Morgunblaðið - 07.07.1981, Page 10

Morgunblaðið - 07.07.1981, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1981 Skemmti-, fiski- og trúboðsbáturinn Bravó flytur fólk kring um Heimaey og lítur við í sjávarhellana þar sem allir regnbogans litir leika sér i hvelfingum og sindrandi sœ. Faxakeppni í golfi er landskunn, en þarna er mynd af elzta og yngsta þátttakandanum, Júliusi Snorrasyni á Hliðarenda. sem er 77 ára gamall og Þorsteini sem er 11 ára. Þessi ungi maður, Guðmundur, var i óða önn að hjálpa bróður sinum að mála fasteignina, fannst ekki vanþörf á, en hins vegar er ekki víst að bróðurnum hafi líkað hjálpin. Reyndar er billinn úr sér genginn. Eyja- syrpa frá sumar- dögum Sigurgeir Ijósmyndari okkar í Vestmannaeyj- um sendi okkur eina syrpu frá mannlífstil- þrifum gesta og gang- andi í Eyjum, en eins og gengur er sífellt sitthvaö viö aö vera í Eyjum úti. Tveir ungir málarar taka til hendinni i skuttogaranum Sindra, en Eyjamenn hafa löng- um tekið daginn snemma i þjálf- un fólks til vinnu. Þessi sérkennilega mynd af Afr- iku-filnum var tekin í hringferð Herjólfs kring um Heimaey á hvitasunnudag, en fíll þessi sem er nokkrir tugir metra á hæð blasir við i Ægisdyrum í Blátindi. spurt og svarad Lesendaþjonusta MORGUNBLAÐSINS Hafliði Jónsson garðyrkjustjóri svarar spurningum lesenda um garðyrkjumál Lerkitré Brynhildur Eggertsdóttir, Akureyri, hringdi og spurði hve stór lerkitré mættu vera til flutnings svo að góður árangur næðist og hve lengi frameftir sumri megi flytja þau. Eru skilyrðin betri fyrir lerkið t.d. á Hallormsstað en á Akureyri? SVAR: Það er erfitt að segja til um það hvað lerki má vera orðið hávaxið, svo að vel geti tekist með flutning þess. Þar veldur miklu um hvernig að flutningi þess er unnið og einnig úr hvernig jarðvegi það er tekið auk þess sem fleira getur haft veru- leg áhrif á það hvernig til tekst. En þeim mun smærra sem það er, þeim mun auðveldara er það við flutning. Reynslan er sú hér syðra að heppilegast sé að flytja lævirkjatré seint á sumrin eða rétt fyrir barrfall trésins. Um samanburð á vaxtarmögu- leikum lerkis á Hallormsstað og Akureyri treysti ég mér ekki til að dæma, en hygg þó að þar sé ekki mikill munur á. Um Gullsóp í svari mínu sem birtist í blaðinu 2. júlí til Sigríðar í Vesturberginu þar sem hún spyr m.a. um hvaða áburð sé best að nota á Gullsóp varð mér það á að rugla saman Gulisóp og Gullhrís og gefa Sigríði svör sem áttu við Gullhrísinn. í sjálfu sér ætti þetta ekki að koma að verulegri sök, því báðar þessar plöntur gera litlar kröfur til áburðar. En með því að ég hef nú áttað mig á vangá minni, vil ég þó leiðrétta mistök mín. Gullsópur er svo nýtilkominn runni í görðum hér, að tæplega.er áratugur liðinn frá því að fyrstu plönturnar bárust hingað fyrir tilstilli Kristins Guðsteinssonar garðyrkjufræð- ings sem hefur með leit sinni að harðgerðum garðagróðri auðgað garðflóruna okkar um fjölda tegunda. Gullsópur eða CYTISUS PURGANS er af belgjurtaætt og getur orðið all myndarlegur runni með sóleyjargulum smá- um blómum er nánast þekja allar greinar runnans seinni hluta sumar ef tíðarfarið er honum hentugt. Runninn verður að fá mikla sól svo að hann geti þrifist. Hann þolir t.d. vind og nepju mun betur en skugga. Virðist geta dafnað hvarvetna þar sem hann fær næga birtu, enda kominn frá Pyreneafjöllum úr 2000 metra hæð. Best virðist Gullsópurinn kunna við sig í sendnum, jafnvel lítið eitt grýttum jarðvegi, og þarf engan áburð. Fjölgað með sumargræðlingum. Hvernig á ad skipta bóndarós? Kristín Ingólfsdóttir, Engja- vegi 30, Selfossi, hringdi og spurði hvernig ætti að skipta bóndarós og á hvaða tíma það væri best. SVAR: Bóndarós mun vera best að skipta í september og má skera hana í sundur með hníf og gæta þess eins að sem haganlegast sé skorið og að eitt brum fylgi hverjum hluta. Rétt væri að þvo partana upp úr sveppalyfinu ORTHOCID áður en þeir eru settir á ný í mold. Að öðru leyti vísast til fyrri upplýsinga um bóndarósina, sem hér hafa komið fram í þessum svörum nú nýverið. Meðhöndlun tómatplöntu Ásdis Kristjánsdóttir, hringdi og langaði til að vita hvernig hún ætti að meðhöndla tómatplöntu, hvernig hún ætti að klippa hana og hvernig hún ætti að geyma hana í vetur. Sagðist hún hafa gróðurhús. SVAR: Það er ekki miklum erfiðleik- um bundið að rækta tómat- plöntu í gróðurhúsi. Hún þarf að vísu snöggtum meiri áburð og aðra umönnun en kartöflur, og þá einkum næga vökvun. Þá þarf að veita henni góðan stuðning (binda hana upp). Einnig að klippa alla axlarsprota sem vaxa milli stofns og blaðstilks. Best er fyrir Ásdísi að kaupa sér plöntu síðla vetrar og sá sjálf í ársbyrj- un. Það borgar sig engan veginn fyrir hana að reyna við endur- nýjun þeirrar plöntu sem borið hefur ávexti. Hvernig á að gera safnþró? Sigurveig Hauksdóttir, Áls- völlum 6, Keflavík, hringdi og sagði að fyrir framan húsið hjá henni væri fimm ára gamall venusvagn í tveimur löngum beðum. I öðru beðinu eru nokkrar plöntur sem ekki hafa náð nema 10 sm hæð í sumar meðan að hinar eru komnar í 40 til 45 sm hæð. Hvað veldur þessu? Vantar eitthvað? Hvernig á að gera sér safnþró. Er gras sett í hana. En áburður? Hvernig er hænsnaskítur sem áburður á tré og blóm? SVAR: Hugsast getur að olía eða salt hafi hafnað í þeim hluta beðsins sem lakar vex í. Þetta er þó tilgáta. Sigurveig mætti prófa eftir að hún les þessar línur að gefa einn hnefa af blönduðum garðáburði uppleystum í ylvolgu vatni á þær plöntur sem dregist hafa aftur úr, það gæti hjálpað þeim að ná hinum. Þessi skammtur ætti að duga á tíu plöntur. Ef þetta dugir lítið, þá þarf hún að setja húsdýraáburð með venusvagninum sínum í haust og þó sérstaklega þeim plöntum sem bágast eiga. Safnhaugaþró má gera með ýmsum hætti, en best fer á að slá saman timburgrind í stíu er heldur utanað ruslinu sem safn- að er saman. Arfi, hey og hverskonar lífræn úrgangsefni mega fara saman í safnhauginn. Helst þarf að ummoka haugn- um einu sinni eða tvisvar og ágætt er að bæta í hann áburð- arkalki og sandi um leið. Rotn- unin byggist eðlilega mest á hitastigi loftsins og er ákaflega hæg yfir veturinn. Nokkuð getur flýtt fyrir ef hafður er regnþétt- ur hleri yfir haugstíunni. Venju- lega er góð mold ekki fengin fyrr en haugurinn hefur staðið í tvö sumur. Hænsnaskítur getur verið ágætur áburður á tré, en þarf að notast hóflega á blóm og svo er með allan húsdýraáburð ef hann er nýlegur, og rétt er að undir- strika að húsdýraáburður má aldrei liggja fast að berki trjáa né runna. Er stokkrós vandmeðfarin? Sigriður Meldal, Kársnes- braut, hringdi og sagði að henni hefði verið gefin stokkrós sem væri á fyrsta ári. Er vandmeðfarið með hana og má hún vera í sólríkum glugga eða úti í garði? Eru þær ein-, tví- eða fjölærar?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.