Morgunblaðið - 07.07.1981, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ1981
5
Árni Sigfússon, formaður Heimdallar:
Þarf að gera Heimdall aftur
að virku félagi ungs fólks
ÁRNI Sigfússon blaðamaður var kjörinn formaður Heimdallar,
samtaka ungra sjálfstæðismanna í Reykjavik, á aðalfundi
féiagsins sem haldinn var sunnudaginn 10. maí síðastliðinn. Árni
er 24 ára gamall og er því í hópi yngri formanna Heimdallar, en
hann lauk prófi frá Kennaraháskóla ísiands í vor.
Árni er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum, en fluttist til
Reykjavíkur 1969. Árni er kvæntur Bryndísi Guðmundsdóttur og
eiga þau rúmlega ársgamla dóttur. Biaðamaður Morgunbiaðsins
heimsótti Árna fyrir skömmu og var Árni fyrst spurður að því
hvenær áhugi hans á stjórnmálum hefði vaknað.
Síðasta stjórn úrræðalaus
„Áhugi fyrir stjórnmálum hefur
alltaf verið fyrir hendi hjá mér.
Ég gekki í Heimdall fyrir 5—6
árum, en þó ég hafi gengið þetta
seint í félagið er það síður en svo
til marks um það að áhugi minn
hafi ekki verið fyrir hendi. Það
var mikið rætt um stjórnmál á
mínu heimili, en þó vissi maður
aðallega af sjálfstæðis- og fram-
sóknarlínunni, en ég vildi kynnast
öllum hliðum málsins. Það var
síðan ekki fyrr en í menntaskóla
sem ég sannfærðist um hvar réttu
leiðina var að finna og hvaða flokk
var best að styðja, til að ná fram
sínum stefnumiðum. Það var þá
sem minn flokkspólitíski áhugi
vaknaði fyrir alvöru."
— Hvað varð til þess að þú
gafst kost á þér til formennsku í
Heimdalli?
„Ég taldi það ljóst að mikil þörf
væri á að gera gangskör að því að
efla starfið frá því sem var á
síðustu árum og gera Heimdall
aftur að virku pólitísku félagi
ungs fólks. Þessi hugsun var
grundvöllurinn að framboði mínu.
Kosningabaráttan fór fram í
fjölmiðlum að miklu leyti að þessu
sinni og þess vegna virkaði hún
harðari en hún var í raun og veru.
Hvað ástandið í Heimdalli varð-
ar þá þarf ekki annað en að líta á
skýrslu síðustu stjórnar til að
gera sér grein fyrir því hvernig
ástandið í félaginu var orðið. Með
þessu er ég ekki að gagnrýna
aðgerðarleysi stjórnarinnar sér-
staklega, heldur fyrst og fremst
það úrræðaleysi sem skín í gegn-
um skýrsluna. Þetta úrræðaleysi
var orðið mjög áberandi í félaginu.
Sumir félagsmenn héldu því jafn-
vel fram að vegna hins pólitísks
ástands og vandamála flokksins
væri starf í Heimdalli erfitt eða
ógerlegt!
Vissulega er þetta ástand í
flokknum ekki til fyrirmyndar, en
það er síður en svo ástæða til þess
að leggja upp laupana þess vegna.
Sú er afstaða mín og ein ástæðan
fyrir því að ég gaf kost á mér til
formennsku. Jafnvel á þessum
eina og hálfa mánuði sem liðinn er
frá kosningunum, held ég að ýmsir
félagar mínir sem voru á þessari
úrræðaleysislínu, sjái eins og ég
alla möguleika á öflugu starfi í
Heimdalli. Við sjáum nú strax að
félögum í Heimdalli fjölgar ört.
Stjórnin hefur tekið inn í félagið
nýja félaga á hverjum stjórnar-
fundi sem hún hefur haldið hingað
til. Að vísu er oft lægð í starfi
pólitískra félaga á sumrin, en nú
er undirbúningsstarfið í Heim-
dalli í fullum gangi, að minnsta
kosti miðað við það sem verið
hefur."
Félagsaðstaða í
kjallara Valhallar
— í hverju er starf Heimdallar
fólgið um þessar mundir?
„Fyrst og fremst erum við að
undirbúa okkur fyrir veturinn. Við
höfum til dæmis verið að vinna að
útgáfu tveggja blaða núna; sjávar-
útvegsblað Heimdallar er þegar
komið út og ferðamálablað er
væntanlegt fljótlega. Einnig höf-
um við haldið vel heppnað félags-
málanámskeið. Útgáfa blaðanna
er fjáröflunarleið fyrir félagið og
verðum við að nýta það fé sem við
fáum inn með þeim hætti, til þess
að greiða upp skuldir félagsins frá
fyrri stjórn, sem eru um 20
þúsund krónur, og mun nú skuld
að fullu greidd í sumar. Einnig
munu félagar í Heimdalli vinna
við ýmis störf til þess að ná endum
saman.
Þá er það stefna þessarar
stjórnar að byggja upp félagsað-
stöðu í kjallara Valhallar. Þetta er
mál sem talað hefur verið um
lengi, allt frá því Valhöll var
byggð, en minna hefur verið um
framkvæmdir. í kjallaranum eru
góðir möguleikar á að koma upp
félagsaðstöðu, sem er mjög nauð-
synleg til að hægt verði að sinna
ýmsum verkefnum, t.d. fundar-
höldum, samkomum og kynning-
um. Ég finn það að mikill skiln-
ingur er á þessu máli hjá fram-
kvæmdastjcra Sjálfstæðisflokks-
ins, Kjartani Gunnarssyni, og
öðrum þeim sem um þetta mál
fjalla. Vegna þess skilnings sem
þetta mál nýtur er ég bjartsýnn á
að það verði komið vel á veg í
haust. Hins vegar hefur fjárskort-
ur staðið þessu fyrir þrifum, en ef
það tekst að leysa þann vanda, er
félagsheimili okkar í sjónmáli."
Vinna borgina úr
höndum vinstri manna
— Hvað með starfið þegar til
framtíðarinnar er litið?
„Stjórn Heimdallar er kosin til
eins árs og verkefni þessarar
stjórnar númer 1, 2 og 3 er að
vinna Reykjavíkurborg úr hönd-
um vinstri manna. Við höfum
rúma tíu mánuði til þess, en mér
segir svo hugur um að það verði
ekki erfitt verk, ef fólk gerir sér
grein fyrir þeirri sundrung og
óstjórn sem tröllríður borginni
um þessar mundir og mun reynast
það eina sem eftir þennan meiri-
hluta liggur. Þetta verður megin-
verkefni okkar og í þetta mun
meginkraftur okkar fara. Mér
finnst það vera eðli málsins sam-
kvæmt að ungt fólk sameinist um
að fella þennan meirihluta, ekki
síst þegar menn sjá „afrakstur"
gerða þeirra manna sem mismuna
fólki í skjóli einhverrar mælistiku.
Starf okkar að þessu máli mun
byggjast á útgáfustarfsemi og
fundum og við munum leggja
áherslu á það að ungt fólk í
Reykjavík þekki borgina sína. Til
að stuðla að þessu munum við efna
til kynninga og funda og reyna að
sameina gaman og alvöru, til þess
að gera pólitískt starf eins
skemmtilegt og það raunverulega
getur verið."
Gnn ein blekkinjra-
stjórnin
— Hver er skoðun þín á stöðu
landsmála um þessar mundir?
„Ef pólitíkin eins og hún birtist
í dag er skoðuð, þá verður það
deginum ljósara að þessi ríkis-
stjórn er enn ein blekkingastjórn-
in og stendur hún sig vel í því
hlutverki. Verðbólgan er óleyst
vandamál sem fyrr og er vandan-
um aðeins velt á undan sér með
sífelldum bráðabirgðalausnum.
Árni Sigfússon
Við búum við falskt gengi,
úrræðaleysi í orkumálum, en sá
málaflokkur er undirstaða þess að
ungu fólki verði sköpuð atvinnu-
tækifæri í framtíðinni. Ráðherr-
arnir eru hverjum öðrum hæfari í
því að útbúa litla gjafapakka í
skrautlegum umbúðum, sem síðan
verða til óþurftar þegar þeir eru
opnaðir og athugaðir. Eitt dæmið
um þetta er þegar skammtímalán-
um var breytt í langtímalán. Þetta
lítur vel út í byrjun, en verður því
erfiðara, eftir því sem lengra
Uður.
Almenn lán til húsbyggjenda
eru stórum skert, þannig að það
eru ýmist hátekjumenn eða menn
á bænum sem efni hafa á að
byggja."
Stefna Sjálfstæðis-
flokksins fyrir
borð borin
„Eins og ég hef minnst á eru
gallar þessarar ríkisstjórnar svo
miklir og framkvæmdir hennar
svo andstæðar stefnu Sjálfstæðis-
flokksins, að ungt sjálfstæðisfólk
getur í raun ekki stutt þessa
stjórn. Ég get hins vegar skilið að
fólk geti borið tímabundið traust
til síns þingmanns, sem látið
hefur leiða sig í samstarf með
Alþýðubandalagi og Framsóknar-
flokki í ríkisstjórn. En það fólk
mun fyrr eða síðar átta sig á því
að stefna Sjálfstæðisflokksins
vegur þyngra en einstakir menn
og persónulegur stuðningur við þá.
Við skulum heldur ekki gleyma
því með hvaða hætti þessi ríkis-
stjórn varð til. Það réðu ekki
stefnumál, þau voru ekki í fyrir-
rúmi. Það er líka eina skýringin á
því að Alþýðubandalagið hrósar
sér af störfum sínum í ríkisstjórn-
inni og telur að það hafi þar tögl
og hagldir. En það er fullljóst að
stefna Sjálfstæðisflokksins hefur
verið fyrir borð borin af þessari
stjórn.
Þegar forsætisráðherra hefur
verið gagnrýndur með þessum
hætti, hefur hann jafnan svarað
því til að nánast allt það sem
ríkisstjórnin hafi framkvæmd,
hafi einnig verið gert í þeim
ríkisstórnum sem Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur átt aðild að. En
slíkar yfirlýsingar eru einungis
enn eitt töfrabragðið. Til þess að
fá raunhæfan samanburð á þessu
verða menn að bera saman þjóð-
félagsaðstæður á hverjum tíma og
átta sig á því að Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur lært af reynslunni.
Stefna hans er miðuð við fyrri
reynslu og flokkurinn gerir því
yfirleitt ekki sömu mistökin tvisv-
ar. Enda hefur það ekki gerst að
ríkisstjórn sem Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur átt aðild að, hafi gert
varnarmálin að aukaatriði sem
hægt hefur verið að nota í póli-
tískum hrossakaupum.
Það er grundvallarstefna Sjálf-
stæðisflokksins að hver einstakl-
ingur eignist sitt eigið húsnæði og
það hefur aldrei komið fyrir að
Sjálfstæðisflokkurinn hvikaði frá
því stefnumiði sínu. Ég er ekki að
tala um að flokkurinn sé á móti
því að þeim sé liðsinnt sem
einhverra hluta vegna geta ekki
komið sér upp þaki yfir höfuðið,
gagnrýnin snýst ekki um það, —
hinar félagslegu byggingar geta
átt rétt á sér. Én að slíkar
byggingar skuli reistar á kostnað
hins almenna húsbyggjanda, dug-
mikilla einstaklinga sem skapa
þetta þjóðfélag, það er gagnrýnis-
vert. Fyrst ríkisstjórnin treystir
sér til að byggja 'h hluta allra
þeirra íbúða sem byggðar verða, á
félagslegum grunni og veita til
þess 90% lán, þá hlýtur hún að
treysta sér til þess að veita ungu
fólki sem ætlar að byggja sér
húsnæði í fyrsta sinn 80% lán,
miðað við byggingarkostnað. I
þessu efni er ekki um getuleysi að
ræða, heldur viljaleysi, viljaleysi
sjálfstæðismanna í ríkisstórn til
að framkvæma stefnu flokksins,
því annars væru þeir ekki í þessari
stjórn.“
AKÍLVSIM.A-
SIMINN ER: