðu að Korch-
noi-deilan væri pólitísk. En
Gulko sagði að fleiri hefðu
komið til sín og látið í ljós
ánægju sína.
Sjö börn létust
í sprengingu
Manilla. Filippsryjum. 29. júnl. AP.
SJÖ BÖRN létust þegar hand-
sprengja, sem þau voru að leika sér
með, sprakk í höndum þeirra í
Cebu-borg á Mið-Filippseyjum, að
því er hin opinbera fréttastofa
landsins kunngerði í morgun. Eitt
barn slapp lifandi, en nokkuð
skaddað. Börnin voru á aldrinum
6—12 ára og ekki er ljóst hvernig
þau komu höndum yfir hand-
sprengjuna.
FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
3, 5, 10, og 12 gíra reiðhjól.
Heimsfræg gæðavara.
Varahluta-og viðgerðarþjónusta á staðnum.
Reiðhjólahandbók Fálkans með leiðbeiningum um
notkun og viðhald fylgir öllum Raleigh reiðhjólum.
Utsölustaðir og þjónusta víða um land.
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
J