Morgunblaðið - 07.07.1981, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ1981
Fjórðungsmót sunnlenskra hestamanna á Rangárbökkum:
Kirkjubæjarhrossin slógn í gegn
r
Það voru Kirkjuhvjarhrossin sem komu. sáu og sijfruðu á þessu móti. Hér
sést Bergur Jónsson ríóa einu Kirkjubæjargerseminu, Brynju 5093, í dóm
á fyrsta degi mótsins.
ófeigur 882 frá Flugumýri stóð efstur í flokki sex vetra stóðhesta og
eldri. Hann hlaut í einkunn fyrir byggingu 7,80 og 8,32 fyrir hæfileika
sem gera 8,06 i aðaleinkunn.
Efstur í A-flokki gæðinga var Glæsir frá Glæsibæ, hlaut hann í einkunn 8,55. Knapi á Glæsi er Gunnar Arnarson. Glæsir er lcngst til vinstri á
myndinni. Næst honum er Eriing Sigurðsson á Frama sem varð annar. Þá kemur Sigurður Sæmundsson á Þór. Bragi Andrésson er næstur Sigurði á
Kveik. Eyjólfur ísólfsson á Hofstaða-Brún, Skúli Steinsson á Rauða-Núp, Ágúst Sigurðsson á Stefni og síðast Eyþór Öskarsson á Hofnar.
-N
Sjó af átta efstu gæðingum i B-flokki eru frá vinstri talið: Hrimnir varð i áttunda sæti, knapi er Jóhann B. Guðmundsson, Huginn i sjöunda sæti, knapi
er Margrét Jónsdóttir, þá er næstur Skuggi, knapi er Sigurður Sæmundsson, þá Steinunn, knapi á henni er Skúli Steinsson, þá Muggur og knapi á
honum er Sigurbjörn Bárðarson, og þá Haki. knapi á honum er Maja Loebell, lengst til hægri er svo Vængur sem Jóhann Friðriksson á og situr.
Vængur hlaut í einkunn 8.57. Á myndina vantar Krumma, en hann varð i fimmta sæti.
EINS og venja er beinast
augu manna, sem fylgjast
með kynbótastarfi í
hrossarækt, hvað mest að
afkvæmasýningum á fjórð-
ungs- og landsmótum. Af-
kvæmadómur er hinn eini
og sanni dómur sem kyn-
bótahross fá.
Að þessu sinni voru sjö hross
afkvæmasýnd, fimm stóðhestar og
tvær hryssur. Efstur af stóðhest-
um var Kolbakur 730 frá Gufu-
nesi. Er þetta í annað sinn sem
hann er afkvæmasýndur, en hann
var sýndur á síðasta fjórðungs-
móti sem haldið var á Hellu 1976.
Hlaut hann þá önnur verðlaun. í
umsögn dómnefndar um afkvæmi
Kolbaks segir m.a.: Afkvæmin
skiptast í tvö horn, sum þung og
grófgerð, önnur skaplegri á vöxt,
fá eru fríð. Fætur eru sterklegir,
einkum að framan, en liðskekkjur
finnast og eru þau full nágeng að
aftan. Hófar eru sterkir og efnis-
góðir. Reiðhestskostir eru miklir,
brokkið og skeiðið vel rúmt og
afkastamikið, en töltið síst. Vilj-
inn er nægur, lundin er gæf og
traust en þung. Einkunn fyrir
byggingu 7,87 og fyrir hæfileika
8,03. Aðaleinkunn 7,93. Kolbakur
hiýtur 1. verðlaun fyrir afkvæmi.
Það væsti ckki um áhorfendur á
fjórðungsmótinu þar sem þeir flat-
möguðu á áhorfendastæðunum og
sleiktu sólskinið. Og í þetta sinn
lét Hekla það kyrrt liggja að
reyna að stela senunni frá hesta-
mönnum, eins og hún gerði i fyrra.
Efstur f jögurra vetra stóðhesta var
Röðull frá Hvoii í Ölfusi. Röðull er
undan Ófeigi 818 og Möðru 3993
frá Árbæ. Hann hlaut í einkunn
7,66.
Aðrir hestar á afkvæmasýningu
voru Sveipur 874 frá Rauðsbakka
sem fékk í aðaleinkunn 7,75 og
hlaut önnur verðiaun. Kolbakur
826 frá Egilsstöðum fékk í ein-
kunn 7,72 og hlaut önnur verðlaun.
Hrafnkell 858 frá Ólafsvöllum
fékk einkunnina 7,69 og önnur
verðlaun. Mósi 773 frá Prestshús-
um hlaut í einkunn 7,62 og hlaut
önnur verðlaun. Hryssurnar tvær
er voru sýndar hlutu báðar önnur
verðlaun, en þær eru Hrönn 3013
frá Hæli með 7,66 í einkunn og
Skjóna 5069 frá Ystabæli og hlaut
hún 7,61 í einkunn.
Af stóðhestum í sex vetra flokki
og eldri stóð efstur Ófeigur 882 frá