Morgunblaðið - 07.07.1981, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1981
47
Fjármálaráðuneyti:
Kjaraávinning lækna má
meta að meðaltali 19%
Fjármálaráðunoytinu, reiknast
til. að meta mogi kjaraávinning
lækna. vejína nýgerðs samkumu-
lags þeirra við ráðuneytið á
bilinu 11 — 23%, en að meðaltali
um 19%. ojí er þá miðað við að
matcn aukavinnu o|{ vakta verði
óbreytt ok ckki tekið tillit til
þeirrar tekjurýrnunar, sem lækn-
ar urðu fyrir í maí og júní.
í frétt frá ráðuneytinu segir
ennfremur, að mjög erfitt sé að
reikna út heildartekjuhækkun
lækna, sem af samningum leiði
vegna þess hve einstök samnings-
ákvæði snerti einstaklinga mis-
mikið, bæði hvað varði starfsald-
ur, menntun og vaktir.
Þá segir:
„Þann 24. júní sl. var gengið frá
samkomulagi milli fjármálaráð-
herra f.h. ríkissjóðs og Læknafé-
lags íslands f.h. sjúkrahúslækna í
Reykjavík um breytingar á gild-
andi kjarasamningi o.fl.
Samningur þessi fól ekki í sér
almennar grunnkaupshækkanir
til lækna. Þess í stað var reynt að
leiðrétta og lagfæra ýmis önnur
kjaraatriði, sem þegar eru fyrir
hendi í samningum annarra laun-
þegahópa. A undanförnum árum
hafa engar umtalsverðar breyt-
ingar verið gerðar á framan-
greindum samningi við lækna
umfram þær almennu grunn-
kaupshækkanir sem Kjaradómur
hefur dæmt þeim, en annað launa-
fólk hefur fengið. Á sama tíma
hafa aðrir viðsemjendur ríkisins
fengið umtalsverðar kjarabætur í
formi ákvæða sem ekki fólu í sér
grunnkaupshækkanir. Þannig
voru læknar orðnir á eftir öðrum
stéttum að þessu leyti.
Nýgerðir samningar við lækna,
sem gerðir voru við erfiðar að-
stæður, fólu í sér leiðréttingu á
framangreindum atriðum."
Bræðurnir Jón og ómar Ragnarssynir á Renault Alpine.
Enn vinníj. bræðurn-
ir Jón og Ómar rallý
BRÆÐURNIR Jón og Ómar
Ragnarssynir unnu Ilúsavik-
urrallýið sem haldið var um
hclgina. Óku þeir á Renault
Alpine. í öðru sæti lentu aðrir
bra-ður. Gunnlaugur og Ragnar
Bjarnasynir. en þeir óku á Ford
Escort og í þriðja sæti voru þeir
Eggert Þór Sveinbjörnsson og
Magnús Jónasson á Mazda
RX-7
25 bílar lögðu af stað frá Hótel
Húsavík klukkan sex á laugar-
dagsmorgun en aðeins tæpur
helmingur, eða 12 bílar, náði að
Ijúka keppni. Ekið var fram í
Aðaldal, að Brúum og út
Hvammsheiði til Húsavíkur og
svo út Tjörnes um Kelduhverfi
og austur í Öxarfjörð og komið
aftur til Húsavíkur á hádegi.
Síðan var ekið fram Aðaldal,
Reykjadal, um Mývatnssveit,
niður Laxárdal, út Hvammsheiði
og upp í Reykjahverfi og upp á
Reykjaheiði og síðan komið til
Hótels Húsavíkur klukkan sex
að kvöldi eftir um 450 kílómetra
akstur. Vegna snjóa var ekki
hægt að aka austur yfir Reykja-
heiði eins og áður hefur verið
gert.
Það gekk ýmislegt á í þessu
fjórða Húsavíkurrallýi, enda
ómar Ragnarsson á Ilúsavík.
hafa afföll sjaldan verið meiri.
Það helsta sem kom fyrir var að
Hafsteinn Hauksson og Kári
Gunnarsson á Ford Escort veltu
bílnum sem þeir voru á, þannig
að hann er talinn ónýtur en
sjálfir hlutu þeir aðeins smá-
vægilegar skrámur.
Hellissandur:
Ungur maður
beit nefið af sam-
borgara sínum
FJÖRTÍU og sex ára gamall
maður varð fyrir hrottafenginni
árás á heimili sínu á Hellissandi
aðfaranótt laugardagsins 27.
júní sl. Tveir menn brutust inn i
húsið, sem hann býr í, og er
maðurinn reyndi að koma þeim
út réðist annar þeirra, 23 ára
gamall Hellissandsbúi, á hann og
beit af honum stóran hluta af
nefi hans. Afbitni hlutinn hékk
aðeins á smátaug og maðurinn
missti mikið blóð. Ilann komst til
læknis sem saumaði nefið á, en
óvist er hvort hann heldur þvi,
þar sem mannsbit eru mjög
hættuleg vegna sýkingarhættu
og hefst sárið nú illa við.
Tildrög málsins voru þau, að
sögn lögreglunnar í Ólafsvík, að
mennirnir höfðu rifist fyrr um
kvöldið. Það jafnaði sig þó, og
kvöddust þeir sáttir síðla kvölds
og maðurinn sem varð fyrir bitinu
gekk til sængur. Síðar um nóttina
kom ungi maðurinn ásamt félaga
sínum í húsið á ný, eins og fyrr
segir, og er maðurinn reyndi að
koma þeim út gerði hann sér lítið
fyrir, réðst á hann og beit af
honum hluta af nefinu með
fyrrgreindum afleiðingum.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar í Ólafsvík er málið enn í
rannsókn. Sárið hefst illa við og
verður ekki ljóst fyrr en eftir
10—12 daga hvort hann heldur
nefinu. Bakkus mun hafa átt hér
hlut að máli. Lögreglan vinnur
enn að rannsókn málsins.
Dr. Þór Jakobsson:
Veðurstofu kunnugt um langtíma-
spár bandarísku veðurstofunnar
Hestamanna-
mótið á Ilellu:
Of mikið gert
úr vandræðum
VEGNA fréttar Mbl. á sunnudag
um ólæti á hestamannamóti við
Ilellu um helgina hafði Svcinn
Ísleifsson lögreglumaður samband
við Mbl. og taldi fréttina vera ýkta.
nokkuð hefði að vísu verið um
drykkjuskap, en hann hefði ekki
verið til vandræða.
Sveinn Isleifsson sagði 3 menn
hafa verið tekna úr umferð um stund
vegna drykkjuláta og einn maður
hefði skorist á augabrún af glerbroti
og hann hefði áfram verið á staðn-
um, en hann hefði ekki fengið
glerbrot í auga og verið fluttur burt
eins og í fréttinni stóð. Þá sagði
hann lögregluna hafa gert allt sem í
hennar valdi stóð til að öll skipu-
lagning væri sem bezt og sagði hann
hestamenn hafa verið ánægða með
hlut lögreglunnar. Taldi Sveinn
heimildamann blaðsins hafa gert of
mikið úr vandræðum, sem voru ekki
stórvægileg.
BANDARÍSKA veðurstofan hef-
ur látið fara frá sér langtímaspá
um veðurfar í Norður-Evrópu,
þ.m.t. ba-ði ísland og Noregur.
Eins og áður hefur komið fram i
fréttum Morgunblaðsins gerir
spáin ráð fyrir slæmum júlímán-
uði með hitafari undir meðallagi
og meiri rigningu en vant er.
I þessu sambandi sneri Mbl. sér
til dr. Þórs Jakobssonar deildar-
stjóra hafísrannsóknadeildar Veð-
urstofu íslands. Sagði hann að
þótt það mætti eiginlega teljast
hálfgert ríkisleyndarmál, væri svo
mál með vexti, að fylgst væri með
þessum spám við Veðurstofu Is-
lands. „Sannleikurinn er bara sá,
að spárnar eru á tilraunastigi og
er því alls ekki tímabært að
tilkynna þær almenningi, t.d. með
sama hætti og hinar fullkomnari
spár um veður næstu daga.
Borgþór H. Jónsson deildar-
stjóri veðurstofunnar á Keflavík-
urflugvelli fær spárnar á veður-
stofu flotans þar syðra og veður-
fræðingar hafísrannsóknadeildar
Veðurstofu íslands athuga þær
síðan einnig og kanna eftir því
sem þurfa þykir. Hægt er að
gerast áskrifandi að spánum og
munum við bráðlega fá þær beint
frá Bandaríkjunum."
Að sögn dr. Þórs fylgja þessum
langtímaspám varnaðarorð og er
varað við að gleypa við þeim án
gagnrýni. „Er það til vitnis um
þekkingu manna á þessu rann-
sóknasviði, að ekki skuli vera
mark takandi á spám, eða öllu
heldur ágiskunum, fullkomnustu
veðurstofu í heimi.
Mér hefur lengi verið kunnugt
um þessar spátilraunir eða frá því
er ég vann við svipuð verkefni á
Veðurstofu Kanada í Toronto. Við
buðum þangað einu sinni deildar-
stjóra bandarísku langtímaspá-
deildarinnar til skrafs og ráða-
gerða. Við spár þessar eru notaðar
ýmsar aðferðir, ekki allar jafn
virðulegar satt að segja, og sumt
jafnvel útkljáð með formlegri at-
kvæðagreiðslu þriggja veðurfræð-
inga sem vinna saman að næstu
spá.
Hins vegar fara fram miklar
rannsóknir á þessu sviði um allan
heim, ekki síst í sambandi við
svonefnt „World Climate Pro-
gram“, sem er allsherjarskoðun á
veðurfari jarðarinnar og árstíða-
sveiflum í veðurfari. Rannsókn
þessi á að styðjast við athuganir
um gervallan hnöttinn í tvo ára-
tugi og verður áður en yfir lýkur
umfangsmesta framtak vísinda-
sögunnar. Tillaga hvers lands í
þessari áætlun um veðurfar jarð-
arinnar eru yfirleitt verkefni sem
teljast brýn heima fyrir hvort sem
er. Að tilstuðlan Hlyns Sig-
tryggssonar veðurstofustjóra tek-
ur Island þátt í þessu samstarfi."
I tengslum við langtímaspárnar
sagðist dr. Þór hafa í hyggju að
kanna, hvort tengja mætti fyrri
tilraunir sínar í Kanada við stað-
setningu hafísjaðars í Norður-
Atlantshafi. „I þessum tilraunum
var reynt með tölfræðilegum að-
ferðum að spá um breytingar í
hinni almennu hringrás and-
rúmsloftsins yfir norðurhveli
jarðar. Rannsókn þessi verður í
samvinnu við kanadíska vísinda-
menn.“
Dr. Þór sagði ennfremur að í
ágúst yrði alþjóðleg ráðstefna um
langtímaspár haldin í Hamborg í
Þýskalandi. „Var stungið upp á
því við þá, sem fengist höfðu við
rannsóknir á þessu sviði, að hitt-
ast og bera saman bækur sínar.
Þar verða fulltrúar stórveldanna í
þessum rannsóknum, en auk
Bandaríkjanna verða þar til dæm-
is Rússar og Japanir. Það verður
fróðlegt að kynnast þar nýjustu
framförum og vindhöggum í þess-
ari forvitnilegu grein veðurfræð-
innar.
Langtímaspár Bandaríkjanna
hafa sem sagt um árabil verið
kunnar á Veðurstofu Islands, og
áður fyrr munu þær reyndar hafa
borist þangað beint öðru hverju.
Samanburður við veður á íslandi
og nágrenni hefur verið gerður,
eða reyndar könnun á því hvernig
spárnar hafa ræst. Veðurfræð-
ingarnir Markús Einarsson og
Eiríkur Sigurðsson hafa báðir
fengið neikvæða útkomu úr þeim
samanburði. En hvað um það,
hver veit nema veðurfræðingar
með áframhaldandi rannsóknum
taki framförum í því að sjá fyrir
veðrið næstu þrjá mánuði, en slíkt
er reyndar mjög flókið rannsókn-
arefni,“ sagði dr. Þór Jakobsson að
lokum.
Leiðrétting
ÞAU MISTÖK urðu í frétt um
sumarferð Frikirkjusafnaðarins í
Morgunblaðinu síðastliðinn sunnu-
dag að rangt var farið með dagsetn-
ingu. Hið rétta er að sumarferð
Fríkirkjusafnaðarins verður farin
næstkomandi sunnudag, 12. júlí.
Morgunblaðið biður hlutaðeigandi
velvirðingar á þessum mistökum.