Morgunblaðið - 07.07.1981, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 07.07.1981, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ1981 r, • HamaganKur á Hóli gæti þessi mynd GB frá viðureiftn Hauka og IBI í 2. deild heitið. Réttara nafn væri þó hamagangur á Hvaleyri, því þar fór leikurinn fram. ÍBÍ sækir þarna að marki Hauka og gengur mikið á. Jóhann tryggði ÍBÍ jafntefli JÓHANN Torfason tryggði Is- firðingum annað stigið gegn Haukum í 2. deild íslandsmótsins í knattspyrnu á Hvaleyrarholt- inu um helgina með þvi að jafna leikinn, 1:1, úr tvitekinni vfta- spyrnu á lokamínútum leiksins. Ilaukar voru sterkari aðilinn lengst af og hefðu átt skilið að hljóta ba-ói stigin. enda léku þeir nú sinn bezta leik i sumar. ísfirðingar voru á hinn hóginn óvenju slakir og virtust jafnvel ekki hafa áhuga á að hafa stig með sér heim, en sennilega hefur það stafað af vanmati á andstæð- ingnum. Fyrri háifleikur var fremur tíðindalítill og fátt um góð færi, leikurinn fór að mestu fram á vallarmiðjunni og reyndu bæði liðin síðan að stinga knettinum fram á hina fljótu framherja sína án verulegs árangurs. Þegar um stundarfjórðungur var liðinn af leiktímanum skoruðu Haukar svo sitt eina mark. Isfirðingum mis- tókst þá að hreinsa frá markinu eftir háa sendingu inn í vítateig þeirra og boltinn hrökk fyrir Haukar: IBI fætur Þórs Hinrikssonar, sem skoraði örugglega af stuttu færi. Við markið sóttu Haukarnir í sig veðrið og sóttu nokkuð stíft og nokkru síðar komst Loftur einn inn fyrir vörn Isfirðinganna, en skot hans geigaði. Jón Oddsson komst litlu síðar einn í gegn um vörn Haukanna, en markvörður þeirra var vel á verði og hirti boltann af tám Jóns. I seinni hálfleik sóttu bæði liðin á víxl og ógnaði Jón Oddsson marki Haukanna talsvert með hraða sínum, en fyrsta góða færið féll í skaut Haukamanninum Ein- ari Einarssyni, er Sigurður Jóns- son, markvörður Isfirðinga, varði frá honum af stuttu færi. ísfirð- ingar sóttu síðan í sig veðrið og um miðjan hálfleikinn varði Guð- mundur hörkuskot þeirra í horn og litlu síðar komst Haraldur Leifsson í gegn en aftur var Guðmundur vel á verði og bjarg- aði með úthlaupi. Er 2 mínútur voru til leiksloka skallaði Jón Oddsson að marki Haukanna og sáu varnarmenn þeirra ekki annað ráð vænna en að verja með höndum og dæmdi góður dómari leiksins, Ragnar Örn Pétursson, umsvifalaust vítaspyrnu. Það kom í hlut Jóhanns Torfasonar að taka spyrnuna, en Guðmundur varði hana laglega. Eftir að hafa ráð- fært sig við línuvörðinn lét Ragn- ar endurtaka spyrnuna og skoraði Jóhann þá örugglega og tryggði liði sínu þar með annað stigið. Haukar léku að þessu sinni einn sinn bezta leik í sumar og hefðu verðskuldað bæði stigin. Af leik- mönnum þeirra bar mest á Guð- mundi Hreiðarssyni, Einari Ein- arssyni og Lofti Eyjólfssyni. ísfirðingar voru slakir að þessu sinni og heppnir að hljóta annað stigið, en þeir Haraldur Stefáns- son, Jón Oddsson, Jóhann Torfa- son, Örnólfur Oddsson og Sigurð- ur Jónsson voru mest áberandi að þessu sinni. — HG. Reykjavíkurliðið sigraði þá 3—0, og i 2. deildar-keppninni um helgina lék liðið aftur sama leikinn, sigraði öðru sinni, 3—0, og var það sanngjarn sigur eins og i fyrra tilvikinu. Gestirnir voru þó nokkuð frískir í fyrri hálfleiknum, eða að minnsta kosti framan af honum. Það fór þó þegar í stað að syrta í álinn, er heimaliðið skoraði fyrsta mark sitt. Það var á 35. mínútu leiksins og gamla brýnið, Sverrir Brynjólfsson, að verki. Sverrir var frískur í leiknum og á 3. mínútu síðari hálfleiks færði hann sér í nyt mistök í vörn Norðfjarðarliðs- ins og skoraði örugglega annað markið. Þar með var björninn unninn og Þróttu N. gaf ekki frá sér múkk eftir það. Arnar Frið- riksson bætti þriðja markinu við á 64. mínútu, ódýrt mark svo ekki sé meira sagt, skallaði knöttinn í fallegum boga aftur fyrir sig og yfir markvörð Þróttar eftir langt innkast Páls Ólafssonar. Varn- armenn og markvörður horfðu í rólegheitum á knöttinn sniglast inn fyrir marklinuna. — KK ÞRÓTTUR frá Reykjavik mætti nafna sínum frá Neskaupstað á laugardaginn í annað skiptið á fáeinum dögum. Fyrr i vikunni höfðu liðin mæst á Laugardals- vellinum i bikarkeppni KSÍ. ÞrótturR.: Q.n Þróttur N. • Sverrir Brynjólfsson skorar annað marka sinna. i Ljá«i.. xb. Endurtekið efni hjá Þrótti og Þrótti Einstefna ÍBK gaf enga uppskeru ÍBK og Reynir mættust í 2. deild íslandsmótsins í knattspyrnu í gærkvöldi og mættust þar tvö efstu lið 2. deiidar. Áhorfendur voru milii 1100 og 1200 talsins, sem er það mesta sem fylgst hefur með leik þar syðra í sumar. Leikurinn var ekkert sérstakur, of mikil einstefna heimaliðsins til þess að hafa mætti gaman af. Til að kóróna allt, tókst liði ÍBK ekki að Ijúka sóknarlotum sinum á sæmandi hátt þrátt fyrir mý- mörg tækifæri. Leikurinn var reyndar ekki sér- lega ójafn í fyrri hálfleik, reyndar sóttu heimamenn meira, en færin komu ekki eins ört og í þeim síðari. Reynismenn voru reyndar tvívegis nálægt því að skorá í fyrri hálfleik, upp úr hornspyrnu á 7. mínútu og upp úr aukaspyrnu á 35. mínútu. Steinar fékk bestu færi ÍBK í fyrri hálfleik, en tókst ekki að skora. Sókn ÍBK þyngdist til muna í síðari hálfleik og um tíma rak hvert færið annað. Ragnar Mar- geirsson, sem lék með IBK á ný, einlék í gegn og brenndi af, hann skallaði naumlega fram hjá og Jón ÍBK: Reynir Örvar varði tvívegis hörkuskalla hans. Sigurjón Sveinsson Reynis- maður bjargaði af línu, mjög glæsilega, á 83. mínútu og Jón Örvar varði snilldarlega þrumu- skot Óla Þórs, auk þess sem „mörk“ Einars Ásbjörns og Óla Þórs voru dæmd af vegna rang- stöðu. Herslumuninn vantaði hjá ÍBK, en staða Reynis er býsna sterk í deildinni. Jón Örvar var besti maðurinn á vellinum, Sandgerðismarkvörður- inn bjargaði hvað eftir annað glæsilega og hélt um tíma liði sínu á floti. Einnig átti Sigurjón Sveinsson mjög góðan leik. Bestir hjá IBK voru Gísli Eyjólfsson og Óskar Færseth. Tveir menn voru bókaðir í leiknum, Jón G. B. Jónsson og Óskar Magnússon hjá Reyni. Vig./gg. Dýrmætur sigur Selfyssinga SELFYSSINGAR sóttu óvænt tvö dýrmæt stig til Borgarness um helgina en þeir sigruðu lið Skallagríms 1—0 í leik liðanna í 2. deild ísiandsmótsins. Mark sitt, sem jafnframt var eina mark ieiksins, skoruðu Selfyssingar úr vítaspyrnu, eftir að einn leik- manna þeirra hafði verið felldur við mark Borgnesinga. Leikur- inn var annars nokkuð jafn og fór hann fram í blíðskaparveðri á mölinni í Borgarnesi. Fyrri hálfleikur þróaðist þannig að heimamenn sóttu mun meira fyrstu 30 mínúturnar án þess að veruleg hætta skapaðist við mark aðkomuliðsins, á meðan völlurinn dugði Selfyssingum tæplega því útafspyrnur virtist þeirra sér- grein. Garðar Jónsson skallaði að marki Selfyssinga eftir langt inn- kast Sigurgeirs á 10 mín en Anton í markinu varði auðveldlega laus- an boltann og á 21. mínútu átti Garðar aftur möguleika eftir fal- legan stungubolta Helga Ásgeirs- sonar innfyrir vörn Selfyssinga, en skaut framhjá. Síðustu 15 mínútur hálfleiksins snerist taflið alveg við. Allt fór í pat í Borgarnesvörninni og Sel- fyssingar sköpuðu sér hættuleg tækifæri t.d. þegar Ámundi skaut í stöng á 34. mínútu og þegar Júlíus varði hörkuskot frá einum Selfyssinganna á 37. mínútu. Síðari hálfleikur byrjaði með mikilli baráttu en litlum árangri hjá báðum liðum. Sóknarmönnun- um gekk illa þegar þeir nálguðust mark andstæðinganna, en ágætir samleikskaflar sáust þó hjá báð- um liðum. Þegar á leikinn leið STAÐAN Staðan i 1. Víkingur UBK Akranes Valur Fram ÍBV KA Þór KR FH 10 10 10 10 10 9 9 10 10 10 14:5 11:4 10:5 19:10 10:12 13:11 9:10 6:17 6:13 11:20 Skallagr. — Selfoss virtust Skallagrímsmenn frekar vera að ná tökum á leiknum en allt stefndi þó í markalaust jafn- tefli, en þá, þegar 7 mínútur voru eftir, kom það hjá Selfyssingum sem allt þetta snýst um, þ.e. mark. Einn Selfyssingur slapp innfyrir varnarmúr Skallagrímsmanna en átti eftir markmanninn sem virt- ist vera búinn að loka markinu, en þá kom einn varnarmanna Skalla- gríms aðvífandi og skellti Sel- fyssingnum og dómarinn dæmdi umsvifalaust víti sem Þórarinn skoraði örugglega úr. Einstaklega klaufalegt hjá Borgnesingum. Selfyssingar virðast vera að fá kjarkinn aftur eftir háðuglegt gengi til þessa og er ekki ólíklegt að þessi sigur gefi þeim þann byr sem þeir þurfa í erfiðu botnbasli. Skallagrímsmenn byrjuðu mót- ið vel, fengu 5 stig af fyrstu 6 mögulegum, en af síðustu 10 mögulegum hafa þeir aðeins feng- ið 1 og tap núna á heimavelli fyrir langneðsta liði deildarinnar segir sína sögu. Mörkin láta á sér standa, sóknarmennirnir hafa alls ekki verið nægjanlega ákveðnir við mark andstæðinganna og hlýt- ur þjálfari þeirra að fara að huga að breytingum á uppstillingu liðs- ins. Tveir Selfyssingar fengu að sjá gula spjaldið fyrir kjafthátt og einn Skallagrímsmaður fyrir hrindingu. STAÐAN Staðan i 2. deiid er nú: Keflavík 8 621 14-5 12 Reynir 8 4 40 8-2 12 Þróttur R. 8 43 1 10-2 11 ÍBÍ 8 43 1 13-8 11 Vöisungur 8 4 22 12-8 10 Skallagr. 8 224 5-7 6 Fylkir 8 224 6-10 6 Haukar 8 134 5-14 5 Þróttur N. 8 125 6-12 4 k ” VIUUU 8 116 2-13 3 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.