Morgunblaðið - 07.07.1981, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 07.07.1981, Blaðsíða 17
M0RGUNJ8LAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1981 17 „Til þess að vera hlutverki sínu vaxnir þurfa allir sjálf- stæðismenn að eiga samleið“ Ágætu ferðafélagar. Enn einu sinni hittumst við í Varðarferð. Brátt eru liðnir þrír áratugir frá því að sá dugmikli og hugmyndaríki forustumaður okkar, Birgir Kjaran, gekkst fyrir fyrstu Varðarferðinni, þeg- ar hann var formaður Varðar. Síðan hefur Varðarferð verið nær árlegur viðburður, sem við höfum hlakkað til og notið vel. Ég veit ég mæli fyrir hönd okkar allra ferðafélaganna, þeg- ar ég þakka ferðanefnd Varðar og aðalleiðsögumanninum Ein- ari Guðjohnsen og leiðsögu- mönnum öllum fyrir undirbún- ing að og stjórn í þessari Varð- arferð. Slík ferð sem þessi, þar sem þátttakendur skipta hundr- uðum krefst mikils undirbúnings og skipulags, svo að þátttakend- ur njóti ferðarinnar eins og vera ber og raun hefur orðið í þessari ferð sem í fyrri ferðum. Slíkar ferðir eru okkur sjálf- stæðisfólki og þeim sem vilja eiga með okkur samleið, ómetan- legar. Við kynnumst landinu okkar betur en ella. Við heim- sækjum sögustaði sem opna augu okkar og auka skilning okkar á sambúð þjóðar og lands og lífsbaráttu genginna kyn- slóða. Við skoðum verklegar framkvæmdir og ýmis mann- virki, sem til þess eru fallin að bæta lífskjör fólksins í landinu í framtíðinni. Og síðast en ekki sízt kynnast samherjar og efla vináttubönd, sem verða til að styrkja menn í baráttunni fyrir sigri sameiginlegra hugsjóna. - O - Þetta er ekki í fyrsta skipti, sem áð er í Húsafellsskógi í Varðarferð. Hér fer vel um ferðamenn, enda hafa búsráð- endur að Húsafelli með einstakl- ingsframtaki staðið fyrir fram- kvæmdum og brotið nýjar leiðir til þess að ferðamenn mættu hér njóta landsins, náttúrufegurðar og útivistar til að sækja sér Ræða Geirs Hallgrímsson- ar formanns Sjálfstæðis- flokksins í Varðarferð síðastliðinn sunnudag nýjan þrótt í amstri dagsins. Margir hafa í aldanna rás farið hér um. Einn þeirra merku íslendinga, sem tóku ástfóstri við Húsafell var Ásgrímur Jónsson listmálari. I bókinni „Myndir og minningar", sem Tómas Guðmundsson skáld, færði í letur, segir Ásgrímur „þá er og þarna Eiríksjökull, sem er allra jökla einkennilegastur, nosturlega hlaðinn upp að neð- anverðu, en hvítur hið efra,“ og síðan „Húsafellsskógur er einnig harla sérkennilegur að svip og náttúru. Þar er ekkert líkt því, sem er í öðrum skógum. Hann er óvíða hávaxinn, en skógarsvörð- urinn er ákaflega fallegur og merkilegur, og víða er þar jöfn- um höndum gras og mold, rauð- græn og gul að lit. En umfram allt eru trén þarna með geysi- sterkum persónueinkennum og mörg þeirra bera með sér að hafa háð langa og harða lífsbar- áttu, sem sveigt hefur stofnana á undarlegustu vegu. Sum af þeim komu fyrir sjónir sem væru þau að láta yfirbugast af þjáningu, hrópuðu jafnvel á hjálp, og var þá oft heilmikið rauðleitt í stofninum, eða því líkt sem blætt hefði úr þeim. Önnur tré, ef ti! vill á næstu grösum, teygðu mjúklega úr öllum greinum og breiddu sig móti sól og birtu. Þetta minnti mig iðulega á hlutskipti fordæmdra og út- valdra. í skógarjöðrunum, þar sem lífsbaráttu trjánna gat að líta í einna skörpustu ljósi, mátti einmitt sjá mörg fallegustu trén. Það var eins og ágengni sands og storma hefðu stælt stofnana og gætt yfirbragð þeirra persónu- legri reisn og myndugleik. Og fjölbreytnin var líka ótrúlega mikil. Það var engu líkara en að allar hugsanlegar „manngerðir" ættu sér fulltrúa í þessum kostu- lega skógi og þess vegna var hægt að sækja þangað óþrjót- andi fyrirmyndir. Mér fannst ég þekkja sum þessi tré betur en sjálfan mig, en satt er það, að þau voru ákaflega kenjótt í viðmóti." - O - Já, þeir listamennirnir Ás- grímur og Tómas segja það engu likara en að allar hugsanlegar „manngerðir" eigi sér fulltrúa í þessum kostulega skógi. Við leiðum hér í senn hugann að skógrækt og mannrækt. Markmiðið er hið sama að skapa öllum skilyrði til þroska. Það er einmitt vilji og stefna okkar sjálfstæðismanna að allar hugs- anlegar manngerðir fái að njóta sín, mismunandi hæfileika sinna og kosta, að hlúð sé að hinum veikasta gróðri án þess skorið sé af hinum sterkvaxna og há- vaxna, að enginn sé fordæmdur, og enginn heldur útvalinn, nema fyrir eigin verðleika og framlags í annarra þágu. - O - Á þessu ári hefur athyglin beinzt að málefnum fatlaðra og umræðan snúizt um kjör þeirra og aðstöðu í því samfélagi, sem við búum í. Meginþáttur sjálfstæðisstefn- unnar er trúin á manninn, að sinna verka njóti hver, að fram- tak einstaklingsins muni færa heildinni mestan afrakstur. Það er þjóðfélaginu til framdráttar, að hver og einn, hver, sem staða hans er, fatlaðir sem ófatlaðir, eldri sem yngri, fái að njóta hæfileika sinna og getu og nýta sjálfum sér til góðs og öðrum því um leið. Það er þjóðfélaginu ekki til framdráttar að koma í veg fyrir það með afskiptaleysi eða aðgerðarleysi eða beinum og óbeinum ákvæðum, og hindra menn í því að lifa á þann hátt, að bezt nýtist það, sem þeim er gefið. Hér má ckki koma málum svo fyrir, að þeir sem á einn eða annan hátt þurfa aðstoðar við, verði að biðjast ölmusu í gervi beiningamanns, sem leiti auð- mjúklega aðstoðar hins almátt- uga ríkisvalds, og komi þannig fyrir sjónir sem væru þeir að „látast yfirbugast af þjáningum, hrópuðu jafnvel á hjálp“. Við ætlumst til þess, að fólki séu búin skilyrði til að lifa með reisn sem sjálfstæðir einstaklingar. Við eigum að greiða fyrir fólki aö búa sér skjól í eigin húsnæði eins lengi og það getur. Við eigum ekki að skattleggja hús- næði fullorðins fólks, sem búið er að leggja samfélaginu sitt á langri starfsævi. Við eigum ekki með skattlagningu að koma í veg fyrir að öryrkjar eða fullorðið fólk vilji vinna og fái þá ánægju og tekjur sem vinnunni fylgja. Sjálfstæðismenn vilja hjálpa mönnum til sjálfshjálpar, örva sjálfsbjargarviðleitni fólks eftir því, sem hægt er að koma því við. Við viljum gera öllum kleift að verða sinnar gæfu smiðir. , - O - Ásgrímur Jónsson og Tómas Guðmundsson eru góð dæmi hvernig einstaklingar geta með starfi sínu og lífsferli lyft þjóð sinni í æðra veldi. Fordæmi slíkra manna sýnir, að framlag einstaklingsins er ekki honum einum til fullnægingar og frægð- ar heldur og heildinni fyrst og fremst til upplyftingar. Fáir draga slíkt í efa hér á landi þegar listamenn og lista- verk eiga í hlut, en víða annars staðar, þar sem allt á að lúta einum vilja, boði og banni yfir- valda, gegnir öðru máli. Þar sem sósíalistar eða kommúnistar ráða ríkjum verður listamaður tæki valdhafanna, peð á tafl- borði þeirra. Á sama hátt er einstaklingur- inn drepinn þar í dróma á öðrum sviðum. Hann fær ekki að tjá sig, hann sér ekki hugviti sínu eða framtaki farveg til gagns fyrir sig eða meðbræður sína, vegna þess að stóri bróðir vill hafa hönd í bagga og gæta þess að ekkert haggi valdi hans. En sköpunargáfa mannsins er sama eðlis í atvinnurekstri og sem í listum og vísindum. Menn eins og Thor Jensen, Einar Guðfinnsson og Ingvar Vil- hjálmsson, svo að dæmi séu tekin, hafa gert þjóðinni meira gagn en þeir sjálfir hafa hagn- ast. Það er þó ekki vegna afreks- manna, sem sjálfstæðismenn setja einstaklinginn í öndvegið, heldur vegna fjöldans og þeirrar sannfæringar, að frjálsir ein- staklingar njóti sín bezt sjálfum sér og heildinni til heilla. - O - Þegar einræðisriki, sem boða sósíalisma og kommúnisma, ógna frelsi og friði, ber okkur Islendingum að vera á verði. En hættan getur líka komið innan frá, það er hægt að læðast inn um bakdyrnar hvað þá heldur ef kommúnistum er hleypt inn um aðaldyr og leyft að auka áhrif sín svo að ríkis- forsjá sitji þannig yfir hlut manna, að þeir megi ekki neyta hæfileika sinna eða hug\its nema með leyfi eða fyrifram gerðri áætlun stjórnvalda. Kynni þá svo að fara, að um menn fari eins og trén í Húsa- fellsskógi “og var þá oft heilmik- ið rauðleitt í stofninum eða því líkt sem blætt hefði úr þeim". Það er hlutverk sjálfstæð- ismanna að koma í veg fyrir, að slíkt, sem annars staðar hefur skeð, geti átt sér stað hér. Það er hlutverk sjálfstæðis- manna að skapa skilyrði fyrir því, að mannlífið líkt og grózku- mestu trén teygi mjúklega úr öllum greinum sínum og breiði sig á móti sól og birtu. Til þess að vera þessu mikil- væga hlutverki sínu vaxnir þurfa allir sjálfstæðismenn að eiga samleið eins og við í dag. Með þetta í huga óska ég okkur öllum góðrar ferðar. Á þeim mæddi undirhúningur og framkvæmd ferðarinnar. Frá hægri: Sigfrið óiafsson. Einar Þ. Guðjohnsen, aðalleiðsögumaður, Guðmundur Jónsson, formaður ferðanefndar, Halldór Friðriksson, Gisli Jóhannsson, Gunnar Hauksson og Ottó örn Pétursson. Friðjón Þórðarson, dómsmála- Þórir Lárusson, formaður Varð- ráðherra. ávarpar ferðaiangana í ar, kvaddi menn á siðasta án- Húsafeili. ingarstaðnum i Brynjudal. Hér sjást þau hjónin Erna Ragnarsdóttir og Gestur ólafsson. Wffl

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.