Morgunblaðið - 07.07.1981, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ1981 3
Fréttatilkynning frá Byggingarnefnd Reykjavikur:
Um hvað er deilt
á Bernhöftstorfu?
UNDANFARNA daga hafa
komið í fjölmiAlunt tilkynn-
ingar um afgrciAslu BygK-
ingarncfndar Rcykjavikur á
cndurbyggingu á Bcrnhöfts-
torfu. Bankastræti 2. Vegna
þcss hve máiinu hafa verið
gcrð slæm skil og sjónarmið
rangtúlkuð og að þvi er virðist
að mcnn forðist að taka á
málinu. vill Byggingarnefnd
taka eftirfarandi fram.
t Bankastræti 2 er gert ráð
fyrir tveim smásnyrtingum
(ca. 1,00x1,75) og gerði nefnd-
in strax athugasemdir við þær
og hað um að önnur snyrting-
in væri breikkuð um 50 cm.
inn í eldhúsgeymslu. Sjá með-
fylgjandi teikningu.
Nefndin fór ekki fram á
sérbúna snyrtingu fyrir fatlað
fólk, en vildi tryggja það, að
maður í hjóiastól kæmist þar
inn. Eldhúsgeymslan þarf því
að minnka um 50x175 cm. eða
0,88 fm. Gert er ráð fyrir því,
að í húsinu verði rekin kaffi-
stofa yfir daginn, en matstofa
að kvöldinu. Þess vegna er
líklegt að stór hópur viðskipta-
vina verði fjölskyldur. í þeim
snyrtingum, sem setja á í húsið,
væri erfitt fyrir foreldri að
snyrta barn sitt svo ekki sé
minnst á, ef aðstoða þyrfti
gamalmenni.
í umræðum hefur komið
fram, að Byggingarnefnd hafi
samþykkt atriði í vissum til-
fellum, en hafnað þeim í öðrum.
Þetta er rétt og vandi bygg-
ingarnefndarmanna er að meta
aðstöðu hverju sinni á sann-
gjarnan og heiðarlegan hátt.
Torfusamtökin hafa gefið
fyrirheit um að byggja þjón-
ustuhús á Torfunni. Enn hefur
hvorki sést stafkrókur né strik
að þeirri framkvæmd. Það hef-
ur ekki verið háttur Byggingar-
nefndar að gefa heimildir um
frávik frá byggingarsamþykkt
gegn slíkum fyrirheitum, en
þegar þau bera að á réttan hátt,
mun nefndin að sjálfsögðu taka
málið til umfjöllunar.
Ummæli formanns Bygg-
ingarnefndar, Magnúsar Skúla-
sonar, í Útvarpi að kvöldi þess
5. júlí sl. um afgreiðslu Bygg-
ingarnefndar á þessu máli,
valda furðu og sýna einungis
það, hvað formaðurinn er illa
að sér í þessu máli öllu. Eða
hvernig væri að formaðurinn
læsi sér betur til í nýrri
byggingarreglugerð, sem tók
gildi á miðju ári 1979, en þar er
meðal annars kveðið á um
þarfir fatlaðra.
Að lokum skal það tekið
fram, að það mat Byggingar-
nefndar Reykjavíkur, að það sé
viðhaldi gömlu byggðarinnar
til framdráttar, að reynt sé svo
sem kostur er að styðjast við
þær byggingarreglur, sem ætl-
að er að tryggja nútímafólki
gott og hollt umhverfi, allar
dylgjur um annað eru ekki
svaraverðar.
Ileimildarmenn:
IleÍKÍ lljálmarsson. arkitekt.
(•issur Símonarson. húsasmiðameistari.
Ililmar (>uölauKs.son. múrari.-
Gunnar Hanson. arkitekt.