Morgunblaðið - 07.07.1981, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1981
11
ósjaldan eru stanKveiðimót i Eyj-
um, enda stutt á miðin til allra
átta og þarna eru þeir að draga
þann gula skammt undan Bjarn-
arey þar sem alltaí er veiði von.
Horft út úr Stórhöfða, en þangað
*sigiir snekkjan Bravó daglega
inn í fjósin sem eru ægifagrir
sjávarheliar.
Er hægt að klippa hana eftir
blómstrun og píanta út með
græðlingum. Hve oft á að vökva
hana og bera áburð á hana?
SVAR:
Rösk þrjátíu ár eru síðan ég
gerði ítrekaðar tilraunir með
ræktun stokkrósa og mér tókst
aldrei að fá þær til að blómstra.
Spurning Sigríðar varð til þess
að ég kannaði hjá starfsbróður
mínum sem ég vissi að fylgdist
með ræktun áhugafólks, hvort
komið hefðu fram ný stokkrósar- '
afbrigði sem auðveldari væru í
ræktun en þau gömlu sem hér
voru kunn á mínum yngri árum.
En eftir því sem næst verður
komist er svo ekki. Stokkrós
(Althaea rosea) sem oftast er
seld hjá fræsölum er venjulega
ræktuð sem einær, en er í eðli
sínu tvíær á sama hátt og
stjúpmæður. Er þá sáð til henn-
ar síðla vetrar febrúar-marz og
getur hún orðið allt að einum
metra að hæð á fyrsta ári og
blómstrað síðla sumars. Þarf
stuðning ef hún er höfð úti, en
hér er fágætt að hún nái þá að
blómstra, en meiri von til að hún
nái blómmyndun sé hún yfir-
vetruð á frostfríum stað.
Fjölgun getur farið fram með
græðlingum sem teknir eru síðla
sumars (í ágúst-september).
í garðagróðri (útgáfu 1950) er
einnig getið um tvær álitlegar
mölvur eða stokkrósir sem eru
fjölærar og þá höfðu verið
reyndar hér og nefndar eru
moskusrós og kisurót. Eins og að
framansögðu má ráða, eru
stokkrósir erfiðar í ræktun utan-
húss og reyndar er nauðsynlegt
að þær hafi skjólsælan og sólrík-
an stað. Venjuleg garðmold
hentar þeim vel og áburður líkt
og á matjurtir. Þeir sem hafa
góða aðstöðu t.d. gróðurhús ættu
að ná góðum árangri í ræktun
stokkrósa. Hæfilegt er að hafa
um 10 til 12 plöntur á hverjum
fermetra og betra að láta fáeinar
plöntur standa saman.
Tjónið í febrúaróveðrinu:
Garðyrkjubændur langeygir eftir aðstoð
BorKarneNÍ, 7. júli.
EINS og flestum er í fersku
minni urðu miklar skemmdir
i febrúar síðastliðnum af
völdum ofsaroks sem gekk
yfir landið. Garðyrkjubænd-
ur urðu einna verst úti i
þessu óveðri, gróðurhús eru
viðkvæmar byggingar og
skemmdust á flestum stöðum
eitthvað og sumsstaðar fóru
heilu stöðvarnar meira og
minna í rúst. Gróður í þessum
stöðvum skemmdist einnig,
þó misjafnlega mikið. Sum-
staðar stóð ekki ein einasta
planta eftir i heilu stöðvun-
um. Samfara þessu er siðan
mjög tilfinnanlegt afurðatjón
hjá garðyrkjubændunum i
sumar.
Engar tryggingar náðu yfir
þetta tjón en garðyrkjumenn-
irnir urðu að bregðast skjótt
við að bjarga því sem bjargað
varð og varð það þeim mjög
dýrt. Til dæmis tóku sumir
það ráð að kaupa plöntur
erlendis frá og þurftu að
greiða af þeim há aðflutnings-
gjöld, sem ekki fengust felld
niður. Þetta tjón hafa menn
reynt að taka á sig en hefur
reynst mörgum erfitt eða nán-
ast ofviða svo við hefur legið
að einstaka maður gefist upp.
Sérstaklega var erfitt fyrir
frumbýlinga að ná sér á strik
aftur, þar sem þeir eru margir
með þunga skuldabagga á sér
vegna uppbyggingar stöðva
sinna.
Garðyrkjubændunum var
heitið því að þeim yrði hjálpað
en nú er komið á fimmta
mánuð og ekkert farið að sjást
til þeirrar aðstoðar og eru
menn orðnir langeygir eftir að
staðið verði við gefin loforð.
Á síðustu dögum Alþingis
nú í vetur mun hafa verið
samþykkt að Bjargráðasjóður
veitti lán til þeirra sem urðu
fyrir tjóni, fyrir miklum hluta
tjónsins, en ekkert bólar á að
hrinda málinu í framkvæmd.
Á meðan þetta mál hefur
verið að veltast í kerfinu hafa
garðyrkjubændur sem og aðrir
tjónþolar þurft að bjarga sér
með skuldasöfnun og vandinn
eykst eftir því sem lengra
líður. Er ekki kominn tími til
að stjórnvöld taki á sig rögg í
þessu máli og hrindi því í
framkvæmd?
IIBj
UMBOÐSMENN A ISLANDI
REYKJAVÍK:
Gúmmlvinnustofan, Skipholti 35
Otti Sæmundsson, Skipholti 5
Höfðadekk sf., Tangarhöfóa 15
Hjólbarðastööin, Skeifunni 5
BORGARNES:
Guösteinn Sigurjónss., Kjartansg. 12
ÓLAFSVÍK:
Maris Gilsfjörð
BÚÐARDALUR:
Dalverk hf.
BÍLDUDALUR:
Versl. Jóns Bjarnasonar
ÍSAFJÖRÐUR:
Hjólbarðaverkstæöi
Björns Guðmundssonar, Suöurgötu
BOLUNGARVÍK:
Vélsmiðja Bolungarvfkur
HVAMMSTANGI:
Björn Bjarnason
VÍÐIDALUR:
Vélaverkst. Vfóir, Vlðihllð
BLÖNDUÓS
Hafþór Si
SAUÐÁRKRÓKUR:
Kaupf. Skagfirðinga
HÓFSÓS:
Bllaverkst. Pardus
DALVÍK:
Bllaverkstæði Dalvlkur
ÓLAFSFJÖRÐUR:
Bflav. Múlatindur
SIGLUFJÖROUR:
Ragnar Guðmundsson
AKUREYRI:
Hjólbarðaþj., Hvannarvöllum 14B
Höldur sf., Tryggvabraut 14
KELDUHVERFI:
Vélaverkst. Har. Þórarinssonar
Kvistási
EGILSSTAÐIR:
Dagsverk sf.
Véltækni sf.
NESKAUPSSTAÐUR:
Bifreiðaþjónustan
ESKIFJÖRÐUR:
Bifreiðaverkst. Benna og.Svenr
REYÐARFJÖRÐUR:
Bifreiðaverkst. Lykill
STÖÐVARFJÖRÐUR:
Sveinn Ingimundarson
KIRKJUBÆJARKLAUSTUR:
Gunnar Valdemarsson
VÍK, MÝRDAL:
Hjólbarðaverkstæóið
FLÚÐIR:
Viög.verkstæðið, Varmalandi
SELFOSS:
Kaupfél. Árnesinga
VESTMANNAEYJAR:
Hjólbaröastofa Guðna
ÞORLÁKSHÖFN:
Bifreiðaþjónustan
HVERAGERÐI:
Bjarni Snæbjörnsson
GRINDAVÍK:
Hjólbaróaverkstæði Grindavlkur
KÓPAVOGUR:
Sólning hf., Smiðjuv. 32
HEKIAHF
Laugavegi 170-172 Sími 21240